Vísir - 11.05.1960, Blaðsíða 7

Vísir - 11.05.1960, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 11. maí 1960 V í S I R Upphæi útflutnings- skattsíns óbreytt. Enfjisntu ntjr stnjrknr eikiB Bi'ppbót, Hallinn á útfiutningssjóði frá dögum v-stjórnarinnar. Emil Jónsson sjávarú'tvegs- niálaráðherra kvaddi sér hljóðs utan dagskrár, þegar eftir að furidur £ N.D. hafði verið settur. Svaraði hann fyrirspurn Skúla Guðmundssonar um breytingu á útflutningsskattinum. Ráðherrann kvaðst ekki hafa getað verið viðstaddur þing- fund í fyrradag og svarað fyrir- spurninni, vegna skyldustarfa annars staðar. Hann kvað tekjur af útflutn- ingsskattinum ætlaðar til að greiða hallann á útflutnings- sjóði. í ljós hefði þó komið að greiða mætti hallann með geng- ishagnaði vegna seldra b.irgða. Þegar rætt var um hve hár út- flutningsskatturinn þurfti að vera til að ná tilgangi sínum var ekki við neinar ákveðnar tölur að styðjast, en fella átti skattinn niður strax og hann hefð.i gefið nægilega mikið af sér. Ó.skir bárust frá Landssam- bandi íslenzkra útvegsmanna og vinnslustöðvum um að skatt- inum yrði breytt. Myndu þeir una því að greiða hina áætluðu upphæð sem er um 120 millj. kr. ef greiðslutíminn yrði lengdur um helming. Ríkisstjórnin sér enga ástæðu til annars en að verða við þess- ari be.iðni, þar eð heildarupp- hæðin verður eftir sem áður sú sama. Mun því lögð fram til- laga um breytinguna á Alþingi einhverja næstu daga. Hér er ekki um neinn aukin Dráttur í 5. fl. H. H. í. Þriðjudaginn 10. maí var dregið í 5. flokki Happdrættis Háskóla Islands. Dregnir voru 1,004 vinningar að upphæð 1,295,000 krónur. 100,000 krónur komu á heil- miða númer 38,578 sem seldur var á ísafirði. 50,000 krónur komu á fjórð- ungsmiða númer 13,582. Voru þeir seldir í þessum uinboðum: Þóreyju Bjarna- dóttur, Laugaveg 66, Arndísi Þorvaldsdóttur, Vesturgötu 10, Valdimar Long, Hafnarfirði og á Dalvík. 10,000 krónur komu á þessi númer: 7540 — 8495 — 9218 — 28273 — 43549 — 43878 — 48637. 5.000 krónur komu á þessi númer: 1670 — 4841 — 5391 — 8695 — 13803 — 17424 — 19160 — 22049 — 23281 — 27270 — 31331 — 34826 — 38577 — 38579 — 38818 — 40933 — 41914 — 45861 — 48415 — 53467. — (Birt án ábyrgðar.) styrk eða uppbætur að ræða, sagði ráðherrann, því að alltaf var ráðgert að fella skattinn niður um leið og halli útflutn- ingssjóðs vær,i greiddur. Ekki er heldur um fráhvarf að ræða frá settri stefnu ríkisstjórnar- innar. Fyrirspyrjandi Skúli Guð- mundsson þakkaði ráðherra svarið. Einar Olgeirsson hafði ýmis- legt við svarið að athuga. Hon- um fannst ákvörðunin um prós- entuhæð útflutningsskattsins byggð á lauslegum forsendum, þar sem ekki hefðu legið frammi neinar ákveðnar tölur til að byggja á. Þetta væri dæmi gert fyrir alla útreikn- inga sérfræðinga ríkissjórnar- innar. Ólafur Tnors skaut því fram í að það hefði verið flokks bróðir ræðumanns, Haraldur Jóhannesson skipaður formaður Útflutningssjóðs af vinstri stjórninni, sem reiknaði út 5 prósentin. Eysteinn Jón.sson þótti um- umrædd breyting, bera þess vitni að ekki stæði steinn yfir steini í aðgerðum ríkisstjórnar- innar. Emil Jónsson benti Eysteini á að hallinn, sem verið væri að greiða á Útflutningssjóði væri frá skuldasöfnunardögum vinstri stjórnarinnar. Ráðherr- ann lagði á það áherzlu í ræðu sinni, að skattbreytingin væri ekki uppbætur né sérstakur styrkur við útgerðina. Heildar- upphæð skattsins væri sú sama og upphaflega var gert ráð fyr- ir að innheimta eða 120 þús. kr. Þetta eru ekki bætur úr ríkis- sjóði sagði, ráðherrann, því að það eru útvegsmenn sjálfir sem greiða skattinn til ríkisins. Kristján Guðlaugsson, hæstaréttarlögmaður, formaður stjórnar Loftleiða, ávarpar gesti í samkvæmi hví sem efnt var til skömmu eftir komuna til Helsingfors. Yzt til hægri má sjá Magnús V. Magnússon, sendiherra íslands hjá Finnum. Finnlandsferiir Leftleiða eru hafnar. Fyrsf var flogið ainsftur 30- aprál sl. leyti, því að 30. apríl er Val- purgis eða Valborgarmessa Finna, einskonar kjötkveðjuhá- tíð þeirra þegar allir skemmta sér eftir mætti en fyrst og fremst stúdentar. Á miðnætti krýna þeir meðal annars styttu eina í gosbrunni í miðjum bænum og' bregða á leik á marg- an annan hátt. Næsti dagur, 1. maí, er svo þrefaldur hátíðisdagur — þá er verkalýðsdagur, stúdentadagur og barnadagur. Fór það heldur ekki framhjá neinum gestanna, j að Finnar gerðu sér dagamun, því að hvarvetna mátti sjá fána, marglitar blöðrur og hvítar stúdentahúfur. Allar móttökur við Loftleiðár| og gesti þeirra voru hinar al- úðlegustu, og spöruðu Finnar, ekkert til að gera dvölina sem ánægjulegasta. Gafst komu-1 mönnum tækifæri til að skoða bæði ýmsar stofnanir og fyrir-. tæki, svo sem þinghúsbygging-; una og postulínsverksmiðjuna( frægu, Arabiu, en auk þess var | farið víða um Helsingfors og að endingu flogið langt inn í land, ^ til Tampere. Hafa gestgjafar, vafalaust ekki harmað síður en gestirnir, hvað veður var óhag-1 stætt í þeirri för, en íslendingar vita manna bezt, að enginn get- ur komið vitinu fyrir veðurguð- ina, þegar þeir eru í vondu skapi. j Finnar hafa löngum verið rómaðir fyiúr gestrisni gagnvart Islendingum, en einnig fer það orð af þeim, að þeir séu ekki síður liðtækir í . glímunni við Bakkus en mörlandinn. Munu þjóðirnar vera næsta likar að þessu leyti og mun báðum þykja harla gott, að þurfa ekki að standa ein í baráttunni. Það er að minnsta kosti víst, að þar sem ísléndingar og Finnar eru saman á manníundum er- lendis ásamt öðrum þjóðum, umgangast þeir meira innbyrð- is en aðrar þjóðir. Það er ein- hver óljós samúðartaug með þessum útvörðum Norðurlanda- þjóðanna, sem orðið hafa að þola alls konar harðrétti og kúg- un af annarra hálfu. Þetta er erfitt að skýra en það er óum- Ingólfur Jónsson flugmálaráðherra ávarpar Finna, sem tóku deilanleg staðreynd. á móti fyrstu flugvél Loftleiða, sem kom í áætlunarflugi til ( þetta kom einnig greinilega Helsingfors. Á myndinni sjást aðeins fáeinir Finnanna, en j ijós í þessari Finnlandsför maðurinn með svarta hattinn er. innanríkisráðherra þeirra. | Loftleiða, og vonandi gefst þjóð- Loftleiðir eru nú búnar að leggja undir sig öll Norðurlönd — félagið flytur farþega frá og til þeirra allra. Það var laugardaginn 30. apríl, sem Loftleiðir ,,unnu“ síðasta landið, því að þá voru hafnar ferðir milli Helsingfors og New York með hinum stóru, nýju flugvélum félagsins, sem verið hafa í notkun í fáeinar vikur. j Nokkrir boðsgestir voru með í ferð þessari, svo sem Ingólfur Jónsson, flugmálaráðherra, flugmálastjóri, blaðamenn og fleiri. Var flogið á aðeins rúm- lega hálfum fjórða tíma til Oslóar, enda farið í annari af hinum nýju, stóru Cloudmaster- vélum félagsins, sem fara með 550—600 km. hraða til jafnaðar eða með miklu meiri hraða enj Skj'master-vélarnar. Þegar komið var til Sjöskog- flugvallar við Helsingfors var þar fyrir allstór hópur manna með innanríkisráðherra. lands- ins í fararbroddi. Ingólfur Jóns- son flugmálaráðherra flutti á- varp, sem innanríkisráðherrann svaraði nokkrum orðum en síðan var haldið til borgarinn- ar, þar sem búið var í ágætu gistihúsi — Palace — við syðri höfnina fram á þriðjuadg. Það var kuldalegt um að lit- ast í Finnlandi, þegar komið var þangað að kvöldi 30. apríl, enda höfðu Finnar ekki notið eins einstakrar veðurbiíðu og íslendingar í vetur og vor. En vorið mun líka yfirleitt vera heldur seint á ferðinni þar í landi, enda andar löngum köldu að austan — í ýmsum skilningi. Enda þótt veður væri heldur svalt, var vor í lofti að einu unum nú tækifæri til aukinna kynna á komandi árum, þar sem aðeins er nú fárra stunda ferð milli landanna eftir að LofÞ leiðir byggðu þessa brú milli vinaþjóðanna. Garðyrkjuritið 1960. Út er komið tímarit Garð- yrkjufélags íslands. Það er helgað 75 ára afmæli Garðyrkjufélags íslands (upp- haflega Hið ísl. garðyrkjufélag). Efni þess er m. a. þetta: Inniblóm ræktuð á aðra öld, Garðyrkjufélag íslands 75 ára, síra Sigtryggur Guðiaugsson, á Núpi, frá Garðrykjukólapum, Gróðurhúsabyggingar árið 1959, Frá sölufélagi garðyrkju- manna og Grænmetisverzlun landbúnaðarins, Ræktun lauk- blóma, Plöntulyf og notkun þeirra, Blómasýning, Túlípana- vagn, Vorlaukar, Gróðurkvill- ar 1959, Þættir úr sögu rósanna, blómasala 1958, Verður rækt- aður ,,geislagróður“ í framtíð- inni?, Giberellin, Gróður og garðar, Garðyrkjukennsla í Húsmæðraskólanum o. fl., Garðyrkja og jarðvegsathugan- ir, Lýsing í gróðurhúsum, Plöntulistar og grasgarðar, Drepið á nokkra hörgulvilla, Tvær skrúðgarðateikningar, Nokkur orð um klippingu berja- runna, Ræktið skrautgrös. — Myndir eru margar, pappír góð- ur og prentun. Ritstjóri er Ing- ólfur Davíðsson. Höfundar auk hans: Óli Valur Hansson, Þor- steinn Sigurðsson og Axel Magn ússon. Ritið er 76 bls. Stjórn félagsins 1959—60 skipa: Formaður Jón H. Björns son skrúðgarða-arkitekt vara- form., Jóhann Jónsson forstj., ritari Ing. Davíðsson grasafræð- ingur, gjaldkeri Eyjólfur Krist- jánsson, Brúarósi, Fossvogi og' meðstjórandi Óli Valur Hans- osn garðyrkjuráðunautur. -k Um mánaðamót s.l. lenti í hardaga é landamærum ír- aks og írans milli iranskra hermanna og smyglara frá írak. Tveir hermenn og S smyglar féllu í hardagan* um.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.