Vísir - 01.03.1960, Page 1

Vísir - 01.03.1960, Page 1
ÍG. árg. Þriðjudagmn 1. marz 19G0 50. tbl. iílslys á Vatnsskarði. Vörubíll frá Akureyri ónýttist, en ökumaðurinn slasaðist. Frá fréttaritara Vísis. — . Sauðárkróki í morgun. — í fyrrakvöld eða fyrrinótt. varð bifreiðarslys á Vatns- skarði, er stór vöruflutninga- bifreið frá Akureyri lenti út af veginum og ökumaðurinn slas- aðist. . Bifreiðin, sem var stór vöru- flutningabifreið af Volvo-gerð og hlaðin vörum var á leið norður. Þegar hún var komin skammt norður fyrir Vatnshlíð á Vatnsskarði, en þar var veg- urinn auður og góður og bif- reiðin á mikilli ferð, hvell- sprakk á framhjóli hennar. Þarna var brú framundan og allhár vegkantur og lenti bif- reiðin niður fyrir hann. Var höggið svo mikið að bifreiðin er talin ónýt en bifreiðarstjór- inn meira eða minna slasaður. Hann var fluttur að Varmahlíð og liggur þar nú. Læknir var strax sóttur til hans frá Sauðár- króki, en bifreiðarstjórinn hafði orðið fyrir taugaáfalli og lækn- irinn átti því erfitt að gera sér grein fyrir meiðslum hans. Bjóst læknirinn við að fara í sjúkravitjun til hans í dag og kanna þá meiðsli hans til fulln- ustu. Allar leiðir að teppazí vegna hríðar og snjóþjngsla. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Stórhríð hefur verið í Eyja- firði síðasta sólarhring . með mikilli fannkomu og hvassviðri. Mjög örðugt er orðið með allar bifreiðasamgöngur í hériaðinu og jafnvel götur Akureyrar ill- færar orðnar. í morgun um 10 leytið var enginn mjólkurbíll kominn til Akureyrar úr nærsveitunum. Eina mjólkin sem borizt hafði þá til bæjarins var norðan úr Fnjóskadal. Lagði mjólkurbíll frá Skógum í Fnjóskadal með ýtu og trukk á undan sér á Vaðlaheiði kl. 8 í gærkveldi. — Bíllinn var 12 stundir til Akur- eyrar og mun slík tilraun ekki verða reynd að óbreyttum að- stæðum aftur, enda má telja heiðina alófæra, þótt það tæk- izt að komast yfir hana í þetta sinn. í gær gerðu ýtur tilraun til að ryðja leiðina frá Akureyri út að Dalvík en urðu að gefast upp hjá Litlu-Árskógum og sneru þar við, enda þá komin iðulaus stórhríð. Vegurinn austan Eyjafjarð- ar um Svalbarðsströnd og út í Höfðahverfi var talinn ófær í morgun. Bílar, sem skýrt var frá í Vísi í gær að væru á norðurleið frá Varmahlíð komust hjálpar- laust að Grjótá á Öxnadalsheiði, en þangað komu ýtur og trukk- ur þeim til aðstoðar að norðan, enda snjóþyngsli úr því mikil. Komust bílarnir um 9 leytið í gærkveldi að Bakkaseli og þar var gist. Snemma í morgun lögðu bílarnir af stað þaðan í hjólför ýtu og trukks áleiðis til Akureyrar. Mikil fannkyngi ,er sögð í Öxnadal og má búast við að ferðin gangi seint. Á Akureyri hefur verið lát- laus hríð seinni hluta gærdags- ins og í nótt og snjór svo mikill á götunum, að þær mega telj- ast ófærar litlum bílum. Ann- ars verða aðalgötur ruddar í dag til að halda uppi nauðsyn- legri umferð um bæinn. Mestu þurrkum í manna- minnum í N.-Ástralíu Iauk í sl. viku með mikilli dembu. Rigndi þá 140 mm. á skömm um tíma. Þeir eru búnir að taka netin, eins og Vísir hefur skýrt frá. Myndin er tekin um helgina, þegar Freyju- menn • Vestmannaeyjum eru að taka sín net um borð. — (Ljósm. Sn. Sn.) Kriísév á heimleið- um Indland og Afghanistan Nikita Krúsév er væntanleg- ur til Kalkútta í dag og mun hann ræða þar við indverska forustumenn. Krúsév er nú á heimleið, að aflokinni 12 daga heimsókn í Indonesiu. Hann hefur viðdvöl nokkra í Afghanistan. — I seinustu ræðu sinni í Indonesiu gagnrýndi hann uppástungur jBandaríkjanna varðandi sam- leiningu Þýzkalands. Fengu á sig hnúta vi5 Skagann í gær. Landlega vegna norðaustan storms í dag. hélt Reykjavík, v': I Norðaustan stormur fiskiflotanum frá Akranesi, Keflavík, Hafnarfirði og frá Snæfellsneshöfnum inni í nótt. Keflavíkurbátar treystu sér ekki fyrir Skagann, því þar braut og fengu nokkrir á sig hnúta á heimsiglingu í gær. Sándgerðingar reru þrátt fyr ir slæmt veður.Munu þeir að lík indum hafa lagt á leirinn, því ekki var sjóveður er lengra dró frá landi. Grindvíkingar reru einnig, en munu líklega hafa róið grunnt og haldið sig í vari við land. Afli var betri í gær en verið hefur um langt skeið. TVeir Keflavíkurbátar voru með á tólftu lest og margir með sæmilegan afla eða. frá 6 til 8 lestir. Landlegudagar hafa verið fá- ir síðan vertíðin hófst, en einn slíkur dagur kostar þjóðina geysilegt fé í afaltapi. Þegar sæmilega aflast má reikna með nærri þúsund lestum af fiski á svæðinu frá Vestmannaeyjum til Snæfellsness. Norðaustanáttin hefur nú ver ið ríkjandi nærri mánaðarskeið en horfur eru á að hún gangi niður næstu nótt. Telja sjómenn að betur myndi aflast ef sner- ist til hafóttar hér syðra. Ægilegur jarðskjálfti í nött í Marokko. Gamli borgarhlutinn í Agadir í rústum. Yfir 100 manns biðu bana, en hundruð meiddust. Ægilegur landskjálftakippur kom í nótt í hafnarbænum Aga- dir í Marokko og biðu yfir 1000 manns bana, en hundruð manna meiddust, margir hættulega. Gamli borgarhlutinn er sagð- ur að mestu í rústum, en miklar skemmdir liafa orðið á húsum og öðrum mannvirkjum í nýja borgarhlutanum og einnig ?ar hafa hús hrunið. Landskjálftakippurinn var einn af mörgum, sem komið hafa í Agadir og grennd frá því í gærmorgun. Hafist hefur verið handa um skyndiflutning á læknum og hjúkrunarkonum frá Casa- blanca og frá bandarískum her- stöðvum í Marokko verður send öll sú hjálp ,sem unnt er að Iáta í té, og eru notaðar þyrlur til flutnings á hjálparliði, hjúkr- unarvörum o. fl. Samgöngur við aðra bæi eru rofnar í bili. Mohammeð V. konpngur hef- ur flutt ræðu í útvarp og skor- að á alla, að veita hjálp. — Kon- ungsefni Marokko er kominn til Agadir og ýmsir ráðherrar. Ambassador Bandaríkjanna í Marokko hefur lagt fram 10.000 dollara sem bráðabirgðahjálp. Þetta er í annað skipti á mjög skömmum tíma, sem land- skjálftar v alda miklu tjóni í Norður-Afríku. Fyrir skemmstu beið margt manna bana af völd- um landskjálfta í Alsír og hús hrundu og annað eignatjón varð. Lýsandi sívalningur sást á lofti í gær. Sveif yfir austurbrún Ártúnsbrekku. Undir kl. 10 í gærkvöldi sást allstór ílangur hlutur frekar lágt á lofti inn við ár. — Var þetta lýsandi hlutur, ljósgrænn, og sveif hann yfir austurbrún Ár- túnsbrekkunnar á ská og að því er virtist niður í hólm- ana. Maður, er býr þarna inn frá, og sá hlut þennan, segir þetta hafa borið svo fljótt fyrir, að hann geti ekki lýst hlut þessum nánara. — Hér gæti e. t. v. verið um eitt- hvert athugunartæki að ræða. Ekki er vitað hvers konar hlutur þetta hefur verið, en væntanlega verður þetta athugað nánar. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.