Vísir - 22.04.1959, Side 12

Vísir - 22.04.1959, Side 12
„v. ™ Ekkert blað er ódýrara í óskrift en Vísir. Litið tinnii færa yður fréttir og annað leatrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-GO. VISIR Miðvikudaginn 22. apríl 1959 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Sovétstj órnin hefnr í hót- unnm við Bonn§tjórnina. Ekkert samkomulag um Berlfn, ef Nato lætur í té kjarnorkuvopn. Sovétstjórnin hefur sent stjórn sambandslýðveldisins vesturþýzka orðsendingu og varað . hana við afieiðingum þess, ef framkvæmd verði á- form Norður-Atlantshafsvarn- arbandalagsins um að búa V.-Þ. k jarnorkuvopnum. Slíkt gæti haft þær afleið- ingar, segir í orðsendingunni, að fyrirfram væri komið í veg fyrir, að árangur næðist af fundi æðstu manna um vandamálin. Þá er og leidd athygli að þeirri tortímingu, sem yfir V.- Þ. gæti vofað, ef þar væru kjarn orkuvopnabirgðir og kjarnorku- vígbúnaður. Áhúginn að dofna. Ekki liggja enn fyrir umsagn- ir í ritstijórnargreinum um þessa seinustu orðsendingu sovét- stjórnarinnar til V.-Þ., en sú skoðun hefur komið fram hjá sumum þeirra, sem um alþjóða mál skrifa, að ekki sé víst hve sterkur hugur fyígi máli hjá Rússum, er þeir ræði nauðsyn á fundi æðstu manna o. s. frv. — það gæti komið í ljós, að á- huginn dofnaði á seinustu stundu, ef þeir sæju, að þeir gætu ekki haft allt sitt fram. Berlín aðalmálið. Einn af ritstjórum Sunday Times í London flutti erindi í útvarp í morgun og komst að þeirri niðurstöðu, að Berlín yrði aðalmálið á fundum þeim, sem ákveðnir eru í vor og sumar, en undirbúningur að þeim væri nú kominn á lokastig, með viðræð- um Willy Brandts yfirborgar- stjóra Vestur-Berlínar við brezka ráðherra, og auk þess er að Ijúka 10 daga viðræðum sér- fræðinga Vesturveldanna til undirbúnings fundunum og sam ræmingar stefnu þeirra, og þar hefur allt fallið í ljúfa löð, en það er tvennt ólíkt, að sérfræð- ingar nái samkomulagi og stj órnmálamennirnir, sagði rit- Zimmermann í Jósefsdal á morgnn. Á morgun, sumardaginn fyrsta, hefjast skíðaæfingar í .Tósefsdal undir stjórn liins frækna austurríska skíðamanns Egon Zimmermanns, og standa æfingarnar fram yfir helgi. Um síðustu helgi leiðbeindi Zimmermann við æfingar hjá K.R.-skálanum, og tóku þátt í þeim fjölmargir úr skíðafélög- unum í Reykjavík. Að loknum æfingunum í Jós- efsdal, eða um helgina, verður mót, þar sem koma fram marg- ir af snjöllustu skíðamönnum landsins. Ferðir verða farnar á mótið frá B.S.R. stjórinn, og fór því næst að ræða þann mun, sem er á skoð- unum Vestur-Þjóðverja og Frakka og flestra Bandaríkja- manna annars vegar, og Breta hins vegar. Afstaða hinna fyrri væri að vera ákveðnir og slaka ekkert til, nema gegn jafnmik- ilvægum tilslökunum af Rússa hálfu ,og þeir hafa vantrú á til- lögum Breta varðandi frystingu vígbúnaðar. Flugferðirnar. Hann kvað Breta einnig hafa ótrú á háloftsflugferðunum á þessu stigi. Hann kvað þær án efa til undirbúnings loftbrúar, ef til þyrfti að taka, og myndi verða að fara 10 slíkar ferðir á dag til birgðaflutninga handa 10.000 manna liði Vesturveld- anna þar og öðrum vestrænum fulltrúum og starfsliði- — og slíkum flutningum væri unnt að halda uppi árum saman. — Fyrirlesarinn kvaðst ekki vilja drága upp of dökka mynd, en hann væri vantrúaður á nokk- urt samkomulag varðandi sam- einingu Þýzkalands, en það gæti hins vegar orðið til þess, að eithvert samkomulag yrði gert um Berlín. Hann spáði því, að fundir æðstu manna yrðu eins tíðir í framtíðinni eins og fundir utanríkisráðlíérra hafa verið á undangengnum tímum. Skoðun Herters. Herter utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í gær að leiðtogar Sovétríkjanna væru að sínu áliti svo raunsæir, að þeir vildu ekki kjarnorkustyrj- öld. Hann kvað Bandaríkja- menn ekki myndu grípa til kjarnorkuvopna út af Berlín, en Framh. á 7. síðu. Skfúðganga skáta á nsorgun. Að venju ganga skátarnir fylktu liði í kirkju á sumar- daginn fyrsta, skátarnir í Dómkirkjuna og ylfingar og ljósálfar í Fríkirkjuna. Gengið verður um þessar götur: Snorrabraut, Eiríksgötu, Barónsstíg, Freyjugötu, Óðins- götu, Skólavörðustíg, Banka- stræti, Austurstræti, Aðal- stræti, Vesturgötu, Ægisgötu, Túngötu, Hofsvallagötu, Hring- braut, Suðurgötu og Kirkju- stræti í Dómkirkju, en ylfing- ar og ljósálfar beygja af Suður- götu og fara niður Skothúsveg og Fríkirkjuveg í Fríkirkjuna. í Fríkirkjunni messar séra Bragi Friðriksson. í Dómkirkjunni hr. Ásmund- ur Guðmundsson biskup. Afli hér- Framh. af 1. síðu. að aðstoða Eyjabáta við að ná upp netahnútum, en allmargir bátar mistu trosur sínar í vik- bátar mistu trossur sínar í vik- is hefur gefið góða raun og netatjón bátanna því mun minna en gert var ráð fyrir í fyrstu. Margt aðkomufólk, sem leit- aði atvinnu á vertíðinni í Vest- mannaeyjum, hefur nú þeg- ar haldið á brott, einkum þó síðustu dagana. Þetta er ákaf- lega bagalegt einkum nú þegar mest þarf á því að halda og eru útgerðarmenn staðráðnir í því að gera aðrar ráðstafanir með ráðningu vertíðarfólks, en ríkt hafa til þessa. í morgun héldu útgerðar- menn fund með skólastjórum bæjarins og öðrum ráðamönn- um skólanna og fóru þess á leit að prófum yrði frestað í bili svo hægt væri að fá skólanem- endur til framleiðslustarfa. Var það samþykkt að veita frí fram yfir næstu helgi, og þykir þó hvergi gott. Grindavík. Þar er aflinn ákaflega mis- jafn, en í heild allgóður. Sumir bátanna fengu góðan afla í gær, þannig fékk Sigurbjörg 26 lest- ir, Merkúr 22, Valþór 17, Sæ- faxi 15 og þar fram eftir götun- um. Um eittleytið í nótt voru nokkrir bátar enn ókomnir að landi, sem ekki var vitað um afla hjá, en munu hafa verið með góðan afla. Keflavík. Hjá Keflavíkurbátum er líka misjafn afli, einkum verða litlu bátarnir útundan því langt er að sækja á miðin og þá verða smærri bátar útundan. í gær bárust nokkuð á 8. hundrað lesta á land í Keflavík, af um 50 bátum, þar af voru 4 bátar með yfir 40 lestir, en þeir voru Erlingur V. með 43 lestir, Þor- steinn 42.5, Vilborg 41 og Jón Finnsson með 40.2 lestir. Sandgerði. Ágætur afli hefur verið hjá Sandgerðisbátum tvo síðustu dagana, en samt ærið misjafn hjá einstökum bátum. í fyrra- dag bárust þar á land 306 lestir samtals af 19 bátum. Þá var Særún með miklu mestan afla 49.6 lestir, sem hún fékk í 4 trossum, en þá varð hún að hætta að draga, taldi sig ekki geta tekið meira. Rafnkell var næstur með 34.1 lest og Faxi með 26.6 lestir. í gær barst 271 lest á land einnig af 19 bátum. Víðir II. var með mestan afla, 33 lestir, Særún með 32.6 og Steinunn gamla 28 lestir. Af þessum bátum eru 5 Fjölbreytt hátíðahfild á sumardapn fyrsta. Skrúðgöngur og skemntanir með svipuðu sniði og í fyrra. Eins og undanfarin ár efnir Barnavinafélagið Sumargjöf til fjölbreyttra hátíðahalda á morgun, sumardaginn fyrsta, sem er orðinn einn af hátíðleg- ustu dögum í Reykjavík. Há- tíðaliöldin verða með svipuðu sniði og undanfarin á. Óþarft er að rekja einstök atriði hátíðahaldanna enda eru þau birt í auglýsingu í blaðinu í dag. Skrúðganga barnanna frá Austurbæjarskólanum og Melaskólanum í Lækjargötu og skemmtunin þar setur *mestan svip á bæinn. Fyrir skrúðgöng- unum fara lúðrasveitir og reið- menn í litklæðum að fornum sið. Inniskemmtanir hefjast í samkomuhúsum bæjarins að lokinni útiskemmtun í Lækjar- götu og um kvöldið verða dans- leikir á skemmtistöðum bæj- anna. Blaðið „Sumardagurinn fyrsti“, „Sólskin“, merki dags- ins og íslenzkir fánar verða seld á götunum. Ágóði af skemmtunum, merkja- og' blaðasölu renna til Barnavinafélagsins sem ein- beitir kröftum sínum ög fjár- magni til að fullgera barna- heimilið við Fornhaga, sem nú er fokhelt. Alls eru nú rekin á vegum Sumargjafar barna- heimili á 9 stöðum. Af þeim teljast 4 dagheimili og 6 leik- skólar. Þörfin fyrir barna- heimili er geysileg og er langt frá því að hægt sé að sinna öll- um þeim beiðnum sem berast. Meirihluti barna á heimilum Sumargjafa eru börn einstæðra mæðra, ekkna, fráskilinna eða ógiftra mæðrað sem í mörgum tilfellum eiga einskis úrkosta ef barnaheimilin væru ekki tií staðar. Burt séð frá hinu sjálf- sagða mannúðarsjónarmiði, er hér þjóðfélagslegur aflvaki að verki. Mæðrum barnanna gefst kostur á að afla sér tekna og að sjá sér og sínum farboða og vinna þjóðfélaginu mikið gagn. Blómabúðir verða opnar þennan dag og rennur liluti á- góða af sölu þeii’ra til Sumar- gjafar. „Sumardagurinn fyrsti“ og „Sólskin“ sem nú kemur út í 30. skipti eru bæði vel úr garði gerð að vanda. Víðavangshlaupið hefst kl. 2 á morgun. Þátttaka mikil, yfir 20 skráðir keppendur. Svo sem liefð er orðin, fei víðavangshlaup I.R. fram á sumardaginn fyrsta, og hefst það á morgun úr Hljómskála- garðinum á slaginu 2, og þang- að eiga þáttakendur að skila sér aftur, þegar þeir liafa runn- ið sitt skeið, ef það tekur þá ekki enda einhversstaðar á leiðinni. þeirra enn með net, en þeir hafa veitt illa undanfarið, eða síðan um páska, en þá fengu þeir góðan afla. í gær fengu tveir þeirra að vísu sæmilega veiði, en ruslara fisk. Fengu þeir 10—12 lestir hvor, en mikið af því var keila og langa. Akranes. Afli.er yfirleitt góður. 17 bát ar komu að með 250 tonn í fyrradag, og 19 bátar með 260 tonn í gær. Hæstir í gær voru Höfrungur með 32 tonn, Sigur- von með 31, og Sigrún með 26 tonn.. Handfæraveiðar á trillum hafa gefizt vel. í morgun fóru tveir unglingar út á smá-trillu kl. um 7 og voru komnir að um tíu leytið með tonn af fiski. Þeir munu fá um 100 krónur í hlut fyrir þessa þrjá tíma, — og ætluðu að sjálfsögu út aftur eftir hádegið, Vegarlengd hlaupsins verður nálega sú sama og verið hefur, eða um þrír og hálfur kílómetri. Þáttaka verður allmikil, þegar hafa verið skráðir meira en 20 þátttakendur. Utanbæjarmenn eru fleiri en Reykvíkingar, 6 úr Borgarf., 5 frá Skarphéðni, 3 úr Eyjafirði. Einu þátttak- endur úr Reykjavík eru 6 Í.R.- ingar. í fyrra sigraði Haukur Engilbertsson úr Borgarfirði, og. keppir hann einnig nú. Einnig tekur Kristján Jóhannsson Í.R. þátt í hlaupinu. Hlaupið verður svo til sömu leið og undanfarin ár. Mtji% hreskuw snttkhíH. V- Standard-Triumph bifreiða- verksmiðjurnar hefja nú fram- leiðslu á smábíl, sem á að keppa á heimsmarkaðinum við megin- landssmábíla. Þeirra meðal eru Volkswag- en, Renault o. fl. og Bandaríkja menn eru að hefja framleiðslu á smábílum. — Hinn nýi brezki bíll á að heita Triumph-Herald! og kostar 500 stpd. á Bretlandi, án söluskatts. Bíllinn mun mörg um nýjum kostum búinn.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.