Vísir - 23.06.1960, Síða 5

Vísir - 23.06.1960, Síða 5
Fimmtudaginn 23. júní 1960 V I S I R Það þurfti að sækja þá! Lýsing Þjóðviljans á „vanhöldum“ við gönguna. Enginn getur haldið því fram í alvöru — ekki einu sinni kommúnistar —að Keflavíkur- gangan á sunnudaginn hafi ver- ið sigur fyrir andstæðinga „her námsins“. Þjóðviljinn er að vísu látinn halda þessu fram á þriðjudag, en vitanlega gat blað ið ekki annað án þess að viður- kenna til fulls þann mikla ósig- ur, sem þarna var raunverulega um að ræða. Gangan sýndi nefnilega, að eldlegur áhugi er enginn til hjá andstæðingum „her- námsins“, enda þótt nokkrir kommúnistar og attaníossar þeirra meðal þjóðvarnar- mánna og framsóknarmanna hafi rölt þessa leið. Einn af ritstjórum Þjóðvilj- ans, sem skrifar langa grein um gönguna, upplýsir til dæmis, að á fyrsta kílómetranum frá flug- vallarhliðinu hafi hvorki meira né minna en tíundi hver maður hætt í göngunni. Síðar við- kennir hann, að fjórðungur göngumanna hafi verið týndur, er aðeins lengra var komið. ‘. Með tilliti til þess, hvernig kommúnistar fara með tölur, mun óhætt að gera ráð fyrir, að ritstjórinn hafi sýnt sérstaka „gætni“ við þetta reikningshald sitt. En lítum á málið frá annarri hlið. Á suðvestur kjálka lands- ins búa yfir 100.000 sálir og um það bil fimmtungur þeirra mun fylla flokk kommúnista og fylgifiska þeirra, og er þá vel í lagt. Þetta sýnir, að fyrir hvern einstakling, sem hafði svo mikinn áhuga, að hann lét sjá sig í göngunni upphaf- lega, sátu um 80 heima. Þeir fengu um það bil áttugasta hluta fylgis síns til að mæta. Og hér er rétt að telja börn með, því að fylgirit Þjóðvilj- ans, Tíminn, birtir til dæmis mynd af þrem ættliðum, sem „tóku þátt“ í göngunni. Það má segja með sanni, að einn maður hafi sýnt verulegan áhuga fyrir málefninu. Það var pilturinn austan úr Holtum, er lagði á sig að fara úr önnum alla leið hingað til að'taka þátt í göngunni. Um áhuga hinna er Þjóðviljinn bezta vitnið, því að ritstjórinn segir sjálfur, að það hafi orðið að sækja menn heim til að fá þá af stað. Hann segir «... fóru langferðabílar um bæinn og söfnuðu saman fólki, sem hafði látið skrá sig til Kefla- víkurgöngunnar .... Mann- tal sýndi, að vanhöld voru nær engin“. Menn taki eftir orðalaginu, vanhöld voru „NÆR ENGIN“! Þetta tákn- ar, að margir þeir, sem voru búnir að skrá sig, nenntu ekki, begar til k.om, en marg ir hafa áreiðanlega farið, af því að þeir voru bara sóttir og voru því kúgaðir til þess. Kommúnistar munu sjaldan hafa reiðst nokkru eins og mynd þeirri, sem Vísir birti á mánudaginn af göngunni. Það má segja, að þótt þeir væru margir, sem nenntu ekki að ganga, ætluðu þeir hinir sömu að ganga af göflunum út af myndinni. Hún sýndi nefnilega, svo að ekki varð um villzt, að fylkingin var fámenn, þegar komið. var nokkuð af stað, enda hafður bíll eða jafnvel bílar á eftir til að hirða þá upp, sem nenntu ekki að ganga — en aðalatriðið var nefnilega að ganga en ekki að aka. Kommúnistar gera tals- vert úr því, að mikiil mann- fjöldi hafi verið meðfram veginum, þegar fór að nálg- ast bæinn. Svo er ritstjóri Þjóðviljans þó „heiðarlegur“, að hann treystir sér ekki til að halda því fram, að fólk þetta hafi flest slegist í hóp- inn. Vafalaust fær liann á- kúrur fyrir þennan heiðar- lega málflutning. Það var nefnilega ekkert um að vera í Reykjavík á sunnu- daginn, veður ekki til ferðalaga eða útivistar í Tivoli, svo að það vai’ð helzta skemmtun hins óbi-eytta borgara að fara og skoða þetta einkennilega fólk, sem fengið hafði fyi'irmælin ut- an úr heimi um að slíta skónum sínum með broslegri göngu í þágu afla, sem aldrei hafa bor- ið hag íslendinga fyrir brjósti. Kommúnistar og vinir þeirra hafa vafalaust vænst þess, að gangan yrði mikil og glæsileg! byrjun sóknar á hendur varnar- ! liðinu og þeim flokkum, sem telja óvai'legt að treysta blíð- mælgi hinna rauðu herra í Kreml. Raunin hefur orðið önnur, því að fátt fólk fór í göng- una og áhuginn var ekki meiri en svo, að bað varð að sækja það lieim og hálf- vegis kúga margt til þátt- töku. Það verður aldrei sig- urinn unninn með málaliði, sem er neytt út í bardagann. Nýjar „drottningar" kosta 60 millj. pd. Óvíst hvort Bretar telja sig hafa efni á að smíða slík skip. S.-Afríkustjórn óskar eftir innflytjendum. Samtímis fréttist um vaxandi ugg Kvítra landnema. Suður-Afríkustjórnin hefur tilkynnt, að greitt verði á allan hátt fyrir því, að sem flestir innflytjendur komi til landsins Hefur innanríkisráðherra landsins tekið það skýrt fram, að einkum verði fagnað fólki frá samveldislöndunum Kunn- Málverk eftir Hitler í káu verði. Fyrir skömmu voru tvö mál- verk eftir Adolf Hitler seld á uppboði í London, og fóru þau á 600 sterlingspund. Hitler hafði málað þau, er hann var ungur maður, og voru bæði götumyndir frá Vínar- borg. — Listaverkin voru kom- in til London frá Budapest þeg- ar árið 1937, en höfðu síðan ver ið í eign konu nokkuri'ar, sem gerði sér ekki grein fyi'ir því eftir hvern þau voru fyrr en nýlega. ugt er og, að Suður-Afríka hef- ur jafnan sózt eftir innflytjend um frá Hollandi og Norður-Ev- rópulöndum. — Allar sendiráðs skrifstofur Suður-Afríku og ræðismannsski'ifstofur út um heim hafa fengið' ný fyrirmæli vai'ðandi innflutning. M. a. verður nú öllum innflytjendum séð fyrir bi'áðabirgðahúsnæði þar til menn geta komið sér upp sínum eigin húsum. Ekki er það vafa bundið, að þessi nýja sókn til að ná í inn- flytjendur er tengd stefnu stjórnarinnar. Iðulega hefur verið á það minnst í fréttum að undanförnu, að hvítir landnem ar í Suður-Afríku séu uggandi um framtíðina, og hafi sumir flutt burt, en ýmsir aði’ir hyggi á brottflutning. Fregnir í þá átt virðast ekki til þess fallnar að auka áhuga væntanlegra inn- j flytjenda, en gera skiljanlegri; tilraun stjórnai'innar til þéss að ( slægjast eftir nýjurh innflytj- ^ endum. Risaskipin, „drottningarnar“ Queen Mary og Queen Elisa- beth, hafa aflað Bretum orðs á siglingaleiðinni yfir Atlantshaf- ið, orðs, sem Bretar valta nú fyrir sér, hvort þeir hafi efni á að halda uppi. Sannleikurinn er sá, að „drottningarnar“ eru orðnar nokkuð við aldur, byggðar fyrir meira en tuttugu árum, og fullnægja ekki að öllu leyti nú- tímakröfum og aðstæðum. Það mundi sennilega kosta þá um 60 millj. punda að byggja tvö ný risaskip, annað kemur ekki til greina, og skipafélagið, sem á ,,drottningarnar“, telur, að erfitt verði að reka hin nýju skip, nema til komi ríkisstyrk- ur eða hagstæð lán. Stjórnskip- uð nefnd hefur blandað sér í málið, því að þjóðarsómi er í veði. Þeir, sem ferðast hafa með ,,drottningunum“, eru sammála um, að þær eru óviðjafnanlegur farkostur. „Drottningarnar“ eru í senn rúmgóðar og heimilislegar. Am- erískum farþegum finnst sem þeii' séu komnir í heimsókn á glæsilegt aðalssetur og þykjast finna hið háenska andrúmsloft um leið og- þeir stíga á skips- fjöl. En samkeppni skipafélaga og flugfélaga um farþegana á leið- inni yfir Atlantshafið hefur harðnað og fai'gjöld skipa og flugvéla á Atlantshafsleiðinni eru orðin álíka há. En flugvél- arnar fara sífellt hraðar og á- ætla sérfræðingar, að árið 1970 verði flogið milli New Yoi'k og London á um það bil einni klst. St'jórnendum skipafélaga, þ. á m. Cunard-félagsins, sem rekur ,,drottningarnar“ þykir augljóst að þau vei'ði að skapa sér ann- an grundvöll í samkep.pninni við flugfélögin. En á þeim grundvelli geta „drottningai'n-* ar“ ekki starfað. Hin nýju skip verða að geta tekið fleiri farþega, fyrir lægra. verð en nú er á fargjöldum skipafélagsins, vera hraðskreið- ari og nýtízkulegri. Cunard-skipafélagið veltir því fyi'ir sér kaupum á nýjum, hraðskreiðari og stærri skipum. En byggingakostnaðurinn er gífurlega hár. Bandaríkjamenn lögðu fram 15 millj. dollara til smíði stórskipsins „United Stades“ og hyggjast leggja fi'am 30 millj. til nýrrar skipasmíði vegna siglinga. Þannig studdu. frönsku og ítölsku ríkisstjórn- irnar skipafélög í viðkomandi löndum til kaupa á risaskipum. Þykir Cunard augljóst, að þa$ geti ekki staðizt samkeppnina við erlend skipafélög nema til komi einhver opinber aðstoð. Aðalfundur SÍS. 58. aðalfundur Sambands ísL Samvinnufélaga var settur a5 Bifröst í Borgaifirði í gær, kl. 9 f. h. Formaður stjórnar SÍS, Sig- ui’ður Kristinsson, setti fundinn með ræðu og minntist látinna samvinnufrömuða, þeirra Sig- urðar S. Bjarklind og Þóhails Sigtryggssonar; er látizt liöióa frá því er síðasti aðalfundur Sambandsins var haldinn. Fundarstjóri var kosinn Jör- undur Brynjólfsson, fyrrver- andi þingmaður, en fundarrit- arar Baldur Baldvinsson, Ó- feigsstöðum og Magnús Gísla- son, Frostastöðum. Aðalfundinn sækja að þessu_ sinni 100 fulltrúar. — Fundur- • inn heldur áfram í dag. . Stuðla ekki að samkeppni við eigin skip. Bandaríkjamaður fær ekki v.-jíýzka ábyrgð. Bandarískum kaupsýslumanni, Hyman Cantor, hefur verið synjað um aðstoð V.-Þjóðverja við smíði risaskipa. Skip þessi eiga að vera tvö, hvort um sig nær 100.000 lest- ir, og þau eiga að flytja far- þega yfir Atlantshaf fyrir mjög lágt verð. Cantor fór fram á, að vestui'-þýska stjói'nin ábyrgðist 400 millj. marka lán til skip- anna, af því að ætlunin var að smíða þau í V.-Þýskalandi. Neit un stjói’narinnar byggðist á því, að skipin mundu keppa við þýzk farþegaskip, og vildi stjórnin ekki efla samkeppni við þau. M eiindallarferð verður farin í Landmannalaugar n.k. laugardag. — Lagt verður af stað frá Valhöll við Suðurgötu kl. 2 e.h. — Nánari uppiýsingar gefnar á sknfstofu Heimdallar milli kl. 2—7 í dag og á morgun. — Sími 17102. Heimdattur

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.