Vísir - 14.05.1959, Page 8
Kkkert blað er ódýrara f áskrift en Vísir.
LátiB hann fœra yður fréttir og annað
leetrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WlBIR
Fimmtudaginn 14. maí 1959
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Visis eftir 10. hvers mánaðar, fí blaðið
ókeypis til mánaðamóta,
Sími 1-16-60.
Tekið til starfa í dag í Genf.
Lthlufun Visindasjéðs:
Vesturveldin vilja lausn heims-
vandamála stig af stigi.
Leggja frasn tillögur sínar
i dag.
í dag verður haldinn fjórði
fundur Genfarráðstefnunnar
og er búist við, að nú snúi
menn sér að því, að ræða
vandamál þau, sem fyrir henni
liggja.
Gromiko hafi nú gert ljósa
afstöðu stjórnar sinnar varð-
andi aðild Póllands og Tékkó-
slóvakíu, og aðrir fulltrúar á
ráðstefnunni sömuleiðis gert
sína afstöðu ljósa, og verði nú
það, sem á milli ber ekki látið
tefja störfin frekara, en full-
trúar annarra ríkja verði til
kvaddir, eftir því sem sam-
komulag verður um og þörf
-krefur.
Herter í forsætl.
Herter utanríkisráðherra
Bandaríkjanna var í forsæti í
gær og lagði áherzlu á, að nú
tækju menn til starfa án tafar,
og lagði ennfremur til, að
menn flyttu inngangsræður
Ný reiðhjól í
verðlaun.
Umferðarnefnd Keykjavíkur
'efndi nýlega til ritgerðarsam-
keppni meðal 12 ára barna í
þarnaskólum í Rvík um efnið
,(BSrnin og umferðin“.
Var tilgangurinn sá að glæða
áhuga barna fyrir umferðar-
menningu, og var lögð mikil
vinna í undirbúning samkeppn-
innar og síðar við mat á þeim.
Úrslit urðu þau, að tveir
nemendur úr Laugarnesskóla
hlutu verðlaun. Voru það Ólaf-
ía Sveinsdóttir, Breiðagerði 7,
■Og Pétur Björn Pétursson,
Rauðalæk 52. Verðlaunin voru
reiðhjól af vönduðustu gerð, og
voru þau afhent þeim síðast-
liðinn fimmtudag.
Upplýsinga um
stolfnn bfl.
f nótt er leið var vörubif-
Teiðinni R-619 stolið, þar sem
hún stóð við Eskihlíð 10 hér í
bæ.
Bifreiðin fannst í morgun, þar
sem henni hafði verið ekið út
af óupphlöðnum vegi í Grana-
skjóli og út á mýrarblett utan
við veginn. En mýrin var svo
gljúp og blaut að bifreiðin sat
föst og þar hefur þjófurinn orð-
ið að yfirgefa hana.
Hjólför á veginum benda til
þess að bifreiðin hafi lent
þarna í umferðartruflun og
orðið að víkja af veginum af
þeim ástæðum. Biður rannsókn-
arlögreglan, þá sem kynnu að
hafa orðið bifreiðarinnar varir
í nótt, að láta hana vita hið
bráðasta.
sínar, og var á þetta fallist.
Stjórnmálafréttaritarar frá
Bretlandi segja, að ræða
Gromikós hafi verið kurteisleg,
hógvær og í samkomulagsanda.
Fulltrúar Vesturveldanna
munu í dag leggja fram tillög-
ur sínar til lausnar vandamál-
unum þ. e. um Berlin, samein-
ingu Þýzkalands, öryggi Evr-
ópu o. s. frv., og mun vaka
fyrir þeim, að reynt verði að
þoka málum í rétta átt stig af
stigi.
Viðræður innbyrðis.
Talsvert var um innbyrðis
viðræður í gær. M. a. ræddust
þeir við Gromiko utanríkis-
ráðherra Þýzkalands og von
Brentano utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands. Vakti það
allmikla athygli, að fundur
þeirra stóð eina og hálfa klukku
stund, og var sagt eftir fund-
inn, að þeir hefðu átt saman
hinar gagnlegustu viðræður.
Herter og Selwyn Lloyd
ræddust einnig við, a'ðallega um
störf kjarnorkuráðstefnunnar
um bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn og eftirlit með
slíku banni, en sú ráðstefna
hefur frestað störfum meðan
Fjórveldaráðstefnan stendur,
svo sem fyrr hefur verið getið.
□ Þrír brúðkaupsveizlugestir
biðu bana og 30 meiddust í
árekstri tveggja langferða-
bíla við borgina Tournai í
Belgíu í s.l. viku.
Tívólí, skemmtigarður Reyk-
víkinga, verður opnaður i þess-
ari viku.
Eins og undanfarin ár mun í
sumar reynt að hafa starfsemi
garðsins sem fjölbdeyttasta og
munu skemmta þar bæði inn-
lendir og erlendir listamenn.
Nokkur félög og félagasam-
tök hafa þegar ákveðið að efna
til útiskemmtana.
í ráði er að fegurðarsam-
keppni kvenna fari tvisvar
fram, sú fyrri í júníbyrjun og
verður þá kjörin Ungfrú ísland
1959. Þessi keppni er í sam-
bandi við alþjóða fegurðarsam-
keppni og haldin af umboðs-
mönnum hérlendis. Vinningar
eru óvenju margir og glæsi-
legir.
Seinni ferðurkeppnin mun
fara fram í ágústmánuði á af-
mælisdegi Reykjavíkur; verð-
ur þá kjörin Ungfrú Reykjavík
1959.
Útihátíðahöld verða 17. júní
og um Verzlunarmannahelgina
með fjölbreyttum skemmti-
Nýtt vöriiflutningaskip-
í smíðum.
750 rúmlesta vöruflutninga-
skipi, sem er eign Verzlanasam
bandsins, verður hleypt af
stokkunum í Hamborg á morg-
un og á skipið að afhendast í
nóvember í haust.
Verzlanasambandið en sam-
tök 50 kaupmanna í Reykjavík
og úti á landi og var það stofn-
að árið 1954. Þrátt fyrir mikinn
flutning með íslenzkum skip-
um hefur verzlanasambandið
orðið að hafa ei'lend leiguskip í
förum. Árið 1957 voru 19 er-
lend skip tekin á leigu og námu
leigugjöldin 57 þúsund ster-
lingspundum eða um 4 millj.
ísl. króna. í fyrra var svo mynd
að hlutafélagið Hafskip h.f. til
skipakaupa. í stjórn hlutafé-
lagsins eru Helgi Bergsson, Ax-
el Kristjánsson, Gísli Gíslason,
Vestm.eyjum, Ingólfur Jónsson,
Hellu og Ólafur Jónsson, Sand-
gerði.
Koto formaður
háioftsneffldar.
Fulltrúar 13 þjóða hafa hafið
starf, sem miðar að því að há-
loftin verði rannsökuð og not-
uð einungis í þágu friðar og
vísinda, innan vébanda Sam-
einuðu þjóðanna.
Sovétríkin og Tékkóslóvakía
lögðu þessu máli ekki lið. Sæti
fulltrúa þeirra í nefndinni
voru auð. Vegna afstöðu fyrr-
nefndra ríkja vildu fulltrúar
Indlands og Sambandslýðveldis
Araba ekki mæta á fundinum.
atriðum.
Margt fleira er einnig á döf-
inni, sem of snemmt er að skýra
frá nú.
Fjölbreytt ,,Dýrasýning“
verður í garðinum og er von á
m. a. apahjónum með unga,
bjarnarhún, mikið af skraut-
legum fiskum og fuglum og
fleiri dýrum. Dýrasýningin
hefir verið afar vinsæl jafnt af
fullorðnu fólki sem börnum.
Tívólí sýnir skemmtilegar
teikni- og gamanmyndir, sem
ekki hafa verið sýndar áður
hér á landi.
Ennfremur verður starfrækt
eins og áður:
Bílabraut, Parísarhjól, Ra-
kettubraut, Rólubátar, Auto-
matar, Skotbakkaskáli, Bogar,
Speglasalur, Bátar á Tívólí-
tjörninni, Flugvélahringekja,
Jeppa- og Bifhjólahringekja.
Fyrir smábörn eru sölt, ról-
ur og rennibraut ókeypis.
Fjölbreýttar veitingar verða
í garðinum eins og áður.
Ttf ál' f'
„Tívo!í" að taka til starfa.
E*ees% woi'Hur írávofjis fctjwðar-
saathoppni.
Rum hálf milljón skiptist
milli 22ja aðila.
*
(Jthlutun Raunvisindadeild-
ar er
Raunvísindadeild Vísinda-
sjóðs hefur fyrir nokkru lokið
úthlutun, eins og fram keraur
í skrá þeirri, sem birt er hér á
eftir.
Að þessu sinni var úthlutað
um 530 þús. króna og skiptist
það fé milli 22ja aðila, en hæstu
styrkir eru 60 þús. krónur.
I. Eðlisfræði og kjarnorkuvís-
Indi, stjörnufræði, cfnafræði
og stærðfræði.
1. Eðlisfræðistofnun Háskól-
ans kr. 30.000. Til smíða á seg-
ulsviðsmæli af nýrri gerð.
2. Óskar B. Bjarnason, efna-
fræðingur kr. 10.000. Vegna rit-
gerðar um íslenzkan mó.
3. Dr. Steingrímur Baldurs-
son kr. 60.000. Til rannsókna í
hydro-magnetik og plasma-
fræði við tækni-háskólann í
Stokkhólmi.
II. Læknisfræði, líffræði
og lífeðlisfræði.
4. Guðmundur Eggertsson,
mag. scient kr. 60.000. Til rann-
sókna í gerla- og veiru-efna-
fræði í London.
5. Hjalti Þórarinsson, læknir
lokið:
kr. 30.000. Til framhalds á eftii>
rannsóknum á sjúklingum, eri
gengið hafa undir skurðaðgerð
á lungum.
6. Jóhann Axelsson mag^
scient kr. 30.000. Til framhalds-
rannsókna á lífeðlisfræði tauga
og vöðvakerfis.
7. Kjartan H. Guðmundsson,
læknir kr. 10.000. Til rann-
sókna á sjúkdómnum clerosis
disseminata (heila- og mænu*
sigg), tíðni hans, ættgengi og;
útbreiðslu á íslandi.
8. Ólafur Jensson, læknir kr-
10.000. Til könnunar á gildS
magafrumurannsókna við greia
ingu á krabbameini.
9. Stefán Haraldsson læknin
kr. 30.000. Til rannsókna á blóð
rás vaxandi og fullþroska beins
og á sjúkdómum osteochondr-
osis juvenilis capituli. Stefáa
vinnur að þessum rannsóknum
í Lundi.
10. Tómas Helgason, læknin
kr. 60.000. Til þess að Ijúka'
rannsóknum sínum á tíðni og
gangi tauga- og geðsjúkdóma
á íslandi og ganga frá riti uia
þær.
Framh. á 3. síðu.
Sjónleikurinn „Allir synir mínir“ verður sýnt í kvöld til ágóða
fyrir Félag íslenzkra leikara. — Leikararnir frá Skandinavíu,
sem liér eru staddur í boði íslenzkra leikara á Norrænu leikara-
vikunni verða heiðursgestir á sýningunni. — Þetta er síðasta
sýningin á þessu afburða leikriti, sem sýnt hefur verið við fá-
dæma aðsókn, svo sem maklegt er, og ættu allir þeir, sem ekki
hafa enn séð, að nota þetta síðasta tækfæri því að óhætt er að
segja, að þetta sé ógleymanlegur leiklistarviðburður.