Vísir - 07.12.1959, Side 7
ivlánudaginn 7. desember 1959
JÓLASVEINABYSSUR
Verð nteð fyllingu —
LINDUUMBOÐH) H.F.
Sími 22785, 22786.
TÉKKNESKIR
Inniskór karlmanna
Verð frá kr. 130,55 — 145,20.
OKKUR VANTAR
stúikur í kjörbúð nú þegar til jóla.
Upplýsingar í síma 2-4339.
0f\
MEÐ UTGAFU HINNA NYJU SOGSSKULDA-
BRÉFA ER LANDSMÖNNUM BOÐIN NYJ-
mmm
MAMmR
UNG A ISLENZKUM VERDBREFAMARKADI.
NYJU V ERÐBRÉF I N ERU TIL SKAMMS
TÍMA (1—5 ÁRA)
NAFNVERÐIÐ ER LÁGT (1000 KR. OG
5000 KR.)
VEXTIRNIR ERU HAGSTÆÐIR (5]/2%
TIL 7%)
— OG ÞAU ERU VERÐTRYGGÐ.
VIÐ INNLAUSN HVERS SKULDABREFS GREIÐIST VERÐ-
LAGSUPPBÓT Á NAFNVERÐ ÞESS í HLUTFALLI VIÐ HÆKK-
UN RAFMAGNSVERÐS í REYKJAVÍK FRÁ LITGÁFU ÞESS
TIL GJALDDAGA. VEXTIR ERU EINNIG VERDTRYGGDIR
Á SAMA HÁTT.
KAUPENDUM HINNA NYJU VERÐBRÉFA ER ÞVÍ GERT
KLEIFT AÐ KAUPA RAFMAGNIÐ Á ÞVÍ VERÐI, SEM ÞAD
KOSTAR í DAG, TIL NÆSTU FIMM ÁRA.
MEÐ ÞVÍ AÐ KAUPA NÝJU VERÐBRÉFIN TAKIÐ ÞÉR VIRK-
AN ÞÁTT í RAFVÆÐINGU LANDSINS UM LEIÐ OG
GRÆDDUR ER GEYMDUR EYRIR.
í REYKJAVÍK ERU VERÐBRÉFIN TIL SÖLU
í ÖLLUM BÖNKUM OG SPARISJÓÐUM OG
AUK ÞESS HJÁ ÝMSUM VERÐBRÉFASÖL-
UM. ÚTI Á LANDI ERU BRÉFIN TIL SÖLU
HJÁ STÆRRI SPARISJÓÐUM OG ÚTIBÚUM
BANKANNA.
SEÐLABANKINN
MANNLYSINGAR
eftir Einar H. Kvaran.
Bók mánaðarins hjá Almenna bókafélaginu.
í tilefni af hundrað ára afmæli Einars H. Kvarans gefur.
Almenna bókafélagið út ritgerðasafn eftir hann. Ber safn
þetta heitið Mannlýsingar og er úrval úr ritgerðum þeim,
sem E. H. K. skrifaði um nokkra af samtiðarmönnum sín-
um o. fl. Tómas Guðmundsson skáld annazt valið og ritar
jafnframt ýtarlegan inngang um rithöfundinn, þar sem
hann gerir grein fyrir æviatriðum hans og bókmennta-
stöi'fum. Verða Mannlýsingar fyrri bók mánaðarins i des-
ember hjá AB, en félagið gefur út tvær mánaðarbækur að
þessu sinni.
Efni Mannlýsinga er sem hér segir:
Um Gest Pálsson
Ólafur Davíðsson
Matthías Jochumson
Indriði Indriðason
Björn Jónsson
Þorsteinn Erlingsson
Síra Friðrik J. Bergmann
Stefanía Guðmundsdóttir
Georg Brandes og íslendingar
Hannes Hafstein á stúdentsárunum
Skapstórar konur
Fyrir fjörutíu árum í lærða skólanum
Afstaða mín til bókmenntanna
-i
1
i
*í
1
L
!
*
í
í
j i
í nokkrum formálsorðum fyrir bókinni farast Tómasi Guð-
mundssyni orð á þessa leið: ,,Öðru efni úr ræðum og rit-
gerðum Einars H. Kvarans verður væntanlega gerð nokkur
skil innan tíðar, í samskonar bindi og þessu, og mun þá
um leið verða vikið að blaðamennsku hans og skiptum af
almennum rnálum.“
Mannlýsing er 246 bls. að stærð. Verður bókin send til
umboðsmanna út um land næstu daga, en í Reykjavík
verður hún til afgreiðslu fyrir félagsmenn síðari hluta
þessarar viku.