Vísir - 17.03.1960, Blaðsíða 7

Vísir - 17.03.1960, Blaðsíða 7
Fimmtudaginn 17. marz 1960 VlSlB /i íarij íSurclieil: MILLI TVEGGJA ELDA ★ ÁSTARSAGA 8. — Jæja. Þá gerið þér svo vel að láta þetta á yður, sagði frú Sanders og fór inn í klefann sinn, en Madeline stóð kyrr og fannst hún vera eins og vinnustúlka, sem hefði misst allan uppþvottinn á gólfið og séð hann fara í mél. Þetta atvik var forboði tónsins, sem var í frú Sanders alla leiðina. Líklega hafði hún ekki sagt þetta til þess að vera hroka- full eða setja á háan hest, hugsaði Madeline með sér eftir á, helaur stafaði það af því hún hafði gaman ag að látast þjáð og ósjálfbjarga og hafa útlærða hjúkrunarkonu til þess að nostra við sig. Og henni fannst nauðsynlegt að allir sæi að þetta væri hjúkrunarkona. Madeline mundi hvað Clarissa hafði sagt um að frú Sanders væri afbrýðisöm gagnvart öllum stúlkum, sem væri nærri syni hennar, og þess vegna gætti hún þess vel að vera sem fálátust við hann. Hún þóttist verða þess áskynja að hann hefði garhan af þessu, og fannst að það mundi vekja forvitni hjá honum. Þó hann léti sem hann sæi hana ekki þegar móðir hans var nær- stödd, var auðséð á öllu að hann ætlaði sér að kynnast henni betur undir eins og hún væri laus við hjúkrunina og réði sér sjálf. En hún varð að vera yfir frúnni svo að segja allan tímann. Það var sjaldan sem hún mátti um frjálst höfuð strjúka, og þá var eins og hvíslað væri að henni að þó að gamla konan væri ekki nærri, mundi hollast að vera í hæfilegri fjariægð frá Morton Sanders. Hún gat ekki sagt um hvort það var af hræðslu við móðurina — eða við aðdráttaraflið frá Sanders. Það var éinmitt einhverntíma þegar hún var að umflýja Sand- ers, sem hún rakst á ókunna manninn ,sem henni þótti svo eftir- tektarverður. Þetta var snemma kvölds, frú Sanders hafði lagst fyrir og Madeline, sem leiddist „einkennisbúningurmn“ sem hún var í, afréð að hafa fataskipti og ganga upp á þilfar, svo að hún gæti í svo sem hálftíma látið sem hún væri venjulegur farþegi, sem væri að njóta lífsins, en ekki hálfærð hjúkrunarsystir, sem aldrei fengi færi til að nota alla fallegu kjólana, sem hún hafði keypt sér áður en hún fór. Hún fór í gráan kvöldkjól og setti á sig fallega rauða sjalið, sem Enid hafði gefið henni, og fór svo upp á þilfar. Stjörnurnar blikuðu á kvöldhimninum og allt í kring sást ekkert nema hafið. m'eð hvítum öldutoppunum. í fjarska heyrði hún tónlistina úr danssalnum, eins og dauft undirspil hinnar töfrandi kvöldstemm- ingar. Madeline stóð um stund við borðstokkinn og horfðu á hópa og pör, sem komu fram úr skuggunum og hurfu i þeim aftur. Henni fannst gaman að þessu fyrst í stað, en svo greip einstaklings- kenndin hana. Hún hafði ekki fengið tækifæri til að kynnast neinum um borð, því að hún varð alltaf að vera viðbúin ef frú Sanders kallaði. Hún var utan við það sem gerðist um borð. Allt í einu kunni hún illa við sig í fallega kjólnum og með þetta áberandi sjal — þetta var tilgangslaust stáss. Og einmitt þegar hún var að hugsa þetta, sá hún Morton Sanders koma skálmandi í áttina til sín. Hann hafði ekki kcmið auga á hana ennþá, og nú fannst heimi mikið liggja við, að hann tæki ekki eítir henni. Sjá hana standa þarna samkvæmisklædda og aleina — nærri því eins og hún væri að bíða efitr honum, hugsaði hún með sér og fann að hana hitaði í andlitið. Hún sneri frá og flýtti sér á burt án þess að hirða um hvert hún færi. Bara að hann næði ekki í hana. Hún vissi ekkert hvert hún ætlaði, og allt í 'einu var.hún komin inn í gang og í enda hans var stigi upp á efra þilfarið. Hún hljóp upp stigann án þess að hika. En í efsta þrepinu varð henni fótaskortur i kjólfaldinum og hún mundi hafa dottið á hrammana, ef hönd hefði ekki gripið í hana. — Skelfing eruð þér að flýta yður, sagði karlmannsrödd. Hon- um virtist skemmt. — Eruð þér að flýja undan einhverjum? — Æ, nei — ekki beinlínis, stamaði hún í fátinu. — Eg — eg ætlaði bara að fela mig. — Einmitt það? En — hann horfði vingjarnlega á hana þarna í rökkrinu — ef mér leyfist að segja það, þá get eg ekki séð að sér hafið neiha ástæðu til að fela yður. — Ó — hún varp öndinni og hló feimnislega, — þér segið vei um það. En það var nú ekki beinlínis það, sem eg átti við. Eg.... Hún fann að henni var ekki hægt að gefa skýringu og sagði hálf kjánalega: — Það var í rauninni bjánaskapur. — Þá gleymum við því, sagði hann létt. Komið þér heldur hingað og horfið á stjörnurnar og talið við mig í staðinn. Hún athugaði manninn betur og sá, að þó hann væri hvorki hár né þrekinn, þá var myndugleikasvipur á honum. Þau gengu fram þilfarið og hann sneri sér að henni og sagði: — Hvernig stendur á að eg hef ekki séð yður fyrr? Hafið þér orðið að vera í felum til að forðast að fá halarófu af karlmönn- um á eftir yður? — Æ, nei! Madeline hló og fór hjá sér. Eg er.... Hún hikaði og afréð að vera ekki of opinská um sjálfa sig. — Eg er á ferða- lagi með vinnuveitanda mínum og móður hans, svo að eg hef talsvert mörgu að sinna. Hann horfði lengi á hana. — En þá finnst mér rangt að eyða tímanum í að fela sig hérna uppi á bátaþilfarinu í þessum fallega kjól. Hvers vegna eruð þér ekki niðri að dansa? sagði hann urn leið og dyrnar voru opnaðar og danslögin heyrðust að neðan. — Það er helzt vegna þess að eg þekki engan til að dansa við, sagði Madeline og brosti. — Eg hef ekki haft tækifæri til að kynnast neinum, og.... — Það er einfalt mál, sagði hann og tók í handlegginn á henni, eins og það sem hann sagði væri sjálfsagt: — Komið þér og dansið við mig. Eftir á var hún hálf hissa á því að hún hafði farið með honum tafarlaust. án þess svo mikið sem vita hvað hann hét. En úr- skurður hans hafði verið eins og skipun. Hann hafði sagt þetta eins og það væri sjálfsagt. Hún hafði farið með honum — og hún hafði skemmt sér prýðilega þessa stuttu stund þangað til hljóm- sveitin hætti að spila. _ Ennfremur töluðu Kristinn Ágúst Eiriksson járnsmiður, Ás* mundur Guðmundsson fyrrver* andi biskup íslands, séra Bjarni Jónsson vígslubiskup og fröken María Maack. Þuríður Pálsdótt- ir óperusöngkona söng með undirleik Fritz Weisshappel við fögnuð áheyrenda og sýnd var kvikmynd af vígslu kirkju ó« háða safnaðarins sl. vor. For- maður og prestur safnaðarins vottuðu þakkir öllum þeim £ söfnuðinum, og utan vébanda hans, sem lagt hafa málum safn aðarins og kirkjubyggingu lið á undanförnum árum, I afmælishófinu var skýrt frá veglegum gjöfum, sem kirkj- unni hafa nýlega borizt. Kven- félag safnaðarins hefur ákveð- ið að gefa altaristöflu, sem ís- lenzkur listmálari málar í sum- ar, Bræðrafélag safnaðarins gaf 5000 krónur til kirkjunnar að þessu sinni og Vestur-fslending- urinn Skúli Bjarnason, sem ný- lega dvaldist hérlendis, gáf 10 þúsund til Kirkju óháða safn- aðarins, Kvenfélag og bræðra- félag safnaðarins hafa lagt ó- metanlegan skerf til byggingar safnaðarlífsins og byggingar kirkjunnar á undanförnum ár- um. I hinni nýju kirkju er í vet- ur sunnudagsskóli á hverjum sunnudagsmorgni og sækja hann hverju sinni miklu fJeirl börn en kirkjan rúmar í sæti. eKVÖLDVÍÉJNNI ftiSriifi iiiii'iiIiuWAriMM— Óháði söfnuðurinn tíu ára. Vestur-Islendingur gaf söfnuðinum 10 þús. kr. í afmælisgjöf. Óháði söfunðurinn í Reykjavík minnist nýlega 10 ára afmælis síns með fjölmennu og ánægju- legu samsæti. Veizlustjóri var Sigui-jón Guð mundsson, og ræður fluttu And- rés Andrésson, sem verið hefur formaður safnaðarstjórnar frá upphafi, Bogi Sigurðsson kenn- ari, sem er gjaldkeri safnaðar- ins, séra Emil Bjórnsson safnað- prestur, frú Álfheiður Guð- mundsdóttir, sem verið hefur formaður kvenfélags safnaðar- ins frá stofnun þess,, og Stefán Árnason, er talaði af hálfu Bræðrafélags safnaðarins í for- föllum Jón Arasonar, sem hefur verið formaður þess félags frá upphafi. R. Burroughs IAK2AN - 3218 THEY EUTEK.EÞ THE SETTLEfAEKtT AN7 STOOt? BEFOKE A SPLENt/OKOUS TENT. "WAIT HEKEf SNAKLEP’ ALI. "1 KMJST CONSULT THE SHEIIC// Árabaforinginn kvngdi! reiði sinni og féllst á að íára i með þá til búða Ben Ábens.: Þeir komu. til hinnar glæsi- legu búðar Ben Abens. Bíðið hér, eg verð að tala við Shcikinn hreytti Ali út.úr sér | Pierri vai' smeikur og sagði: i !■!% er Hræddúr um þig. PIEKEE SPOK.E,SHUP7EEINg,- 'THATALI— IAÍAWOEEIE7 FÓE VOU\ fA'SlEU E.ELLV." jac< sheus&ep: 'i'll BE CAEEFULð Kelly. Jack yppti öxlum og sagði: Eg verð gaetinn. Hann var bráðskotinn í konu sinni, en mjög hirðuíaus í fjár- málum. Einu sinni fór hann í ferðalag og lofaði að sendi henni peninga — en gleymdi því. Svo Itomu mánaðamót, hún var krafin um húsaleiguna og sendi svohljóðandi skeyti: „Alveg peningalaus. Húsráð- andinn heimtar leiguna, Símaðu mér peninga“. Hann svarar: „Sjálfur blankur. Sendi á- vísun eftir nokkra daga. Þús- und kossar.“ Þá var konunni nóg boðið og hún símaði: „Skiptir engu um peningána! Gaf húseigandanum einfi af kossunum. Hann var liarð- ánægður.“ „Þegar eg vaf að skemmta mér með strákunum eitt kveld- ið, var framið innbrot heima.“ „Hafði þjófurinn eitthvað upp úr því?“ „Það getur þú bölvað þér uppá. Konan lrélt neínilega að það væri eg að koma líeim.“ Hinn ákærði játaði að hafa eklti talað við konu sína í fimm ár. „Hvers vegna gerðuð þér það ekki?“ spurði dómarinn. „Eg viJdi ekld grípa fram í ■ fyrir lienni.“ Hann: „Þetta er dásamleg bók! Þegar eg las hana áttaði eg mig á%ví hversu máðurinrx er lítilfjöi'legur. Hún: „Ekki þyrfti eg að lesa :4(T0 ,-blaðsíðurl.til .að.. Ítrta. níá^ skiljást það.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.