Vísir - 16.12.1959, Blaðsíða 11

Vísir - 16.12.1959, Blaðsíða 11
FuHtrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavik Æöaltundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 20,30. Fundarefni : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Stjórnmálaviðhorfið: Frummælandi: Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra. FuIItrúar eru minntir á að sýna fulltrúaráðsskírteini sín við innganginn. STJÓRNÍN. Stigar í Kjörgarði Annar stefnir norð- ur og niður, hinn upp í útsýnið yfir Flóann. Þar verða vfir 20 verzl- anir undir sama þaki. „Kjörgarður“ opnaður við Laugaveg - á efstu hæð „Kjörgarðskaffi“ með útsýn yfir flóann. Glæsilegt, nýtt verzlunarhús hefir tekið til starfa í Reykja- vík, fjölverzlunin „Kjörgarð- ur“, að Laugavegi 57—59, þar sem 14 verzlanir hafa þegar hreiðrað um sig, en enn er ó- ráðstafað rými fyrir 8—10 verzlanir í viðbót, og á þó enn eftir að byggja tvær hæðir ofan á húsið, svo að þegar því er lokið, verður þetta eitt stærsta verzlunarhús hérlendis. Gólf- flötur er 900 fermetrar í kjall- ara og á 1. hæð, en 500 fermetr- ar á efri hæðunum. Fréttamönnum var um helg- ina boðið að skoða Kjörgarð, og var þar samankominn fjöl- mennur mannfagnaður. For- ustumenn um byggingu húss- ins ávörpuðu gesti. Sveinn B. Valfells bauð gesti velkomna og flutti ávarp. Kristján Friðriks- son hélt síðan ræðu og sagði byggingarsögu hússins og lýsti því. Upphafið var það, að hann keypti lóðina, sem helmingur Kjörgarðs stendur nú á, en byggingarframkvæmdir húss fyrir fyrii’tæki hans Últímu strönduðu vegna þess að leyfi fengust ekki eða seint. Upp úr því kom svo fram hugmyndin um að slá saman í eitt hús lóð- unum nr. 57—59, enda nýttust lóðimar betur með því að byggja eitt hús á lóðunum sam- an og úr varð fjölverzlunar- bygging eða „magasín", sem svo kallast erlendis. f kjallaranum, sem er götu- hæð miðað við Hverfisgötu, hefir verzlunin Skeifan komið sér fyrir með gífurlega mikla sölusýningu húsgagna, en þar og ætlað rúm fyrir búsáhalda-, rafmagns- og nýlenduvöru- verzlanir. Einnig er þar vöru- móttaka og pökkunarrými fyr- ir þyngri vörur. Á 1. hæð miðað við Laugaveg hafa 5 verzlanir komið sér fyr- ir, en væntanlega bætast þar við. — Þar er Últíma með karlmannafataverzlun, Ríma með skóverzlun, Verzlun VBK með sport- og vinnuföt og herravörur, verzlunin Sport með sport- og veiðitæki, og úra- og skartgripaverzlunin Menið. Á 3. gólfi, eða 2. hæð miðað við Laugaveg, er skipulagið lengst komið, ef eg má svo segja. Þar er Storkurinn með fjölbreytta verzlun með ung- barnafatnað og skyldar vörur, þar er Tízkan með nærfatnað kvenna, lífstykkjavöörur og fleira fyrir kvenfólk. — Þar er verzlunin Mælifell með fjöl- breytt úrval af álnavöru. — Þar er verzlunin Orion, verzl- unarnafn sem þekkt er víða um lönd og hefir umboð fyrir og verzlar með samskonar vörur og þessi verzlun hér, en það er meðal annars gam, tvinni, hnappar, saumavélar, prjóna- vélar o. fl. — Bemharð Laxdal hefur þama stóra kvenkópu- verzlun og kvenhattaverzlun. Þá má nefna prýði hússins, sem er Kjörblómið, blómaverzlun, sem blasir við, þegar inn er komið frá Laugaveginum. — Þarna er hái'greiðslustofan Blæ- ösp, (opnar næstu daga), þarna er verzlunin Gluggatjöld, sem verzlar með allskonar glugga-' búnað. Á þessa hæð vantar að- eins kjólavei’zlun og snyrti- vöruvei’zlun, sem þar eru fyrir- ’ hugaðar í framtíðinni. Þess skal getið, að flestar þær verzlanir, er nefndar hafa verið, hafa aðeins útbú í Kjör- gerði, og stai’fa auk þess áfram þar sem þær hafa verið að und- anförnu. Á 3. hæð hússins er svo saumaverksmiðja Ultimu og skrifstofur og þar verður Kjör- garðskaffi — s má kaffistofa fyrir starfsfólkið og viðskipta- vini verzlananna hér og svo auðvitað fyrir hvern sem er. Þaðan er fagurt útsýni í góðu veðxú út yfir flóann til- Esjunn- ar. Húsið teiknaði Halldór H. Jónsson arkitekt, ti’ésmíði ann-' aðist Jón Guðni Árnason, múr- verk Árni Guðmundsson múr- arameistari, Raftækjastöðin (raflagnir), Guðmundur Finn- bogason (vatns- og hitalögn) en Sveinn Torfi Sveinsson teiknaði þau kerfi svo og loft- ræstingakerfi, vélsmiðjan Jens Árnason gei-ði millihitara fyrir geislahitunai’kei’fi og handrið meðfram stigahúsi, Málmglugg- ar h.f. smíðuðu í framhlið á götuhæð, en Stálumbúðdr h.f. lampana, verkfræðingax-nir Bragi Þorsteirisson og Eyvind- ur Valdimarsson gerðu jái’na- teikningar, innréttingar í Kjör- garðskaffi teikriaði Guðrún Jónsdóttir húsgagnaarkitekt, en aðrar innréttingar ei’u teiknað- ar af Gunnar Theódórssyni arki- tekt. Eisenhower með hósta. Fregn frá Nýju Dehli hcrmir, að Eisenhower forseti hafi fengið aðkenningu af hósta, —■ hann hósti alltaf við og við, en. ekkert hafi borið á þessu áður en liann lagði upp í ferðina miklu. Læknir forsetans, Howai’d M. M. Snyder, segir að þetta stafi ei til vill eingöngu af því hve mjög hann reyni á raauböndin, í þessu fei’ðalagi. Við'‘læknis- skoðun í nóvember koiri í ljós, ao hann hefur lungnakvef (bronchitis). —- Að öðru leyti er forsetjnn vel hraustur og 1 ferðalagið hefur ekki tekið mikið á hann, sagði Snyder: læknir. j ’ ( Hákarlar og hornsíli Metsölubókin fræga um sjómenn í stríði „Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum“ eftir Remarque er frægasta sagan um fyrri heimsstyrj- öldina. „Hákarlar og hoi’nsíli" eftir Wolfgang Ott er langfrægasta sagan frá síðax’i heimsstyrjöldinni. Ógnþrungið líf á sjó. Ævixitýri og ástir í landi. Kjörbók sjómanna og annarra karlmanna if M fi 1 a Úr kvikmyndinni: Hákarl og hornsíli. 3'■ . Á _ : . : .; , ,’c’•* „HÁKARLAR OG HORNSÍLI“ kemur á kvikmynd í Austurbæjarbíó upp úr áramótum. ' < ÚTGEFANDÍ,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.