Vísir - 17.03.1960, Síða 4
^ISIB
Fimmtudaginn. 17. marz 1960
’vism
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
x Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opiii frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir köstar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Ráðstefnan um landheigina.
Önnur ráðstefnan um réttar-
reglur á hafinu hefst í Genf
í Svisslandi í dag. Sækja
hana eins og hina fyrri, tugir
þjóða með mjög ólík sjónar-
mið, eins og gengur og ger-
ist, svo að erfitt er að segja
fyrir, hverjar verða niður-
stöður ráðstefnunnar, ef
nokkrar, því að vitanlega
getur svo farið, að hún
komist ekki að neinni not-
hæfri niðurstöðu um helztu
mál, eins og árangurinn varð
fyrir tveimur árum. Þó mun
ástæðan eigi sú, að línurnar
hafi ekki skýrzt að einhverju
leyti á þeim tíma, sem liðinn
er síðan, og það er að sjálf-
sögðu ósk allra íslendinga, að
ráðstefnan beri gæfu til að
finna heppilega lausn á því
vandamáli, sem okkur er
mikilvægast.
Sá kostur hefir verið valinn, að
í nefnd þá, sem gætir hags-
muna íslands á ráðstefnunni,
voru teknir menn úr öllum
flokkum Alþingis. Var þetta
hið eina rétta, því að það
sýnir öllum þjóðum, að ís-
lendingar, hvar í flokk sem
þeir annars standa, eru ein-
huga í þessu máli og láta
ekki bifa sér. Þær ákvarðan-
ir, sem nefndin þarf að taka
á staðnum, í hita bardagans
svo að segja, verða einnig
öruggari, þegar menn úr öll-
um flokkum standa að þeim.
Fer þessi ríkisstjórn sannar-
lega viturlegar og drengileg-
ar að í þessu efni en vinstri
stjórnin á sínum tíma, enda
vart við öðru að búast.
En nefndin verður að vera í
sókn allan tímann, meðan á
ráðstefnunni stendur. Hún
verður að vera óþreytandi
við að hafa áhrif á fulltrúa
annarra þjóða, enda þótt
heppilegi’a hefði verið að
gera það fyrr. Úr því að það
var þó ekki gert, verður
varia úr því bætt með betra
hætti en að reyna á sjálfri
ráðstefnunni. Og það vita
raunar allir, að nefndar-
menn munu ekki liggja á liði
sínu, því að þeir vita eins og
allir aðrir, að líf og framtíð
þjóðarinnar getur oltið á úr-
slitunum á ráðstefnunni.
r >
Akveðið að friðlýsa
hverina á Hveravöílum
Jarðrask bannað á svæðinu.
Vopn úr hendi óvinanna.
f þeim bardaga, sem háður
verður næstu vikur suður í
Genf, verða íslendingar að
beita öllum vopnum, sem til-
, tæk eru, og við eigum ekki
sízt að leitast við að beita
þeim játningum, sem Bretar
, hafa oft gert, ósjálfrátt, varð-
andi 3ja mílna landhelgina,
nefnilega, að hún sé alls eng-
' in alþjóðalög, þótt þeir vilji
svo vera láta.
Þetta hefir m. a. komið fram í
greinum, sem Vísir hefir birt
eftir Júlíus Havsteen sýslu-
mann. Hann hefir leitað
kappsamlega að snöggum
j blettum á Bretum, og síðan
j hefir hann beitt þeirra eigin
orðum gegn þeim, þegar þeir
hafa talað af sér. Fá vopn
eru betri eða beittari, þegar
þeim er beitt á réttri stundu
og með lagi.
Allt slíkt og meira til þarf að
nota gegn Bretum, því að
þeir munu ekki sitja auðum
höndum á ráðstefnunni. Þeir
hafa heldur ekki verið að-
gerðarlausir upp á síðkastið,
þegar .næsta lítið hefir frétzt
um ,,hernaðarundirbúning“
okkar og vopnin jafnvel ver-
ið kyrfilega eyðilögð, þegar
þau hafa verið fyrir hendi,
með skammarlegri frétta-
,,þjónustu“ landhelgisgæzl-
unnar.
í 14. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins birtist svohljóðandi til-
kynning frá Náttúruverndar-
ráði:
„Samkvæmt heimild í a-lið
1. gr. laga nr. 48/1956, um
náttúruvernd, hefur Náttúru-
verndarráð ákveðið að friðlýsa
hverina og hveramyndanirnar á
Hveravöllum á Kili, sem nátt-
úruvætti.
Þar sem telja verður mikil-
vægt að varðveita umrædda
hveri og hveramyndanir á þess-
um stað sakir fegurðar þeirra
og fræðilegs gildis, -er hér með
lagt bann við því að fremja á
þeim hvers konar skemmdir, t.
d. með því að kasta í hverina
grjóti eða öðru því líku, svo og
við því að brjóta kísilmola úr
hveraskálunum.
. Jafnframt er bannað allt jarð-
rask á hverasvæðinu og í næsta
nágrenni þess, og hvers konar
mannvirkjagerð er þar og ó-
heimil, nema að fengnu sam-
þykki Náttúruverndarráðs.
Þeir, sem brotlegir gerast við
ákvæði þessi, verða látnir sæta
ábyrgð skv. 33. gr. laga nr.
48/1956 “
Það mun einróma álit allra,
er til þekkja, að hverirnir á
Hveravöllum á Kili séu feg-
urstu vatnahverir íslands. Veld-
ur þar mestu um hversu tært og
fagurlitað vatn þeirra er, eink-
um í Bláhver og hvernum rétt
austan við hann, svo og, að kís-
illinn, sem hveravatnið fellir út
er hreinni og fagurlegar
mynstraður en við aðra hveri
hérlendis. Eini hverinn, sem
kemst nokkurn veginn til jafns
við Hveravallahverina um þetta
tvennt, er „Gleraugnahver-
inn“, skammt frá Stóra Geysi,'
en Hveravallahverirnir eru þó
fegurri.
Á siðari árum hefur ferða-
mannastraumur til Hveravalla
farið sívaxandi, einkum eftir
að bílfært varð á sumrum milli
Norður- og Suðui’lands um
Kjöl. Frá því að bílfært verður
á sumrin efnir Ferðafélag fs-
lands til ferða á Hveravelli
hverja helgi og hefur, sem
sem kunnugt er, reist eitt af
sæluhúsum sinum þar. Er það
upphitað með hveravatni. Á
því hefur borið allmikið síðari
árin, og farið í vöxt, að unnin
væru skemmdarverk á hverun-
um, kastað í þá grjóti, járnrusli
og öðrum óþvei’ra. Hafa for-
ráðamenn Ferðafélagsins hvað
eftir annað orðið að hreinsa
þetta drasl úr hverunum. Einn-
ig brjóta menn kísilmola úr
skálabörmunum til minja og er
það til lýta.
Á sumrin, meðan ferða-
mannastraumur er um Kjöl,
búa verðir sauðfjárverndar-
girðingarinnar við Seyðisá, að
staðaldri á Hveravöllum. Hafa
þeir reynt eftir getu að verja
hverina gegn skemmdarverk-
um, en eiga erfitt með að beita
sér þar eð engin lög ná yfir
skemmdir á hverunum. En
væru hverirnir friðlýstir sem
náttúruvætti, myndi það varða
við lög að skemma hverina og
mætti sekta þá seku fyrir slík
afbrot. Því er það að talið er
æskilegt, að hverasvæðið verði
friðlýst.
Friðun Hveravalla á auðvitað
ekki að verða í því formi að
bannaður verði umgangur um
hverasvæðið, heldur aðeins að
settar yrðu af náttúruverndar-
ráði reglur um umgengni á
þessu svæði, sem viðurlög væri
við að brjóta og að hafa yrði
samráð við náttúruverndarráð
og samþykki þess um alla
mannvirkjagerð á þessu svæði.
Náttúruverndarráð.
Skákkeppni stofnana lauk
í gærkvöldi með hraðskák
Áróður er nauðsyn.
Þótt því sé oft haldið fram, aðj
áróður sé hvimleitt fyrir-1
bæri í nútímaþjóðfélagi, ]
kemur sá tími alltaf fyrr eða
síðar fyrir hverja þjóð í
heimi sífelldra og illvigra á-
taka, að hún verður að grípa
til áróðurs. Ella kemur hún
málstað sínum ekki á fram-
færi og verður þá líklegast
undir í „friðsamlegum“ átök-
um, sem geta sannarlega ver-
ið jafnafdrifarík og þau, þar
sem vegizt er með vopnum
Hér í blaðinu hefir hvað eftir
annað verið á það bent,
hvemig við höfum látið
■ _ tækifærin til áróðurs ganga
okkur úr greipum. Nú er ef
til vill komið síðasta tæki-
færið, áður en þjóðirnar
greiða atkvæði um það,
hvernig landhelginni skuli
hagað um langa framtíð. Nú
kemur til kasta nefndarinn-
ar, sem send er utan til að
berjast fyrir málstað okkar,
og það er vitanlega von allra,
að för hennar verði góð og
árangursrík. Þess vegna
fylgja henni líka góðar óskir
allra, og þótt íslendingar
deili um nær hvert atriði,
,sem á góma ber, standa þeir
sem órofa heild í lándhelgis-
raálinu.
Hinni fyrstu skákkeppni
stofnana ' og fyrirtækja, sen»
efnt hefur verið til á íslandi,
Iauk f Lidó i gærkvöldi mcð
hraðskákskeppni, og verðlauna-
afhendingu, en síðasta umferð
fór fram miðvikudag s.I. viku,
eins og sagt hefur verið frá.
Forseti Skáksambands ís-
lands, Ásgeir Þór Ásgeirsson,
afhenti heiðursskjöl og verð-
laun og ávarpaði síðan þátttak-
endur og starfsmenn. Þakkaði
hann þátttakendum fyrir prúð-
mannlega og drengilega fram-
komu, sem hann kvað hafa
verið til fyrirmyndar, og starfs-
mönnum keppninnar þakkaði
hann merkilegt brautryðjanda-
starf. Kvaðst hann vonast tii
að hitta alla aftur, bæði þátt-
takendur og starfsmenn í næstu
keppni, sem hefst um næstu
áramót. Að svo mæltu sagði
hann fyrstu skákkeppni stofn-
ana og fyrirtækja • á íslandi
slitið.. .....
Hraðskákskeppnin i gær-
kvöldi var tefld í sjö flokkum,
alls 36 sveitum, og verða hér á
eftir taldar 3 efstu sveitirnar í
hverjum flokki.
A-flokkur:
1. Veðurstofan 19 vinningar
og 2i/2 stig.
2. SÍS, 1 sv. 17 v. og 2% st.
3. Útvarpsbandinu 15V2 v. og
2 st.
B-flokkur:
1. Landsmiðjan 26 V> v. og
4% st.
2. Útvarpið 26V2 v. og 3V2 st.
3. Hreyfill II. sv. 20 v. og 3 st.
C-flokkur:
1. Strætisvagnar 1. sv. 24 v. og
4 st.
2. Landsíminn 1. sv. 20V2 v.
og .3 st.,
3. Áhaldahús 2. sv. 1914 v. og
2Vi st. ,
D-flokkur:
1/ Borgarbíistöðin 22 v. og 3 st.
Í. Rafmagnsveitan 1. sv. 19V>
v. og 2% st.
Skipulágshréyfing
athuguð hjá SMFR
Miðvikudaginn 9. þ. m. var
haldinn aðalfundur Starfs-
manafélags Reykjavíkur í
Tjarnarcafé, og var venju frem-
ur vel sóttur.
Júlíus Björnsson var endur-
kjörinn formaður félagsins og
stjórn félagsins var sömuleiðis
öll skipuð sömu mönnum og áð-
ur, en í henni eru: Ragnar Þor-
grímsson, Kristín Þorláksdóttir,
Georg* Þorsteinsson, Haukur
Eyjólfsson, Gunnar Gíslason og
Þórður Ágúst Þórðarson. — í
varastjórn eru Bjarni Bjarna-
son, Hákon Þorkelsson og Magn
ús Óskarsson. Stjórnin hefir
ekkí enn skipt með sér verkum.
Hagur félagsins er með bezta
móti samkv. reikningum, sem
lagðir voru fram og samþykkt-
ir. —
Á fundinum var borin fram
tillaga um endurskipulagningu
á skiptingu starfsmannaflokka
innan félagsins, en þeim hefir
hingað til verið skipt eftir fyr-
irtækjum. Tillaga þessi miðar
í þá átt að flokka starfsmenn
eftir starfsgreinum frekar en á
þann hátt sem áður var.
r
Ovissa um
Færeyinga.
Fyrir hádegi í dag hafði ekki
tekizt að ná sambandi við ís-
lenzku togarana sem ætluðu að
hafa viðkomu í Færeyjum á
lieimleið til að ráða áhafnir.
Röðull var í Færeyjum í gær
og í dag eru þar togararnir
Ólafur Jóhannesson og Gylfi.
Þá er Sólborg frá ísafirði á leið
þangað í þeim tilgangi að ráða
35 Færeyinga.
Þrír íslenzkir togarar eru á
leið til Bretlands með afla og
munu selja þar eftir helgi og
einn í Þýzkalandi.
ÞJ
hartjar sifj að
acztjEijsa 1
VÍSI
3. SÍS 2. sv. 10 v. og 21/2 st.
E-flokkur:
1. Benedikt og Hörður 21% v,
og 3V2 st.
2. Segull 19 v. og 2% st.
3. Kron 17 v. og 2 st.
F-flokkur:
1. Kassagerðin 23 v. og 4 st.
2. Rafveitan 2. sv. 20% v.
og 3 st.
3. Áfengisverziunin 13% v. og
2 st.
G-flokkur:
1. Héðinn 25 v. og 3 st.
2. Flugfélagið 19% v. og 3 st,
3. Vitamálaskrifstofan 13 v,
og 1 st. ' ;