Vísir - 25.09.1959, Blaðsíða 9

Vísir - 25.09.1959, Blaðsíða 9
Föstudaginn 25. september 1959 Vf SIB Iþróitir tir öllum átinm — Hilmar hleypur léílilega og slí Framh. af 4. síðu. næsta morgun var haldið burt. Lent var fyrst í Kaupmanna- höfn, og þar skildust leiðir. Þorsteinn hélt til Álaborgar til keppni, Vilhjálmur hélt heim á leið, en Valbjörn og Ingi far- arstjóri héldu til Stokkhólms. Enn varð þref út af stöng Val- bjarnar, en hún kom svo til Stokkhólms flugleiðis næsta dag, svo sem lofað hafði verið í Leipzig. AHt í ringulreið. í Stokkhólmi gerði enn vart við sig sama óstjórnin sem áður hafði verið minnzt á. Mótstjórn- in hafði ekki samband við hina íslenzku keppendur fyrr en eft- ir hádegi þann dag sem mótið skyldi fara fram. Var þá loks hægt að fá staðfestar keppni- greinar mótsins. Kom þá í ljós, áð engin keppni var í stangar- stökki og engin í sleggjukastti. Forystumenn íþróttamótsins voru ekki ánægðir með að láta svo marga íslendinga dvelja að- gerðarlausa á fríu uppihaldi, og varð það úr, að Ingi skyldi keppa þeim til friðþægingar. Ái’angur á þessu móti var mjög góður. Hilmar sýndi enn yfirburði sína yfir Svíunum og varð fyrstur á 10.9 sek. Svavár Markússon varð annar í 1500 m. hlaupi á 3.49.8 sek. sem er mjög góður tími. Hörður varð 4. í 400 m. á 49.5 sek. Á því móti setti sænski kúluvarparinn Uddebom nýtt sænskt met, kast- aði 17.06 m. Þrenn fyrstu verðlaun. Næst var keppt í litlum bæ. er heitir Lindesberg. Þar eru aðeins 5000 íbúar, en samt hafði verið boðað þar til alþjóðamóts. Var fólkið mjög vinsamlegt Is- lendingunum þar og fengu þeir hinar bestu móttökur. Auk þeirra mættu þar til keppni hópar frá Englandi, Finnlandi og Nýja-Sjálandi. að ógleymd- um Svíunum. íslendingarnir vöktu óskipta athygli og voru birtar af þeim margar myndir. Þar unnu þeir þrenn fyrstu verðlaun, og hefðu sennilega fengið þau fjórðu ef Ingi hefði ekki tognað í 110 m. grinda- tur snúruna í 100 m. hlaupinu ga langbeztur og tíminn var 10 hlaupinu. — Hilmar vann Í00 m. hlaupið léttilega á 10.8 sek. á mjög lausri braut. — Val- björn vann stangarstökkið á 4.30 m. og Hörður Haraldsson 400 m. á 49.4 sek. Ingi kom 3 í mark í 110 m. grind, tognaður, en aðeins 2/10 úr sek. á eftir sigurvegaranum. Engin sleggjukastkeppni var fyrir Þórð frekai’ en fyrri dag- inn, er hann tók þó þátt í kúlu- varpi í staðinn og setti þar persónulegt met. Svavar og Kristleifur héldu hins vegar heim, áður en komið var til Lindesberg. Var frí þeirra á þrotum. Þórður með nýja sleggju. Næst var haldið til Gauta- borgar. Þar sigraði Hilmar enn í 100 m. hlaupinu, náði 2/10 úr sek. betri tíma en næsti maður, hljóp á 10.6 sek. Val- björn háði einvígi við Krez- inski frá Póllandi og vann með 4.40 m. Pólverjinn stökk 4.30 m — Hörður varð 2. í 400 m. hlaupinu á 49.3 og vann m.a. Englendinginn Cope, auk fleiri. Þórður fékk nú loks keppni í sleggjukasti. Hann var í ”topp- formi“. Var hann mættur til keppni með nýja sleggju. Þótti hinum keppendunum mikið til gripsins koma, og varð Þórður að lofa þeim öllum að keppa með henni. Þá vildi svo leiðin- lega til, að sleggjan var skemmd fyrir honum. Gerðist það í 2. umferð. Lengdi Þórður sig ekki eftir það, en náði 5. sæti með 52.85 m. um 35 sm. frá sinu eigin meti. — Einnig var Löye rnættur aftur frá Ála- ^ borg. Varð hann fimmti í kringlukasti með um 47 m kast. Enn óvissa — haldið heim. Islendingarnir áttu enn að keppa í Lundi, en þar sem óvissa ríkti um keppnigreinar eins og fyrri daginn, var ákveð- ið að hætta við frekari keppni og halda heim. Hörður keppti þó enn á þrem stöðum ásamt Valbirni. Valbjörn vann stangarstökkið á þeim öllum, stökk hæst 4.25, enda um smáborgir að ræða, í Lindesberg. Hann var greini- 8 sek. þar sem aðstæður voru ekki upp á það besta. Hörður keppti í 100 m. hlaupi og varð annar á 11.1 sek. Auk þess setti hann persónulegt met í 400 m. hlaupi er hann keppti í Hagfoss, 48.6 sek. Það nægði honurtl til sigurs. Þess má geta að Hörður sigr- aði í þessari för sinni iðulega menn sem hafa náð betri tíma en 48.5 sek. í sumar, ég gat því vart hjá því farið að hann næði tíma sem slíkum. Hörður er nú kominn heim, en Valbjörn hefur dvalið við æfingar í Stokkhólmi, og mun hann keppa á móti í Dresden 27. sept. Skemmtilegasta fcrðin. Að lokum kvaðst Ingi vilja geta þess sérstaklega, • að þetta væri sennilega skemmtilegasta keppniferðalag sem hann hefði tekið þátrt í, og væri það eink- um að þakka samhug og vilja þátttakenda til þess að standa sig sem best. — í raun og veru hefði hver og einn þeirra verið sinn eiginn fararstjóri, og það til hins betra, enda hefði ódrep- andi áhugi, þótt oft hefði verið við erfiðar aðstæður að etja, fært heim 17 fyrstu verðlaun auk annars. íslendingarnir vöktu óskipta athygli ,hvar sem þeir fóru enda stóð ekki á tilboðum um bæjarkeppni, auk annars á næsta ári og má vænta þess að það verð eitt af líflegri keppni- árum. — M.a. mun Gautaborg hafa farið fram á að efnt verði til bæjarkeppni, svo að nokkuð sé nefnt. Á I Fleiri bibiíur handa JúgósEövum. Þrátt fyrir trúna á kommún- ismann virðist kristin trú eiga vaxandi fylgi að fagna í Júgó- slavíu. Brezka biblíufélagið, sem sér eitt um dreifingu biblíunnar í Júgóslavíu, hefur fengið heim- ild til að senda þangað allt að 10.000 eintök á ári. Fyrir skemmstu bannaði stjórn Titos allan biblíuinnflutning en nú hefur bannið verið upphafið. Kjörstaðir eriendis eru alls 25 að tölu. Utankjörsíaðarkosning getur hafíst eríendfs. Utankjörfundarkosning getur farið fram á þessum stöðum er- lendis frá og með 27. september 1959: BANDARÍKIN AMERÍKU. Washington D.C. Sendiráð íslands 1906 23rd Street N.W. Baltimore, Maryland: Ræðismaður: Dr. Stefán Ein- arsson 2827 Forest View Aven- ue Baltimore, Maryland. ing 80 Richmond Street West5 Toronto, Ontario. Vancouver, British Columbia: Ræðismaður: John F. Sigurðs sonl275 West 6th Avenue, Van- couver, British Columbia. Winnipeg, Manitoba: (Umdæmi Manitoba, Saskat- chewan, Alberta). Ræðismaður: Grettir Leo Jóhannson 76 Middle Gate, Winnipeg 1, Mani- toba. Chicago, Illinois: Ræðismaður: Dr. Árni Helga- són 100 West Monroe Street Chicago 3, Illinois. Grand Forks, North Dakota: Ræðismaður: Dr. Richard Beck 801 Lincoln Drive Grand Forks, North Dakota. Minneapolis, Minnesota: Ræðismaður: Björn Björns- son Room 1203, 15 South Fifth Street Minneapolis, Minnesota. New York, New York: Aðalræðismannsskrifstofa fs- lands 551 Fifth Avenue, New York 17, N.Y. Portland, Orgegon: Ræðismaður: Bardi G. Skúla- son 1207 Public Service Build- ing, Portland Oregon. San Francisco og Berkley, California: Ræðismaður: Steingrímur Octavíus Thorláksson 1633 Elm Street, San Carlos, California. Seattle, Washington: Ræðismaður: Karl F. Frede- rick 218 Aloha Street, Seattle, Washington. BRETLAND. London: Sendiráð íslands 17, Bucking- ham Gate, London S.W. 1. M Edinburgh—Leith. Aðalræðismaður: Sigursteinn Magnússon 46, Constitution Street, Edinburgh 6. Grimsby: Ræðismaður: Þórarinn 01- geirsson Rinovia Steam Fishing Co. Ltd. Faringdon Road, Fish Dock. DANMÖRK. Kaupmannahöfn: Sendiráð íslands Dantes Plads 3, Kaupmannahöfn. FRAKKLAND. París: Sendiráð íslands 124 Boule- vard Haussmann, París. ÍTALÍA. Genova: Aðalræðismaður: Hálfdán Bjarnason Via C. Roccatagliata Ceccardi No. 4—21, Genova. KANADA. Toronto, Ontario: Ræðismaður: J. Ragnar John- son, Suite 2005, Victory Build- NOREGUR. Sendiráð íslands Stortings- gate 30, Osló. SOVÉTRÍKIN. Moskva: Sendráð fslands Khlebny Pereulok 28, Moskva SVÍÞJÓÐ. Stokkhólmur: Sendiráð íslands Komman- dörsgatan 35, Stockholm. SAMBANDSL. ÞÝZKALAND. Bonn: Sendiráð íslands Kronprinz* ensarasse 4, Bad Godesberg. Hamborg: Aðalræðismannsskrifstofa fs- lands Tesdorpstrasse 19, Ham- borg. Lúbeck: Ræðismaður: Árni Siemsen Körperstrasse 18, Liibeck. TÉKKÓSLÓVAKÍA. Prag: Ræðismaður: Árni Finn* björnsson Na Orechovce 69, Praha 5. Utanríkisráðuneytið. Reykjavík, 22. sept. 1959. ; Koptinn barg flugmanni. Nýlega björguðu amerískir flugmenn, sem flugu kopta, fjallgöngiunanni scm var búinn að hanga í tvær nætur utan í hengiflugi í austurrísku ÖIp- unum. Maðurinn var í tvö þúsund metra hæð og gat sér enga björg veitt. Hann hafði lágt í fjallgönguna á sunnudag og misstigið sig. Gat hann komið sér fyrir á sillu utan í klettun- um, en þar sem hann hafði ver- ið skorinn upp við barkaígerð og talaði alltaf síðan í lágum hljóðum, gat hann ekki hrópað á hjálp. Það var ekki fyrr en á þriðudag að menn urðu hans varir þar sem hann hékk. Kopt- inn varð að halda sér hreyfing- arlausumm yfir sillunni rétt við klettavegginn mínútum saman, á meðan rennt var kaðli niður til mannsins. Gat hann brugð- ið kaðlinum utan um sig og var síðan dreginn inn í flug- vélina. Maðurinn var ómeidd- ur, en alveg örmagna. Afrek flugmannsins í koptj anum þótti frábært,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.