Vísir


Vísir - 22.04.1959, Qupperneq 7

Vísir - 22.04.1959, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 22. apríl 1959 VlSIR Ætlaði að kenna glímu í Austurstræti. Kennstan var mísskilin og hlaut kenn- arinn bit í þakkarskyni. Skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt var lögreglan í Reykjavík kvödd á vettvang vegna slagsmála í Austurstræti. Þegar á orustuvöllinn kom var bardaganum að vísu lokið, en þar var fyrir útlendingur nokkur, sem eitthvað kunni þó í íslenzku máli og gat gert sig skiljanlegan á þeirri tungu. Haijn sagði sínar farir ekki sléttar, því á sig hefði verið ráðist af mikilli heift og kvað ákveðinn mann hafa verið þar að verki, sem enn var nær- staddur og gat útlendingurinn bent á hann. Lögreglumennirnir gripu nú árásarmanninn glóðvolgan og færðu hann í lögreglustöðina. Við yfirheyrslu skýrði árásar- maðurinn frá því að hann hafi ætlað að kenna útlendingnum íslenzka glímu og lagt á hann bragð, að vísu með þeim af- leiðingum að útlendingurinn hafi skollið flatur í götuna En hann hafi misskilið herfi- lega þessa íþróttakennslu og staðið í þeirri meiningu að þetta væi árás í illu skyni gerð. Enda þakkirnar sem hann fékk fyrir kennsluna ekki annað en bit í hendina og auk þess flutning- ur með lögregluvaldi í lög- reglustöðina. Þrír í árekstri. Á sunnudaginn var lögregl- an kvödd á gatnamót Grettis- götu og Vitastígs vegna á- reksturs sem þar hafði orðið. Á meðan lögreglumennirnir voru að athuga aðstæður og gera mælingar sínar bar að þriðji bíllinn, sem rakst á ann- an árekstursbílinn. Skemmdir urðu miklar á öllum bílunum. Slys. í fyrradag var sjúkrabifreið fengin til þess að flytja dreng sem hafði verið hjólríðandi í Ingólfsstræti, en dottið af hjól- inu. Hann fékk taugaáfall. Sama dag meiddist kona, farþegi í jeppabíl, en jeppanum hafði verið ekið aftan á pall vörubifreiðar. Konan skrám- aðist. Á laugardaginn varð 4ra ára drengur fyrir bíl í námunda við Hálogaland. Drengurinn hlaut skrámur á andlit og var fluttur í sjúkrabifreið í slysa- varðstofuna. Eldur í skipi. í fyrradag kviknaði í botn- vörpungnum Brimnesi þar sem hann lá í Reykjavíkurhöfn. Hafði olía lekið úr leiðslum niður í kyndingarstæði og varð af mikið bál. Slökkviliðinu var strax gert aðvart, en jafnframt gripu skipverjar dekkslöngu og dældu vatni á eldinn. Voru þeir að mestu búnir að slökkva þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Innbrot að Álafossi. Á sunnudagskvöldið var hringt frá Álafossi til lögregl- unnar í Reykjavík og hún beð- in að sækja pilta, sem grunað- ir væru um að hafa framið inn- brot þar efra. Þetta voru piltar um tvítugt, sem játuðu á sig innbrotið og höfðu þeir stolið þar úr verzluninni sælgæti og vindlingum. Sovétstjórnin — Framh. af 1. síðu. ef það sannaðist að Sovétríkin ætluðu sér að hrinda af stað heimsstyrjöld, yrði öllum til- tækum vopnum beitt. A.B. undirróðurs- miðstöð. Willy Brandt yfirborgarstjóri V.-Berlínar sagði í London í gær að Austur-Berlín væri ein mesta undirróðursmiðstöð Sov- étríkjanna og kommúnista, og þaðan væri rekinn áróður ætl- aður til áhrifa í skandinavisku löndunum. Hann kvaðst sam- þykkur því, að rannsökuð væri undirróðursstarfsemi í allri Ber- lín (báðum borgarhlutunum). Dalai lama kommn til Mussori í Himalayafjöllum. Koimatúnistar tgetá ehhi Uulið eeiði síntt. Dalai Mussori til Lama er kominn í Himalayafjöllum. — Indlandsstjórn hefir látið hann fá þar hús til umráða og séð öllu fylgdarliði hans fyrir hús- næði. Kínverska kommúnista- stjórnin hefir birt svar við greinargerð Dalai Lama um at- burðina í Tíbet og er enn við það heygarðshornið, að hann hafi verið þvingaður til að fara úr landi. Minnt er á, að Kína hafi náð völdum í Tíbet þegar á 13. öld og talað er um hið svokallaða „sjálfstæði Tíbets“, og endurtekið, að það verði að engu virt.. Fréttir berast um, að Tíbetar séu fluttir á brott í'fangeisi eða þrælkunarvinnu. Nokkurrar gremju þykir kenna í garð Indverja og er það spá margra, að dvöl Dalai Lama á Indlandi muni verða þess valdandi, að sambúðin milli Kína og Indlands spillist, vegna afstöðu kommúnista- stjórnarinnar kínversku. Getur hún lítt dulið reiði sína. Johan Rönning b.l. Raflagnir og viðgerðlr á öllum heimilistækjum. — Fljót og vönduð vinna. Sími 14320. Johan Rönnlng h.f. Frlðrik 50,30 m. í krínglukasti. Á innanfélagsmóti K.R. s.I. laugardag náði Friðrik Guð- mundsson sínum bezta árangri í kringlukasti (50,30 b). Næstur varð Þorsteinn Löve, Í.R., með 48.28 m (einnig mjög gott) og þriðji „hástökkvarinn“ Jón Pétursson með 43,92 m, sem er 7. bezta kringlukastsaf- rek íslendings frá upphafi. Jón kom einnig á óvart í kúluvarpinu, sem hann vann á 14,48 m eða 1 metri lengra en hann hafði náð bezt áður. IMýja Bíó: Hengiflugið. Nýja Bíó sýhír kl. 7 og 9 á Sumardaginn fyrsta kvikmynd- ina HENGIFLUGIÐ (The River’s edge), ameríska mynd frá 20th Century Fox og er hún í litum og af cinemascorpe- gerð. Aðalhlutverk eru leikin af Ray Milland, Debra Paget, Anthony Quinn. Kvikmynd þessi er sögð mjög spennandi. Kl. 3 og 5 verður sýnd kvik- myndin HUGRAKKUR STRÁKUR (,,Smiley“), skemmtileg mynd frá London Film, sem gerist í Ástralíu. Aðalhlutverkið leikur Colin Petefsen, 10 ára strákur. Mynd fyrir alla og ekki sízt börnin. Þessar tvær sýningar tilhcyra Barnadeginum. tl Sœjarþéttir Kaffisala Skógarmanna. Skógarmenn K.F.U.M. hafa undanfarin ár gengizt fyrir kaffisölu í húsi K.F.U.M. og K. á sumardaginn fyrsta. Þeir munu ekki bregða þeim vana að þessu sinni. Á morg un gefst því Reykvíkingum kostur á ilmandi kaffisopa með gómsætum kökum í húsi K.F.U.M. að afloknum hátíðahöldum barna í mið- bænum. Margir unnendur sumarstarfsins í Vatnaskógi hafa á liðnum árum fengið sér hressingu hjá Skógar- mönnum fyrsta sumardag, og mun svo eflaust verða að þessu ginni. Allur ágóði af kaffisölunni fer til styrktar sumarstarfinu. Skógarmenn efna einnig til samkomu annað kvöld í K.F.U.M. Ungir og gamlir Skógar- menn^munu koma þar fram og annazt dagskrána. Það hefur jafnan verið húsfyllir hjá Skógarmönnum sumar- daginn fyrsta og verður svo eflaust nú. Kaffisopi verður einnig fáanlegur eftir sam- komuna. Eimskipafélag íslands: Dettifoss kom til Helsingfors á laugardag — fer þaðan til Ventspils og Kaupmanna- hafnar. Fjallfoss fór frá London í fyrradag til Ham- borgar og Rotterdam. Goða- foss fór frá Reykjavík kl. 20.00 í gærkvöld til Húsa- víkur og Akureyrar. Gull- foss er í Kaupmannahöfn. Lagarfoss fer frá New York í dag til Reykjavíkur. Reýkjafoss fór frá Hamborg ACGLÝSING ii íii skoðnn biírciða í lögsagnariimdæmí Kc^kjavíkui' Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér með, að aðal«* skoðun bifreiða fer fram 24. apríl til 6. ágúst n.k., að báð-o- um dögum meðtöldum, svo sem hér segir: bí Föstud. 24. apríl R-1 til R-150 Mánud. 27. — R-151 — R-300 Þriðjud. 28. — R-301 — R-450 Miðvikud. 29. — R-451 — R-600 Fimmtud. 30. — R-601 — R-750 Mánud. 4. maí R-751 — R-900 Þriðjud. 5. — R-901 — R-1050 Miðvikud. 6. — R-1051 — R-1200 Föstud. 8. — R-1201 — R-1350 Mánud. 11. — R-1351 — R-1500 Þriðjud. 12. — R-1501 — R-1650 Miðvikud. 13. — R-1651 — R-1800 Fimmtud. 14. — R-1801 — R-1950 Föstud. 15. — R-1951 — R-2100 Þriðjud. 19. — R-2101 — R-2250 Miðvikud. 20. — R-2251 — R-2400 Fimmtud. 21. -— R-2401 — R-2550 Föstud. 22. — R-2551 — R-2700 Mánud. 25. — R-2701 — R-2850 Þriðjud. 26. — R-2851 — R-3000 Miðvikud. 27. — R-3001 — R-3150 Fimmtud. 28. — R-3151 — R-3300 Föstud. 29. — R-3301 — R-3450 Mánud. í. júrií R-3451 — R-3600 Þriðjud. 2. — R-3601 — R-3750 Miðvikud. 3. — R-3751 — R-3900 Fimmtud. 4. — R-3901 — R-4050 Föstudag 5. — R-4051 — R-4200 Mánud. 8. — R-4201 — R-4350 Þriðjud. 9. — R-4351 — R-4500 Miðvikud. 10. — R-4501 — R-4650 Fimmtud. 11. — R-4651 — R-4800 Föstud. 12. — R-4801 — R-4950 Mánud. 15. — R-4951 — R-5100 Þriðjud. 16. — R-5101 — R-5250 ' Fimmtud. 18. — R-5251 — R-5400 Föstud. 19. — R-5401 — R-5550 Mánud. 22. — R-5551 — R-5700 Þriðjud. 23. — R-5701 — R-5850 Miðvikud. 24. — R-5851 — R-6000 Fimmtud. 25. — R-6001 — R-6150 Föstud. 26. — R-6151 — R-6300 Mánud. 29. — R-6301 — R-6450 Þriðjud. 30. — R-6451 — R-6600 Auglýsing um skoðunardag bifreiða frá R-6601 til R-10450 verður birt síðar. Skoðun á bifreiðum, sem eru í notkun hér í bænum, en. skrásettar annars staðar, fer fram 4. til 15. maí. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar til bif- reiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og verður skoðun framkvæmd. þar daglega, kl. 9—12 og kl. 13—16,30, nema föstudaga til kl. 18,30. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram full- gild ökuskírteini. Sýna ber skilriki fyrir því, að bifreiðaskattur og vátrygg- ingariðgjald ökumanna fyrir árið 1958 séu greidd, og lög- boðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. Hafi gjöld. þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til gjöldin eru greidd. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á rétt- um degi, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 21. apríl 1959. SIGURJÓN SIGURÐSSON. í gær til Hull og Reykjavík- ur. Selfoss kom til Ilafnar- fjarðar um hádegi í gær frá Vestmannaeyjum. Trölla- foss fór frá Leith á sunnudag til Reykjavíkur. Tungufoss fór frá Vestmannaeyjum á sunnudag til Lysekil, Gauta borgar, Kaupmannahafnar og Rostok. Skipadeild SÍS: Hvassafell fór 29. þ. m. frá Reykjavík áleiðis til Ant- werpen. Arnarfell fór 17. þ. m. frá Reykjavík áleiðis til Rotterdam. Jökulfell er í Amsterdam. Dísarfell fór 18. þ. m. frá Keflavík áleiðis til Gautaborgar. Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. : Helgafell er í Þorlákshöfn. Hamrafell fór 17. þ. m. frá Reykjavík áleiðis til Batum. Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla er á ísafirði. Askja er ■ væntánleg til-Napoli í dag.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.