Vísir


Vísir - 11.01.1960, Qupperneq 12

Vísir - 11.01.1960, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir off annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið, að beir sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Mánudaginn 11. janúar 1960 l’essi mynd er frá deyjandi þorpi «PPÍ í Alpafjöllum. Það er að deyja, af því að það er svo Iiátt til fjalla, að það hefur aldrei komist í snertingu við 20. öldina. — Þetta litla þorp heitir llinterhornbach og er í Tyrol, í 8370 feta hæð yfir sjó. Þar eru 25 hús, en aðeins búið í 17 þeirra, þar er enginn læknir, enginn sími og 10 lcm. til næstu járnbrautarstöðvar. Þar er einn einn ókvæntur, ungur maður, en enginn stúlka á giftingaraldri. Parísarráðstafnan um viðskipti og afnahagsaðstoð er hin mikilvægasta. — Hún hefst í París á morgun. Illýja sagan sem hefst í næsta blaði heitir „Astin sigrar — durtinn“ og er eftir Rosa Lind Brett, sem fólk kannast við af sög- um, sem áður liafa birst hér x blaðinu. Enginn er drepinn í þessari sögu, sem gerist á hinni undurfögru eyju Bali, þar sem fallegustu stúlkur heims eiga heima — og sak- lausustu um leið. En sögu- hetjurnar eru þó aðfluttar, hvítar stúlkur, og er ein þeirra saklaus, en sumar hinna beggja blands. Ungar stúlkur og ungir piltar geta fræðst sér til gagns af þess- ari sögu. Hún sýnir sem sé áþreifanlega hve mikil bölv- un og sálarkvöl getur stafað af því að vera of feiminn í ástamálum og dylja hinar sönnu tilfinningar sínar. Má gera ráð fyrir að fólk, sem les söguna verði stórum upp- burðameira í ástamálum en það var áður, og að alvara verði úr ýmsum bónorðs- fcrðum, sem frestað hefur verið of lengi. Þess vegna er unga fólkinu þörf á að fylgj- ast vel með þessari sögu. — -----------•------ Sex manns farast í bílslysi í byrjun sl. viku varð mik- m árekstur skammt frá París í Frakklandi. Rakst stór lögreglubifreið á litla fólksbifreið, sem í voru sex manns. Varð áreksturinn svo harkalegur, að allir í litla bílnum biðu bana. í París er um það bil að hefj- ast mikilvæg ráðstefna um auk- in viðskipti þjóða milji og sam- ræma efnahagsaðstoð og aukna í þágu þjóða, sem skammt eru á veg komnar, og þá einnig gert ráð fyrir aukinni aðstoð á því sviði frá þjóðum, sem hafa náð sér upp efnahagslega eftir styrjöldina. Þeirra landa meðal og fremst er vestur-þýzka sambandslýð- veldið. — Fyrir hönd Banda- ríkjanna situr ráðstefnuna Dillon aðstoðar utanríkisráð- herra og fyrir hönd Breta Heathcoate fjármálaráðherra og eru þeir báðir nýkomnir til Parísar, en Kanada og Vestur- Þýzkaland eiga þar einnig full- trúa. Talið er víst, að bæði Banda- ríkin og Kanada muni leggja fast að Sammarkaðslöndunum sex og Sjörikjasamtökunum, að fara eftir því, sem þau prédika — og lækki innflutningstolla. Óvíssa er enn um samstarf. milli samtakanna tveggja, en mikið í húfi viðskiptalega skoð að, að samkomulag náist í þess- um efnum milli vestrænu þjóð- anna, en náist samkomulag yrði það til eflingar hinu stjórn- málalega og varanlega sam- starfi þeirra, og hin langþráða eining þeirra milli náðst. Adenauer talar í Berlín. Er hatursbaráttunni gegn Gyðingum stjórnað af einum og sama manni hvarvetna? Adenauer kanslari Vestur- Þýzkalands er væntanlegur til Vestur-Berlínar í dag og flytur þar ræðu. Hann fer aftur til Bonnn á miðvikudag. Líklegt þykir, að Adenauer muni ræða hatursbaráttu gegn Gyðingum. Á laugardagskvöld fóru 40 þús. ungmenni í Vestur-Berlín í kröfugöngu og vottuðu Gyð- ingum samúð og létu í ljós and- úð á hatursbaráttunni- gegn þeim og nýnazisma. í kröfu- göngunni voru ungmennafélög Kristilega lýðræðisflokksins, Jafnaðarmannaflokksins, Skáta og fleiri félaga. Hátt settur fulltrúi borgarstjórnarinnar flutti ræðu og lesið var skeyti frá dr. Adenauer. Gyðingum er sýnd samúð víðar. í París var farin kröfu- ganga, sem nokkur þúsund manns tóku þátt í, og var hald- ið að Gyðingaminnismerki, og þeim vottuð samúð. Á Bret- landi hafa ýmis félagssamtök, t. d. uppgjafahermanna í Man- chester af Gyðingaættum, sent mótmælaávörp til Bonn, og þvatt tii róttækari aðgerða af hálfu vestur-þýzku sambands- stjórnarinnar. Goldman, einn af leiðtogum Gyðinga, sagði í gær, að líkur bentu til, að hatursbaráttunni gegn Gyðingum væri stjórnað af einum og sama manni hvar- vetna. Jasper-fjármálahneykslið í London er nú aftur efst á dag- skrá meðal almennings og í blöðunum. S.l. haust komst upp gífur- legt fjármálabrall og var fyrir- skipuð rannsókn. Það voru eink um tveir menn, sem mjög voru bendlaðir við þetta, maður að nafni Grunwald, sem stakk af til ísrael, en kom þó aftur og var síðar settur í gæzluvarð-, hald, og maður að nafni Jasper, formaður fjölmargra hlutafé-,. ■jfc- Finnska sjómannasamband- ið hefir samþykkt verkbann á skip Arabíska sambands- lýðveldisins, sem sett hefir finnsk skip á svartan lista fyrir að flytja vörur frá Israel. laga, og háttsettur starfsmaður Byggingafélags, og leiddi þetta mál til þess, að stjórnin lét taka til endurskoðunar lög, til að girða fyrir brall slíkt sem þetta og tryggingar hagmuna kaup- enda hlutabréfa. — Orsök þess, að mál þessi eru aftur efst á dagskrá í blöðum og hjá al- menningi, er að Jasper og Bygg ingafélagsmaðurinn Murray hafa nú einnig verið settir í gæzluvarðhald. Jaspsr-fjármáEahneykslið í London aftur á dagskrá. Þrír loöl‘nA|tuiirai’ hafa nú verið fangelsaðir. Uppþot í miðbænum. Múgæði grípur unglinga. Vegfarendur um miðbæinn í gærkveldi liéldu sumir að stór- tíðindi væru að gerast, að kom- ið væri stríð, uppreisn eða eitt- hvað þvíumlíkt. Hundruð eða jafnvel þúsund- ir unglinga höfðu safnast sam- an á götunum nálægt lögreglu- stöðinni, og létu þar öllum ill- um látum og létu all ófriðlega. Lögreglan gerði skipulagðar út- rásir annað slagið, til að halda uppreisnarmönnum 1 hæfilegri fjarlægð, og beittu þá allri sinni hernaðartækni, og drógu sig síðan hið skjótasta til baka, eins og vel æfðum skæruliða- sveitum ber að gera. Uppreisn- armenn héldtl sig aðallega í Austurstræti og Hafnarstræti, og var öll bilaumferð útilokuð um þessar tvær umferðaræðar um skeið, en svæðið fyrir fram- an lögreglustöðina í Pósthús- stræti mun hafa verið nokkurs konar ,,einskismannsland.“ Ástæðan fyrir þessum ólátum mun hafa verið sú, að áhorf- endum mun hafa mislíkað lítil- lega aðferð lögreglumanna við að handtaka drukkinn mann, og hefur Vísin.fregnað (óstaðfest), að ,,margir“ lögregluþjónar hafi sameinast um að „berja hann í klessu með kylfum“. Önnur saga segir að „tveir smá-pollar voru eitthvað að stympast og vindflengja hvorn annan, og þá kom löggan og hirti annan og setti hann inn.“ Upp úr þessu hafði myndast hópur áhorfenda, sem lét all- ófriðlega, „en þá varð löggan alveg vitlaus og lét öllum ill- um látum. Svo réðust þeir á eitthvað smá-ræfils-grey og lömdu hann í rot með kylf- unum og drógu hann hálf-með- vitundarlausan á milli sín inn á stöð.“ Sagt er og, að þeir hafi dregið marga úr hópnum, eins og fé úr rétt, og fengið þeim ókeypis(?) gistingu yfir nótt- ina. Þetta voru kjaftasögur. Framh. á 2. síðu. nieptúnus fór út me5 1501. af ísaíiri síld. Fiskaði í sig á fimm dögum. Togarinn Neptúnus, sem veitt hefur síld í flotvörpu lagði af stað til Þýzkalands kl. 10 á laugardagskvöld með 150 lestir af ísvarinni síld. Með för Neptúnusar hefst að líkindum nýr þáttur í útgerðar- sögu íslendinga, því þetta er í fyrsta skipti sem togari siglir með síld, það er að segja eigin afla, sem veiddur er í flotvörpu, en undanfarin ár hafa verið gerðar margar tilraunir með þetta veiðarfæri, sem nú að lokum launar erfiði og þolgæði með góðum árangri. Neptúnus var búinn að vera viku úti, en afla sinn fékk hann á fimm dögum. Á sama tíma lagði togarinn Marz af stað með 75 til 80 lestir af ísvörðum fiski á erlendan markað. Marz var búinn að vera nákvæmlega Landshappdrættið. 4 Dagar eftir 20 vinningar, 315.000,00 kr. — M. a. Rambler Station-bifreið. — Miðar seldir úr bifreiðinni við Útvegsbankann og í skrif- stofunni » Sjálfstæðis- húsinu. Látið ekki happ úr hendi sleppa. jafnlengi að veiðum og Neptún- us ög verður því fróðlegt að sjá samanburð á aflasölum togar- anna. Eins og sézt á afla Marz er ekki mikið fyrir togarana að hafa á heimamiðum og mun Marz þó hafa hvað mestan afla af þeim skipum sem hér voru i s.L viku. Síldarafli Neptúnusar er nær helmingi meiri á sama tíma og sannar þetta að hægt er að fá uppgripa veiði í flot- vörpuna fyrir þá menn sem kunna með hana að fara. Stórþjófna&ur í áhafdahúsinu. Aðfaranótt s.I. laugardags var brotizt inn í Áhaldahús Reykjavíkurbæjar og stolið þaðan um 22 þús. kr. í pening- um. í skrifstofuskúffu, sem þjóf- urinn braut upp, fann hann lykil að peningaskáp og úr skápnum hirti hann síðan 15 þús. kr. í peningum. Á tveim öðrum stöðum í húsinu fann þjófurinn peninga, þannig að samtals hafði hann á brott með sér um 22 þúsund krónur. Er þetta einn stórfelldasti pen- ingaþjófnaður, sem framinn hefur verið í Reykjavík í sam- bandi við innbrot nú um langt skeið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.