Vísir


Vísir - 27.05.1959, Qupperneq 9

Vísir - 27.05.1959, Qupperneq 9
V í 8 IR Miðvíku'iagiiai 27. íhaí 1959 litwr M7J Fr!.. ar 4. síðu: sett saman. Einu sinni kom t. d. til rnín maður, sem bað mig blessaðan um að lána sér eins og tíu amfetamíntöflur. Hann skyldi borga rnér þær aftur, strax og næsta skip kæmi. Hann ■öró enga dul á, að um smygl- varning væri að ræða. Það er mjög auðvelt að smygla þessari vöru, og sennilega mjög ábata- : samt. Töflurnar eru fyrirferðar-! litlar, og sennilega hægt að selja þær hér með góðum hagn- aði.“ Seld eins og hveiti. ,,En er þá ekki erfitt að íá þær erlendis?" „Nei, það er öðru nær. Það , er hægt að kaupa amfetamín j eins og hveiti í hvaða verzl- j un sem er súms staðar er- , lendis. — í Bandaríkjunum voru þessi lyf seld hverjum sem er, síðast þegar ég vissi til, alveg án lyfseðlis og ann- arra takmarkana. Svo mun vera víðar, ég held í Sviss og Belgiu, t. d.“ „Eru þessi lyf ekki hættuleg, e. þeirra er neytt um of?“ ,,Það er fjöldinn allur af lyfj- um, sem getur verið hættuleg- ur, sé þeirra neytt um of, og nýmörg, sem eru miklu hættu- legri en amfetamín og ritalín. Þessi lyf eru tiltölulega skað- lítil, eftir því sem bezt er vit- að, en allar neyzluvörur geta verið skaðlegár, sé þeirra neytt x gegndarlausu óhóft, jafnvel venjulegur matur. Þetta er mest undir manninum sjálfum kom- ið, og hans andlega ástandi. Sumir verða t. d. forfallnir tírykkjumenn, ef þeir ná í vín. Aðrir þurfa aðeins eina sprautu af morfíni til að verða forfalln- ir morfínistar. Og enn aðrir geta ekki látið amfetamín í friði, ef þeir finna einu sinni áhrif þess. Þó er það með allt öðrum hætti en t. d. morfín. Hjá morfínistum er það líkaminn sjálfur, sem krefst i áframhaldandi eiturs. Am- fetamínistar eru andlega ó- heilbrigðir. Þar er það ekki líkaminn sjálfur, sem krefst lyfsins, heldur hömluleysi heilans. Slíkir menn þurfa svo ávallt stœrri og stœrri skammta til þess að lyfið hafi tilœtluð áhrif, þangað til ofneyzlan ver&ur hœttuleg.“ „Hvað vitið þér-til, að menn taki stóra skammta af amfeta- míni hér á íslandi?1' „Mér er ekki kunnugt um það, en grun hef ég um að sum-! ir taki inn 20—30 töflur í einu.“ Amfetamín getur verið nauðsyn. „Getur amfetamín verið nauð synlegt lyf?“ „Já. í sumum tilfellum er það eina lyfið, sem dugar. Ég hefi t. d. einn sjúkling undir hönd- um, sem notar stöðugt amfeta- mín eftir minni fyrirsögn, og gerir það fyrirsjáanlega næstu S—4 árin.“ „Fær hann stóra skammta?" „Hálfa töflu fyrir máltíð.“ „Hafið þér ástæðu til að ætla, að eiginlegum eiturlyfjum, mor- fínii maríhúana o. s. frv., sé smyglað inn?“ n — „Nei, það álít ég ekki. Ég hefi persónulega aldrei orðið var við það, og öll rök mæla á móti því að svo sé.“ „Rök?“ Verzlun með eiturlyf vœri fásinna. „Það er vitað, að slík lyf eru mjög dýr, sé þeim smygl- að. Þeir, sem bendla&ir eru hér við neyzlu lyfja í óhófi, eru flestir svokallaðir rónar, og eiga ekki til málungi mat- ar, hvað þá meira. Þeir hafa því engin tök á aJð kaupa slík lyf. Frá sjónarhóli eiturlyfja- dreifenda vœri verzlun með þau hér á landi hreinasta fá- sinna. Verzlunarmáti þeirra byggist á mikilli og síaukinni neyzlu, og sú áhætta, sem því vœri samfara að smygla þeim liingað á tiltölulega fámenn- an stað, vœri svo mikil, að langt vœri frá að það borg- aði sig. Ég hef litlar áhyggj- ur af því.“ Ræddi við lyfjafræðing. „. . .. var algengt fyrir nokkr- úm árum. Við verðum varla vör við slík lyfjakaup. Annars er þetta aðeins viss hópur manna. Við þekkjum þá flesta, eða alla. Þeir fá ekki afgreiðslu hjá okk- ur.“ „Hvernig getið þið neitað um afgreiðslu, ef þeir koma með gilda lyfseðla?“ „Við megum t. d. ekki selja drukknum mönnum lyf, og það er algengt, að slíkir menn eru drukknir. Svo höf- um við ýmsar afsakanir. Lyf- in eru þá t. d. ekki til, ef við höfum rökstuddan grun um, að um ofnotkun sé að rœða.“ Tók inn 50 töflur í einu. „Hveið veizt þú um stóra skammta af amfetamíni, sem menn taka inn í einu?“ „Mér er kunnugt um, að einn maður, sem ég kannaðist við, tók 50 töflur í senn. Stundum tvisvar á dag.“ „Hvernig fara slíkir menn að því að komast yfir svo mikið magn?“ „Eg álít, að það sé nokkurn veginn sama, hvaða ráðstafanir eru gerðar. Þeir skulu nokk ná í það. Það eru ótrúlegustu hlut- ir, sem þessum mönnum dett- ur í hug.‘‘ „Segðu mér eitthvað af því.“ „Þeir ljúga, síela, svíkja, falsa lyfsala og nota öll mögu- leg undanbrögð til að komast yfir pillur.“ „Já?“ , „Þeir Ijúga til nafns og sjúk-! dóms. Brjótast inn í lyfjaverzl- anir og stela lyfjum. Svíkja töflur út úr öðrum sjúklingum. Falsa lyfseðla bæði með því að bæta við töflufjöldann, og jafn- vel skrifa heila lyfseðla sjálf- ir, ef þeir komast yfir eyðublað hjá lækni.“ „Hefur þú orðið var við að lyfseðlar hafi verið falsaðir?“ „Já, oftar en einu sinni. Það var hér áður fyrr, þegar selja mátti ótakmarkað magn af am- fetamíni, að þeir bættu oft við nokkrum X-um, eða jafnvel C- um, sem þýðir 100 stk. Ég minnist eins, sem kom með lyfseðil upp á 300 töfl- ur af amfetamíni. Við höfð'- um grun um að maðurinn hefði bœtt við einu eða tveim C-um, en gátum ekki sannað það. Hann fékk afgreiðslu, en ég sagði honum að hon- um þýddi ekki að koma til mín aftur, Daginn eftir kom sami mað- urinn með annan lyfseðil frá sama lækni upp á 300 töflur. Hann var auðsjáanlega í þungri vímu, og var nákvæmlega sama hvað gerðist. JÉg sagði honum, að ég ætlaði að hringja á lög- regluna. Hann stóð bara við af- greiðsluborðið, horfði á mig sljóum augum, yppti öxlum og sagði: „jæja?“ Svo beið hann hinn rólegasti eftir lögreglunni. En nú er þetta auðveldara við- fangs, því nú má ekki selja nema 30 töflur í einu. Aðra sögu skal ég segja þér, sem skeði núna ekki ails fyrir löngu. Maður kom til læknis hérna í bænum, og hafði ung- barn á handleggnum. Hann beið á biðstofunni í klukkutíma eða lengur, og svo þegar hann komst inn til læknisins, skýrði J hann svo frá, að litla barnið hans hefði þann ósið að væta rúmið sitt á hverri nóttu. Heim- ilislæknirinn hefði sagt, að hér væri um einhvers konar slapp- leika að ræða, og hefði lagt svo fyrir, að barnið fengi Vz töfiu af amfetamíni á dag. Nú væru töflurnar búnar, og læknirinn ekki í bænum, og hvort hanr. vildi ekki gjöra svo vel að láta hann hafa „recept" upp á eins og 10 töí’lur? Jú, lœkninum fannst þetta trúleg saga, því þetta mun! vera til í dœminu. Harin skrif \ aði þvi lyfseðilinn, og maður- inn fór. Lœknirinn fór svo að hugsa um þetta eftir á, fannst þetta nokkuð grun- samlegt' við nánari athugun, og hringdi í lyfjabúðimar og stöðvaði afgreiðslu lyfseðils- ins. Jú, það var eins og hann grunaði. Þetta var forfallinn amfetamínisti og hafði leik- ið þenna sama leik hjá 4 eða 5 öðrum lœknum.“ „Álítur þú amfetamin og rita- lín hættuleg lyf?“ „Ritalín er sennilega hættu- lítið, enda miklu veikara en am- fetamín. Amfetamín er aftur á móti oft skaðlegt að mínu áliti. Ég er þeirrar skoðunar, að menn venjist á ofneyzlu þess, þótt á- stæðan íyrir ofneyzlunni sé ekki beint líkamlegs eðlis, eins og með eiturlyfin. Sálræn veiki er sannarlega ekki betri en líkam- leg. Já, ég álít að menn venjist á neyzlu þess, enda ei'u þess mörg dæmi.“ „Álítur þú, að eiginlegum eiturlyf jum sé smyglað inn?“ „Nei.“ „En amfetamíni?“ ,,Já, ég er sannfærður um það. í stórum stíl,“ „Hve margir menn heldur þú, að séu amfetamínistar liér í bœ?“ „Líklega einhvers staðar milli 50 og 100.“ Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir þetta?“ ..Það má lánast að halda því í skefjum, en ekki koma alveg í veg fyrir það. Þeir, sem eru orðnir forfallnir, haía alltaf ein- hver ráð íil að komast yfir lyf- in, alveg eins og drykkjumenn ná. í vín.“ Hjá rannsóknar- lögreglunni. „Hefur mikið verið unnið að rannsókn á þessu máli?“ „Já, mjög mikið.“ „Árangur?“ „Kemur í ljós, þegar athugun er lokið í- stjórnarráðinu." „Er mikið um neyzlu örvun- ar- og devfilyfja?“ „Já, það má segja það. Það er viss hópur manna. Rónar og ofdrykkjumenn. En við getum ekkert við því gert. Þeim er Sðannar óöcjur - -« ej'tir Ueruá Cyrus Field og sæsíminn. - | - það Jyllilega leyúlegi irnkv. lögum. Þeir hafa fehgið iyfin á | lögmætan hátt, eftir þvi m við vitum bezt, og enginn úanhar beim að neyta þeirra.“ „Er þessum lyfjum ekki smyglað?“ I „Það tel ég vafalau.-í. n enn jhefur ekki tekizt að ia það. Þeir, sem teknir eru v, 5 slík | lyf, gæta þess að geymy þau í ! íslenzkum umbúðum frá ein- , hverri lyfjabúð í ; tcjavík, og hafa svo á sér h fseðil .frá ! einhverjum lækni. Þa getum ' við ekkert sagt. Svö orjótast þeir inn í lyfjaverzlanu og stela amfetamíni í stórum st i. Vissu- lega er það ólöglegt, en hvern- I ig getum við séð, hvort pillurn- ar í glasinu eru stolnar eða ekki?“ „Hvað með hin svokölluðu eiturlyf?“ „Ég held, að það sé bara kjaftœði. Ég hef aldrei orð- ið var við það, hvað þá held- ur, að slíkt hafi fundizt. Við höfum rannsakað vel allar slíkar kjaftasögur, og yfir- heyrt fjölda manns. Ýmsir mann, bœði innlendir og er- lendir, hafa verið bendlaðir við þetta, og við höfum haft vakandi auga með þeim, yfir- heyrt „kunningja“ þeirra, og jafnvel rannsakað pillur, sem sagðar voru frá þeim. í engu tilfelli hefur verið um eitur- lyf að rœða, né sannanir fyr- ir þeim“ „Þið hafið rannsakað pillur frá þeim?“ „Já. í eitt sinn skýrðu tvær stúlkur svo frá, að þær hefðu fengið pillu hjá útlendingi, sem þær voru í heimsókn hjá. Hann hafði gert þeim skiljanlegt, hvernig þær ættu að nota hana. Þær þorðu það ekki. Síðar kom í ljós, að þetta átti aðeins að I vera öryggisráðstöfun hjá mann i inum. Hann vildi komast hjá því að fjölga mannkyninu meira Frh. á 11. síðu. « < ■ ú « 5) Þrátt fyrir bstri aðbúna5 og meiri fyrirhyggju, sem reynslan liafði kenní Field, koniu erfiðleikarnir brátt í Ijós. Það var 23. júlí, sem end- inn var tengdur frá skipinu í línuna í Valentía-flóa og hið stóra skip tók stefnu á Ný- fundnalantl. Það kom nokkuð fljótt í ljós, að það var ekki gengið nógu vel frá einangrun strengsins og sjór komst að þræðinum, sem flytja átti raf- strauminn. Sanit tókst að gera bót á þessu og lagningunni var haldið áfram. Þeir voru samt ekki hálfnaíir þegar aðal- óhappið kom fyrir. Þegar þeir áttu eftir 700 mílur til áfanga- staðarins slitnaði strengurinn og hvarf í djúpið. — — — Strax árið eftir var byrjað á nýjan leik. Sama skip var lestað hinum langa samfellda streng, en vegna óliappanna gátu Fields og félagar hans ekki fagnað sigri fyrr en loka- markiriu var náð. Ferðin gekk furðu fljótt og ekkert sögulegt bar til tíðinda. Eftir 14 daga siglingu kom skipið til Hearts Content á Nýfxmdnalandi og sæsíminn var tengdur milli heimsálfann^ í annað sinn. — — — Þó að nú sé komið bæði radíó- og talsímasamband er ritsími Fields enn í sínu fulla gildi og er einn nauðsynlegasti tengiliður fyrir alla frétta- og viðskiptaþjónustu milli heinis-, álfanna. Cyrus Field átti líka hugmyndina að járnbraut" yfir götum New York borgar til að létta á umferðinni. Vagn- arnir ganga enn í dag eftir þessum brautuin. Field légt ár- jið 1892. — (Endir).

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.