Vísir - 28.03.1960, Side 2
VfSIR
Mánudaginn 28. marz 1960
.v.-* - ii.i
Sœjarfréttít
Útvarpið í kvöld:
18.30 T-finlistartími barnanna
(Fjölnir Stefánsson). —
18.55 Framburðarkennsla í
dönsku. 19.00 Þingfréttir. —
Tónleikar. 20.30 Sænsk kór-
lög. 21.00 Verzlunarþættir;
II: Upphaf verzlunar á
Stokkseyri og Stokkseyrar-
félagið (Guðni Jónsson pró-
fessor). 21.30 íslenzk tónlist:
Lög eftir Ólaf Þorgrímsson.
21.40 Um daginn og veginn
(Thor Vilhjálmsson rith.). —
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmur (36). —
22.20 íslenzkt mál (Jón Að-
alsteinn Jónsson cand. mag.)
22.35 Kammertónleikar — til
23.15.
Prentvillupúkinn.
Hann var á ferðinni hjá okk-
ur bæði á föstudag og laugar-
dag. í föstudagsblaðinu, þar
sem rætt var um myndina í
Stjörnubíó, var Amazonfljót
komið alla leið frá Suður-
Ameríku til Afriku, og í for-
síðufrétt á 1. síðu um tillögur
Kanada í Genf hafði fallið
úr orð, en rétt var setningin
svona: „Slíku belti (þ. e. 6
mílna fiskveiðabelti) fylgja
sömu réttindi og í landhelgi
varðandi fiskveiðar og nýt-
ingu lífrænna auðlindar
hafsins“.
Barnablaðið Æskan,
3. hefti er komið út, fjöl-
breytt að efni að vanda. í
heftinu er m. a. lýst íitgerð-
arsamkeppni, sem Æskan
efnir til ásamt Félari sam-
einuðu þjóðanna á fslandi,
og eru verðlaun mjög glæsi-
leg, ferð til Kaupman lahafn-
ar, reiðhjól, viðtæki, á% bæk-
KROSSGÁTA NR. 4117:
ur. Önnur keppni er einnig í
blaðinu, og eru veitt þrenn
verðlaun — flugferðir — í
henni.
Æskulýðsráð Reykjavíkur.
Tómstunda- og félagsiðja
mánudaginn 28. marz 1960.
Lindargata 50: Kl. 7,30 e. h.
Ljósmyndaiðja — Málm- og
rafmagnsvinna — Bast- og
tágavinna. — f.R.-húsið: Kl.
7,30 e. h. Bast- og tágavinna.
— Háagerðisskóli: Kl. 8 e. h.
Bast- og tágavinna. — Vík-
ingsheimilið: Kl. 7,30 e. h.
Taflklúbbur. — Laugardal-
ur (íþróttahúsnæði): Kl.
5,15, 7 og 8,30 e. h. Sjóvinna.
Jöklarannsóknarfélag íslands
heldur fund í Tjarnarcafé,
niðri þriðjudaginn 29. marz
kl. 20.30. Á fundinum flytur
Nicholas Clinch erindi með
litskuggamyndum um Hima-
laja leiðangur sinn.
Sjúkrahúsnefnd
bæjarins hefir lagt til, að
Haukur Benediktsson verði
skipaður skrifstofustjóri
hennar. Bæjarráð vísaði mál-
inu til bæjarstjórnar á fundi
sínum á föstudag.
Bæjarráð
hefir samþykkt, að Sigur-
hjörtur Pálmason verkfræð-
ingur skuli fá greiddan bif-
reiðastyrk skv. 3ja flokki.
Löggilding.
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum á föstudag að veita
Sveini Jónssyni, Tunguvegi
5, löggildingu til að starfa
við lágspennuveitu í Reykja-
vík.
Norrænt mót.
Bæjarráð hefur borizt um-
sókn Brunavarðafélags
Reykjavíkur um styrk ‘lil
þátttöku i móti norrænna
brunavarða. Umsókninni
var vísað til sparnaðarnefnd-
ar á siðasta fundi bæjarráðs.
Yfirlýsing
frá Jóni Leifs.
Að gefnu tilefni og til að
útiloka misskiining vill und-
irritaður lýsa yfir því, að
greinar þær og bréf eftir
hann, sem birtar hafa verið
nýlega í dagblöðum, eru
skrifaðar og birtar algerlega
í hans nafni og á hans ábyrgð
og Tónskáldafélaginu sem
félagsheild óviðkomandi,
enda hafa málin ekki verið
lögð fram til afgreiðslu á
stjórnarfundum eða félags-
fundum. — Ennfremur vill
undirritaður af sömu ástæð-
um taka það fram, að hann
hefir aldrei viljað draga í
efa góðan hug ýmsra stjórn-
málamanna í garð íslenzkra
tónlistarmanna, né heldur
gott framlag slíkra lista-
manna til tónmenntamála
þjóðarinnar. — Reykjavík,
24./3. 1960, Jón Leifs.
Stúdentar M. R. 1935
efna til fundar í Nausti —
uppi — kl. 5 síðdegis á
morgun, þriðjudag.
Eimskipafélag íslands:
Dettifoss fer frá Rotterdam í
dag til Reykjavíkur. Fjall-
foss fór frá Akureyri á laug-
ardag til Dalvíkur, Flateyr-
ar, Þingeyrar og Faxaflóa-
hafna. Goðafoss kom til
Gautaborgar á föstudag, fer
þaðan til Khafnar, Ventspils
og Finnlands. Gullfoss fer frá
Khöfn á morgun til Leith og
Reykjavíkur. Lagarfoss fer
frá Húsavík á laugardag til
Akureyrar. Reykjafoss kom
til Reykjavíkur á fimmtudag
frá Hafnarfirði. Selfoss fer
frá Ventspils á morgun til
Gautaborgar og Reykjavík-
ur. Tröllafoss fer frá New
York í dag til Reykjavíkur.
Tungufoss kom til Gdynia í
fyrradag, fer þaðan til Hull,
Rotterdam og Reykjavíkur.
Viðtal við George Drew-
Skýringar:
Lárétt: 1 hreinsar, 0 æti, 7
varðar skilyrði, 9 upptök, 10
aðgæzla, 12 sekt, 14 íélag, 16
ósamstæðir, 17 útl. íélag, 19
myndar orku.
Lóðrétt: 1 brigslar, 2 and.., 3
eld. .., 4 fréttastofa, 5 tímarit,
8 öðlast, 11 naut, 13 drykk, 15
mjakast, 18 . .bogi.
Lausn á krossgátu nr. 4116:
Lárétt: 1 bylting, 6 Són, 7
el, 9 mn, 10 gól, 12 arð, 14 ae,
17 ull, 19 raktar.
Lóðrétt: 1 bregður, 2 ls, 3
tóm, 4 inna, 5 Garðar, 8 Ló(fót),
11 lauk, 13 ró, 15 elt, 18 la.
Frh. at 1. síðu.
„Við höfum samninga
varðandi fiskveiðarnar, og
það eru ekki aðeins Banda-
ríkjamenn, sem veiða við
strendur okkar, heldur
veiða fiskimenn okkar einnig
við stendur Bandaríkjanna,
þ. e. Alaska.
Einnig er um að ræða
önnur svæði, þar scm fisk-
veiðáþjóðir og strandríki
eiga .bæði hagsmuna að
gæta. Það er ólíklegt, að
strandríki geri neitt, sem
gæti bakað þeim tjón. Þjóð-
irnar verða að halda uppi
viðskiptum innbyrðis.“
Þegar hér var komið, spurði
eg Drew, hvort hann teldi, að
þetta ætti einnig við um íslend-
inga og Breta,.og svaraði hann
þá einungis, að honum skildist,
að íslendingar héfðu áhuga
fyrir að selja fisk til Bretlands.
Drew sagði, að 22 þjóðir yrðu
að staðfesta þær sámþykktir,
sem ráðstefhan kynni að gera,
I til þess að þær teldust alþjóða-
lög. Er hann var þá spurður,
hvort nokkurt ríki gæti gert
tilraun til að framfylgja sín-
um lögum, áður en alþjóða-
lögin gengju í gildi með stað-
festingu 22 ja ríkja, svaraði
hann:
„Eg veit ekki, hvaða úr-
skurð albjóðadómstóll mundi
kveða upp í slíku máli. Ef
til vill tæki dómstóllinn tillit
til þess, hvort strandríki
hefði áður haft reglur varð
andi fiskveiðar á hinu um-
deilda svæði.“
Drew fékkst ekki til að segja,
hversu mörg riki væru áreið-
anlega með tólf mílum, en
kvaðst ætla, að í þeim hópi
væru flest þeirra, sem fengjust
við fiskveiðar.
Á mánudag (í dag) er eng-
inn fundur á ráðstefnunni, og
er það gert í virðingarskyni við
fulltrúa múhameðstrúarþjóða,
því að hjá þeim hefst föstu-
mánuðurinn — Ramadan —
þann dag.
Köfum opnað verkstæði
í Bolholti 6. Gerum við saumavélar og skriftvélar,
Yerkstæðlð LÉTTSR
Sími 35124. 1
Gæzlu og vaktmaður óskast
Kópavogshælið vantar nú begar gæzlu- og vaktmana
til vinnu á sjúkradeildum. Umsækjendur snúi sér til
forstöðumanns hælisins, sími 19785.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Verdol
Þvottalögur í vorhreingerningarnar.
Fæst í næstu verzlun.
Verdol-umboðið.
Oííusaian h.f.
Raflagnaefni
ROFAR og TENGLAR, hvítir og brúnir,
inngreyptir og utan á liggjandi.
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Skólavörðustíg 3. — Símar 17975/76.
Arnardalsætt
Ein glæsilegasta afmælis- og fermingargjöf er Arnardalsætt.
Selst enn við gamla verðinu að Laugavegi 43 B, sími 15187,.
Víðimel 23, sími 10647 og V.B.S. Þróttur.
Útgefandi.
TVO HÁSETA
vantar strax á góðan bát sem er á veiðum með
þorskanet.
Upplýsingar í síma 11660.
VERKAMENN
óskast nú þegar.
Bygglngarfélagið Brú
Sími 16298.
Hjartkær konan mín
GUDRUN JÓNASSON,
fædd Geisíer,
frá Danmörku andaðist 25. marz.
Ársæll Jónasson.
■ ' • Aa/éri ' . .
oorr smð