Vísir - 06.10.1959, Blaðsíða 5

Vísir - 06.10.1959, Blaðsíða 5
J>riðjudaginn 6. október 1959 VfSIS Friðun miða — framtíð lands. Þeir, sem gangast fyrir fjársöfnuninni til þyrlukaupa, hafa gefið út eftirfarandi ávarp: Vér undirritaðir ákveðum hér með að beita oss fyrir því, að nú þegar verði gert merki, er sé tákn réttlætiskröfu íslenzku þjóðarinnar lun fiskveiðilögsögu, er tryggi fjárhags- og menn- ingarlega velferð þjóðarinnar í framtíðinni. Einkunnarorð merkis þessa séu: FRIÐUN MIÐA — FRAMTÍÐ LANDS Hreinar tekjur af sölu merkisins gangi til að búa sem bezt úr garði hið nýja varðskip, sem þjóðin nú á í smíðum. Væntum vér þess, að sem flestir Islendingar beri merki þetta í barmi sér þá daga, er framkvæmdanefnd máls bessa ákveður að sala merkisins fari fram, og votti með bví hug sinn í brýnasta hagsmunamáli þjóðarinnar og auðsýni vilja sinn til þess að í engu verði vikið fyrir ofbeldi því, er eitt af mestu herveldum heims nú beitir þjóð vora. Reykjavík, 24. september 1959. UPPBOÐ sem^auglýst var í 69., 70. og 74. tbl. Lögbirtingablaðsins 1959, á hluta í Grænuhlíð 8, hér í bænum, eign dánarbús Þórðar Péturssonar, fer fram eftir ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur á eigninni sjálfri laugardaginn 10. október 1959, kl. 2% e.h. Uppboðsskilmálar, yeðbókarvottorð og önnur skjöl varð- andi söluna, eru til sýnis hér í skrifstofunni, og auk þess gefst mönnum kostur á að skoða íbúðina eftir samkomu- lagi við skiptaráðanda. Borgarfógetinn í Reykjavík. mam Lúðvíg Guðmundsson, skólastjóri. Þorkelli Jóhannesson, Dr. phil., rektor Háskóla fsl. Gunnlaugur Pétursson, borgarritari. Sveinn Víkingur, frv. biskupsritari. Bárður Daníelsson, , verkfræðingur. Einar Arnalds, borgardómari. Sigvaldi Thordarson, arkitekt. . Snorri Hallgrímsson, Dr. med., prófessor. Snorri Jónsson, form. fél. járniðnaðarm. Einar Magnússon, mcnntaskólakennari. Eyj. Kon. Jónsson, hdl. Hannes M. Stephenson, form. Verkam.fél. Dagsbrún. Júl. Havsíeen, fyrrv. sýslumaður. Gunnlaugur Þcrðarson, Dr. juris,, hdl. Sigurður Thoroddsen verkfræðingur. Hallberg Hallmundsson, blaðamaður. Kristján H. Benediktsson, form. Menntamálaráðs /slands, Jón úr Vör, rithöfundur. Steingrímur Steinbórsson, fyrrv. forsætisráðherra. , Björn Sigfússon, háskólabókavörður. Guðbjartur Ólafsson, forseti Slysav.fél. íslands. Henry A. Halfdánsson, skrifstofustj. Slvsav.fél. ísl. Frost í lestum Langjökuls í sólbruna og heitum sjó. Ýsnsar nýjungar er að finna í hinu glæsilega skipi. f hinu nýja skipi, „Langjökli“ eign Jökla h.f. er að finna allar nýjungar sem nauðsynlegastar þykja í fullkomið frystiskip. Ingólfur Möller, skipstjóri sýndi gestum og blaðamönnum skipið í gær og lét þeim í té eftirfarandi upplýsingar. Aðalmál skipsins eru: lengd 88,00 m, breidd 12,25 m, dýpt 4,90 m, og gefur það „dead- •weight“ 2063 longton, við 16 feta djúpristu. Skipið, sem er frystiskip, er byggt eftir ströngustu kröfum Lloyd’s til skipa, sem sigla eiga á öllum höfum og auk þess er skipið styrkt til siglinga í ís. Skipið hefur Lloyd’s vottorð um, að það haldi 220 gráðum á celius við +25 gráða sjávar- hita og +35 gráðu lofthita. — Skipið, sem hefur þrjár Sabro frystivélar, þarf aðeins tvær þeirra, til þess að halda þessu frosti. í skipinu eru fjórar lestar, er hver um sig getur haldið því hitastigi, sem óskað er, innan þeirra takmarka, sem áður get- ur. Rúmmál lestanna er 87000 tenginsfet. Lestaropin eru fjögur og er þeim lokað með lúguhlemmum af allra nýjustu gerð. Á skipinu eru 8 vindur og 8 bómur til fermingar og afferm- K0MI höggdeyfar Þessir viðurkenndu stillanlegu höggdeyfar fást venjulega hjá okkur í margar gerðir bifreiða. Útvegum KONI högg- deyfa í allar gerðir bifreiða. SMYRILL, húsi Sameinaða, sími 1-22-60. ALLT A SAMA STAÐ > TIMKEN legur í flesta bíla. Daglega nýjar vörur. Egill Vilhjálmsson h. f. Laugavegi 118, sími 22240. Kosningabaráttunni nær lokið á Bretlandi. Algerlega óvíst hverjum 1 af hverjum 5-6 kjósendum greiðir atkvæði sitt. I ingar. Akkerisvinda í stafni og Íandfestivinda í skut. Allar aflvélar skipsins eru dieselvélar af Deutz gerð: aðal? ( vél 2000 hestöfl við 275 snún- inga á mínútu, 2 hjálparvélar | sem drífa 165 kw rafala og ein sem drífur 110 kw rfal. í skipinu eru vistarverur fyr- ir 28 menn. Allar vistarverur, stjórnpallur, kortaklefi, loft- skeytaklefi, eldhús, búr, kæli- geymsla og birgðageymslur eru aftur í skipinu. Allar vistarver- ur eru rrijjög rúmgóðar og vand- aðar. Björgunarbátar. eru geymdir í uglum af allra fullkomnustu gerð, og tekur aðeins um 25 sek- úndur að sjósetja þá. Öryggisútbúnaður er að sjálf- sögðu eins og frekast er krafist. Skipið er búið öllum nýtízku siglingatækjum og er ganghraði þess um 13,5 sjómíla á klukku- stund. Fyrsti stýrimaður er Júlíus Kemp og fyrsti vélstjóri er Höskuldur Þórðarson. Aðal steinn Björnsson hafði eftirlit með smíði skipsins af hálfu Jökla h.f. Með skipinu kom hingað til lands Christensen, framkvæmdastjóri Aarhus I Flydedok og Maskinkompagni A.S.. í Árósum, sem smíðaði j’Skipið. í dag er næstsíðasti dagurinn fyrir þingkosningarnar á Bret- landi. Almennt er itið svo á, og við- Almennt er litið svo á, og .við- úrslitin kunni að velta á — jáfn vel muni velta á — hvernig þeir kjósendur, sem taldir eru ó- ráðnir í hvaða flokk þeir kjósa, verji atkvæði sínu á fimmtu- daginn, en óvissa ríkir um 1 af hverjum#5—6 kjósendum. Og í dag og á morgun miðast allt við að hafa áhrif á þessa kjósend- ur. Enn er mikið rætt um fund æðstu manna. Andstæðingar Macmillans halda áfram að saka hann um að hafa ætlað að mata krók sinn á yfirlýsingu um, að fundurinn yrði ákveð- inn þá og þegar. Times, sem'er óháð, segir að auðsæilega hafi einhver misskilningur komið hér til, en Macmillan hafi vafa- laust sagt það sem hann sagði, í góðri trú, en verið of fljótur á sér. Blaðið Daily Mirror, fjöllesn- asta blað landsins, en ekki að sama skapi í áliti, leggur jafn- aðarmönnum lið, óg birtir dag- lega sex ástæður fyrir því hvers vegna menn ættu að styðja verkalýðsflokkinn eða krata í þessum kosningum, en Daily Sketch (íhaldsblað) vill nú ekki láta sinn hlut eftir'liggja og birtir 10 ástæður daglega fyrir því, hvers vegna menn eigi ekki að kjósa krata. Sum- ar eru nákvæmlega hinar sömu og Daily Mirror leggur fram sem rök fyrir hvers vegna menn ættu að leggja krötum lið. Macmillan og Gaitskell fluttu seinustu kosningaræður sínar í gær. Báðir segjast vænta sigurs, en það skín í gegnum öll þeirra orð, að mikil óvissa er ríkjandi, þar sem styrkleiki flokkanna er nokkuð jafn víða. wm Sunddeild K.R. Sundæfingar hefjast í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld. Æfingatímar verða í vetur á kvöldin sem hér segir: Yngri félagar: Þriðjud. og , fimmtud. kl. 7.00. | Eldri félagar: Þriðjud. og , fimmtud. kl. 7,30 og föstud. kl. 7.45. Sundknattleikur: Mánud. og miðvikud. kl. 9.50. Nýir félagar komi til skrá- setningar á tilgreindum tímum. — Stjórnin. ÁRMANN.'' Innanfélags- mót fer fram á Melavellin- um á morgun, fimmtud., kl. 6. 400 m. grind, 100 m. kúla og kringla. Stjómin. (383 Tvennskoiiar sjónarmið., Framh. af 1. síðu. sett lög og reglur um 12 miloa landhelgi eða enn stærri land- helgi. Hann lagði áherzlu á, að Islendingar hefðu aðeins fært út fiskveiðamörkin í 12 mílur, ekki landhelgismörkin (terri- torial limits). Hann kvað ísland mundu senda fulltrúa á Alþjóðaráð- stefnuna að ári um réttarreglur á hafinu 5g kvaðst vona, að mál- ið yrði þar til lykta leitt. Hann lét enn í ljós þá von, að brezka stjórnin kveddi heim herskip sín úr íslenzkri land- helgi fyrir þann tíma. BBC. Brezka útvarpið skýrði frá ræðu Thor Thórs í höfuðatrið- um, að hann hefði sakað Breta um að hafa tvær stefnur í þess- um málum, framkoma þeirra vaeri önnur gagnvart stórveld- um en íslandi, og að brezkt her- skip hefði í fyrri viku hindrað töku brezks togarar í ísl. land- helgi. Pierson-Dickson svarar. Síðar var sagt í brezku út- varpi, að Sir Pierson-Dickson, fastafulltrúi Bretlands hjá Sam- einuðu þjóðunum, hefði svarað Thor Thors, og lýst yfir, að Bretland væri enn fúst til þess að semja við ísland um deiluna, að togurum hefði verið látin í té flotavernd á miðum, sem hefð væri komin á, að Bretar fiskuðu á — þeir hefðu gert það á aðra öld — og loks kvað hann Bretland hafa lýst yfir, að það gæti fallist á, að deil- unni væri skotið undir úrskurð. Alþjóðadómstólsins í Haag, og ef íslendingar væri eins örugg- ir um rétt sinn í málinu og þeir þættust vera, ættu þeir að geta fallist á þessa leið. í áframhaldi af því var sagt, að Thor hefði tekið fram, að ís- land gæti ekki fallist á þá leið, þar sem beitt væri þvingunum gegn því, og auk þess gætí það tekið mörg ár að fá málið leitt til lykta fyrir alþjóðadómstóln- um. Gisnrsai Guðjónsson endurkjörinn form. Á fyrsta fundi hinnar ný- kjörnu sfjórnar Verzlunarráðs íslands 1. okt., var Gunnar. Guðjónsson, stórkaupm. cndur- kjörinn formaður ráðsins. Sig- urður Ágústsson, alþm., var kosinn varaformaður og Sveinn Guðmundsson, forstjóri, annar varaformaður. í framkvæmdastjórn ráðsins taka sæti auk framantalinna manna, þeir Haraldur Sveins- son, forstjóri, Kristján G. Gíslason, stórkaupm., Gunnar Friðriksson, forstjóri, og Sig- urður Óli Ólafsson, alþm. GAMLAR BÆKUR. — Kaupi gamlar bækur, blöð og tímarit. Bókamarkaður- inn, Hafnarstræti 16. (Geng- ið inii frá Kolasundi). (193

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.