Vísir - 04.03.1960, Blaðsíða 12

Vísir - 04.03.1960, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. l<átið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar liálfu. Sími 1-16-60. Föstudaginn 4. marz 1960 De Gaulle fer á laun millí herstöðva í Alsír. „Ekkert samkomulag gert fyrr en að unnum sigri“. Það fréttist í gærkvöldi, að De Gaulle Frakklandsforseti ,vaeri kominn til Alsír — ferð- aðist þar milli lierstöðva í Jjyrlu, og væri ferðaáætluninni leynt vandlega af öryggis- ástæðum. Þessi Alsírför De Gaulie idróst nokkuð, vegna þess að heppilegra þótti, að nokkur ró kæmist á eftir atburðina í jan- úar. Aðeins fréttamaður fær að fylgjast með öllu á ferðalaginu, og er hann frá Frönsku frétta- stofunni. Fyrsta herstöðin, serp De Gaulle kom í, er skammt frá Constantine. Ávarpaði hann þar herliðið og sagði, að: menn væru slegnir furðu yfir þessum ummælum. Brezka blaðið Guardian ræð- ir í morgun í ritstjórnargrein ummæli De Gaulle. Það segir, að hann hafi með ummælum sínum dregið mjög úr -vonum manna um lausn Alsírmálsins í nálægri framtíð, þar sem alveg virðist fyrir það girt, að samið i Þeir herða whis- kydrykkjuna. Bandaríkjamenn keyptu whisky frá Skotlandi fyrir 111 millj. dollara á síðasta ári. Juku þeir kaup sín á þessari „nauðsynjavöru“ talsvert á ár- inu, því að whiskykaup þeirra á árinu 1958 námu tæplega 100 millj. dollara. verði um vopnahlé. í stuttu máli: Um sé að ræða viðbúnað undir löng og hörð átök, en stefnt, að sjálfsákvörðunarrétti Alsírbúa, en það mark geti verið langt undan. Viðureignin við Öndverðar- nes í fyrramorgun. Skýrsla frá dómsmálaráðuneytinu. Alsírmálið yrði ekki til i lykta leitt fyrr en að unnum ; hernaðarlegum sigri Frakka. I Hann mælti og nokkur að- | vörunarorð um, að baráttan j kynni að verða löng og hörð. í fréttum frá París segir, að fram til þessa hafi ekkert bent til, að De Gaulle mundi breyta um stefnu, en nú hafi vonir Hianna um vopnahlé og sam- komulag fengið skjótan endi. Ennfremur var svo að orði kveðið í einni frétt um þetta, að vinstrimenn og miðflokka- Dómsmálaráðuneytið hefur nú talið rétt að taka að sér fréttaþjónustu landhelgisgæzl- unnar og mun það gleðiefni öll- um fréttamönnum, sem hafa átt í baráttu við hana. Ráðuneytið gaf í gær út skýrslu um atburðina við Snæ- I fellsnes, og er þar byggt á bráðbirgðaskýrsiu skipherr- anna á Ægi og gæzluflugvél- inni Rán, sem komu á vettvang þar sem Bretar voru að vinna spjöllin viðÖndverðarnes í gær. Vegir tepptir í Þing- eyjarsýslum og víðar. Rauðmagaveiði að hefjast nyrðra. Frá fréttaritara Vísis. ! • Húsavík í gær. Á annan sólarhring hefur hamslaus norðan stórhríð ætt yfir Þingeyjarsýslur. Hríðin Var svo mikil að varla sá úr augum, enda voru fáir á ferli nema þeir sem þurftu að fara brýnna erinda. Mannhæðar háir slcaflar liafa myndast og um- ferð öll er lömuð. Vegir til Mývatnssveitar hafa lokast og ill færð er um nær- liggjandi héruð. Mjólkurbíll lagði af stað úr Reykjadal í fyrrakvöld og var hann 16 klukkustundir að brjótast 38 km. leið til Húsavíkur. Síð- degis í gær slotaði hríðinni. Gæftir hafa verið með af- brigðum stopular í febrúar og lítill. fiskur því borizt hér á markað í Húsavík. Fjársöfnun RKÍ gekk vel. Fer hér á eftir útdráttur í skýrslu þessari: í skýrslu skipherrans á Ægi er skýrt frá því að fjórir tog- arar, og þó sérstaklega einn þeirra hafi togað þversum yfir I net báta, sem voru að veiðum um 5—6 sjómílur út af Önd- verðarnesi. Var fyrst beðið um aðstoð flugvélarinnar Ránar að fljúga yfir staðinn og' reyna að bægja togurunum frá unz Ægir kæmist á staðinn. Síðan var krafizt af brezka eftirlitsskip- inu að það skipaði togaranum að banna togaranum að kasta aftur yfir net bátanna og var það gert. Skipstjórinn á gæzluvélirpii Rán skýrir frá því að hann hafi að beiðni skipherrans á Ægi, farið á veiðisvæði bátanna undan Öndverðarnesi og skotið merkjaskotum fyrir framan stefnin á togurunum án þess að því hafi verið sinnt. En eftir að merkjaskotum var skotið á þilfar togarans sveigðu þeir frá í bili. Sveimaði flugvélin um hálfa klukkustund yfir svæð- inu, en um það leyti kom Ægir og brezka eftirlitsskipið á vett- vang, Skipstjórinn á flugvélinni telur það hafa verið auðséð á siglingu togarans að þeir gerðu það af ásettu ráði að toga yfir veiðarfæri bátanna. Söfnuðust 115 - 120 þús. í Rvík. 39 dóu á Svo sem kunmigt er var fjáröflunardagur Rauða Kross- ins hér á landa á öskudag. Verður var kalt í höfuð- staðnum, og frekar fátt fólk á ferli, Einmitt þess vegna má segja að söfnunin hafi gengið ótrúlega vel, miðað við önnur ár. — Samkvæmt upplýsingum sr. Jóns Auðuns, formanns Rvk.- deildar Rauða Krossins safnað- ist hér í Reykjavík 115 — 120 þúsund krónur, en endanlegar tölur voru ekki komnar í morgun. Sr. Jón Auðuns bað Vísi að bera innilegt þakklæti til allra þeirra, sem aðstoðað hafa við fjársöfnunina, og jafnframt til þess mikla fjölda fólks, sem lét fé af hendi rakna til líknar- starfa félagsins, með því að kaupa merki þess. Vitað er, að beiðni um hjálp eða aðstoð á einhvern hátt, hefur verið send tiLfjölda landa. IViauritius. Opinberlega er tilkynnt, að 39 manns hafi farizt í síðari hvirfilvindunum á Mauritius. Hefur verið birt opinber loka skýrsla og segir í henni, að 68 þús. manns hafi rnisst heimili sín. Yfir 100 þús. manns eru heimilislausir eftir báða hvirf- ilvindana. Matvælauppskeran í eynni er talin gersamlega eyðilögð. Munið, að þeir sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. ! Fyrsta sjúkraflug vetrar- ins á skíðum í gær. 8LP. flaug að þar ðéffS 20 Björn Pálsson fór í gær fyrsta sjúkraflugið á vetrinum á skíð- um. Hafði Vísir veður af þessu og leitaði fregna hjá Birni, sem sagðist svo frá: Ég hafði verið beðinn að koma norður í Mývatnssveit undireins og skilyrði leyfðu, en þegar mér barst beiðnin var þar enn ofan- hríð. Hófst ég þegar handa um að setja skíðin undir flugvélina, en það er allmikið verk, — og var tilbúinn til flugs í gær- morgun. Upp úr hádeginu kom kall- ið. Þá liafði skyndilega birt í lofti og var komið sólskin eftir 20 daga stórhríð, sem aldrei hafði orðið neitt lát á, og í gærmorgun var ofan- hríð svo dimm, að ekki sást út úr auguni, skafrenningur og 40 hnúta vindur. Sjúk kona flutt. Eg lenti hjá Gautlöndum um kl. 3 og tók þar sjúka konu, Jóhönnu Björgu Illugadóttur og IViývafiii, er dSa-sa hríð. flutti til Akureyrar. Þar tók ég svo konu og nýfætt barn og flutti að Álftagerði við Mývatn. — Þaðan flaug ég til Reykja- hlíðar og sótti 2 menn, sem ætl- uðu suður í verið, og eru Vest- mannaeyjar ákvörðunarstaður þeirra. Ég kom aftur til Reykja- víkur á sjöunda tímanum og var alls um 5 klukkustundir á ferðalaginu. Hvarvetna margmenni. Allt gekk eins og í sögu. Margt manna var hvarvetna þar sem ég lenti og flest hjá Álfta- gerði, enda er skóli á Skútu- stöðum, sem eru skammt frá. Ég lenti á vatninu hjá Álfta- gerði en þar var um hnédjúp- ur sqjór.“ Björn mun nú ætla að fljúga á Vestfirðina eftir því sem á- stæður leyfa, enda mikil þörf að bæta úr samgönguerfiðleik- um þar. Um 50 manns bjargaií í Agadir s.l. snlarhring. 2000 lík greftlruð í fjölda- gröfuin utaai horgarinnar. Móhammeð konungur V í Mar- okkó fyrirskipaði í gær, að ekki skyldi jafna \ ið jörðu neitt hús, meðan nokkrar líkur væru fyr- ir, að veggir þess eða rústa gæti leynst einhver á lífi. Að öðru lejdi verður undinn taráður bugur að ruðningsstarf- inu, bæði vegna hættunnar á drepsóttum, sem er mjög mikil, m. a. 'vegna þess að í rústunum eru milljónir af rottum, sem reynt verður að útrýma um leið. Fundist hafa yfir 50 manns s.l. sólarhring, sem var innilukt í rústum og' hafði engin tök á að bjarga sér án aðstoðar. I þess- um hópi var kona, sem eignað- ist bafn, rétt eftir að lands- skjálftakippnum linnti. Enn kunna margir að leynast á lífi í rústunum. Um 2000 lík hafa fundizt og voru þau greftruð í skyndigröf- um utan borgarinnar. — Her- sveitir hafa slegið hring um borgina í öryggis skyni, til þess að hindra gripdeildir, og til að hindra að nokkur komist burt, án þess að undirgangast læknis- skoðun, til öryggis, að drepsótt- ir breiðist ekki út. Áformað er, að búið verði að endurreisa Agadir er ár er liðið frá því borgin hrundi. Allir vegir færir. Eftir því, sem bezt var vitað í morgun, voru allar leiðir frá Reykjavík færar, að undan- teknum Krísuvíkurvegi, sem snjóað hafði töluvert á í nótt, og iíklega ekki fær minni bif- reiðnm. Hellisheiðin var prýðileg, og komu bílar keðjulausir að austan í morgun, svo að sýni- leg'a er ekki um vegartálma að ræða þar, af völdum snjókomu. Ekki höfðu borist áreiðan- legai' fregnir af Öðrum leiðum, en líklegt þótti að þær væru færar öllum bifreiðum. Ungverska stjórnin neitar að rétt sé, að 150 ungmenni hafi verið tekin af lífi vegna þátttöku í frelsisbyltingunni 1956.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.