Vísir - 28.03.1960, Qupperneq 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
VlSIR
Munið, að þeir sem gerast áskrifendux
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 28. marz 1960
Mjög lítill afli hjá
bátum við Faxaflóa.
Mikið af síli í Faxaflóa.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
Það er ekki fisk að fá í Faxa-
flóa um þessar mundir. Það
hefur verið ördeyða á aðra
viku, en þrátt fyrir þetta er
enginn óhugur í mönnum Allir
eru á þeirri skoðun að gangan
eigi eftir að koma eins og endra
nær og þess muni ef til vill
ekki langt að bíða.
Það er óvenjumikið síli í
Faxaflóa. Fiskurinn er úttroð-
inn af því og síli hefur jafnvel
komið upp með þorskanetum.
Meðan svo er, er ekki hægt að
búast við véiði í net.
Það var jafnlélegt hjá öllum
í gær, ein, tvær, þjár lestir á
bát. í fyrradag var það heldur
betra þá voru þeir með þetta
fjórar til 5 lestir. Höfrungur
fékk mikinn afla í fyrradag.
Hann var með net sín norður
undir Jökli og fékk 42 lestir.
Sandgerði.
Sandgerðisbátar hafa ekki
ífarið suður fyrir Reykjanes eða
suður á Selvogsbanka. Þeir
hafa mest verið út af Skagan-
Þrír fuiiorðnir
í óknyttum.
j- Frá fréttaritara Vísis —
Akureyri í morgun.
Það er almennt taiið að það
hefði verið verk vandræðaung-
linga að troða pappír í smekk-
lása á hurðum átta húsa hér i
bæ þ. 9. marz s.l. en öllum til
mikillar furðu voru þar að verki
þrír fullornir menn.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar hefur hafzt uppi á
J>eim er óknytti þessa unnu.
Einn þeirra er járnsmiður að
atvinnu annar vélsmiður, en
um atvinnu hins þriðja var
fréttaritara ekki kunnugt.
22ja stiga
frost.
I sl. viku gerði enn versta
veður í miðríkjum Bandaríkj-
anna, þótt ekki sé getið mann-
tjóns.
Kuldabylgja hefir verið í
Suðurríkjunum, en þótt hún léti
undan síga, hlýnaði ekki norðar,
og 22ja stiga gaddur mældist í
Michiganfylki á miðvikudag. Þá
fennti enn mjög þar og í Indiana
og Illinois.
Afhendir skilríki.
Þ. 23. þ.m. afhenti Agnar
Kl. Jónsson Grikkjakonungi
trúnaðarbréf sitt semambassa-
dor íslands í Grikklandi með
-öðsetri í París.
> Utanríkismálaráðuncytið.
um, en þear hafi verið tregur
afli sem annars staðar hér við
Faxaflóann. Einstaka bátur hef-
ur þó fengið sæmilegan afla við
og við. í gær komu 13 bátar
með 104 lestir. Það var sára-
lítið hjá þeim sem voru með
einnar náttar en skárra hjá hin-
um. Muninn var með tæp 20
tonn, Guðbjörg með 16 og Ham
ar með 14. Þetta var allt 2ja
nátta fiskur. Þeir búast ekki
við að aflabrögðin skáni fyrr
en í byrjun næsta mánaðar,
enda er varla hægt að búast við
petjafiski fyrr. Jóni Gunnlaugs
syni hefur gengið vel. Hann
hefur verið með 10 til 14 lestir
undanfarið. Að vísu verður
hann að sækja djúpt, því hann
verður að fara með línuna út
fyrir netasvæðið, annars er allt
á floti hjá honum. í síðustu
róðrum hefur hann farið norð-
ur á Jökultungur.
Reykjavík.
Afli dagróðrabáta frá Reykja
vík hefur verið sáralítill síð-
ustu viku. Einna skárst hefur
verið hjá þeim, sem lagt hafa
grynnzt. Dýptarmælar sýna
mikla lóðningar á grunnslóð,
en er það álit margra að um
loðnu sé að ræða.
Verður nú sett bann?
Er samkomulag um kjarnorkuvopna-
tilraunir á næstu grösum.
Það er ekki aMt fengið með
t því að vera dóttir frægrar
HoMywood-stjörnu. Það liefur
sannazt á Cheryl Crane, dóttur
j Lönu Turner, sem varð fyrir
| þeirri ógæfu að bana friðli
móður sinnar. Hún hefur nýlega
verið send í skóla fyrir vand-
ræðabörn. Cher.yl er 16 ára
Polly Thoonson
látin.
Polly Thomson, sem lengi
hefir verið nefnd „augu og
eyru“ Ilelen Keller, er látin í
sjúkrahúsi.
Ungfrú Thomson nafði verið
daglegur förunautur, vinur og
hjálparhella Helen Keller, sem
er í senn blind, heyrnarlaus og
mállaus, síðan 1936. Ungfrú
Thomson var 75 ára gömul.
í dag fara þeir Eisenhower
forseti og Macmillan forsætis-
ráðherra Bretlands frá Wash-
ington til Davisbúða í þyrlu og
ræðast þar við um sameiginlegt
svar við seinustu tillögum
Rússa varðandi bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum.
Áður en þeir leggja af stað
ræðir Macmillan við Christian
A. Herter utanríkisráðherra
Bandaríkjanna til undirbúnings
á viðræðunum.
Það er litið svo á, að sam-
komulagshorfur hafi batnað að
miklu.m mun eftir að Macmill-
an íór frá London
og Lundúnablöðin í morgun
eru yfirleitt bjartsýn og
trúuð á, að samkomulag um
bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn fram undan.
Eisenhower mun nú reiðu-
búinn til nokkurra tilslakana
og þótt ekki yrði þar með jafn-
aður alveg ágreiningurinn um
neðanjarðai’sprengingar í til-
raunaskyni vantar sennilega
aðeins herzlumuninn til þess að
brúa bilið.
Þriggja velda ráðstefnan um
Sorg í Afrlku — múg-
morðanna minnzt.
Lagt til, að dr. Verwoerd biðjist lausnar.
Blökkufólk í Afríku minnist
í dag þeirra, sem létu lífið í
Afríkubæjum af völdum lög-
regluofbeldis á dögunum. Gæti
víða orðið alger vinnustöðvun
vegna þessa minningar- og sorg-
ardags.
Óttast ýmsir, að til óeirða
kunni að koma, en leiðtogar
blökkufólksins hafá -%st yfir,
að tilgangurinn sé aíSJöps að
minnast hinna föllnu. FóíSt er
hvatt til þess að vera heima, og
leiðtogi Afríkukongressins hef-
ir mælst til þess, að fjölmennar
lögreglusveitir verði ekki send-
ar inn í blökkumannahverfi.
Annars er það talið ákaf-
lega mikilvægt — og yfir-
leitt góðs viti, að hætt hefur
verið við í bili að fram-
kvæma það ákvæði vega-
bréfalaganna að handtaka
menn, ef þeir bera ekki á sér
vegabréf, en það var einmitt
þetta ákvæði sem leiddi til
ofbeldisins á dögunum.
Verwoerd fari frá.
Daily Telegraph skorar á
flokka hvítra manna að taka
höndum saman og mynda sam-
steypustjórn er leitist við að
Tinna skynsamlega lausn á
jdeilumálunum og að dr. Ver-
woerd ætti að biðjast lausnar
til þess að greiða fyrir þessu.
ii is en lítlð
um sel.
Frá fréttaritara Vísis. —
Oslo í fyrradag.
Selveiðar Norðmanna við
Nýfundnaland hafa gengið sér-
staklega erfiðlega í vor og
kópaveiðin er talin hafa brugð-
ist algerlega.
Skipin hafa orðlið fyrir tjóni
í ísnum, sem er sérstaklega mik-
iU í ár.
144.000 fíótta-
menn á sS. árl.
A síðasta ári komu alls um
144,000 flóttamenn frá A.-
Þýzkalandi vestur fyrir járn-
tjald.
Þess er getið, að það fari í
vöxt, að bændur taki sig upp
og flýi vestur, enda þótt þeir
verði að skilja nær allar eigur
sínár eftir, því að enginn kaup-
ir framar jarðir þar eystra.
Þeim verður því ekki komið
í fé, sem hægt er að flytja með
sér.
Reykur að
Reykjalundi.
Kl. rúmlega níu á laugardags-
völdið var slökkviliðið í Reykja-
vík kallað að Reykjarlundi í
Mosfellssveit, og var sagt að
kviknað væri þar í.
Þegar á staðinn kom, reynd-
ist óverulegur eldur hafa kom-
ist í íbúðarhús frá eldstæði, og
var það fljótt slökkt. Skemmdir
urðu óverulegar.
Innbrot í Nóa.
f fyrrinótt var brotist inn í
sælgætisgerðina Nóa á horni
Skúlagötu og Barónsstígs.
Hafði innbrotsþjófurinn víða
leitað um húsið, en lítið fundið
girnilegt til þjófnaðar. Eitthvað
fann hann þó af skiptimynt,
sem hann hafði á brott með sér,
en annað er ekki vitað að horf-
ið hafi. Skemmdir voru gerðar
á hurðum og húsgögnum, en
ekki stórvægilegar.
þessi mál og 10-þjóða ráðstefn-
an um afvopnunarmál, báðar
haldnar í Genf, sem kunnugt
er, koma saman til funda í dag,
enu á báðum er í rauninni beðið
átekta, unz fregnir berast um
niðurstöður þær, sem þeir kom-
ast að Eisenhower forseti og
Macmillan í Davisbúðum.
Álit blaða.
Blöðin í Lundúnum í morgun
benda á, að ef svo fari sem
vonir standa til, geti þegar
komist skriður á störf bæði
þriggja og 10 þjóða ráðstefn-
anna, og allt þetta að greiða
fyrir samkomulagi á fundi
æðstu manna í maí.
Prófsteinn.
Daily Telegraph segir, að
það gæti verið góður próf-
steinn á einlægni Rússa, að
spyrja þá á fundi æðstu manna,
hvort þeir vilji ásamt hinum
stórveldunum ábyrgjast nú-
verandi landamæri í Austur-
löndum nær. Þess sé þörf. —
Þríveldayfirlýsingin sé dauður
bókstafur og allt breytt frá
1955, er Rússar tóku til að*
birgja Arabaþjóðirnar vopnum
og haldið því áfram síðan, en
það hafi aftur leitt til þess að
Israel hafi orðið að knýja á dyr
vestrænu þjóðanna og biðja um
vopn. Blaðið segir, að Rússar
ættu nú að gera sitt, vilji þeir
frið. til þess að girða fyrir með
öðrum, að allt geti farið í blossa
þar eystra, en hættan sé mikil
þar og horfur að ýmsu ískyggi-
legar.
Kappræðufundur
annað kvöld.
Kappræðufundur Heimdall-
ar oz Æskulýðsfylkingarinnar
verður í Sjálfstæðishúsinu ann-
að kvöld kl. 20.30.
Ræðumenn Heimdallar verða
Birgir ísl. Gunnarsson, stud.
jur., Othar Hansson fiskvinnslu
fræðingur og Pétur Sigurðsson
alþingismaður.
Af hálfu Æskulýðsfylkingar-
innar munu tala Eysteinn Þor-
valdsson, blaðamaður, Guð-
mundur J. Guðmundsson bæj-
arfulltrúi og Ingi R. Helgason
lögfræðingur.
K. vel tekið í Marseille.
Mjög bar á kallkórúm kommúnista.
Nikita Krúsév heldur áfram
ferð sinni um Frakkland og
kom í nokkra bæi í gær og gisti
í Marseille í nótt.
Þar var honum tekið af meiri
fögnuði en annars staðar í
Frakklandi til þessa, enda
höfðu kommúnistar haft mik-
inn og skipulegan viðbúnað,
með því að safnast saman í
stóra hópa og kallkóra.
Fór allt friðsamlega fram, en
nokkur beygur var þó ríkjandi
rétt fyrir komu Krúsévs, en þá
gerðist það að kommúnisti
nokkur var veginn, og hafði
verið stunginn rýtingi í bakið.
Mun hafa komið til átaka milli
manna úr tveim eða fleiri
flokkum, sem voru að líma upp
áróðursspjöld.