Vísir - 07.04.1960, Page 5

Vísir - 07.04.1960, Page 5
Fimmtudaginn 7. apríl 1960 VlSIB 5 Stjórnarflokkarnir hafa aldrei farið leynt með, að kjaraskerðing var óhjákvæntileg. Kjaraskerðingin nú ekki meiri en á fyrsta ári vinstri stjórnarinnar. 8Jr ræðu préf. Ólafs Björns- sonar á þingi í gær. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um tekju- og eignaskatt var til 2. og 3. umræðu á Alþingi í gær. Umræðum varð lokið og afgr. deildin frumvarpið. Olafur Björnsson fylgdi nefndaráliti meirihluta fjár- hagsnefndar úr Iilaði með ýtar- legri ræðu og birtist útdráttur úr henni hér á eftir: Að því er snertir aðdraganda og undirbúning þess frv., sem hér liggur fyrir, hefur hæstv. íjármálaráðh. gert því máli svo glögg skil við 1. umr. málsins, að eg sé enga ástæðu til þess að bæta neinu þar við. Hins vegar er með þessu frv. og öðrum þeim frumvörpum um skatta- mál, sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fyrir Alþ., sem nú situr, gerð svo róttæk breyting á skattakerfinu, að eg tel ástæðu til þess að fara um það nokkr- um orðum. Meginbreytingin er, að beinir skattar einstaklinga til ríkisins eru stórlækkaðir, en í stað þeirra eru söluskattar hækkaðir. Er þetta í fullu sam- ræmi við þær yfirlýsingar, sem gefnar voru af báðum stuðn- ingsflokkum núv. hæstv. ríkis- stjórnar fyrir síðustu kosning- ar. Vil eg leyfa mér að draga fram nokkur meiginatriði, sem liggja til grundvallar ákvörð- unum þessum, sem teknar hafa verið. — -Rétt er að taka fram, að beinu skattarnir hafa marga kosti, sem ekki má loka augunum fyrii, ef ræða á skattamálin í heild. Hinsvegar hafa beinu skattarnir marga og stóra ágalla, sem hafa komið betur í ljós þegar þessir skattar hafa orðið stærri liður í skatta- kerfinu. Lamandi skattar. Má í fyrsta lagi nefna, að þegar skattstigarnir eru komnir yfir ákveðið mark, dregur slíkt mjög úr hvöt manna til þess að afla sér þeirra tekna, sem svo miklu þarf að skila af til hins opinbera. Skattaálögurnar draga þannig úr starfsvilja óg framleiðsluaf- köstum. Þess má geta. að samkv. þeim skattstigum, sem til þessa hafa verið í gildi, ber einhleyp- um mönnum að greiða hér í Reykjavík samanlegt 65% í skatt til ríkis og bæjarfélags af tekjum, sem eru yfir 100 þús- und krónur. Nú er kunnugt, að skattútsvarsstigar eru yfir- leitt lægri hér í Reykjavík held- ur en úti á landi og gera má ráð fyrir, að þessi skattapró- senta sé hærri þar. Beinu skattarnir hafa fleiri ókosti. Eins og eg hef tekið fram, er það skilyrði fyrir því, að beinu skattai’nir þjóni til- gangi sínum, að tekjurnar séu rétt fram taldar.Á þessu er hins vegar mikill misbrestur, svo sem kunnugt er. Þetta leiðir til þess, að réttlætlð í skipt- ingu skattbyrðarinnar milli þegnanna, sem gæti verið fyrir hendi, ef allar tekjur teldust rétt fram, verður það ekki lengur. En atriði má nefna sem tor- veldar, að tekjur séu rétt fram taldar. Það er, að oft er ógjörn- ingur að draga markalínu milli tilkostnaðar og persónulegrar neyzlu. Á þetta einkum við í smærri atvinnurekstri, sem ein- mitt setur svip sinn á lítið þjóð- félag eins og okkar. Maður not- ar t. d. sama húsnæði til at- vinnureksturs og eigin íbúðar, bíl sinn bæði í þágu fyrirtæk- isins og heimilisins o. s. frv. Koma í því sambandi. fram margs konar vafaatriði, sem eðli málsins samkvæmt verða að jafnaði úrskurður skattgreið- andanum í vil. Ástæða er til að gera að um- talsefni útreikninga þá, sem stjórnarandst. í sifellu hefur verið að gera síðan skattafrum- vörpin voru lögð fram og ekki síður, þegar tryggingarmálin voru hér til meðferðar, en þess- ir ’útreikningar hafa átt að sanna að með þessum aðgerðum sé engan veginn bætt upp sú kjaraskerðing, sem leitt hafi af efnahagsmálalöggjöfinni og söluskattinum. Þessu liggja til grundvallar beinar og óbeinar staðhæfingar um, að því hafi verið lofað af hálfu þeirra flokka, er styðja hæstv. ríkis- stjórn að engar ráðstafanir skyldu gerðar, er skertu hár á höfði nokkurs manns. Þessu hafi fyrst og fremst verið lofað fyrir kosningarnar síðastliðið haust. En þegar gagnráðstafan- irnar voru lagðar fram, hafi jafnhliða verið lofað að bæta upp verðhækkanir, sem af þeim leiddu með einhverju öðru móti og þá fyrst og fremst auknum tryggingum og lækkun beinna skatta. Það hefur verið talað um það sem einhver alveg ný viðhorf, sem enginn liafi boðað eða jafn- vel látið sér detta í hug fyrir Ólafur Björnsson. síðustu kosningar að þjóðin þyrfti að taka á sig einhverjar byrðar vegna ástands efnahags- málanna. Þetta hafi verið ó- | vænt uppgötvun hagspekinga, sem ríkisstj. hafi kvatt sér til ráðuneytis, þegar hún tók við völdum og síðan hafi ríkisstj. gert það glappaskot að gleypa |við flugunni og framkvæma að óþörfu óþægilegar ráðstafanir í efnaliagsmálum í samræmi við það. | Það er vitanlega alveg úr lausu lofti gripið að kenningin um nauðsjrn kjaraskerðingar um stundarsakir, sé eitthvað sem hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir þjóðina að afloknum kosningum. Það er ekki eingöngu núverandi stjórnarflokkar heldur ekki síð- ur núverandi hv. stjórnarand- stæðingar, sem búið höfðu þjóð- ina undir slíkt, jafnvel alllöngu fyrir síðustu kosningar. Skýrsla Alþýðu- sambandsins. Eg ætla í þessu sambandi að leyfa mér að rifja upp hvað sagt var um ástand efnahags- málanna af hv. núv. stjórnar- andstæðingum haustið 1958, skömmu áður en vinstri stjórn- in lét af völdum. Á þingi Al- þýðusambands íslands í nóv- ember 1958 var útbýtt skýrslu um ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar og var sú skýrsla samin af Torfa Ásgeirssyni, sem um langt skeið hefur starf- að sem efnahagsmálaráðunaut- ur Alþýðusambands fslands. Hann var auk þess einn helzti efnahagsmálaráðunautur þá verandi ríkisstjórnar auk Jón- asar Haralz. Engum manni dett- ur í hug að slíkri skýrslu hefði verið útbýtt þar öðru vísi en benlínis að undirlagi stjórnar Alþýðusambandsins og ríkis- stjórnarinnar, þannig að þar var ekki sagt annað en það, sem báðar þessar stjórnir voru sam- mála um. í skýrslunni er að mínu áliti brugðið upp einkar skýrri mynd af efnahagsmálaástandinu, eins og það var þá að dómi stjórnar Alþýðusambandsins, ríkisstj. og efnahagsmálaráðunauta þess- ara aðila. Eftir að gerð hefur verið grein fyrir hinni miklu erlendu lánsfjárnotkun fslend- inga frá því að seinni lieims- styjöldinni lauk, segir svo: „Sé horft fram á við, þá er það augljóst mál, að þetta lán- tökuskeið er senn runnið á enda og við blasir tímabil, þar sem þjóðin í stað þess að hafa til ráðstöfunar allt verðmæti sinn- ^ar eigin framleiðslu og að auki 5—10% af. erlcndu fé, aðeins |hefur til umráða eigin fram- j leiðslu að frádregnum vöxtum og afborgunum liinna erlendu lána.“ Ennfremur segir: „Samkvæmt áætlun, sem gerð var í árslok 1957, nema vextir og afborganir erlendra lána, ef miðað er aðeins við þau Ián, sem þá var að fullu gengið frá, um og yfir 160 inillj. kr. á ári hverju næstu árin. Hér er miðað við núverandi gengi og yfir- færslugjöld. Séu meðtalin þau lán, sem síðar hafa verið tekin og eru í undirbúningi, eykst skuhlagreiðslubyrðin að sjálf- sögðu enn meir. f stað þess að hafa til ráðstöfunar þjóðarfram- leiðsluna alla, hver sem hún verður og að auki 5—10%, verðum við að leggja til hliðar vegna greiðslu á vöxtum og af- borgunum erlendra Iána 3—4% framleiðslunnar.“ Hér er það alveg umbúða- laust brýnt fyrir þjóðinni á grundvelli staðreynda, sem hingað til hafa ekki verið vé- fengdar af neinum, að þjóðin verði að draga úr fjármuna- notkun sinni alveg á næstunni um 8—14%. Þetta þarf auðvit- að ekki að þýða kjaraskerð- ingu, sem þessu nemur, því að einhverju leyti má mæta þessu með því að draga úr fjárfest- ingu og notkun erlendrar rekst» ursvöru. Aðvörmi Sjálfstæðisfl. Það er fullkomin blékking, ef því er haldið fram, að nú- verandi stjórnarflokkar hafi á nokkurn hátt reynt að dylja þessar staðreyndir fyrir þjóð- inni og lofað henni því, sem. hlyti að vera gegn betri vitund, og að ekki þyrfti til neinnar kjaraskerðingar að koma í bráð eða lengd. Hvað Sjálfstæðis- menn snertir, vil eg lesa hér upp nokkur orð úr- flokksráðs- samþykkt Sjálfst.fl. um efna- hagsmálin, sem gerð var fyrir jólin 1958. Þar segir og verður ekki skýrar að orði komist: „Það er ótvírætt, að þjóðin notar meiri fjármuni en hún aflar og verður að taka afleið- ingunum af því til þess að tryggja efnahagslegt öryggi sitt í framtíðinni og koma í veg fyrir kjararýrnun, sem ella þyrfti að verða.“ Ennfremur segir í sömu á- lyktun: „Stefnt verði að því að af- nema uppbótakerfið með því að skrá eitt gengi á erlendum gjald eyri og gera útflutningsatvinnu- vegunum klcift að standa á eig- in fótum án styrkja. Verðii þannig lagður grundvöllur að jfrelsi í atvinnurekstri og við- skiptum.“ Grundvöllur kjaraskerðing- arinnar er sá, eins og fram hef- ur komið í umr. um efnahags- málin, að gert er ráð fyrir. að innflutningur minnki um. 150 til 200 rnillj. eða 3—4% af ráðstöfunarfé þjóðarinnar, ef reiknað er á gamla genginu; en allt að 5—6% ef reiknað er á því nýja. ' 7% kjaraskerðing I v-stjórnarinnar. Það ber auðvitað engan veg- inn að dylja eða vanmeta þau>. óþægindi, sem af því leiða fyrii* [þjóðina að þurfa að draga úr fjármunanotkun sinni, sen* þessu nemur. Á hitt má þó> minna, að það er engan veginre óþekkt eða nýtt fyrirbrigði, að þjóðin hafi þurft að sætta sig við svipaða kjaraskerðingu. Þafí þarf meir að segja ekki að fara langt aftur í tímann til þess affi finna þess dæmi. í fyrrnefndrl j skýrslu til þings Alþýðusam- ands íslands, er það upplýst, að> neyzlan á einstakling hafi minnkað lir kr. 16780 árið 1956 jí kr. 15590 árið 1957. Nú ér verðmæti neyzlunnar á ein- jstaklinga talinn bezti mæli- kvarðinn á lífskjörin og þá breýtingu þeirra, sem verður. Á fyrsta valdaári vinstri stjórn- arinnar rýrnuðu þannig lífskjör þjóðarinnar um rúmlega 7% HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLAIMÐS Dregið verður í 4. flokki á mánudaginn 1,004 vinningar a# upphæð kr. 1,295,000. — Á laugardaginn er seinasti endurnýjunardagur. Happdrætti Háskóla Islands.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.