Vísir - 07.12.1959, Qupperneq 3
Mánudaginn 7. desember 1959
VISIR
30 ára starf Mæðra-
styrktarnefndar.
Óeigingjarnt líknarstarf
reykvískra kvenna.
Um þessar mundir hefst hin
árlega fjársöfnun Mæðra-
styrktarnefndar, sem gerð er í
þeim tilgangi fyrst og fremst,
að gleðja ýmsa þá um jólin,
sem hafa litlu úr að spila.
Mæðrastyrktarnefndin hóf
fyrst starfsemi sína árið 1828,
ér reykvískar konur sameinuð-
ust um að styrkja ekkjur sjó-
hianna, er farist höfðu undan-
farin ár í sjóslysum. Síðan hef-
ur starfsemi þeirra verið haldið
stanzlaust áfram um hver jól,
og unnið mikið og óeigingjarnt
starf í þágu þessa málefnis. |
Að starfsemi þessari standa
20 reykvísk kvenfélög, sem
hvert um sig skipar tvær kon-
ur í nefndina. Formaður nefnd-
arinnar er nú frú Jónína Guo-
mundsdóttir, en með henni í út-
hlutunarnefnd eru þær Kristín
L. Sigurðardóttir, Jóhanna
Stefánsdóttir og Guðfinna Jó- j
hannsdóttir. Starf nefndarinnar
er geysi umfangsmikið, eins og
að líkum lætur, því bæði er að
fyrst er um viðamikla söfnun
að ræða, síðan að velja úr um-
sóknum fólks og kynna sér á-
stæður þess og síðan að út-
hluta gjöfum um allan bæ.
Á hverju ári hefur nefndin
sent lista til ýmissa fyrirtækja
til fjársöfnunar, sem að jafn-
aði hafa brugðist mjög vel við,
og sent ýmist peningagjafir,
eða aðrar vörur, og hafa þeir
einmitt nú verið póstlagðir og
or það von nefndarinnar, að vel
sé við þeim tekið, ekki síður
en svo oft áður.
Til þeirra, sem hugsa sér að
sækja um jóiaglaðning hjá
nefndinni í ár, vilja konurnar
koma þeirri orðsendingu, að
þeir láti vita ;-em allra fyrst,
því að ekki mun unt að fara
lengur eftir þeirri spjaldskrá,
sem til er vegna ýmissa breyt-
inga á högum fólks, bústaðar-
skiptum o. fl. Skrifstofa nefnd-
arinnar er að Laufásvegi 3, og
er opin kl. 2—6 alla virka daga,
og síminn er 14349. Nægir áð
hringja þangað, eða koma, en
án þess er ekki öruggt að þeir
sem undanfarið hafa þegið
gjafir frá nefndinni, verði
þeirra aðnjótandi í ár.
■jf Sovét-vísindamenn segjast
hafa orsakað „gerfiland-
skjálfta“ í Mið-Asíu og geri
þeir klcift að kanna efna-
samsetningu jarðar í 100
km. dýpt.
23. bókin
frá Ragnheiði Jóns-
dóttur.
Ragnheiður Jónsdóttir hefur
sent frá sér smásagnabindi, er
hún nefnir „Deilt með einum.“
Ragnheiður er orðin vel
þekkt hér á landi fyrir sögur
sínar, langar og stuttar, og á
síðasta ári kom ein af bókum -
hennar út í Noregi, þar sem
hún hlaut nafnið ,,Ei islandsk
dagbok“, og hlaut hún góða
dóma hjá frændum okkar.
Sögurnar í þessari nýju bók
Ragnheiðar heita: Teflt við
ægi, En samt sem áður, Skulda-
skil, Hann sagðist elska mig,
Degi hallar, Einkadóttir móð-
ur sinnar, Hillingar, Ljós var
loginn sá, Hún hét Pálína,
Blómin soga, Tyrkneskt bað,
Lítill lokkur, Mamma hjálpar,
Draumur um veruleika, Blaði
flett, Brákaður reyr, Drengur-
inn minn og Á morgun. Bókin
er tólf arkir, og er teikning eft-
ir Sigrúnu Guðjónsdóttur á
undan hverri sögu.
Ragnheiður Jónsdóttir hóf
rithöfundaferil sinn fyrir rétt-
um aldarfjórðungi, því að þá
kom út fyrsta bók hennar —
Ævintýraleikur fyrir börn —
sem út var gefin á Akureyri.
Siðan liðu 7 ár, þar til næsta
bók kom, en upp frá því komu '
bækur árlega frá Ragnheiði,
sum árin fleiri en ein, enda eru
þær nú orðnar 23 samtals, að
þessari síðustu meðtalinni.
Ksinatlískir
námsstyrkir.
Menningarstofnunin Canada
Council í Ottawa býður fram
námsstyrk til dvalar þar í landi
skólaárið 1960—61.
Styrkirnir eru um $ 2000,
auk ferðakostnaðar. I
Styrkirnir eru veittir til
náms eða rannsókna í húman-
ískum fræðum, listum og þjóð-.
félagsfræðum og eru eingöngu [
veittir kandidötum eða kennur-
um.
Umsóknir um styrkina skal
senda skrifstofu Háskálans
fyrir 1. janúar n. k. Þangað
má og vitja umsóknareyðu-
blaða og nánari upplýsinga
varðandi þetta mál, einnig hjá
skrifstofu Aðalræðismanns
Kanada, Tryggvagötu 2.
(Frá skrifstofu Háskólans).
99
l\lyndin9 sem
hvarf46.
Út er komin á forlagi ísafold-
arprentsmiðju skáldsaga, sem
heitir „Myndin, sem hvarf“ og
er eftir Jakob Jónasson. .
Skáldsaga þessi gerist til
sveita, og tvinnast þar saman
ástir og alls konar erfiðleikar,
og er frásögnin hressileg í bezta
máta og oft skemmtileg á
köflum. Þetta er 179 bls. bók,
og verður nánar að henni vikið
síðar.
Saga Akraness
A.nnað bintli
koniið ui.
Það var mannskaði að frá-
falli Ólafs B. Björnssonar rit-
stjóra á Akranesi, hví að hann
var óvenjulegur maður um
flest.
Óhætt mun að segja, að hann
hafi haft áhuga íyrir flestum
málefnum, sem til framfara
horfðu, og víst er, að hann
lagði jafnan fram kraíta sína,
þar sem þörf var að vinna eitt-
hvað til góðs.
Enginn maður mun hafa lagt
sig eins fram um að afla gagna
cg halda til haga varðandi
byggð á Skipasakaga, og nú er
komið út annað bindi af „Sögu
Akraness“, sem hann hafði
byrjað að skrifa löngu fyrir lát
sitt. Fjallar þetta bindi um
sjávarútveg, og er frásögn af
honum þar með lokið, og verzl-
un á staðnum. Er hér um geysi-
legan fróðleik að ræða, því að
bókin er hvorki meira né
minna en 430 bls. að stærð og
prýdd mörgum myndum. Ut-
gefandi er Akranes-útgáfan.
★ Svo mörg brezk gistihús eru
nú í fjárhagsvandræðxmi,
að stjórnin hefur verið beð-
in að skipa nefnd til að
kanna vandamál þeirra.
mmmm
Smmamr Smöurhafa
Þetta er sérkennilegasta jóla-
bókin — sárkennileg, ör og
blóðheit eins og íólkið, sem
höíundur kynntist á áratuga-
veru í Indónesíu og íékk ást á.
Htín mun gSelja hvern.mann —
og er því géð vlnargjöf
á jófynum
ARNARFELL