Vísir - 28.03.1960, Side 6

Vísir - 28.03.1960, Side 6
^tSIB Mánudaginn 28. marz 1960 ^XSIR D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Visir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. „Kynnist iandinu" kjörorð - nýrrar ferðaskrifstofu. Annast ferðir um byggðir og ó- * byggðir. - Stofnandi Ulfar Jacobsen. Andinn frá Genf. Fyrir fimm árum eða svo varð mönnum mjög tíðrætt um andann frá Genf. Hann átti að vera sönnun þess, að hinu svonefnda kalda stríði væri lokið, nýtt tímabil að rerína upp í sambúð þjóðanna, og 1 mundi þá raunverulegur friður ríkja en ekki aðeins J að nafninu til. En þessi andi frá Genf stóð því miður ekki lengi, því að sagan mun jafnan halda því á loft, að hann kafnaði í blóði ung- versku þjóðarinnar haustið 1956, þegar hún taldi, að hún gæti notið frelsis eins og fleiri. Um þessar mundir eru tvær ráðstefnur haldnar í Genf, og mun óhætt að segja, að fylgzt sé með þeim báðum um heim allan, þótt þjóðirn- irnar muni að sjálfsögðu telja þær mismunandi mikil- vægar. Önnur fjallar um af- vopnun, þetta eilífðarmál, sem stórveldin hafa verið að teygja og þvæla á milli sín t , , . arum og aratugum saman, án þess að komast að neinni niðurstöðu. Þessi ráðstefna getur ráðið úrslitum um framtíð mannsins og veru hans á jörðinni, svo að hún er vissulega mikilvæg. Hugur íslendinga beinist þó frekar að hinni, því að hún getur ekki síður ráðið úrslit- um .um það, hvort ísland verður byggilegt eða ekki — þótt engri atómsprengju verði varpað framar. Þar 1 verður ráðið, hvort íslend- ingar eiga fiskimiðin næst ^ landinu — á þeim hluta landsins sjálfs, sem hulinn er sævi -—■ eða þau teijast ekki síður eign þjóða, sem hafa af tilviljun orðið þeirra vör og haft af ýmsum á- stæðum tök á að stunda hér rányrkju með skipum sínum . um langt skeið. Og þessa dagana eru íslending- ar farnir að kynnast andan- um á þessum Genfarfundi. Bandaríkjamenn hafa til dæmis lagt fram tillögu til að hjálpa Bretum, erkifjend- um okkar í þessu máli. Þeir segjast skilja aðstöðu íslend- inga, en þeir hafa ekki fyrir því að bera fram neina til- lögu, er færi sönnur á þann skilning, en hinsvegar sé þeir reiðubúnir til að „hjálpa“. Mörgum hefir fundizt, að Bandaríkjamenn hafi misst af strætisvagninum hvað eft- ir annað í sambandi við of- beldi Breta. Nú finnst mönn- um, að þeir ætli sér að missa af honum einu sinni enn, því að sé viljinn til að veita okk- ur lið fyrir hendi, ætti að vera vandalaust sönnur á hann. að færa eru „Frændur“ okkar Svíar líka vinsamlegir í okkar í garð, eins og við var að bú-1 ast, og má segja, að þeir haldi uppteknum hætti. Drengskapur sá, sem þeir hafa jafnan auðsýnt okkur á sviði flugmálanna, er mjög greinilega til skiptanna og nær til okkar á fleiri sviðum. Þetta er víst sú norræna samvinna, sem þeir munu telja vænlegasta til árangs, en hætt er við, að þeir hafi fyrir skömm og skaða og annað ekki. íslendingar munu leggja sér þetta allt á minnið til komandi tíma. Úlfar Jacobsen hefur opnað férðaskrifstofu, sem hann rekur undir nafninu „Úlfar Jacobsen — Ferðaskrifstofa“, og verður hún til húsa í Austurstræti 9. Kjörðorð ferðaskrifstofnunnar verður: Kynnist landinu. Gerði hann fréttamönnum grein fyrir áformum sínum nú nýlega og mælti m. a. á þessa leið: „Tilgangur minn með stofnun þessarar ferðaskrifstofu er að reyna að bæta og auka þjónustu við ferðamenn og gera semflest- um kleift að kynnast landinu á sem ódýrastan hátt — sjá það í sínum fegursta sumarskrúða og njóta fjallakyrrðarinnar í hópi góðra ferðafélaga. Til hag- ræðis fyrir viðskiptmenn mína hefi ég ákveðið, að gefa þeim kost á að greiða fyrir farmiða í lengri ferðum með afborgun- um. Vildi ég með því stuðla að því, að sem flestir gætu feng- ið tækifæri til þess að kynnast landinu. Ég hef nú þegar ráðið góða og örugga bílstjóra í þjónustu mína í sumar, bæði til ferðalaga um byggðir og óbyggðir. Ég vil geta þess, að ekki er búið að leggja seinustu hönd á sumarferðaáætlanirnar, en þær kynni ég ykkur nánara í vor..“ Aukinn ferðamanna- straumur. Úlfar kveðst hafa þá trú, að ferðamannastraumurinn til landsins ætti eftir að aukast mikið á næstu árum, og að æ fleiri vakni til meðvitundar um fegurð landsins og að menn sannfærist æ betur um þá miklu og sérstæðu fegurð, sem við höf- um upp á að bjóða. Jafnframt kvað hann okkur íslendingum hollt að hugleiða, að vert sé að nota okkar stutta sumar til þess að kynnast okkra eigin landi, í stað þess að ferðast þá til erlendra borga, en til þess væru aðrir tímar hentugri. j Mikla athygli fréttamanna vakti líkan, upphleypt, af ís- landi, sem komið hefur verið fyrir á einum vegg ferðaskrif- stofunnra. Er það gert af Agli Bachmann af miklum hagleik. Yfir er mynd af hreindýrshöfði og letrað: Úlfar Jacobsen —- ferðaskrifstofa. í miðju stendur kjörorð ferðaskrifstofunnar: Kynnist landinu. Mynd af líkaninu verður not- uð til þess að gera vörumerki ferðaskrifstofunnai'. Fyrsta ferð Ferðaskrifstofu Úlfars Jacob- sen verður í Öræfasveit. Lagt verður af stað á skírdag 14. apríl kl. 9. Ekið verður að Klaustri og gist þar fyrstu nótt- ina. Næsta morgun verður ekið að Núpsstað og skoðað bæna- húsið, síðan ekið fram hjá Lómagnúp yfir Núpsvötn og Súlu o. s. frv. að Hofi í Öræfum. Verður gist þar í tveimur nýjum húsum, sem Úlfar hefur fengið afnot af. Á þriðja degi verður sveitin skoðuð o ghefur Úlfar fengið kunnugan mann úr sveit- | mni til þess að leiðbeina ferða- fólkinu og sýna því sveitina. Á' fjórða degi verður Svínafells- jökull skoðaður og ekið að Skaftafelli og skoðaður lækur- inn, sem í eru einir 7 fossar, og þeirra meðal Svartifoss, sem fellur af stuðlabergi. Er sagt, að þar hafi Guðjón Samúelsson fengið hugmyndina að loftinu í Þjóðleikhúsinu. Síðan verður j ekið aftur að Klaustri og þaðan 1 til Rvíkur og komið þangað að ^ kvöldi annars í páskum. Eftir páska hefur ferðaskrif- stofan helgarferðir til ýmissa staða, á Snæfellsnes og víðar. „Sögulegur" réttur. Tónninn hefir verið þannig í , sumum ræðumönnum í Genf, að gera má ráð fyrir allhörð- um deilum, er líður á ráð- stefnuna. Þó mun mega ganga að því vísu, að ógern- ingur reynist fyrir Breta og þeirra vini að segja fyrir verkum á ráðstefnunni eða fá hana til að samþykkja hvað sem þeim þóknast. f því sambandi benti fulltrúi Kanada á mikilvægt atriði í ræðu sinni fyrir helgina, þegar hann kvað hinn svo- nefnda „sögulega‘“ rétt, sem Bretar hafa alltaf verið að tönnlast á, ósamræmanlegan stofnskrá Sameinuðu þjóð- anna. Þar er gert ráð fyrir jafnrétti þjóðanna, en hinn „sögulegi" réttur gerir eina ' þjóð öðrum eða annari æðri. Tvö morð á einum degi i Danmörku. Myrt var 18 ára stúlka og 72ja ára kona. Frá þessu sjónarmiði er hann þess vegna ekki fyrir hendi, og ráðstefna, sem haldin erj í nafni Sameinuðu þjóðanna og að tilhlutan þeirra, getur vitanlega ekki tekið neitt til-J lit til slíkra „raka“ Breta eða annarra. Vafalaust munu ýmsir hafa lit- ið svo á, að Bretar hefðu öðlazt einhvern rétt hér við land með veiðum sínum. Þeir eru þó fleiri, sem telja slíkt fásinnu, og það gerðu meðal annars þær þjóðir, sem virtu 12 mílna landhelgi íslend- inga, þegar Bretar sendu herskip sín til að opna hana. Þess er því að vænta, að Genfarfundurinn tilkynni hið bráðasta, að „sögulegur" réttur Breta sé hvergi til nema í heilabúi þeirra. Frá fréttaritara Vísis. Khöfn 23. marz. Á einum og sama sólarhringn- um voru myrtar tvœr konur í Danmörku. 18 ára gömul stúlka frá Ála- borg var myrt og svívirt af sjó- liða á sunnudagsmorgun. Hann hefur viðurkennt verknað sinn. Nokkrum tímum eftir að stúlk- an var myrt, fannst 72 ára kona, fröken Kirstine Hánsen, myrt í eldhúsi sínu á sveitaheimili í Farum, ekki langt frá Kaup- mannahöfn. Lögreglan leitar nú að 18 ára gömlum pilti, sem vann á bænum. Það var 10 ára gömul stúlka. sem var á leið með ruslaíötu út í húsagarðinn, sem fann lík hinnar 18 ára gömlu Inge Birthe Johansen. Hún kvað hafa farið á dansleik í Álaborg ásamt ann- arri urígri stúlku. Vinstúlkan hafði farið heim á undan henni, en þrír ungir menn höfðu fylgt Inge heim á leið. Inge og 23 ára gamall bílstjóri, Svend Aage Jensen, sem gegnir her- þjónustu um sinn, drógust aftur úr. IJann gercist nærgöngull, en hún varðist. Maðurinn, sem drukkið hafði 10 pilsnera, varð óður af bræði og kyrkti stúlk- una. Lögreglan hafði upp á fé- lögum hans tveimur, og þegar þeir urðu þessa áskynja, sögðu þeir hver hann var. Jensen var þá kominn heim til foreldra sinna. Hann játaði á sig verkn- aðinn og örvinglaðist, er til rétt- arins kom. 72 ára konan, sem fyrr var nefnd, hafði sýnilega barizt til síðustu stundar gegn árásar- manni sínum, því í eldhúsinu var allt á tjá og tundri. Systkini hinnar mvrtu bjuggu á bænum ásamt henni. Nýjar kvöldvökur. I þessum dálki hefur stundum verið minnst á gömlu tímaritin, Skírni, Andvara og Eimreiðina, gildi þeirra fyrir menninguna í landinu, og nauðsyn þess, að þau gætu haldið áfram að koma út, þrátt fyrir harðnandi sam- keppni á tímum mikillar smekk- hnignunar. Að þessu sinni verð- ur minnst nokkrum orðum á gott og vinsælt tímarit, sem að vísu telst ekki til hinna elztu, en er þó komið á sjötta áratug- inn, og það er tímaritið Nýjar kvöldvökur á Akureyri, 53. ár- gangur þess hófst á þessu ári. Rit 'þetta á sér merka sögu um margt, þótt ekki verði hér rak- ið, og ritstjórn og útgáfa verið í mætra og hæfra manna hönd- um. Nýtt snið. Það, sem hér verður sérstak- lega vakin athygli á, er að nú verður gerð sú breyting, að þvi er varðar efni, að tímaritið á að langmestu leyti að verða vett- vangur fyrir persónusögu, ætt- fræði og annan þjóðlegan fróð- leik, á svipaðan hátt og Óðinn og Sunnanfari, hvortveggja merk tímarit. Sunnanfara muna sennilega fáir, en Óðin, sem Þorsteinn Gislason gaf út mörg ár, muna margir, og sakna hans. Útgefendur að Nýjum kvöldvök- um gera ráð fyrir að vegna þess- arar breytingar muno með tim- anum safnast saman í ritinu ættartölur hvaðanæva að af land- inu, sem geri mönnu.m auðveld- ara að átta sig á ættum sínum og annarra. Auk greina um karla og konur úr öllum byggð- arlögum landsins verða birtar sjálfstæðar greinar um ættfræði frá öllum tímum islenzkrai’ sögu og fléttað inn í sögulegum stað- reyndum og rannsóknum, sem þurfa þykir. — Rjtið hefur verið stækkað og á að koma út árs- fjórðungslega. Efni. Vel er á stað farið með fyrsta heftið með hinu nýa sniði. Fyrst er grein, sem nefnist ætt for- seta Islands, en annað efni er: Síra Sigurður Stefánsson, eftir dr. Friðrik J. Rafnar vígslubisk- up, Islenzkir ættstuðlar eftir Einar Bjarnason, Friðrik Magn- ússon útvegsbóndi, eftir Sigurð Einarsson, Valborg Sigrún Jóns- dóttir frá Flatey, eftir Bergsvein Skúlason, Ritdómar eftir Jón Gislason, Ingimar Eydal — kennari — ritstjóri, eftir Hóim- geir Þorsteinsson frá Hofdölum o.m.fl. — Nýiar Udvökur ættu það skilið aö vera prentaðar á eins góðan pappír og Óðinn var. Reiður faðir. Bréf með þessari undirskrift hefur borist Bergmáli. Höfund- ur bréfsins befur gleymt að láta fylgja með nafn og heim- ilisfang, en bréf eru ekki birt, nema þeirra reglu sé fylgt. Ekk- ert er til fyrirstöðu að birta bréfið. — Það skal tekið fram, að upplýsingar eru ekki látnar í té af blaðsins hálfu um nöfn þeirra, sem senda því pistla, sem birtir eru undir dulnefni að ósk þeirra. ss Bezt að auglýsa í VÍSI

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.