Vísir - 27.04.1959, Blaðsíða 11
Mánudaginn 27. apríl 1959
VlSIB
yr
Á myndinni sést Chris Harrison sonur skipstjórans á Lord
Montgomery, þar sem hann hallar sér íram ó borðstokkinn á
togaranum. I glugganum á stjórnpalli fyrir ofan Chris sér á
lögregluþjón, sem stendur vörð í togaranum og við hlið hans
Páll Beck blaðamaður hjá Vísi.
Mát Harrisons skipstjdra —
Framh. af 1. síðu.
kenndi Harrison að hafa verið
að veiðum á skipi sínu á hin-
um tilteknu stöðum og tíma, en
sagðist að vísu ekki muna það
nákvæmlega. Sagðist hann
muna að kallað hefði verið til
sín frá varðskipunum að hann
yrði spttur til saka fyrir land-
helgisbrot.
Er ákæruskjölin höfðu verið
lesin spurði fógetinn hvort
hann álíti sjálfur að hann hefði
RAUÐRMGI —
Framh. af 3. síðu.
30—40 stykki í dag. Það er
ekkert.“
„Nú, jæja. 10 krónur fyrir
stykkið, er það ekki? Það gera
300—400 krónur. Vel fyrir
kostnaði. Er eftirspurnin mik-
il?“
„Geysileg eftirspurn. Bæði
eftir rauðmaga og grásleppu.11
„Siginni grásleppu?11
„Já, siginni.11
„Heyrðu. Þú heitir Jens, er
það ekki?“
„Jú, Jens Hallgrímsson. —
Það held eg.“
„Býrðu hérna í Skerjafirð-
inum?“
„Já. Bý að Vogum í Skerja-
firði. Ef þú ert í vandræðum
með rauðmaga, kallinn, þá
slcaltu leita að mér alveg suður
við Shell. Þar hefi eg uppsátúr,
alveg syðst. Rétt hjá portinu.11
„Eg ætla að muna það, þakka
þér fyrir. Kem kannske til þín
í fyrramálið. Mig er sannarlega
farið að langa í raúðmaga. Get
varla sagt að eg hafi smakkað
hann í ái\ Át einn grindhqrað-
an vesaling í gærkveldi .... “
verið að ólöglegum veiðum í
umrædd skipti,-
Mér var skipað af brezka
flotanum að veiða innan 12
mílna markanna, en ég viður-
kenni ekki að ég hafi verið að
ólöglegum veiðum, þar sem
stjórn mín viðurkennir ekki 12
mílna landhelgi við ísland.
Spurningin var ítrekuð og
túlkurin var ekki nógu ná-
kvæm því að í síðara skiptið
sagði Harrison, að hann hefði
verið að veiða á þessum slóðum
að skipun útgerðarfélagsins.
Við þeirri spurningu hvort
brezku herskipin hefðu átt að
sjá um að þessum fyrirmælum
væri hlýtt svaraði Harrison.
Nei, þau eru aðeins til að gæta
okkar og hindra ólöglega hand-
töku, og svo að veita okkur að-
stoð í sjúkdómstilfellum eða ef
um vélarbilun er að ræða.
Þar sem ekki var hægt að ná
til yfirmanna á nokkrum af
varðskipunum, sem sent höfðu
kærur, var réttarhöjdum slitið
í Vestmannaeyjum í gær, ,en
! þar verður dömurinn kveðinn
I upp er vitnaleiðslur hafa farið
j fram.
|
I Löng bið.
í Það var auðséð á öllu að Bret
arnir bjuggúst við því að biðin
í Vestmannaeyjum yrði nokkuð
jlöng, því ekki var annað að sjá
en að búið væri að drepa eld
j undir kötlum ^kipsins. Munu
j það hafa vérið þéim nokkur
j vonbrigði því þeir voru boru-
brattii- við komuna tií Vest-
maimaeyja á laugardagsmorg-
un og hatöi einn skipverja á
i Lord Montgomery orð á því að
I þetta tæki ekki langan tíma, því
! síðast hefði ekki tékið nema 5
jtíma áð’dæma í'máli Harrisons.
Fyrsta klukkutímann eftir að
skipið kom í höfn létu togara-
menn lítið fara fyrir sér. Slang-
ur af fólki kom niður á bryggju
til að sjá hvað um væri að vera,
en allt fór fram með friði og
spekt og brátt urðu togara-
menn djarfari og fóru að tínast
í land og er leið daginn voru
þeir að ganga á götunum innan
um íslenzka sjómenn og fær-
eyska óáreittir. Nokkurn kurr
var þó að heyra í mönnum, en
annríki mikið var í Eyjum og
menn máttu ekki vera að því
að fjasast út af komu togarans.
Réttarsalurinn í Vestmanna-
eyjum er að vísu ekki stór, en
hann var þéttsetinn áheyrend-
um, bæði á laugardag og á
sunnudag. Miklar bollalegging-
ar voru um það hvaða dóm
Harrison myndi fá. Heyrðust
þar alls konar upphæðir nefnd-
ar allt upp í 2 milljónir króna.
Sjómaður, sem þarna var stadd
ur sagði: Þgir setja togarann í
veð fyrir sektinni, því þeim er
sama um kláfinn, hann er ekki
brúklegur hvort sem er.
Kannski hafa þeir farið að eins
og hinn frægi Onassis, sem
tryggði hvalveiði skip sín hjá
Lloyds þegai’ fyrirsjáanlegt var
að þau yrðu kærð fyrir land-
helgisbrot við strendur Peru, og
svo yrði Lloyds að borga brús-
ann.
Nokkru áður en réttarhöldin
hófust á laugardag ræddi frétta
maður Vísis við Harrison og
spurði m. a.: Teljið þér líklegt
að þetta ástand í landhelgisdeil-
unni vari lengi?
— Ekki get ég sagt neitt um
það, en það held ég að mér sé
óhætt að segja, að brezkir tog-
araskipstjórar óski þess að deil-
unni ljúki sem'fyrst, jafnvel -þó
svo færi, að við yrðuin að sætta
okkur við 12 mílna fiskveiðilög-
sögu. Þetta er ómögulegt eins
og það er. „I want it done with”,
ég vil að því sé lokið.
— Hafið þið aflað minna síð-
an íslendingar færðu út mörk-
in?
— Nei, mér virðist aflinn vera
svipaður, en eftir eitt, kannski
tvö ár hlýtur að fara að draga
úr afla hjá okkur. Þá verður
orðinn svo mikill fjöldi skipa á
Þeim slóðum sem við getum
togað á, að aflinn hlýtur að
minnka.
— Þér hafið alltaf verið tog-
arasjómaður?
— Já, nema hvað ég var í flot
anum á stríðsárunum. Ég er
kominn af sjómannaættum, svo
langt sem ég veit. Sonur minn,
Chris, 15 ára, er nú með mér í
þessari ferð. Þetta er fyrsta sjó-
ferðin hans. Hann var skrambi
óheppinn.
Við vorum ekki búnir að vera
að veiðum nema fjóra daga þeg-
ar við vorum stöðvaðir. Það var
fremur lítill afli, svona um 100
kitt á dag.
— Hvernig er skipið?
— Þetta er gamalt skip.
Byggt 1932, en því var breytt og
sett olíukynding fyrir katlana í
stað kola.
— Hvernig eru kjör á brezk-
um togurum?
— Skipstjórar eru allir upp
á prósentur. Við fáum 10 pró-
sent af aflaverðmæti eftir að út-
haldskostnaður hefur verið
dreginn frá. Hásetar eru hins
vegar upp á fast kaup og afla-
hlut þar að auki.
Harrison er þrekvaxinn og
Hörkulegur maður. Hann var
nú samt heldur daufari í dálk-
inn seinni dáginn, því ef til vill
ihefur hann gert sér vonir um
að losna fyrr úr þessu en raum
verður á.
Trésmiðaféfag
Reykjavíkur
Félagsfundur verður í Breiðfirðingabúð miðvikudaginn 29.
þ.m. kl. 8,30.
Ðagskrá:
1. Samningarnir.
2. Byggingasamvinnufélög.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
STÚLKA
qskast í þyottahúsið Bergstaðarstræti 52.
Uppl. í stöðinni frá kl. 4 til 7. Sími 17140.
Lögmanuafélag fslands
Framhaldsáðaifundur félagsins verður haldinn í Tjarnar-
cafc, uppi,.þriðjudaginn 28. þ.m. kl. 5 síðdegis.
DAGSKBÁ:
1. Gjaldskrá félagsins.
2. Önfiur mál.
/SBMF-Haflr • / **
Borðhald eftir fund.
Stjóriún.
it • •
' • :V
.. ‘Jé ' ■ '■" rr”
- ?" -"S: i .-W
fJii&íUifíHi
M. s. Rfnto
fer frá Kaupmannahöfn 5.
maí til Færeyja og Reykja-
víkur. Frá Reykjavík fet'
skipið 16. maí til Færeyja
og Kaupmannahafnar.
M.s. Dronning
Alexandrine
fer frá Reykjavík 26. maí
til Færeyja og Kaup-
mannahafnar.
Johan Rönning h.f.
Raflagnir og viðgerðir á
öllum heimilistækjum. —«
Fljót og vönduð vinna.
Sími 14320.
Jnhan Rönning h.f.
Þorvaldur Ari Arason.iidl.
LÖGMANNSSKKIFSTOFA
Skólavörðustif 38
*/• f*ill Jóh-Jiorlettuon hj. - Pótíh 821
Slmar 1)416 og t)4í7 - Simnefni.
BANANAR
22 kr. kg.
AMERÍSK EPLl
aðeins 16,40 kg.
Appclsínur,
Sunkist sítrónur.
Indríðabúð
Sími 17283.
Þingholtsstræti 15,
RIMLATJÖLD
fyrir hverfiglugga.
Lind. 25. — S: 13743..
SÍRIZG4 W/I/ÍMÐ iFtík
öorr swð