Vísir - 16.05.1960, Page 1
12
síður
I
y
12
síður
50. árg.
Mánudaginn. 16. maí 1960
108. tbl.
Leiðtogafundurinn hafinn:
Afvopnun efst á blaði, en ýmsir
vænta heldur lítils árangurs.
F'iMtrúar vesiurvetdannu
hiétust tvívegis í gtev.
Krúsév og Eisenhower hittust ekki.
Fundur æðstu manna var settur í dag í Elysée-höllinni i
París. Fréttaritarar segja, að tilhögun muni verða sú, sem gert
hefur verið ráð fyrir, þ.e. að fyrst verði tékin fyrir afvopnunar-
málin, þar næst Berlínarmálið og Þýzkaland og loks sambúð
þjóða í austri og vestri.
í gær setti Jón Pétursson, KR,
nýtt íslandsmet í hástökki —
1,98 metra. — Gamla metið —
1,97 — var orðið næstum tíu
ára, því að það setti Skúli Guð-
mundsson árið 1951. Aðstæður
voru erfiðar, en þó kom það
engum á óvart að Jón setti met-
ið, því að hann hefir á æfingum
farið yfir rúmlega tvo metra
(Ljósm. Sv. Þ.)
■jfc- Kúba og Sovétríkin hafa nú
formlega tekið upp stjórn-
málasamband.
■jfc- Blöð eða útvarp Sovétríkj-
anna skýrðu ekki frá brúð-
kaupi Margrétar drottning-
arsystur einu orði um dag-
inn.
Miklar viðræður áttu sér
stað í gær. De Gaulle og Krúsév
ræddúst við, en þeir Eisenhow-
er og Krúsév gerðu ekkert til
þess áð hittast. Góðs viti-er
talið, að þeir Ki’úsév og Mac-
millan ræddust við og virðist
Léttir hlaut
flest stig.
Firmakeppni Hestamanna-
félagsins Fáks lór fram í gær.
Keppendur söfnuðust saman
við Árbæ um kl. 14 og riðu
þaðan í fylkingu á skeiðvöllinn
við Elliðaár. Þar hófst keppnin
kl. 16.
Alls hlutu 11 hestar viður-
kenningu, en dæmt var eftir
sjón og ásetu knapa. Flest stig
hlaut Léttir Jóns Teitssonar,
sem keppti fyrir Byggingafél.
Goða. 2. Lýsingur, eig. Ásgerð-
ur Einarsdóttir, (F: Björgvin
Schram), 3. Svipur, eig. Friða
Stephensen, (F: Vélsm. Héð-
inn) 4. Gráni, eig. Hjalti Sig-
urðsson, (F. Trésmíðaverkst.
Daða Guðmundss.) og 5. Baldur
eig. Björgvin Schram, (F.
Sveinabakaríið).
Landhelgismálið rætt
á Varðarfundi.
Fifndurisin verður annað kvöld
i Sjágfsfæðishúsinu.
Varðarfundur verSur
Kaldinn annað kvöld í
Sjálfstæðishúsinu og hefst
M. 8,30.
Rætt nuin verða um
landhelgismáhð, og verður
Bja ni Benediktsson, dóms-
máiaráðherra, frummæl-
andi. Mun hann skýra frá
gangi mála á ráðstefnunni í
Genf, sem hann sat allan
tímann, eins og kunnugt er,
svo og viðhorfum nú, þeg-
ar íslendingar hafa gefið
brezkum iandhelgisbrjót-
um upp sakir og brezka
stjórnin ákveðið að láta
herskip sín ekki fara inn
fyrir 12 mílna mörkin hér.
Sjálfstæðismenn eru
hvattir til að fjölmenna á
fundinn.
hafa farið hið bezta á með
þeim. Þeir ræddust við í þrezka
sendiráðinu 1 eina og hálfa
klukkustund, og að viðræðun-
um loknum kvaddi Krúsév alla
með handabandi og ók burt
brosandi.
Fulltrúar Vesturveldanna
á fundinum komu saman í
gær tvívegis og sat Aden-
auer forsætisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands annan fund-
inn. Á þeim fundi var algert
samkomulag um afstöðun
varðandi Berlín og Þýzka-
land að sögn fréttaritara og
að gera engin ný boð varð-
andi lausn þessara mála.
Fréttaritarar segja, að um-
ræður um afvopnunarmálin
kunni að bera þann árangur,
að ný fyrirmæli verði send af-
vopnunarráðstefnunni í Genf
(10-þjóða ráðstefnunni). Búast
má við að hitna kunni í kolun-
um, þegar farið verður að ræða
Berlín og Þýzkaland, og Krúsév
kunni þá að hóta enn af nýju, að
gera sérsamninga við Þýzka-
land. Einnig kunni öldur að
rísa hátt, er rætt verði um sam-
búð austurs og vesturs, en
einnig þar sé mest undir
Krúsév komið.
Brezku blöðin í morgun láta
í ljós óskir um árangur af fund-
inum, en búast ekki við miklu.
Daily Mail segir t. d. að þrátt
fyrir allt sé ekki ástæða til að
örvænta um áiangur, því að
það sé eins og vonarglæta, að
hvorugur þeirra Eisenhower
eða Krúsév sá sér fært að sitja
heima. Hvorugur telji því von-
laust um einhvern árangur.
Vikið er að því, að það muni
vart hafa komið leiðtogum
Sovétríkjanna óvart, að banda-
rísk njósnaflugvél færi inn
yfir sovétlandamærin.
Þessi hestur sigraði í firmakeppni Fáks í gær. Er hann bleikur,
heitir Léttir og er 18 vetra. Eigandi hans er Jón Teitsson, og var
hann sjálfur knapi. (Ljósm. Bj. Bj.)
Maður varð bráðkvaddur á
Batnssiílum í gær.
Steindór Hjaltalín útgerðarmaður
dó af hjartabilun á fjallinu.
•j^- Stjórnin í Perú hefir slitið
stjórnmálasambandi við ein-
ræðisstjórnina í Domini-
kanska lýðveldinu.
■j^ Akihito, ríkisarfa Japans
og kona hans, hefir verið
boðið til Bandaríkjanna í
haust.
í gærdag gerðist það í fjall-
göngu á Botnssúlur, að maður
varð bráðkvaddur á f jallstind- j
inum, strax er upp var komið.J
Maður þessi var Steindór
Hjaltalín útgerðarmaður, en
hann virtist við beztu heilsu og
í fullu fjöri til þess síðasta.
Þetta gerðist í sunnudags-
ferð með Guðmundi Jónassyni,
sem farin var í gær. Var lagt af
stað frá Reykjavík í gærmorg-
un og komið að Svartagili kl.
um hálftólf. Veður var gott, en
dálítið hvasst er upp var komið.
Um 20 manns munu hafa verið
í ferðinni, og lögðu þegar af
stað á fjallið.
Steindór heitinn mun ekki
hafa fylgzt með aðalhópnum,
heldur gengið dálítið afsíðis á-
samt tveim öðrum ferðafélög-
um. Ferðin uppeftir fjallinu
gekk ágætlega og bar ekki á
neinu óvenjulegu í fari Stein-
dórs. Ofarlega á hlíðunum dróst
hann dálítið afturúr, og þegar
samferðafólk hans komst upp
á tindinn, leit það við til að
gæta hvað honum liði. Var
hann þá að komast upp, en jafn-
skjótt og hann náði hæsta leit-
inu, hné hann niður. Hlupu
menn þá til hans, en hann var
þegar örendur.
Var þegar haft samband við
Slysavarnarfélagið í Reykjavík,
sem sendi menn á staðinn, og
var líkið flutt til bæijarins þeg-
ar i nótt.
Steindór Hjaltalín var á 59.
aldursári, vel þekktur fram-
kvæmdamaður og athafnasam-
ur í hvívetna allt fram á síð-
asta dag.
Þróttur kepptí
við Í.B.A.
Knattspyrnulið Þróttar keppti
á laugardag við lið úr Iþrótta-
bandalagi Akureyrar og fóru
leikar þannig að Akureyringar
sigruðu með 2:1.
Á sunnudag var aftur keppt
og sigi’aði Þróttur þá mcð 4:2.