Vísir - 01.07.1960, Blaðsíða 4

Vísir - 01.07.1960, Blaðsíða 4
V! SIB Föstudaginn 1. júlí 1969 Örlítil ferðasaga: McssuvíniS var fallegt á litinn og uppskurðinn tókst frábær- lega vel. Þetta ferðalag í dag var í raun og veru nauðaómerkilegt, enda hafði mig ekki dreymt fyrir því á nokkurn hátt, og þó------.Tíu ára bílakstursbind indi var nú lokið og ég ók á þrem gírum af fjórum áfram um Fljótshlíðina, ég gekk í eina af merkustu sveitarkirkj- um landsins, sem ætíð er ólæst Og sjá, þar glóði messuvín á „karöflu“ og bar dáðríkan vott vínmenningu fslendinga — eða litlum kirkjulegum áhuga? — Og ég hafði verið við stóró- perasjón á Hellu, þeim umtal- aða stað, meir að segja aðstoð- að við uppskurðinn sem full- gildur aðstoðarmaður. Við héldum úr Hveragerði skömmu eftir hádegi. Tilefni ferðarinnar var að fara með aumingja Kalla til uppskurð- ar á Hellu. Hann er búinn að vera sárþjáður í fleiri mánuði, Og nú mátti þetta ekki dragast lengur. Við vorum þrír fyrir utan Kalla, Ingimar og Daði en Kalli er einn fjölskyldumeðlim- ur þairra. Annars er óhjákvæmi legt að gera í upphafi nánari grein fyrir Kalla, sem fortaks- laust lék hér aðalhlutverkið, og að minnsta kosti á Hellu tóku fáir eftir okkur þremenn- ingunum, en allir eftir Kalla. Kalli er einhver stærsti og bezti Schafer-hundur á íslandi, enda skilgetinn sonur (eftir því sem hundar geta verið) hins fræga Vatnajökulskappa. Hann er að vísu óhafandi í bíl í dag, en honum er nokkur vorkun — hann á að fara að „leggjast undir“ stóruppskurð í dag. Við vorum að reyna að hressa upp dapurlegar hugleiðingar vegna Kalla, með því að hressa okkur á nokkrum bröndurum austur Ölfusið og Flóann, og éta súkkulaði, einkum Daði, sém veitti gamantali okkar lít- inn áhuga. Nú eru allir hættir að syngja í bíl á íslandi og má líklega kenna því fyrst og fremst um, að bifvélaskröltið er svo til úr sögunni, minnsta kosti var því ekki til að dreifa í okkar bíl, árgerð 1956. Við ökum gegnum hólinn fræga og yfir gömlu brúna og lendum á ákvörðunarstað, fyrir utan dýralæknissetrið á Hellu. Hin elskulega, franska læknis- frú tekur okkur hið bezta, og þau eru mildir vinir Kalli og hún enda gamalkunnug. En því miður, dýralæknirinn er inn í ,,Hlíð“ að gera UDnskurð á hesti, stóran holskurð. en lík- lega mun hann bráðleea koma heim. Við mælumst til þess að Tnega koma aftur. Guðvelkomið og v,ið rennum úr hlaði og höld- ■Jum austur á bóginn. Ég minn- ist atviks frá æskudögum, ó- skaplega erfið ganga til lækn- isins, og ólýsanlegur fögnuður þegar komið var þangað því læknirinn var kominn á ,,túr“. Ekið er austur Rangárvelli og v,ið dáumst að Heklu gömlu, Þríhyrning og kaupfélagshús- inu á Hvolsvelli, sem er til mik- illar fyrirmyndar, þar sem það stendur vinstra megin við þjóð- veginn. Við lítum inn á símstöð- ina á Hvolsvelli, en fréttum ekkert nánar af dvalarstað dýra læknisins, það þykir nefnilega ekki í frásögur færandi í Rang- árþingi þótt dr. Helmuth Brúck. ner, héraðsdýralæknir og þýzk- ur vararæðismaður á Hellu, geri stóruppskurð á búpeningi hér- aðsbúa, „hann var í stríðinu“, segja menn, og svo er það mál útrætt. Við -þ.e.a.s. ég - ökuminn Hlíð ina og spjöllum við sýslumann- inn, þegar við ökum fram hjá sýsluskrifstofunni, enhannmun vera einn fyndnasti maður sýsl- unnar og svo er hann alþingis- maður. Við minnumst hins svip- mikla Guðmundar á Núpi, er við ökum fram hjá óðali hans, hann er mikill á brún, einn af forstöðmönnum í Stéttarsam- bandi bænda, við ökum fram hjá Breiðabólstað, þar sézt Eggert Pálsson, virtur klerka- höldur, og alþingismaður. Gunnar á Selalæk felldi hann einu sinn frá þingsetu og Gunn- ar hefur sjálfur sagt mér, að þá hafi hann slegið á þá strengi, sem dugðu honum, er hann sló á strengi gamanseminnar á kjörfundunum. Séra Eggert felldi síðar Gunnar, sem var utan flokka, með 10 atkvæða mun, en þá erfði Gunnar þing- sætið eitt kjörtímabil eftir lát sr. Eggerts. Nú setur Breiðaból- stað sr. Sveinbjörn, hann er varaformaður lyfsalasveinsins á Selfossi í félagsskap Fram- sóknarmanna í Suðurlandskjör- dæmi og lagðist þar lítið fyrir kappann. Inn undir óðali Gunnars Há- mundarsonar hittum v.ið bónd- ann þar, sem sagði okkur að dýralæknirinn væri áreiðanlega ekki inn í hlíðinni og því var l snúið við, haldið aftur út hlíð- j ina, aftur spjallað um sr. Svein- ; björn. Guðmund Erlendsson og ' sýslumann og nú rifjaðist upp ! ein saklaus gamansaga um | Björgvin heitinn sýslumann, þann mikla öðling, sem Gunn- . ar frá Selalæk sagði mér. Gunn- ar hafði verið prettaður á mark- aðshesti, en bóndinn neitaði að greiða andvirðið eða gat það ekki. Gunnar kærði til sýslu- manns og Björgvin vildi setla málið með þvi að maðurinn . endurgreiddi hestverðið með i víxli, en Gunnar neitaði að taka víxil bóndans gildan. Björgvin sýslumaður sætti mál- ið með því að gefa sjálfur út víxilinn. Nú ákváðum við að halda til Odda og fá að ganga þar í kirkju. Var nú rætt nokkra stund um þá Oddaklerka, allt frá Sæmundi Sigfússyni til sr. Arngríms sem þar situr nú. Sjúklingurinn varð eftir í bíln- um og var það fyrst og fremst vegna krankleikans, en ekki vegna þess að hann sé mikið ókirkjuræknari heldur en við hinir. Við hittum elskulega eldri konu á hlaðinu. Hún kvað prestinn ekki heima, en öllum velkomin kirkjuganga, kirkjan stæði öllum opin, hún væri alltaf ólæst. Ég kann vel við þann sið, það á ekki að þurfa að læsa guðs húsi. Við kvöddum gömlu konuna og héldum til kirkju, nema Daði, hann neitaði að fara lengra en í kirkjugarðinn og settist þar á leiði Þórðar gamla Fló- ventssonar, enda Þingeyjingur í ættir fram eins og Þórður. .Við Ingimar gengum í kirkju. Kirkjan í Odda er í mörgu til fyrirmyndar, og er það vel farið á þeim merka stað. Fyrir nokkrum árum munu hafa far- ið fram miklar endurbætur á henni og er kirkjan nú öll hin virðulegasta, en ekki skal orð- lengja um hana að öðru leyti. Um eitt get ég þó ekki orða bundist og veit ég að vinur minn ritstjóri þessa blaðs láir mér það ekki. Það stóð vínkar- afla á litlu borði í kórnum og hún var hálffull af glóandi víni. Þetta er fögur sjón í fögru umhverfi. Rúðurnar í Odda- kirkju eru litaðar. Uppskurður- inn be.ið á Hellu. Út í þessa sálma skal ekki lengra farið, en samvizkan gæti verið verri. Blessuð sé gamla kirkjan í Odda. Við komum í þýzka kúnsúlat- ið á Hellu í þann mund sem dr. Bruckner var að fara úr leðurstígvélunum í inniskóna. Hann heilsaði Kalla og okkur hinum vinsamlega, og tók mála- leitan vel. Kalli var lagður á grasflötina fyrir framan dyrn- ar, og „díagnósinn“ ákveðinn. Stærðar æxli neðarlega á kviðarholi, uppskurður nauð- synlegur á stundinni. Vegna þess að Kalli er orðinn nokkuð gamall, eða 10 ára að aldri treysti dr. Brúcknerhonumekki I fyrir svæfingu svo hann stað- deyfði hann þegar með mörg- um djúpum stungum. Ingmar hélt hausnum á Kalla og tók ábyrgð á kjaftinum, ég hélt löppum og studdi óæðri end- ann. Sonur læknisins, 11—12 ára hélt á deyfingarvökvanum og fékk sér smá sopa, en lík- aði stórilla, því hann skirpti út úr sér í hálftíma á eftir. Nú flytjum við Kalla út í borð- krókinn í garðinum, leggjum hann þar á rautt borðið, hag- ræðum eftir beztu getu. Kalli ber sig eins og hetja, við Ingi- mar okkur sæmilega, og nú kemur dr. Brúkner í öllum her- klæðum, og hin ágæta frú hans í hvítum kirtli og fer að fara æfðum höndum skurðstofu- hjúkrunarkonunnar um hin ýmsu verkfæri og læknistæki. Ahorfendur eru margir, um það bil 20 börn Hellukauptúns á ýmsum aldri. Þau yngstu verða að vera utan girðingar, en læknisbörnin og dóttir Jóns rafvirkja standa næst. Það kem- ur okkur Ingimar vel, að við hofum nýlega verið með Jóni Pálssyni dýralækni á Selfossi við að gelda þrjá fola, góður undirbúningur undir þennan uppskurð á Kalla. Það endar líklega með því að Bjarni lækn- ir biður okkur að hjálpa sér á sjúkrahúsinu á Selfossi. Dr. Brúkner er æfður skurð- læknir (það hlaut hver hálf- viti að sjá það, hann íói minn sá það, sagði karlinn). Öruggt og fumlaust miðar skurðað- gerðinni áfram, það er ræðst v.ið á íslenzku og þýzku. Kalli lætur ekki á sér bæra. ég verð jafnvel að halda rófunni, ann- ars vill hann dilla henni. Minnstu börnin halda áfram að rífast um það hvort Kalli sé hestur eða belja, þeim dettur ekki hundur í hug. Kalli lítur að öðrum hundum, nema Gretu litlu systur sinni, sem er Foxterrier og ræður alveg yfir honum og veit hvað hon- um er fyrir beztu. Uppskurðinum er lokið giftu- samlega og æxlið numið á brott. Hann stó ðyfir í fimm stund- arfjórðunga og allir draga and- ann léttar þegar doktorinn hefur tekið síðustu nálsporin. Frúin þvær nú Kalla og lætur vel að honum. Hann er daufur til augnanna, en reynir að bera sig svo að kynbornum hundi sæmi. Aðgerðin er nú greidd og hún er helmingi ódýrari en ég hafði getið mér til upp á eyrir helmingi ódýrari, hún var sem sagt ódýrari en þrjár geld- ingar hjá Jóni dýralækni, sem tók taxta og er víst mjög langt frá því að vera talinn ofreikna sína vinnu og sín lyf, sá ágæti maður. Dýralækninum er þakkað got.t starf og þau hjónin kært kvödd og allur krakkahópur- inn og hlýjar kveðjur fylgja veslings Kalla sem staulast út í bílinn. Síðan er haldið heim á leið. Ferðin hefur gengið að óskum. Stefán Þorsteinsson Sterfaitili prestnr í 40 ár. Séra Sigurður . Ó. Lárusson prófastur í Stykkishólmi átti 40 ára prestskaparafmæli á hvítasunnu, Séra Sigurður vígðist til. Stykkishólmskirkju árið 1920 og hefur þjónað þar síðan. Hann er kvæntur Ingigerði Ágústdóttur. SYNTU YFiR SKERJA- FJÖRÐ. Á laugardag lagði Eyjólfur Jónsson, sundkappi, upp frá Grímsvör í æfingasund yfir Skerjafjörð, en það sem óvenju legt var við sund það, var að að þessu sinni fór hann ekki einn, heldur með honum þrír starfsbræður úr lögreglunni. Auk Evjólfs, er synti á 1 klst. og 5 mín., lauk sundinu RÚnar Guðmundsson, og var hann um IY2 klst. á sundi. Hin- ir tveir luku ekki sundinu enda var talsverð alda er út á fjörð- inn var komið. — Almennur áhugi lögreglumanna virðist nú vera að vakna fyrir sundi, ef marka má af því, að 6 lögreglu- þjónar voru að æfingu í morg- un. Ertu frúður? arlega á flokksfélaga sints, Eisenhower? 6. Hvað nefnist málið, sem fjallar um morðákæru á hendur hinnar 65 ára gömlu Sarah Jane Harvey? 7. Hvaða land er mjög and- vígt afvopnunaráætlum Rússa? 8. í hvaða landi var bað, sem uppreisn fór út um þúfur? 9. Hvað heitir brezki læknir- inn, sem fór fótgangandi þvert yfir Ameríku, og varð fyrir bíl? í hverju Norðurlandanna átti vitakerfið nýlega 400 ára afmæli? Hve margir hvítir menn voru í Belgisku Kongó áð- ur en flótti þeirra hófst þaðan? Frá hvaða landi í Evrópu kom landvarnamálaráð- herrann til Bandaríkjanna til hýðingarmikilla við- ræðna? í hvaða landi er forsætis-j ráðherra Israels, Ben Gur- ion í heimsókn? Hvað heitir forsetaefni repúblikana • BandaríkjunlO. Hvað heitir blaðafulltrúi um sem hefur ráöist heift Eisenhowers?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.