Vísir - 27.05.1959, Síða 3
Miðvikudaginn 27. maí 1959
VÍSIB
MICHEAL
SCHRÖDER:
Hví verða
dýrategundir
aldauða?
Ssí sssfii (í <mða-r
sss. £5 ð ss rirssa ss $ v&rhi
~ essnnars sðea&esr
ÖBSBssir eSsjr
Fjölbreytt starf skáta
á sumrinu.
Skáfamót verður haldið í Vaglaskógi.
Menn álíta, yfirleitt, að lífið á
jörðinni sé litlum breytingum
háð á meðan þeir lifa. En jörðin
er gömul og miklar breytingar
hafa fram farið frá því er hún .
myndaðist, bæði á henni sjálfri,!
gróðri hennar, dýralífi og fleira. j
Margar dýrategundir hafa t. d. ■
dáið út frá þeim tíma, er dýrin
fengu skilyrði til þess að lifa á
Jþessari jörð.
Ef við rannsökum breytingar
eða þróunina, sem orðið hefur á
jörðinni frá frumöld, eða upp-
hafsöld, komumst við að raun
um, að einungis fáar lægstu
dýrategundir hafa haldizt ó-
breyttar gegn um öll jarðsögu-
timabil. En ógrynni annarra teg-
unda hafa lifað skamma hríð og
dáið út.
Áhrif mannanna.
Hversvegna verða dýrategund.
ir aldauða? Við skulum þá fyrst
minnast á þau dýr, sem deyja út
fyrir augum okkar. T. d. ind-
verski nashyrningurinn, Asíu-
ljónið og hin arabiska, svuthvíta
antilópa, oryx. Hér eru menn-
irnir að verki. Hvarvetna eru
nashyrningar drepnir. Horn
þeirrn þeirra eru mulin og mylsn
an látin í „ástardrykk" mjög viða
og notuð í frygðarlyf.
I Nepal trúa menn því, að
stytta megi sálnaflakk dáinna
manna, ef líkami þeirra er lát-
inn í skrokk nýdrepins mathyrn-
ings.
Furstarnir gera sér það til
skemmtunar að stunda ljóna-
veiðar, og oryx antilópuna veiða
arabiskir olíukóngar með hjálp
flugvéla og fjölmargra dýrindis
híla, með „emírinn" í broddi
fylkingar. Þessi dýr eru drepin
með riffilkúlum, en útrýmast
ekki vegna óhentugra lifsskil-
yrða. Réttur hins sterkari gild-
ir þama eins og víða á sér stað.
Annars er eftirfarandi setning
eða munmæli Charles Darwin
„survival of the fittest" enn í
gildi. „Hinir hæfustu lifa“.
Nú er hætta á að margar villi-
dýrategundir Ástralíu útrýmist
— deyi út — vegna innflutnings
refa og hunda. Þar hafa menn
komið dýralífinu á ringulreið
vegna klaufaskapar eða hugsun-
arleysis. Frægasti fugl allra tíma
sem var á Mauritins er út-
dauður. Um 1600 drápu Hollend-
ingar fugl þennan skef.ialaust.
Hundar, kettir og svin hjálpuð-
ust til við útrýmingu þessa
fugls. Svínin átu eggin. Menn
álíta að tvær dýrategundir hafi
útrýmst síðastliðin 2000 ár og
nokkur hundruð tegundir til við-
bótar eru nú næstum útdauðar.
Hitasveifiur mikilvægar.
Hitabreytingar hafa haft mikið
að segja í þessu tilliti. Við vitum
að norðurheimskautið hefur ekk!
ætið verið þar, sem það nú er.
Eitt sinn lá það í Kyrrahafinu,
og þá var hálfgert hitabeltislofs-
lag á Grænlandi. Steingervingar
bera þessu greinilegt vitni.
Auðvitað myndi það valda
heimsóförum ef jörðin „ylt : yiir
sig“ og breytti skyndilega aí-
stöðu mönduls (öxul). Ví i:ida-
menn hafa neitað því ákveðið
að þvílíkur veltingur hafi fram
farið síðastleðna árþúsundir. En
álíta þetta hafa getað átt sér
stað, afar hægfara, fýrir óra-
löngu. Þar sem þvi lik „enda-
til að komast í kring, ætti að
vera hægt að skipta um verustað
og yfirgefa illbyggilega eða ó-
byggilega staði í tæka tíð.
Selveiðar og sauðnaut.
Grænland er nærtækt dæmi.
Veðurfarsbreytingin þar (hita.
aukningin) er mjög hægfara. En
þó hefur hún áhrif á dýralífið.
Selurinn hefur flutt sig norður
eftir. Þess vegna verða Vestur-
Gi-ænlendingar nú að veiða þorsk
í staðinn fyrir sel. í Norðaustur-
Grænlandi hefur aukinn hiti
valdið vaxandi raka og snjó fellt
svo vetrarhagi sauðnautanna
hafa verið þaktir margra metra
þykkum snjó. Þessi litla veðr-
áttubreyting hefur því eyðilagt
lífsskilyrði sauðnautanna. Má
svo fara að þau deyi út.
Um heim allan hefur hitinn
aukizt dálítið, og þvi hefur fylgt
aukin uppgufun. Það veidur ekki
einungis dauða milljóna fiska,
heldur einnig annarra dýra, sem
í Vötnum lifa.
1 Tanganyika drepast vatna-
hestar vegna þess að vötn og ár
hafa grynnzt. Þeir deyja í lsðj-
unni, sem er á botni áa og vatna.
En hitaaukningin getur haft enn
alvarlegri afleiðingar. Af orsök-
um, sem lífeðlisfræðingum eru
ekki fylliléga kunnar, veiklar
mikill hiti sæði karldýra. Meðal
margra dýra maðurinn með-
talinn — er sæðið verndað af
náttúrunnar hendi með kælikerfi
í pungnum. svo sæðið býr við 2
—15 stiga lægrn hita en likam-
inn. Með vissri aðgerð hafa menn
getað gert hunda, ketti, naut og
kanínur ófrjó. Ekki er annar
vandinn en láta punginn búa við
eðlilegan líkamshita.
Sveiflur á frjcsenii.
Menn, sem fá mikinn hita geta
orðið ófrjóir. Hvítir menn í hita-
beltislöndunum eignast færri
börn yfirleitt, en þeir, sem við
kaldara lofslag búa. Frjósemi
innfæddra minnkar þá mánuði,
sem veðrið er heitast.
í Englandi buðu margir stúd-
entar sig fram sem tilraunadýr
í þessu tilliti. Þeir dvöldu hálfa
klukkustund í gufumettuðu her-
bergi. Þar var 43p hiti. Að átján
dögum liðnum urðu þeir ófrjóir
fjóra mánuði eða lengur.
Þar sem gufuböð og kerlauga-
böð hjá yfirstéttunum eru oft til-
tölulega heit á síðari árum, má
setja það í samband við minnk-
andi frjósemi og fækkandi barns
fæðingar meðal þessa fólks.
Getur dýrategund dáið út af
þessari ástæðu? Þ. e. a. s. dáið
út Vegna of mikils hita?
Menn álíta að svo geti farið.
Ferfætlutegund ein var látin
búa við 29° hita. Heilt sumar
voru þær ófrjóar. Ef hitinn var
aukinn í 30,5° urðu þær ófrjóar
allt lífið. Lífeðlisfræðingar álíta
að þarna sé fengin sönnun þess,
eða ástæðan fyrir því,\ hvers-
vegna risaeðlur fornaldarinnar,
dinosaurarnir og fleiri dýr út-
rýmdust eða dóu svo skyndilega
og raun ber vitni. Þessl dýr höfðu
ekki pung kælikerfi. Þessvegna
gat eitt of heitt sumar orðið
þeim að aldurtila.
Mennirnir eru betur settir í
þessu efni. Kælikerfi pungsins er
mjög fullkomlð hjá mannskepn-
unni.
En rétt er að forðast mjög heit
höð að staðaldri.
Sumarstarf skáta mun verða
mjög fjölbreytt að þessu sinni,
og eru helztu þættirnir í sum-
arstarfinu þrssir:
j
! 1. Kvenskátaskóiinn að Úlf-
Ijótsvatni tekur til starfa 25.
júní og verður starfræktur í 8
vikur. Eins og áður hefur verið
auglýst, er hægt að sækja um
dvöl þar, frá 1 viku allt að 8
vikum, og er dagskráin miðuð
við 8—13 ára aldur, þ. e. a. s.
ljósálfa 8—10 ára og skáta-
stúlkur 11—13 ára. Aðalverk-
efnin eru auðvitað allskonar
skátafræði, kennsla í ýmsu, sem
að gagni má koma í daglegu
lífi, söngvar og leikir og þátt-
taka í daglegum heimilisstörf-
um skólans. Skólinn hefir nú
verið starfræktur í 15 ár. Eru
‘ þær því orðnar æúi margar
stúlkurnar, sem þaðan eiga
góðar endurminningar, enda
gengur áhuginn fyrir Úlfljóts-
jvatni í erfðir, þannig að óðunv
eykst dvöl barna þeirra, sem
jfyrst sóttu Skátaskólann.
2. Sumarbúðir skáta við
Úlfljótsvatn. Skátum víðsvegar
að af landinu gefst kostur á að
dvelja vikutíma í sumarbúðum
skátanna við Úlfljótsvatn. Búið
verður í tjöldum, og verður
hver flokkur að annast sína
matseld sjálfur. Auk þess
verður kennsla í ýmsum skáta-
fræðum. Tjaldbúðir stúlknanna
verða við Fossá, en tjaldbúðir
drengjanna í Borgarvík. Eru
þetta tveir hinna fegurstu staða
í landi Úlfijótsvatns.
3. Landsmót skáta 1959 verð-
ur að þessu sinni í Vaglaskógi,
og eru það Akureyrarskátarnir,
sem undirbúa það og hafaaf því
allan veg og vanda. Mótið verð-
ur frá 3.—7. júlí, og verður
seinasta deginum varið til þess
að fara hringferð um Akureyri
og Eyjafjörð og endað með stór-
um varðeldi á Akureyri um
kvöldið. Búizt er við skátum
frá Norðurlöndum auk enskra
og amerískra skáta. Þátttak-
endum verður skipt í flokka,
og verður reynt að blanda
þannig í flokkana, að s:m flest-
Holland er mcst túHpanaland í heimi, eins og aliir vita, og nú er uppskeran þegar bryjuð, svo
sem sjá má á mj udinni.
ir fái tækifæri til þess að
kynnast. Hver flokkur annast
sína eigin matseld; verður lögð
áherzla á að læra að búa til
mismunandi eldstæði og not-
færa sér yfirleitt það, sem
staðurinn hefir upp á að bjóða.
Að mótinu loknu gefst skátum
kostur á ýmsum ferðalögum
norðanlands.
4. Foringjaskóli mun verða
haldinn í haust, ef nægileg
þátttaka fæst. í öllu æskulýðs-
starfi og þá ekki hvað sízt í
skátastarfi, þar sem svo mjög
er lögð áherzla á persónu-
þroska hvers einstaklings, er
mjög áríðandi, að þeir, sem taka
að sér að vera forystumenn
hinna ungu, séu starfi sínu
vaxnir. Hér á landi eru skáta-
foringjar yfirleitt ungir að ár-
um, og töluvert yngri en al-
mennt gerist í nágrannalönd-
um okkar. Aðstaða þeirra er
því oft erfið, og þrátt fyrir eld-
legan áhuga og löngun til þess
að láta eitthvað gott af sér
leiða, vegur það ekki upp á
móti þeim erfiðleikum, sem
orsakast af kunnáttuleysi og
skorti á lífsreynslu. Foringja-
skólar eru því eitt af nauðsyn-
legustu stofnunum skátaregl-
unnar, því þaðan eiga að koma
hornsteinarnir, sem starfið á að
byggjast á.
5. Gilvvell-námskeið' mun
verða haldið í fyrsta sinn í sögu
skátahreyfingarinnar á íslandi.
Það er, ef svo má að orði kom-
ast, nokkurs konar háskólapróf
í skátafræðum, og ætti því að
verða'mjög mikil hjálp hverj-
um skátaforingja. Námskeið.
j. 'ctta verður haldið að Úlfljóts
vatni dagana 19.'—27. sept. n.
k. og mun aðalritari norska
skátasambandsins standa fyrir
því, en með honum munu
starfa ýmsir íslenzkir skátafor-
ingjar, Gilwell-próf skiptist í
3 aðalhluta: 1. bréfaskóla í 3
áföngum, 2. vikunámskeið, sem
^r verklegt nám, og er það sá
hluti prósins, sem tekinn verð-
ur á Úlfljótsvatni í haust. 3. er
að starfa sem sveitaforingi í á-
kveðinn tíma undir eftirliti
æðri foringja.
Skrifstofa B.Í.S. er á Lauga-
vegi 39, opin mánud., þriðjud.
og fimmtud. frá kl. 3—6 gefur
hverskonar upplýsingar um
skátastarf.
Hisa-stytta af Kristi
við Tagusfljót.
Risastór Kristsmynd, yfir
130 metra há, var afhjúpuð um
Hvítasunnuna við Tagus-fljót,
! gegnt Lissabon, liöfuðborg
Portúgal.
Gnæfir það hærra en kross
St. Páls kirkjunnar í London og
var afhjúpað af kardínálanum
,í Lissabon að viðstaddri hálfri
milljón manna.
Kostnaður við styttuna nam
250,000 stpd. og er hún reist
í þakkarskyni fyrir, að Porútgal
slapp við þátttöku í síðari
heimsstyrjöldinni.