Vísir - 27.04.1959, Blaðsíða 1
Á myndunum hér að ofan sést annarsvegar brezki togarinn
Lord Montgomery þar sem hann liggur bundinn við hlið m.s.
Kötlu, skömmu eftir komu lians í Vcstmannaeyjahöfn á laugar-
dagsmorguninn. Iíinsvegar er mynd úr réttarsalnum í Vest-
mannaeyjum þcgar vcrið er að taka skýrslu af einum yfir-
manna varðskipsins Ægis. Situr liann fyrir miðju, beint fyrír
framan dómarann og snýr baki í myndavélina. Fyrir gaflinv.un
sitja, talið frá vinstri, Páll Þorbjörnsson og Þorsteinn Jónsson
frá Laufási, sem eru meðdómendur, þá er Torfi Jóhannsson
bæjarfógeti í Vestmannaeyjum, sem stjórnaði. réttarhöldunum
og loks lengst til hægri ritari réttarins, Freymóður Þorsteinsson
fulltrúi bæjarfógeta. Þetta voru ein fjölmennustu réttarhöld,
sem haldin hafa verið í Vestmannaeyjum, a. m. k. um langt
árabil.
Inflúenzufaraldurinn í
bænum sízt í rénum.
Fjarvistir úr skólum allmiklar, - mest vantar
helming í einstökum bekkjum.
Inflúenzufaraldurinn í bæn-
um er síður en svo í rénun.
Ekki er vitað um alvarleg eft-
irköst, svo sem lungnabólgu og
eyrnabólgu, sem oft eru fylgi-
kvillar slíkrar farandveiki, —
þegar óvarlega er farið — og
mun fólk yfirleitt gæta þess vel,
að fara að leiðbeiningum um að
fara varlega.
Samkvæmt upplýsingum frá
Borgarlækni í morgun voru in-
flúenzutilfelli vikuna 5.:—11.
apríl 157, en 12.—18. voru þau
3 nýjar
kærur
orðin 535, en nýrri tölur eru
ekki fyrir hendi. Þessar tölur
sýna þó þróunina, að skráðum
tilfellum fjölgar svo, að þau
3—4-faldast á einni viku, en
báðar vikurnar skiluðu álíka
margir læknar skýrslum (52 og
53).
En þess er og að geta, að til-
fellin eru vitanlega margfalt
fleiri en skýrslur herma, því
að fjöldi manns leitar ekki lækn
is og vitað er, að veikin er síð-
ur en svo í rénun. Hana einkenn
ir mjög hár hiti 2—4 daga, höf-
uðverkur og beinverkir, maga-
velg'ja eða magaverkir o. s. frv.
Þess er að gæta í fyrsta lagi, að
fara í rúmið, ef menn eru að
veikjast, fara ekki út fyrr en
menn hafa verið hitalausir í 2
—3 daga. Og eftirköstin eru
hættulegust svo sem oft hefur
verið tekið fram.
Þrjár nýjar ákærur á Harri-
son sk.ipstjóra voru lesnar í
réttinum í morgun. Voru þær
frá Maríu Júlíu í dcsember s.l.
Viðurkenndi Harrison, tíma og
staðsetningu skipsins. Kær-
imaar er há orðnar 23 talsins.
Fjölda marga nema
vantar í skólana.
í Miðbæjarbarnaskólanum
1 fór fram athugun á fjarvistum
vegna veikinnar daginn fyrir
Framh. á 7. síðu.
Um 20 kærur hafa verið lephar
fram á hendur George Harrison
Ham svarar því til, að hann hafi
fengið fyrirmæS um landhelgisbrot
IVIálið rfregst eitthvað fram
eftir vikunni.
Réttarhöldin í máli Harrisons skipstjóra á Lord Montgomery
munu dragast á langinn og dómsuppkvaðningar er ekki að vænta
fyrr en síðar í þcssari viku. Þegar rétturinn var settur aftur í
gær las bæjarfógeti 14 nýjar ákærur á Harrison fyrir landhelgis- j
brot er hann var skipstjóri á Lord Plender. Viðurkenndi Harri-,
son að hann hefði verið skipstjóri í öll umrædd skipti, véfengdi
ekki staðarákvarðanir og sagðist muna að honum hefði verið;
tilkynnt af varðskipunum að hann hefði verið í landhelgi og að
liann yrði sóttur til saka fyrir ólöglegar veiðar.
Sakalistinn er langur og ber
ótvírætt með sér að Harrison
skipstjóri hefur stundum verið
að veiðum innan landhelginnar
nokkra daga i röð og mörgum
sinnum í hverri veiðiferð.
Alls eru ákærurnar 20. 15.
sept. er hann kærður fyrir að
hafa verið að veiðum út af
Barða, 15. des. 1958 er hann út
af Glettinganesi innan land-
helgismarkanna og í síðustu
ferð sinni með Lord Plender er
hann skrifaður upp fyrir ólög-
legar veiðar á Selvogsbanka 2.
apríl s.l. Harrison tekur þá við
Lord Montgomery og leggur af
stað á íslandsmið frá Fleetwood
14. apríl. Sjö dögum seinna er
hann kominn á Selvogsbanka
og er þá kærður (þann 21. apr.)
fyrir ólöglegar veiðar 6.1 sjó-
mílu innan fiskveiðimarkanna
og Tveim dögum síðar, eða
sumardaginn fyrsta er hann
svo stöðvaður og fær skipun
um að sigla til Vestmannaeyja. í
Hinar ákærurnar eru þessar: j
Frá Rán 13. sept. er Lord Plen-
der var að veiðum 1.6 sjómílu
innan landhelgismarka við j
Straumnes. 6. okt. kærir Sæ- j
björg hann fyrir veiðar 5,4 sjó-
mílur innan landhelgismarka
við Rit. 9. okt. kemur Óðinn að
honum í landhelgi á Breiða-
firði. 14. okt. er hann að veið-
um í landhelgi út af Barða og
fær á sig kæru frá Albert. Þann
8. okt og 16. okt. er hann tvisv-
ar kærður af Þór fyrir veiðar
3,5 og 5,3 sjómílur innan land-
helgismarka út af Barða. 24.
nóv. er hann kærður af Albert
fyrir veiðar 5,6 sjómílur innan
markanna út af Fjallskagavita.
Á réttarskjali nr. 14 eru 5 kær>
ur á Harrison skipstjóra fyrir
ólöglegar veiðar í landhelgi út
af Vestfjörðum dagana 2., 4., 6.,
7. og 22. nóvember. 29. sarna
mánaðar er Lord Plender kom-
inn austur að Dalatanga og
kemur María Júlía þar að hon-
um á veiðum 5,77 sjómílur inn
an markanna. Þann 17. desem-
ber 1958 kemur Albert að Lord
Plender að veiðum 5,8 sjómílur
innan landhelgislínu við Langa
nes.
Eins og áður segir viður-
Framh. á 11. síðu
Harrison skipstjóri fyrir rétti en Torfi Hjartarson fógcti eir
spyrja hann. Skipstjórinn heldur r. siékerti (Ljósm. G. Lár.)