Vísir - 18.09.1959, Blaðsíða 9

Vísir - 18.09.1959, Blaðsíða 9
Föstudaginn 18. séptember 1959 VISIK Verðlag landbunaðarafurða: Fulltrúar neytenda hætta störfum í verðlagsnefnd. Telja grundvöll brostlnn undan samstarfi vsð framleíðendur. Vísi barst eftirfarandi í gær: Samtök þau, er standa að til- nefningu fulltrúa neytenda í verðlagsnefnd landbúnaðaraf- urða, þ. e. Alþýðusamband ís- lands, Sjómannafélag Reykja- víkur og Landsamband iðnað- armanna, hafa undanfarið rætt viðhorf þau, sem skapazt hafa við dóm þann er kveðinn var upp í bæjarþingi Reykjavíkur 18. ágúst s.l., í máli því er full- trúar neytenda höfðuðu gegn Framleiðsluráði landbúnaðar- ins, vegna verðlagningar dilka- kjöts haustið 1958. En svo sem kunnugt er, varð niðurstaða dómsins sú, að Fram- leiðsluráði var talið heimilt að leggja á sérstakt verðjöfnunar- gjald vegna dilkakjöts sem selt er á erlendum markaði. Full- trúar neytenda áfrýjuðu dómi þessum til Hæstaréttar og má vænta niðurstöðu hans innan skamms. Samtökin líta dóm þennan mjög alvarlegum augum og telja grundvöll þann, sem sam- starf neytenda og framleiðenda í verðlagsnefndinni hefur .byggst á, brotinn, verði dómur- inn staðfestur. Meðan ekki fæst •endanlega úr því skorið hvert vald Framleiðsluráðsins er í þessu efni, álíta samtökin ó- kleift að eiga þátt að störfum verðlagsnefndarinnar. A fundum stjórnar samtak- anna í gær, var samþykkt ein- róma að leggja fyrir fulltrúa samtakanna í verðlagsnefnd- inni, að taka ekki frekar þátt í störfum nefndarinnar að svo stöddu. Var landbúnarráðherra tilkynnt þessi ákvörðun með bréfi dags. í dag, sem fylgir hér með í afriti. F.h. Alþýðusambands" íslands Oskar Hallgrímsson. F.h. Sjómannafél. Reykjavíkur Sigfús Bjarnason. F.h. Landssambands iðnaðarm. Bragi Hannesson. 17. sept. 1959. Svo sem ráðuneytinu mun kunnugt, hefur um eins árs skeið verið uppi ágreiningur milli fulltrúa neytenda og full- trúa framleiðenda í verðlags- nefnd landbúnaðarafurða um valdsvið Framleiðsluráðs land- búnaðarins. Málavextir eru í 'stuttu máli þeir sem nú skal greina: Eftir að verðlagsnefndin hafði á s.l. ári gengið frá verðlags- grundvelli landbúnaðarafurða fyrir verðlagsárið 1/9. 1958— 31/8. 1959 gerðist það, að Fram- leiðsluráð landbúnaðarins bætti á heildsöluverð dilkakjöts í I. verðflokki verðjöfnunargjaldi kr. 0.85 pr. kg. til jöfnunar milli kjöts seldu á innlendum markaði og þess kjöts, sem á- ætlað var að selja erlendis. Þessu mótmæltu fulltrúar neyt- enda sem óheimilu og kröfðust þess, að verðjöfnunargjald þetta yrði fellt niður. Þar sem Framleiðsluráðið hafði mót- mæli þessi að engu, höfðuðu fulltrúar neytenda, í samráði við samtök þau er að tilnefn- ingu þeirra standa, mál á hend- ur Framleiðsluráði landbúnað- arins, með stefnu útg. 11/11. 1958, og kröfðust þess, að viður- kennt yrði með dómi, að Fram- leiðsluráðinu væri óheimilt að leggja umrætt verðjöfnunar- gjald á. Með dómi, uppkveðnum í bæjarþingi Reykjavíkur hinn 18. ágúst s.l., var Framleiðslu- ráðið sýknað af þessari kröfu. Fulltrúar neytenda ákváðu þeg- ar í stað að áfrýja dómi þessum til Hæstaréttar og er málið þar nú til meðferðar. Samtök vor líta svo á, að með dómi þessum, ef staðfestur verð ur, sé grundvelli þeim, sem þátttaka fulltrúa neytenda í verðlagsnefnd landbúnaðaraf- urða hefur byggst á, gjörsam- lega burtu svipt, og að ókleift sé fyrir fulltrúa neytenda, með- an undirréttardómi þeim, er að framan getur, ekki er hrundið, að taka þátt í störfum verðlags- nefndarinnar. Vér höfum því í dag lagt fyr- ir fulltrúa vora í verðlagsnefnd landbúnaðarafurða, að taka eigi frekari þátt í störfum nefndar- innar að svo stöddu. Ákvörðun þessa munum vér taka til nýrr- ar yfirvegunar, þegar fyrir liggur niðurstaða Hæstaréttar í umræddu máli. -- — •---- i Ui'lvtjii___________/ Frh. af 4. síðu: hann í sætið. Þar leit ég fyrst framan í hann, en hann orgaði þessi ósköp, að hann heyrði ekki hvað ég sagði. Munnurinn var galopinn, og — hvað var þetta? Mér sýndist munnurinn fullur af blóði, og tannholdið allt sundurtætt. Höfuðkúpu- brotinn? — Og enn lá við að ég gréti af gleði, þegar ég sá að hann var með rauðleita karra- mellu, og að blóðlitaður safinn rann um munninn. Ekkert blóð. „Hvar finnur þú til, Kiddi minn?“ „Hérna,“ sagði hann, og benti á hægri fótlegginn. „Eg bretti varlega upp buxna skálmina, og bjóst fastlega við að sjá þar opið beinbrot. Nei. Ekkert sár. Ekkert mar. Eg þuklaði um fótinn, síðan hreyfði ég' hann. „Er þetta sárt?“ „Nei.“ Eg þuklaði hann allan og grandskoðaði. Hvergi neitt sjá- anlegt. Eg varð svo undrandi, að ég mátti varla rnæla. Hvaða undursamlegur máttur hafði fært mér drenginn minn heilan á húfi eftír þetta „hræðilega“ slys? Hann hafði gleymt að raka sig. Eg var smástund að jafna mig. Konan var sest upp í bíl- inn og fylgdist með öllu, sem fram fór. Bílstjórinn á hinum bílnum stóð hjá okkur við opn- ar bíldyinar. Þegar ég leit fram an í hann, sá ég náfölt andlitið og hræðslusvipinn í augunum. Ljósir skeggstubbar uxu á hök- unni. Hann hafði greinilega gleymt að raka sig um morgun- inn. „Það virðist ekkert vera að drengnum,“ sagði ég. „Eg finn ekkert að honum.“ „Eigum við ekki að renna upp á slysavarðstofu og láta skoða hann?“ „Nei, Það er óþarfi. Hann er alheill. Ef eitthvað kemur í ljós, þá hef ég bílnúmerið.“ „Já, þá hefurðu samband við mig.“ Og með það fórum við. Er hægt að gefa meira? Nú ók ég alla leið heim til ömmu. Alveg heim að dyrum, og þar fórum við öll inn. Og þá —- og fyrst þá, fórum við að skilja hvað við vorum næstum því búinn að missa, og hvað okkur hafði verið gefið, — því er nokkuð meira hægt að gefa, en ungan og fjörugan, hraustan strák, sem hleypur á móti pabba sínum með opinn faðm- inn og stút á munni — strák, sem ekki kann að ganga? Og ég á þrjá. Hvað mega þeir segja, sem aðeins eiga einn? Sem horfa á eftir aleigunni hlaupandi á tveim stuttum fót« um eftir götunni? „Varlega, bílstjóri! Þú getur gert mig öreiga á einu augna« bliki.“ — G. K. Gjörningabók" Kiljans — efni af ýmsu tagi, úr öEíum áttum. !S Helgafell hefur sent frá sér nýja bók eftir Halldór Kiljan Laxness, sem hann kallar „Gjörningabók“. í formálsorðum gerir höfund- urinn grein fyrir nafni bókar- innar, og segir þar í upphafi: „Gjörningabók merkir eitthvað svipað og acta. Mér fannst þetta hæfilegastur titill á bók, sem varla er hægt að skipa til sér- stakrar bókmenntagreinar. Rit- gerðir í þeim skilningi, sem lagður er í orðið ,,essegja“ (essai, essay) eru of fáar í bók- inni til þess að hægt sé að kalla hana ritgerðasafn. Þær greinar bókarinnar, sem einna næstar standa essay eru ef til vill Hug* blær í Fjallkirkjunni, hugleið- ingarnar um Kína (þessi hlutur o. s. frv.) og neðanmálsgreinin, sem ég gerði handa Politiken um mormónisma (En amerik- ansk aabenbaring).“ Höfundur kallar bókina á öðrum stað samansóp, og er það réttnefni, því að þarna hefur verið tínt til ýmislegt, sem er harla lítils virði, og vafalaust mundi ekki vera talið bera merki mikils rithöfundar, ef einhver annar og minni spá- maður ætti hlut að máli. Bókin er 250 blaðsíður, prent* uð í Víkingsprenti. & annar áöcfiir Grammófóna - eftir Ve ☆ 4) Edison fann upp kvik- myndavélina og sýningartæki 1889, og gerði tilraun með tal- myndir 1914 á þann liátt að setja plötuspilara í samband við sýningarvél. Það heppnað- ist ekki, en rannsóknir hans urðu til þess að aðrir áttu liæg- ara með að smíða tæki fyrir ^ talmyndir. — — Plötuspilar- , inn er ómissandi hjálpartæki jlijá útvarpsstöðVum. Sérstakar plötur, sem kallaðar eru afrit, eru búnar til af hljómlcikum, leikritum o. s. frv. Síðan er þeim útvarpað við tækifæri. Afrit eru að sjálfsögðu stærri en venjul. hljómplötur. — — Hljómplötur liafa verið mikið notaðar við kennslu í mörg ár. Þær eru sérstaklega þægilegar í hljómlistarkennslu, og algeng ar við tungumálakennslu og framburðarkennslu. „Talbælc- ur“, þar sem heilar bækur eru lesnar upp, eru blindum mikil hjáln, og dreift meðal þeirra endurgjaldslaust. 5) Tónbönd eru rafmagns- tæki, sem taka tóninn upp á segulvír eða plastræmu. Þau eru mjög nýleg uppfinning og er liægt að taka upp á þau margra klukkustunda efni og hafa venjulcga mikil tóngæði. Þap eru mikið notuð við upp- töku á fundum, löngum ræðum og liljómleikum. — — Með „þrívíddarhljómplötum“ nálg- jast hljóniupptakan fullkomnun. Tveir liáíalarar eru notaðir. Annar gcfur bassaraddir en hinn þær hærri. Þannig heyrir eyrað hljóminn á svipaðan hátt og við hljómlcikana sjálfa. Þrívíddarhljóm er þegar farið að nota í kvikmyndahúsum og verið er að fullkomna það fyrir útvarp og sjónvarp.------Plötu spilarinn hefur átt mikinn ! þátt í að útbreiða menningu, I þekkingu og ánægju. Fyrir- lestratæki (diktafónn) hafa j stuðlað að framkvæmdum í viðskiptaheiminum, og talbæk- ur stytta stundir blindum mönnum. Nýjustu framfarir í rafcindafræði lofa fögru um aukna nýtingu og ánægju plötu* spilarans. (Endir). ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.