Vísir


Vísir - 15.05.1959, Qupperneq 7

Vísir - 15.05.1959, Qupperneq 7
Föstudaginn 15. maM959 MMM. Fimmtugur: Ingólfur Jónsson, alþingismaður. Ingólfur Jónsson alþingis- maður á Hellu og fyrrum ráð- herra er fimmtugur í dag. Ingólfur er í raun og veru tákn alþýðumannsins sem vinn- ur sér brautargengi í lífinu vegna atorku og meðfæddra hæfileika. Því hvorki var það auður né ytri áhrif sem ruddu honum veg og heldur ekki skólamenntun, því hann hefur naumast á annan skólabekk sezt en lýðskóla á æskuárum sínum. Samt sem áður hefur hann notið þess trúnaðar hér- aðsbúa sinna, að gegna kaupfé- lagsstjórastörfum á félagssvæði þeirra Rangæinga helming lið- innar ævi og þingmennsku um mær tvo áratugi. En víðar hefur Ingólfur notið trausts en í hér- aði, því Sjálfstæðisflokkurinn fól honum — einum úr hópi yngstu þingmanna flokksins — ráðherraembætti árið 1953 Gegndi hann þá m. a. viðskipta- málaráðherraembættinu, sem mjög hefur mætt á öll hin síð- ari ár vegna hvers konar hafta í viðskiptum og ýmiss konar togstreitu. Þá var Ingólfur gerð rir að formanni Kjötverðlags- nefndar, sama ár og hann var fyrst kjörinn á þing þ. e. 1942, en þá var hann aðeins rúmlega þrítugur að aldri, og sýnir það enn hver trúnaður honum var sýndur. En eins og Ingólfi hefur ver- ið sýndur trúnaður, eins hefur hann lagt allt kapp á að bregð- ast ekki trausti annarra, hvort heldur það var nágranni hans eða þjóðin öll. Hann hefur kom- i ið stærri maður úr hverri raun . og stöðugt vaxið að persónu- leika og jafnframt virðingu allra, sem honum hafa kynnst. Ingólfur er borinn og barn- fæddur Rangæingur, þar hefur hann alið aldur sinn svo til all- an. Því héraði er hann fyrst og fremst tengdur, enda þótt þjóð- in öll hafi notið góðs af störf- um hans og atorku. Fyrir allt þetta viljum við þakka honum og færa honum jafnframt árn- aðaróskir í tilefni fimmtugsaf- mælis hans. Þ. J. Ami Jönsson í söngför um Isiand. Hefur fengið tilboð m. a. fré sænsku óperunni. Árni Jónsson söngvari kom nýlega heim frá söngnámi í Stokkhólmi og er nú að leggja land undir fót til að syngja í öllum landsfjórðungum. Árni hefur stundað söng- nám ytra í einkatímum, aðal- lega hjá Simon Edwardsen. Er það dýrt nám, og hefur Árni neyðzt til að stunda skrifstöfu- störf jafnframt til að fram- fleyta sér, því að gjaldeyrisyf- irfærslan héðan hrekkur ekki mikið meira en fyrir greiðslu á kennslunni einni. Rétt áður en Arni hélt heim, söng hann á styrktartónleikum fyrir sjúk- linga í Stokkhólmi, ásamt kór og hljómsveit, og að þeim lokn- nm voru honum boðnir atvinnu samningar bæði við hina frægu almenningsskemmtigarða í Sví- þjóð og konunglegu óperuna í Stokkhólmi og ennfremur um söngferðalag með sópransöng- konunni Önnu G. Söderholm, Árni telur beztu söngkonu Sví- þjóðar. Enn hefur hann fengið þoð um að syngja til reynslu vdð norsku óperuna, og mun hann ekki taka ákvörðun um samninga fyrr en að því loknu. Nú mun Árni, sem sagt hefja söngför um ísland, og syngur fyrir tónlistarfélög, þar sem þau eru starfandi. S.l. laugar- dag söng hann á Gunnarshólma í A.-Landeyjum. Um hvítasunn- una heldur hann tónleika í fé- lagsheimili Hrunamanna, og á Akranesi, en þriðjudaginn 26. i Reykjavik, 27. á Sauðárkróki, 28. á Akureyri og 30. í Skjól- brekku, Mývatnssveit. Þ. 4. júní syngur Árni svo á ísafirði, 6. í Bolungavík, 7. á Flateyri og um miðjan mánuð á Höfn í Hornafirði og máske víðar um Austfirði. Tónleikai'nir hér í Reykjavík á þriðjudag fara fram í Gamla bíó, og verður Fritz Weisshapp- el undirleikari. Syngur Árni lög eftir Árna Björnsson, Árna Thorsteinsson, Eyþór Stefáns- son, Hallgrím Helgason, Pál fs- ólfsson, Sigfús Einarsson, Sig- valda Kaldalóns og Sveinbjörns son, Edvard Grieg, Nordkvist og Tore Langström. Ennfremur aríur úr Cavalleria Rusticana og 11 Pagliacci. Þegar er hafin sala aðgöngu- miða, og fást þeir hjá Lárusi Blöndal á Skólavörðustíg og Vesturveri, Sigfúsi Eymunds- syni og Helgafelli, Laugavegi 100. Talar Saudi-Arabía nú við Breta? Saudi-Arabía ræðir við Ara- biska sambandslýðveldið uin að taka upp stjórnmálasam- band af nýju við Bretland. Því var slitið út af Suez- vilðburðunum. Saudi-Arabia hafði áður lýst yfir, að hún mundi ekki aftur taka upp stjórnmálasamband án þess að ræða það við Egypla. Saga kaffisopans. Heinrich Eduard Jacob: Sage und Siegeszug des Kaffees, Rowohlt-Vering, Hamburg. íslendingar eru álitnir vera ein mesta kaffidrykkjuþjóð heims, og er því fróðlegt fyrir þá að lesa bók, sem nýlega kom á markaðinn, „Saga og sigur- för kaffisins“, sem reyndar segir frá mörgu fleiru en rækt- un þessarar jurtar og notkun á- vaxta hennar. Bókin er einstæð menningarsöguleg skýrsla, eink arfróðleg og spennandi aflestr- ar. Af heilsufræðilegum ástæð- um erunútímamönnum víst takmarkanir á nautn ýmissa efna nauðsynlegar — á vín, á tóbaki, á deyfilyfjum og þó sér- staklega á eiturlyfjum. Um holl- ustu kaffisins er varla hægt að deila. Þegar við skreppum í búð og kaupum kaffipakka, til að geta hresst okkur á líkama og sál, hugsum við ekki út í það, að styr mikill hefur staðið í margar aldir um þýðingu og gildi þessa „lífsins lyfs“. Það eru ekki meira en 250 ár, síðan kaffið fékk inngöngu í heimili Evrópumanna, eftir að það hafði verið dýrkað sem gjöf guðanna í löndum Araba í Afríku og Asíu í aldaraðir. O- skiljanlegt finnst okkur í dag, að einmitt þeir aðilar, sem telja mátti dómbærasta um kosti kaffisins aðeins ein af mörgum sönnunum þeirrar kenningar, að á öllum timum og með öll- um þjóðum er starfandi stétt andlegs afturhalds, sem berst gegn viðurkenningu lifssann- inda oftast gegn betri vitund og til verndar ímyndaðra eig- inhagsmuna og viðhalds óverð- skuldaðra forréttinda. Við vit- um, að slíkri mótspyrnu hafa flestallar nýjungar og tækni- framfarir mætt í byrjun, en okkur er gjarnt að gleyma, að enn er líf þjóðfélagsins fullt af fordómum gegn eðlilegum nauðþurftum mannlegrar til- veru eins og kaffið er nú orðið óumdeilanlegt. Saga kaffisins sannar einnig áþreifanlega, að skynsemin, þótt erfitt eigi uppdráttar. sigr- ar að lokum. Og það er vissu- lega gott. Þegar kaffið náði verulegri útbreiðslu fyrir rúmlega tveim- ur öldum, kom brátt í ljós, að eftirspurn varð hvergi nærri fullnægt. Ræktun þess var því aukin mjög, en auk þess var fræ flutt til annara heimsálfa eins og t. d. til Ameríku, svo að nú á dögum er kaffiframleiðsla KJÖRSKRÁ til alþingiiskosiiiiiiga í Reykjavík er gildir frá 1. maí 1959 til 30. apríl 19ö0 liggur frammi cdmenningi til sýnis í skrifstofu borgarstjóra, Austurstræti 16, frá 16. maí til 6. júní að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga klukkan 9 f. hád. til klukkan 6 e. hád. Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til borgar- stjóra eigi síðar en 6. júní næstkomandi. Borgarstjórinn í Reykjavík, 14. maí 1959. Gunnar Thoroddsen. LÖGTAK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengnum úrskurði í dag verða lögtök látin fram fara fyrir skatti á stóreignir samkvæmt lögum nr. 44, frá 3. júní 1951, sbi. I. ni. 19 frá 8. apríl 1958, ásamt áföllnum og áfallandi voxtum og kostnaði. Lögtökin fara fram á ábyrgð ríkissjóðs að átta dögum liðn- um frá birtingu þessarar auglýsingar. Borgarfógetinn í Reykjavík, 14. maí 1959. Kr. Kristjánssón. aðalatvinnuvegur margra þjóð* í heitu löndunum. Bókin skýrir sögulega við* burði í nýju ljósi og eykuf þekkingu okkar á þróun mann« félagsins. Hún er prýdd mörg* um ágætum myndum. Rowohlt- forlagið þarf ekki að kynna fyrir lesendunum — bækur þessa umsvifamikla forlags er að finna í hverri bókabúð. Og eftir að hafa lesið þessa bók, munum við njóta töfra kaffis- ins með enn meira innileik en hingað til. HERBERGI til leigu á Framnesvegi 63. — Uppl. í sima 15328. (286 4 HERBERGI ÓSKAST. — Óskum að taka á leigu nú þegar 4 herbergi með hús- gögnum. Algerri reglusemi heitið. Nánari upplýsingar í síma 11249 milli kl. 9 og 6. OKKUR vantar 2 herbergi og eldhús strax. Erum á göt- unni. Uppl. í síma 15813. — NÝ, 4ra herbergja íbúð til leigu. Einhver fyrirfram- greiðsla. — Tilboð, merkt: „Hálogaland“ sendist Vísi fyrir kl. 12 á morgun. (404 TVÆR stofur til leigu með svölum, aðgang að baði og síma; eldhúsaðgangur kemur einnig til greina. — Uppl. i sima 35159. (407 KARLMANN vantar her- bergi í Austurbænum. Uppl. í síma 14215, eftir kl. 6. — ÓSKA eftir einu stóru eða tveimur litlum herbergjum með aðgangi að baði og síma. Uppl. í síma 33638 milli 8—• 10 í kvöld og 1—4 á morg- un. Mv/mí/// BIFREIÐAKENNSLA. — Aðstoð við Kalkofnsveg. Sími 15812 — og Laugaveg Q2 10650 Í53« BÍLL til leigu (Dodge Wepon 8—T0 manna). Sími 11378. (287 HÚSEIGENDARÉLAG Reykjavíkur, Austurstræti 14. Sími 15659. Opið 1—7 og Laugardaga 1—3. (1114

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.