Vísir - 17.03.1960, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-10-60.
Munið, að þeír sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. livers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Fimmtudaginn 17. marz 1960
Rússa falsa
Bandaríska vísindamenn v'é hesmskunnar
stolnanir greinir á um það.
í fregnum frá Nevv York seg-
Sr, að vel geti verið, að ljósmynd
ir Rússa af þeirri hlið tungls,
sem frá jörðu snýr, séu falsaðar
— gerðar eftir myndum teikn-
.uðum með svartkrít.
Þessu er haldið fram af Willi-
«m Young forstjóra efnárann-
sóknastofa Listas. í Boston
,(Boston Museum of Fine Arts).
Rússar segja, að þessar mynd
5r hafi náðst með sjálfvirkum
Ijósmyndavélum í Lúnik III í
október síðastliðnum.
Young kveðst hafa tekið eftir
ihyndunum á plötur til notk-
lunar í sýningarvél og við at-
hugun á þeim á 8x10 feta sýn-
ingartjaldi hafi sést greinileg
)pensilför og einkenni ljósmynd-
anna að öllu leyti svipuð sem á
svartkrítarmyndum. Komst
hann að þessari niðurstöðu við
samanburð. Það hafi jafnvel
sést á horni rússnesku mynd-
anna merki þess, að þær hefðu
verið bólaðar til þess að taka
af þeim ljósmyndir.
Þótt engin leið sé til að sanna,
að myndirnar séu búnar til eftir
teikningum greðum með svart-
krít, blýöntum eða vatnslitum,
gæti verið að þær séu það, seg-
ir hann ennfremur.
En í New York sagði dr.
James Pickering, aðstoðar
stjörnufræðingur við Hayden
Planetarium, að hann væri
sannfærður um að mynd-
irnar væru ófalsaðar — og
það væri í hæsta máta ósenni-
legt, að Rússar færu að
„bjóða heiminum falsaðar
myndir.“
Olíuleit á Svalbarða
hefst með vorinu.
Míklar líkur, að þar sé olía í jörðu.
! Frá fréttaritara Víssis.
! Oslo í gær.
Bandarískt ætlar að hefjast
lianda um olíuleit á Svalbarða,
að því er hermt er í Aftenpost-
en Oslo.
Hafist mun verða handa um
framkvæmdir með vorinu. Sam-
kvæmt sáttmálanum um Sval-
barða hafa allar þær þjóðir,
sem undirrituðu hann, rétt til
þess að stunda þar siglingar,
námugröft, iðnað og verzlun á
jafnaðarréttisgrundvelli, að því
tilskildu að þar sé í öllu farið
að þar gildandi lögum.
Bandaríski ambassadorinn í
Oslo F.-Jowe fór til Svalbarða
í september í fyrra til þess að
kynna sér aðstæður og skil-
yrði þar. Adolf* Hoel, sem er
sérfróður um Svalbarða, ag var
fararstjóri leiðangurs þangað,
kveðst hafa fundið bergtegund-
ir þar, sem greinileg benzínlykt
var af. Hinn kunni enski jarð-
fræðingur og landkönnuður á
nörðurslóðum Sir James Wor-
die, hefur gert athuganir á aust-
strönd Svalbarða. Hann telur
miklar líkur fyrir, að olía finn-
ist í jörð á Svalbarða.
r *
Aform um neðanjarðar
kjarnorkusprengingu.
Yrði gerö í Nýja Mexico að ári og í þágu friösam-
legri hagnýtingu kjarnorku.
í Bandaríkjunum eru á
döfinni áform um að sprengja
kjarnorkusprengju neðanjarð-
ar í þágu friðsamlegrar hagnýt-
ingar kjarnorku. Lokaákvörðun
hefur ekki verið tekin enn.
Sprengimagn þessarar kjarn-
orkusprengju mundi jafngilda
10.000 lestum af TNT sprengi-
efni. Hún mundi verða sprengd
í saltnámu næstum 400 metra
niðri í jörðunni og geilsaryks-
hætta er ekki talin fyrir hendi.
Sérfræðingum frá öðrum
löndum yrði boðið að vera við
sprengingunni sem „kjarn-
þessi tilraun gerð í Nýja Mexi-
co snemma á næsta ári og yrði
fyrsta tilraun Bandaríkjamanna
með kjarnorkusprengjur frá
því árið 1958.
Það var þingmaður í öldunga-
deild Bandaríkjanna sem lét
þessar upplýsingar í té og voru
þær síðan staðfestar af Kjarn-
orkuráði Bandaríkjanna. —
Anderson lýsti kjarnorku-
sprengjingunni sem „kjarn-
orkuhleðslu“ og mundi fást úr
því skorið hvort hægt yrði að
nota þær til þess að sprengja
fyrir nýjum höfnum t, d.
Mona Lisa — eða Margrét prinsessa? — Það ér málverkaf Margréti, málað af ítalska málar-
anum Annigoni, og hefur hann verið gagnrýndur fyrir að mála Margréti með „Monu Lisu
brosi“, sem sé henni óeðlilegt.
Brezkir kratar deila
nú um þjóðnýtingu.
Flokkurinn jafnklofinn og áður eða „sam
einast nú allir heiðarlegir" kratar?
Nýir punds-
seðlar.
Englandsbanki hefur til-
kynnt, að gefnir verði út nýir
peningaseðlar — og nú í fyrsta
sinn með mynd af þjóðhöfðingj-
anum.
Nýju punds-seðlarnir, þ. e. a.
s.' eins sterlingspunds seðlar,
verða settir í umferð á morgun.
Þeir eru aðeins minni en þeir,
sem nú eru í gildi, og aðallitur-
inn grænn. Tíu shillinga seðlar
koma á næsta ári, svo fimm
punda seðlar, og einnig hefur
verið ákveðið að gefa út 10
sterlingspunda seðla. Stærð
seðlanna fer eftir gildi, þ. e. 10
shillinga seðlarnir verða minnst
ir, eins stpd. seðlarnir nokkru
stærri o. s. frv.
Tveir drengir gerðu
jafntefli við Friðrik.
Friðrik Ólafsson tefldi fjöl-
tefli við drengi í Framheimil-
inu í fyrrakvöld og var teflt á
35 borðum.
Friðrik vann 33 skákir og
gerði 2 jafntefli. Þeir efnilegu
drengir, sem gerðu jafntefli við
stórmeistarann, eru Þráinn
Finnbogason (15 ára) og Á-
mundi Ámundason (14 ára).
Það var æskulýðsráðið og
Taflfélag Reyykjavíkur, sem
efndu til þessa fjölteflis. Það
var ágætlega sótt, eða eins og
húsrúm leyfði, og höfðu allir
góða skemmtun af.
Stjórnarkjör í bifreiðastjóra-
félaginu Frama (áður Hreyfill)
fór fram í gær og fyrradag.
Úrslit fóru þannig að listi
lýðræðissinna — A-listi —
hlaut 217 atkæði og alla menn
kjörna, en B-listi — kommún-
ista — hlaut 159 atkvæði.
Það varð kunnugt í London í
gær, að stjóm brezka jafnaðar-
mannaflokksins hefur tekið á-
ltvörðun um, að standa skyldi ó-
breytt ákvæði stefnuskrár
flokksins um þjóðnýtingu.
Þó er gert ráð fvrir viðbótar-
tillögu frá Hugh Gaitskell for-
manni flokksins, þar sem lögð
er áherzla á breytilega þörf fyr-
irkomulags ýmiskonar ríkis-
reksturs.
Um þjóðnýtingu hafa verið
uppi harðar deilur í flokknum
og raunverulega er flokkurinn
klofinn í afstöðunni til þjóðnýt-
ingar og er hér verið að reyna
að brúa bilið. Gaitskell hefur
haldið því fram, að hin hefð-
bundna kenning um þjóðnýt-
ingu, án tillits til breyttra tíma,
hefði skaðað flokkinn. og átt
meginþátt í ósigri hans þrisvar
í röð. Endanleg afgreiðsla verð-
ur ekki fyrr en á flokksþinginu
næsta haust. Öflug félög sner-
ust gegn stefnu Gaitskells, og
er ákveðið hafði verið, að
stefnuskráratriðið skyldi standa
óbreytt, var ákvörðunin jafn-
framt tekin um viðbótartillög-
una.
Crossman.
Til mikilla átaka hefur ný-
lega komið milli Gaitskells og
Crossmans, eins helzta manns
Stjórn félagsins er því þann-
ig skipuð að Bergsteinn Guð-
jónsson er formaður, Andrés
Sverrisson varaformaður, Sófús
Bender ritari, en miðstjómend-
ur þeir Jóhann V. Jónsson og
Grímur Runóllsseon,
í flokknum, sem verið hefur
mikill samstarfsmaður Gait-
skells, að áliti Gaiskells var
hann potturinn og pannan í
„uppreist" þeirra 40, sem brugð
ust honum í neðri málstof-
unni á dögunum í því máli.
Brást þá Gaitskell reiður við og
krafðist fulls aga og sigraði í
þingflokknum, en þó hefur það
síðan gerzt, að bilið milli Gati-
skells og Crosmans hefur enn
breikkað, og Crossman hætt að
vera talsmaður flokksins um
eftirlaunamál í neðri málstof-
unni, og er þar með „horfinn af
fremsta bekk flokksins þar“.
íhaldsblöðin í morgun telja
augljóst að flokkurinn sé jafn-
klofinn og áður þrátt fyrir sam-
þykktina um stefnuskrárákvæð
ið, en Daily Herald málgagn
jafnaðarmanna segir, að hún
muni „sameina alla heiðarlega
jafnaðarmenn."
Gos á ey við
N. Guineu.
Fregnir hafa borizt um eld-
gos á ey undan ströndum Nýju
Guineu. Tvö þorp hafa grafizt
í glóandi hraunleðju.
Fólkið í þorpunum komst
undan í tæka tíð. Á eynni búa
um 4000 manns. Fyrir tveimur
árum voru allir íbúarnir flutt-
ir burt vegna eldgoss og er hætt
við, að sagan endurtaki sig nú.
Hafnarverkamenn í Hull
gerffiu verkfall í sl. mánuði
og voru 3000 menn iðjulaus-
ir vegna verkfallsins.
Bergsteinn formaður Frama