Vísir - 07.01.1960, Qupperneq 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir o" annað
lestrarefni heitn — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
WfiSIIR
Fimmtudaginn 7. janúar 1960
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Tvær mannlausar bifreiðir
stórskemmdar.
Liigre^lan Ivsir eftir vitiaiim.
• I gær voru tvær kyrrstæðar
og mannlausar bifreiðir stór-
skemmdar hér í bænutn með
l»ví að ekið hefir verið á þær.
Önnur bifreiðin R-7129, sem
er Austinbíll, stóð á Klappar-
stíg fyrir utan hús nr. 16. Á
hana var ekið á tímabiiinu kl.
8—9 árdegiá í gær og hún stór-
skemmd.
Hin bifreiðin var í-314 ofe
stóð á stæðinu bak við Lands-
bókasafnshúsið gegnt Arnar-
hvoli. Þar var hún skilin eftir
kl. 2 e. h. í gær, en komið að
henni rétt eftir kl. 12 á mið-
nætti í nótt, þá stórskemmdri.
Eftir ummerkjum að dæma
þykir sennilegast að „bakkað"
hafi verið á h.ana. Hafði hægra
afturbretti lagzt inn og skemmst
verulega. Enn fremur hafði
bíllinn kastast til, lent þar á
steini og klemmst fastur. Við
það hafði gangbrettið lagzt tvö-
falt saman upp að hurðinni og
dældað hana. Var bíllinn illa
útlítandi eftir þessar aðfarir.
Rnnsóknarlögreglan fullyrð-
ir að í báðum þessum tilfellum
hafi þeir, sem óku á, orðið á-
rekstranna varir og eru það
vinsamleg tilmæli til þeirra að
þeir gefi sig fram af fúsum
vilja, enda þeim sjálfum fyrir
beztu. Jafnframt biður rann-
sóknarlögreglan sjónarvotta að
þessum atburðum, eða aðra
sem einhverjar upplýsingar
geta gefið að gefa sig þegar
fram við hana.
Afli var lítill í gær.
Sumstaðar íandiega, annarsstaðar erfitt
að athafna sig þótt róið sé.
Lítill i'iskafli barst á land hér
Kunnanlands £ gær, enda fáir
hátar á sjó sökum leiðindaveð-
urs.
Grindavíkur- og Akranesbát-
iar héldu með öllu kyrru fyrir í
‘gær nema hvað 3 eða 4 línu-
fcátar fóru á veiðar frá Akra-
nesi í gærkveldi.
Frá Keflavík réru 13 bátar í
gær en öfluðu mjög illa, allt
írá tæpum 2 lestum og upp í
4 lestir mest. Þeir eru allir á sjó
á dag.
Sandgerðisbátar öfluðu aftur
k móti sæmilega og þar bárust
60 lestir á land af 8 bátum.
Helga var aflahæst með 10 lest-
ir, Muninn var með 9.6 lestir
Og Guðbjörg 8. Þetta er miðað
við óslægðan fisk. Bátarnir eru
allir á sjó í dag þrátt fyrir leið-
indaveður og þungan sjó. Hefur
í flestum róðrunum eftir ára-
mótin verið erfitt að athafna
sig og sumir bátanna alls ekki
getað lagt alla línuna.
Frá Grindavík róa sennilega
23 bátar á vetrarvertíðinni,
sumir eru byrjaðir, aðrir að
búa sig á veiðar. Þar er n; land-
lega sökum óveðurs og brims.
í fyrradag lönduðu þar þrír bát-
ar, Hrafn Sveinbjarnarson 10.8
lestum, Þorbjörn 9.3 og Hannes
Hafsteinn 6.3 lestum. Aðeins
einn Grindavíkurbátur, Hafn-
firðingur, er enn með reknet og
ætlar að halda síldveiðum á-
frm enn um stund.
Síldarleitarskipin Fanney og
Neþtúnus lóðuðu mikla síld í
nótt, en rysjuveður var á mið-
unum og ekki unnt að aðhafast
neitt.
Bílslys í Mosfellssveit.
Bifreið ók á konu og dreng.
Það slys varð í gærkvöldi á
l»jóðveginum móts við kaup-
félagið í Mosfellssveit, rétt
sunnan Hlégarðs, að kona og
idrengur urðu fyrir bíl, og slas-
aðist konan töluvert mikið, en
drengurinn mun hafa sloppið
lítið meiddur.
Þetta var um kl. 10 í gær-
kvöldi, en þá var mikil þröng á
yeginum vegna álfabrennunn-
ar, sem þar var haldin. Voru
l»ar þúsundir manna og bílaum
iferð mikil. Konan, Ólöf Helga-
öóttir, gekk suður veginn á-
eamt sonum sínum tveim og
voru þau á heimleið að Bjarg-
arstöðum. Á móti þeim kom
akandi vamarliðsbifreið, og
Voru 1 henni þrír varnarhðs-
fnenn og tvær íslenzkar stúlk-
tir. Segir ekillinn að hann hafi
blindast af ljósum bifreiðar,
sem á móti honum ók, og sá
því ekki konuná með börnin,
og skipti það engum togum að
bifreiðin ók á þau.
Annar drengurinn slapp al-
veg við meiðsl, en hinn, Jón
Gunnar Benediktsson varð að
einhverju leyti fyrir bifreið-
inni, en skv. upplýsingum
læknis hans í morgun, mun
hann ekki hafa meiðzt, nema
e. t. v. fengið snert af heila-
hristing. Konan er aftur á móti
mikið meidd, mun hafa brotn-
að á báðum fótum og jafnvel á
hendi.
Það upplýstist að ekkert vín
hafði verið haft um hönd af
þeim, sem í bifreiðinni voru, og
gerðu varnarUðsmenn allt, sem
í.þeirra valdi stóð til að aðstoða
hið slasaða fólk.
Enn er verið að salta síld upp í samninga, og í fyrra bættist við
nýr söltunarstaður, Kópavogur. Þessar myndir eru teknar þar
í fyrradag, þegar bangað höfðu borizt 200 tunnur af mb. Von
frá Keflavík. Og það er eitt við þessa söltunarstöð, sem gerir
hana einstaka í sinni" röð. Hún er starfrækt af bláðamanni,
Páli Beck, sem stundaf 'þetta í hjáverkum. (Ljósm. G. J. T.)
Börn frá Hannoyer flytja
vinarorð til ísraels.
— Bonnstjjóniin vill banna allt
oíbeldi oi* ofsóknir.
Fregn frá Hanover' hermir,
að þaðan verði innan skamms
sendur hópur barna til ísraels,
til þess að sannfæra fólk þar í
landi um með hvaða hug þýzka
þjóðin raunverulega hugsi til
Gyðinga.
Börnin eru talin bezt til þess
fallin, að bera Gyðingum þenn-
an vináttuboðskap. — Þýzka
stjórnin kom saman í gær og
var Adenauer í forsæti. Var
samþykkt að biðja þingið að
hraða afgreiðslu laganna, sem
beðið hafa afgreiðslu, en þau
fjalla um ráðstafanir til þess
að koma íveg fyrir ofbeldi og
ofsóknir, og er gert ráð fyrir,
að unnt verði að beita ákvæð-
um laganna við þá, sem láta of-
sóknaræði og haturshuga ráða
gerðum sínum gagnvart Gyð-
ingum.
Forsætisráðherra Bayern tel-
ur, að ekki sé um nein alþjóða-
samtök að ræða, gegn Gyðing-
EEdur í Digra-
nesskóla.
Klukkan um tuttugu mínút-
ur yfir átta í morgun . var
slökkviliðinu í Reykjavík til-
kynnt um að eldur væri laus í
barnaskólanum í Kópavogi, svo-
nefndum Digranesskóla.
Þegar þangað kom, sem lík-
lega tekur einar 15 mínútur,
var herbergi á neðri hæð skól-
ans alelda. Slökkviliðið réðist
til inngöngu, og eftir nokkurn
tíma tókst að slökkva eldinn,
en skemmdir höfðu þá orðið
töluverðar, og þá að sjáífsögðu
fýrst og fremst í þessu herbergi,
sem reyndist vera læknisstofa..
Eldurínn hafði einnig náð út
í gang fyrir framan, og vatn,
hiti og reykur komist víða um
húsið. Slökkvistarfi var lokið
um kl. 09.15.
Það kom í ljós við þennan
bruna, sem slökkviliðsmenn, og
vafalaust margir fleiiú vissu
ekki fyrr, að þar eru aðeins ein-
ar dyr á húsinu. í þessum skóla
eru um 600 börn, og oft allt að
300 í senn. Ótrúlegt er annað en
að brunaæfingar hafi verið harð
ar í skólanum með börnunuan,
og væri nú fróðlegt að vita hve
langan tíma tekur fyrir börnin
að komast út um þessar dyr, og
hvernig ráðamenn skólans
hugsa sér að koma börnunum
út, ef þær væru tepptar vegna
elds.
Bankagjaldkeri verður
útibússtjóri.
Á fundi bankaráðs Útvegs-
banka íslands, þann 29. desem-
ber s.I. var samþykkt að ráða
Júlíus Jónsson útibússtjóra við
útibú bankans á Akureyri frá
áramótum að telja.
Júlíus Jónsson hefur starf-
að í útibúinu frá 1. janúar 1939
og verið ajaldkeri frá 1. janúar
1943. Hann hefur s.l. ár verið
settur útibússtjóri.
Júlíus Jónsson er fæddur á
Akureyri 31. maí 1915, sonur
Jóns Guðmundssonar bygging-
armeístara og Maríu Hafliða-
dóttur.
um.
Deiit um stöðvar Breta á Kýpur.
331 vistmaÓur á
Elliheimilinu.
Á árinu 1959 komu 98 konur
og 45 karlar, en 57 konur og
15 karlmenn fóru af Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
Dánartalan var 44 konur og
32 karlar eða samtals.76. — í
árslok voru vistmenn 331, 244
konur og 87 karlar.
Vistmenn á Eiii- og dvalar-
heimilinu Ási í Hveragerði
vx»ru. í árslok 26, 15 konur og
11 karlar.
Endanlegt inark Makario§ar sagt
vera grískar herstöðvar.
Makarios erkibiskup á Kýp-
ur og dr. Kutchuk eru væntan-
legir til London til viðræðna
við brezku stjómina um her-
stöðvar Breta á evnni.
Bretar mega hafa þar tvenn-
ar herstöðvar samkvæmt Lund
únasamkomulaginu, en ekki
búið að ganga frá öllú til fulln-
ustu, og vitað er, að ágreining-
ur er um veigamikil atriði.
Makarios vill að herstöðvamar
'Verði á óbyggðúm sVæðum, en
Bretar telja þá afstoðu hans
brot á Lundúnasamkomulag-
inu frá í fyrra. — Daily Ex-
press segir endanlegt mark
Makariosar: Grískar herstöðv-
ar á Kýpur.
Mikilvægt er talið, að leysa
þessa deilu sem fyrst, þar sem
Kýpur á að verða lýðveldi í
næsta mánuði.
Það er hinn 19. febrúar sem
lýst verður yfir stofnun lýð-
veldisins og kosningar eru nú
framundan.