Vísir - 18.09.1959, Side 11
Föstudaginn 18. septémber 1959
VISIB
11
SÝNIKENNSLA
Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur 2ja daga sýniskennslu-
námskeið í grænmetisréttum og' öðrum smáréttum og'
byrjar þriðjudaginn 22. september kl. 8 e.h. í Borgartúni 7.
Nánari uppl. í símum 15236 — 11810 — 12585.
Stjórnin.
JAWA
Útvegum hin heimsþekktu JAWA bifhjól 125—175 og 250
cm. — Einnib hin nýju JAWA bifhjól með Vespulagi 100
og 175 cm. og JAWA hjálparmótorhjól. Myndlistar og upp-
lýsingar í verzluninni.
SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60.
2iS&&&&&&
Verkfræðingar og iðnfræðingar
Mælingaverkfræðingar og byggingaverkfræðingar óskast til
starfa í skrifstofu minni. Æskileg er sérþekking á sviði
gatnagerðar, umferðartækni eða borgarbyggingar (komm-
unalteknik).
Byggingariðnfræðingar óskast einní'g til s'tarfa.
Nánari upplýsingar i skrifstofu minni, Skúlatúni 2.
Reykjavík, 10. sept. 1959,
Bæjarverkfræðingurinn í Reykjavík.
Á þessuári eru liðin 25 ár
síðan fyrsta stúdentaheimili á íslandi, Gamli Stúdenta-
garðurinn, tók til starfa.
Tilhlýðilegt þykir að minnast þessa afmælis með nokkrum
hætti, og hefur því verið ákveðið að efna til afmælishófs
laugardagskvöldið 10. okt. n.k.
Skorað er á alla stúdenta, sem dvalið hafa á Gamla Garði
á undanföx-num aldai'fjórðungi, að koma til þessa sam-
kvæmis til þess að eiga glaða stund og rifja upp gömul
kynni.
Nauðsynlegt er að þeir, sem geta komið þyí við að sækja
afmælishóf þetta, tilkynni þátttöku sína í skrifstofu Gamla
Gai’ðs, sími 1-64-82 kl. 2—5 síðdegis eigi síðar en 25. þ.m.
Reykjavík, 14 sept. 1959.
Jóhann Hafstein bankastjóri.
Gunnlaugur Pétursson borgarritari.
Ragnar Jóhannesson bókavörður.
Þórarinn Sveinsson læknir.
Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur.
STÚLKUR ÓSKAST
á hótel út á landi.
Upplýsingar í síma 36252.
Lee Caíhoun....
Framh. af 3. síðu.
fyrir Rússanum Michailov í
landskeppninni um daginn. Þá
fékk Rússinn 14.0 sek, eða sama
tíma og Lauer, en var sjónar-
mun á undan. Sú fregn vakti at-
hygli manna og furðu, og var
skýringar leitað. Hún reyndist
vera sú, að Lauer hafði verið í
þriggja vikna sumarleyfi í Sviss
og sennilega um stund komist
úr keppnivana.
Engum mun þó vera Ijóst hve
vont það er fyrir orðstír ný-
bakaðs heimsmeistara að tapa
fyrir manni, sem er þó almennt
ekki talinn betri en Michailow.
En það er bersýnilegt, að jafn-
vel hinir beztu geta misreiknað
sig. Ef til vill hefur Lauer haft
í huga, að hann vann Michailov
í landskeppni í fyrrahaust með
13.9 sek á móti 14.0, án þess þó
að vei'a í fullri æfingu. Sú regla
var þó ekki algild.
Það er því ekki að undra,
, þótt mai’gir hafi beðið með eft-
irvæntingu eftir komu Calho-
uns til Wuppertal nú í fyrri
viku. Að vísu hljóp Lauer á 13.8
sek í tugþrautinni, sem háð var
eftir landskeppnina við Rússa,
en dygði það til að sigra hinn
reynda Calhoxm?
Þeir náðu báðir álíka góðu
viðbragði, en þegar eftir nokkr-
ar grindur kom í ljós hvor var
sterkari, og er að marki kom
var Lauer um fullum metra á
undan Ólympíumeistaranum.
Þar með var úr því skorið hvor
var betri grindahlaupari í sept.
1959, Lauer eða Calhoun. En
hvor verður betri í september
1960? Það er spurning sem ekki
fékkst svarað nú.
Jutta Heíne...
Frh. af 3. síðu:
Ekki tókst Heine þó að bera
sigur úr býtum, og vai'ð að láta
sér nægja fjórða sætið, — og
tímann 25.0 sek. En hvað um
það, Jutta Heine er talin ein af
efnilegustu íþróttakonum í
Þýzkalandi, og það er án efa
leit að stúlku sem náð hefur
tímanum 24.1 sek og 2. sætinu
á afi-ekaskrá lands síns, með
þremur hlaupum einungis. —
Og það í landi sem hefur upp
á eins stóran hóp afrekskvenna
að bjóða og Þýzkaland.
Bezt að augiýsa í Vísi
BRIDGEÞÁTTIIR
** VÍSIS & *
Frá Bandaríkjunum berast
þær fréttir, að sveit Samuel S.
Stayman muni vei'ða ein af full
trúum Bandaríkjamanna á Ól-
ympíumótinu í Róm. Vann sveit
hans meistarakeppni Chicago-
borgar og fékk svokallaðan
Spingold-bikar að launum. í
sveitinni voru ásamt Stayman,
Oswald Jacoby, gömul brigde-
stjarna, Ira Rubin, Victor Mit-
chell, Morton Rudinow og Willi-
am Grieve. Meðal sterkra sveita
sem Stayman sló út, var sveit
J. Crawford, E. Kaplan og J.
Mathe. Sem dæmi um styi'k-
leika þessai’ar sveitar, má geta
þess, að hún fór í gegnum
keppnina án þess að tapa ein-
um einasta leik. í úrslitaleikn-
um var hún þó hætt komin, eins
og sjá má á eftirfarandi spili,
sem var síðasta spilið í leiknum.
Þá var sveit Staymans fjögur
stig undii'.
Staðan var allir á hættu og;
vestur gaf.
A A-9-8-7-5
V D-9--5-3
♦ K-D-10
* Á
A K-G-10-3
V Á
♦ 9-6-4
* G-10-8-7-6
A 2
V K-8-2
* D-5-4
♦ Á-G-8-7-3-2
Á
A D-6-4
V G-10-7-6-4
♦ 5
* K-9-3-2
í lokaða herberginu, þar sem
sveit Stayman sat n-s, gengu
sagnir einfaldlega: V:P — N:1S
— A:P — S:2S — V:P — N:3S
— A:P — S:4S og allir pass.
Báðir spilararnir yfirsögðu
aðeins og norður var þrjá niður
eftir laufaútspil frá austri.
Hann getur sloppið með tvo nið
ur og gerir það eflaust ef spilið
er doblað. Eina von Staymans
var sú, að andstæðingarnir færu
líka í 4 spaða og fengju þá dobl-
aða. Hins vegar nægðu ekki
tveir niður úr því að sveitafé-
lagar Staymans höfðu farið
þrjá niður, svo að útlitið var
ekki glæsilegt.
í opna salnum, þar sem áhorf
endur gátu heyrt allar sagnir
og séð allar hendur á Vu-Graph,
eins konar sjónvarpsskermi,
var útkoman allt önnur. Þar
gengu sagnir: V:P — N:1S —<
A:2T — S:2S — V:3G — N:D
og allir pass.
Norður spilaði út spaðasjöi,
vestur fór inn á kónginn og spil
aði tígli, sem norður fékk á
drottninguna. Norður spilaði þá
hjarta, vestur fór inn og spilaði
tígli, beit á jaxlinn og svínaði.
Hann tók síðan tíglana í botn,
í hverja suður gaf eitt hjai'ta,
tvo spaða og tvö lauf. Þá kom
laufdrottning og, já, laufkóng-
ui'inn á, undir ás norðurs. Vest-
ur fékk tíu slagi, sveit Stay-
mans græddi 6 stig á spilinu og
Rómarferð.
Hver skyldi hafa trúað því,
að Bandaríkjamenn væru svo
gamaldags að láta keppa um
Ólympíuferðina? Mikið gætu
þeir lært af íslendingum í þeim
efnum.
Nærfatnaðui
karlmanna
9g drengja
fyrirliggjandl
LH.MULLER
TIL SÖLU
Allar tegundir RÚVÉLA,
Mikið úrval af öllum It&r
undum KIFREIÐA.
BÍLA - og BÚVÉLASALAN
Baldxjrsgötu 8. Sími 23136,
F'uliirútBráð Sgálístœðisfclaganna í Hcgkjavék
FUNMÞUM
Fundur verður haSdinn í Fullirúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í kvöld í Sjálfsíæðíshúsinu
klukkan 8,30.
Fundarefni: TILLÖGUR KJÖRNEFNDAR
Fulltrúar eru áminntir um að sýna fulltrúaráðsskírteini við innganginn.
Stjórn fuiltrúaráðsins