Vísir - 26.11.1959, Síða 8
Ekkert blaS er ódýrara í áskrift ea Vísir.
Látið hann færa yður fréttir «s annað
iMtrarefni beim — án fyrirbafuar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að Jieir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Finuntudasrinn 26. nóvember 1959
Frá Hæstarétti:
Ökuníðingur greiði
nærri níu þús. krónur.
r \
1 Hæstarétti er fallinn dóm-
Jir í máli, sem reis út af árekstri
<»g skemmdum á bifreið, en or-
sökin var ósvífinn akstur, sem
dró þann dilk á eftir sér, að
bílstjórinn verður að láta út
næm níu þúsund krónur.
Tvær fólksfifreiðir rákust
saman eina aprílnótt 1956 á
mótum Suðurlandsbrautar og
Langholsvegar. Bifreið stefnda,
íR-461, var ékið með ofsalegum
• hraða af eigandanum, Gunnari
j Tryggvasyni, og dældaði og
rispaði alla vinstri hlið á R-404, i
bifreið stefnanda Gunnai’S ■
Tryggvasonar. Sannaðist, að
stefndi hafði sýnt sérstaka ó-
aðgæzlu og ók með sama hraða,'
þrátt fyrir aðvörunarmerki
stefnanda, og eigi stefndi alla
sök á árekstrinum og beri fé-
bótaábyrgð á öllu því tjóni, er j
stefnandi beið. Honum beri að
igreiða stefnda kr. 4.953,71 auk J
6% ársvaxta frá 1. maí 1956
til greiðsludags, svo og máls-
kostnað fyrir héraði og Hæsta-
rétti samtais 3850 krónur.
//ri
// *
m
Frá fréttaritara Vísis.
Isafirði í morgun,
Stöðugar ógæftir hafa verið
síðan fyrir helgi, og' gátu tog-
aramir ekki einu sinni verið
að veiðum um helgma.
í dag eru togarar og vélbát-
ar aftur á móti að veiðum.
Hér hefur verið stöðug austan-
átt, rignt og snjóað á víxl. Slik
veðrátta var í gamla daga koll-
uð „fiskigönguveður11. Vona
menn enn, að það verði sann-
mæli.
Sauðfé á beitarjörðum við
Djúp gengur enn úti, og mjög
snjólétt er á flestum heiðum
og fjallvegum.
Óhagstæður vöruskiptajöfnuður
yfir 300 ntiiljónir króna.
83,5 Rnilljónum meiri en á sama tíma í fyrra.
Samkvæmt bráðabirgða-1 Innflutningurinn alls nam
skýrslu Hagstofunnar var ó- j 1.170.544 til októberloka, þai'
hagstæður viðskiptajöfnuður í af skip 23 millj. 458 þús., en í
í gær var opnuð uý verzíun á Skólavörðustíg 22. — Vdrzlun
þessi mun fyrst og fremst kappkosía að hafa á boðsfólum
spegla ýmissa stærða og gerða, em þess utan verða (þar snyrti-
vörur ýmsar. Eigendur verzlunarinnar eru þeir Karl Árnason ,
og Hendrik Bernburg, eða Gleriðjan s.f. Verzlun þessi mun
vera eina verzlun bæjarins, sem hefur verzlun með spegla að
sérgrein.
Verður sölubann á mjðlk?
*
Urslit atkvæðagreiðslu u«n
næstu tielgi.
lok októbermánaðar 307 míllj.
tog 740 þúsund krónum.
Á sama tíma 1 fyrra nam
hann 223 milljónum og 389
þúsund krónum.
Alls var útflutt í október
’fyrir 110 millj. 253 þúsund kr.,
en í sama mánuði í fyrra fyrir
105 millj. 942 þús. kr. Útflutn-
ingurinn jan.—okt í ár nam
862 millj. og 804 þús. kr., en á
sama tíma í fyrra 864 millj.
123 þús. kr.,
Innflutningurinn í október
nam 136 millj. 199 þús. en í
október í fyrra 115 millj. 95
þús.
Óhagstæður. vöruskiptafjöfn-
uður í okt. 25 millj. 946 þús. og
í fyrra 9 mllj. 993 þús. kr.
fyrra 1.087.512, þar af skip 32
millj. 353 þúsund.
ísiandsMÓt í hand-
knattleik í jaraíar.
Handknattleiksmeistaramót
slands 1960 fer fram í Reykja-
vík og hefst síðast í janúar.
Keppt verður í mfl., 1. fl. 2. fl.
og 3. fl. karla, mfl., 1. fl. og 2.
fl. kvenna.
Þátttökugjald er kr. 35.00
fyrir hvern flokk og skal það
fylgja með tilkynningunni.
Sérstök athygli væntanlegra
þátttakenda skal vakin á regl-
um um læknisskoðun.
Atkvæðagreiðsla á meðal
bænda um heimild til handa
Stéttarsambandi þeirra til að
stöðva sölu á mjólk, síendur
enn yfir, og er ekki búisí við
úrslitum fyrr en imi eða eítir
næstu helgi.
Eins og fyrr getur, er hér að-
eins um heimild að ræða, og ef
atkvæðagreiðslan fer á þann
veg að heimildin verði sam-
þykkt, er það' undir stjórn
Stéttarsambandsins komið,
hvort sölubannið verður sett á,
eða ekki. Líklegt er að hvort
sem verður, muni beðið eftir
afgreiðslu Alþingis og rikis-
stjórnar á deilumálinu um verð
lagninu landbúnaðarafurða.
Upplýsingar um þátttöku í
atkvæðagreiðslunni hafa enn
ekki fengizt, en eftir öllum
sólarmerkjum að dæma, virðist
þátttakan vera heldur dræm.
Um helmingur bunaðarfélag-
anna mun vera búinn að skila
atkvæðum af rúmlega áttatíu
félögum.
Foreldrafundur í
Míðbæjarskólanum,
í dag ganga foreldrar skóla-
barna í Miðbæjarskólann á
síað barnanna, bví börnin
eiga fri.
Skólastjóri og' kennarar Mið-
bæjarskólans í Reykjavík tóku
fyrir þrem árum upp þann
Kátt að efna einn dag vetrarins
til sérstaks foreldra dags, þar
sem foreldrum skólabarna gæf-
izt kostur á að ræða vanda-
mál barna sinna við kennar-
ana.
Þetta virðist hafa gefið ágæta
raun og' áhugi foreldranna mik-
ill fyrir þessu, því að 70—80%
þeirra hafa komið til viðræðria
við kennarana á þessum dög-
um. Má fullyrða að með þessu
móti hafi verið unnt að vekja
til umhugsunar jafnt meðal
kennara sem foreldra mál
sem steðja að í sambandi víð
börnin, skólagöngu þeirra og
nám.
Undirbúningur að gisti-
húsinu gengur vel.
Bráðlega tekift fyrir í bæjarráði.
Undirbúningur að byggingu
hins nýja gistihúss, sem Þor-
valdur Guðmundsson veitinga-
unaður hefur í huga að byggja
á næstunni, er I fulluin gangi.
Athuganir hafa farið fram á
staðsetningu hússins, en líkleg-
asti staðurinn ennþá ,er sunnan
Hringbrautar, eins og upphaf-
lega var giskað á. Uimið hefur
Verið að uppdráttum og gerðar
ýmsar tillögur um bygginguna,
-I
en endanlegar teikningar er
ekki hægt að gera, fyrr en stað-
urinn er ákveðinn. Eru Iíkur til
þess að samvinnunefnd um
skipulagsmál taki málið fyrir
eftir næstu helg, og því
Verði síðah vísáð til bæjarxáðs
til endánlegrar ákvörðunar. .
yísir hefur heyrt því fleygt,
að gistihúsið sjálft munL verða
(Þ—8 hæðír, en veitingasalir
o. fl. verði einlyftri bygg-
ingu áfastri gistihúsinu.
Akureyri.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun. —
Hláka hefur verið í byggð í
Eyjafirði s.l. sólarhring og í
nótt var hellirigning á Akur-
eyri.
Aftur á móti var kalsi til
fjalla og hefur snjóað niður í
miðjar hlíðar. Víða eru vegir
svo blautir eftir rigninguna að
þeir éru illfærir sem stendur,
enda liggja sumstaðar snjó-
traðir að þeim svo vatnið fær
ekki að renna burt.
Á Akureyri sjálfri hefur
snjó að mestu tekið upp nema
þar sem ruðningar eru mestir. |
Talsverð brögð hafá verið.að
bifreiðaárekstrum á Akureyri;
undanfarið og í sumum tilfell-1
um miklar skemmdir á farar-
tækjunum, hinsvegar hafa slys'
ekki orðið á fólki £ sembandi ■
við þessa árekstra. I
K. A. 35 ára.
Knaííspymufélag Akraness
hélt hátíðlegt 35 ára afmæli
sitt þann 21. þ.m. á Hótel
Akraness. Voru þar mættir á
annað hundrað manns, opt þar á
meðal fléstir knattspymukapp-
ar Akraness, t.d. Ríkliarður
Jónsson, sem nýkominn er
heim afíur frá Englandi eftir
hina frægilegu för.
Ræður og árnaðaróskir voru
margar fluttar í hófinu. og tóku
m.a. til máls forseti Í.S.Í., Ben
G. Waage, Ólafur Fr. Sigurðs-
son o.fl. Í.S.Í. færði félaginu
oddafána sinn og lítinn silfur-
bikar til keppni. Þá fóru og
fram ýmsar verðlaunaafhend-
ingar, bæði til félagsins og ein-
stakra leikmanna.
Að skemmtiatriðum loknum
var síðan stiginn dans fram eft-
ir nóttu.
K.A. er stofnað þann 9. marz
1924 og hefur alltaf lagt aðal-
áherzlu á knattspymu, þó að
nú iðki félagsmenn jafnframt
fimleika og handknattTeik. Fr
starfsemi þess nú með miklum
blóma, og eru um 309 mnnns
f félaginu. Félagið traf út á af-
mælinu myndarTp<»t afmælis-
blað, og skai mönmim .bcnt ’
það, ef’þeír vilji kýnnasl frek- j
ar sögu félagsin-
Haukur skal
hvergi fara.
Þess hefur verið beðið með
nokkrum spenningi að undan-
förnu hvort Hauki Hvannberg
yrði leyft að fara úr landi eða
ekki. Nú er niðurstaðan kom-
in: Haukur fær ekki að fara.
Sem kunnugt er af fréttum,
bönnuðu rannsóknardómar-
arnir í Essómálinu fræga Hauki
Hvannberg að fara utan. Lög-
fræðingur hans skaut málinu
til Hæstaréttar og krafðist þess,
að úrskurður rannsóknardóm-
aranna yrði gerður ógildur, þar
eð Haukur þyrfti að leita sér
lækninga erlendis. En Hæsti-
réttur komst að þesasri niður-
stöðu: Hinn kærði úrskurður á
að vera óraskaður, Háuki
Hvannberg verði ekki leyft að
fara burt úr lögsagnarumdæm-
inu.
Tófa á vakki um
Húsavíkurgötur.
Frá fréttaritara Vísis.
Húsavík í gærkvöldi.
Mórauð tófa var á vakki
hér á Húsavík laust fyrir
myrkur í kvöld. Sást hún
fyrst skammt frá fossi við
Búðarána, en var hrakin
þaðan vestur yfir ána af
tveimur Húsvíkingum, sem
urðu hennar varir.
Þegar tófan var komin yf-
ir ána fór hún um göturnar
í bænum og yfir svokallaða
Rauðatorg, sem er sunnar-
lega í bænum, en hvarf síð-
an burt upp á Reykjaheiði.
Á leið sinni í gegnum bæ-
inn rakst tófan á hund og
tóku þan Ieik saman dáeóða
stund, — Lífið hefur sézt af
í íófu hér í négrénni Húsávfk-
1 ur að 'uudanförritt. :