Vísir - 17.10.1960, Page 4
VÍSIR
' Y i .aarssböifSBAÍ
Mánudaginn 17. október 1960
Bækur Menningarsjóðs
Myndskreytt viðhafnarut-
gáfa af Passíusálíiiunum.
Ritsafn Theodóru Thoroddsen meó formala
09 æviatriðum eftir próf. Sig. Nordal —
og 15 — 20 bækur aÓrar.
líókaútgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins hefur
færzt mjög í aukana síðustu ár-
in um alla bókaútgáfu, svo að
nú má telja hana í hópi stærstu
útgáfufyrirtækja landsins.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk hjá Gils Guðmunds-
syni framkvæmdarstjóra Menn-
ingarsjóðs mun bókaútgáfa fyr-
irtækisins á þessu ári verða
nokkuð áþekk og í fyrra, en þó
sennilega tæplega eins mikil.
Þá gaf Menningarsþjóður og
Þjóðvinafélagið út rúmlega 20
bækur, í ár verða þær líklega
aðeins innan við þá tölu.
Það sem af er árinu hefur
fyrirtækið sent 5 bækur á
markaðinn. Þrjár þeirra eru í
svokölluðum smábókaflokki
Menningarsjóðs, en þar eiga að
koma ýmis smærri rit, bók-
menntalegs eðlis, innlend og er-
lend, gömul og ný. Er í ráði að
ár hvert komi 3—4 bækur út í
þeim flokki og hefur Hannes
Pétursson skáld verið ráðinn
ritstjóri þessa bókaflokks.
Bækurnar sem út eru komnar
eru Samdrykkjan eftir Platon
í þýðingu Steingríms Thor-
steinson, Trumban og lútan,
þýðingar úr ljóðum Eskimóa,
svertingja og Kínverja, sem
Halldóra B. Björnsson hefur
gert, og þriðja bókin lieitir
Skiptar skoðanir, en það er rit-
deila sem þeir Einar Kvaran og
próf. Sigurður Nordal áttu í
fyrir allmörgum árum um bók-
menntir og lífsskoðanir. í haust
koma svo tvær bækur enn í
þessum sama flokki. Er það
annarsvegar skáldsagan „Ham-
skipti“ eftir Franz Kafka í þýð-
ingu Hannesar Péturssonar og
„Sólarsýn", úrval úr Ijóðum
síra Bjarna Gissurarsonar í
Þingmúla. Hann var í röð merk-
ari skálda íslenzkra á 17. öld,
en kvæði hans tiltölulega lítið
kunn almenningi nema þá helzt
fyrir kvæðið „Hvað er fegra en
sólarsýn“, sem margir ýmist
kannast við eða kunna.
Fyrir utan „smábækurnar“
hefur Menningarsjóður sent frá
sér tvær aðrar bækur það sem
af er árin. Önnur þeirra er
seinna bindi ritgerðasafns
Barða Guðmundssonar þjóð-
skjalavarðar. Nefnist það
„Uppruni Islendinga“. Fyrra
foindið hét „Höfundur Njálu“ og
kom út fyrir tveim árum. Með
þessu er útgáfu á ritgerðasafni
Barða heitins lokið. Hin bókin
er skáldsaga eftir Stefán Júlí-
Usson og heitir „Sólarhringur11.
Þá er komið að þeim bókun-
Um, sem eru ekki en komnar á
markað, en eiga að koma út
fyrir jólin. Ein hin stærsta
þeirra og tvímælalaust í röð
þeirra merkustu er ritsafn frú
Theodóru Thoroddsen sem próf.
Sigurður Nordal gefur út og
skrifar ítarlegan formála að,
þar sem hann m. a. rekur ævi-
feril frú Theodóru. Þetta verð-
ur stór bók, um 400 síður og
þar birt flest það sem Theodóra
lét eftir sig prentað og óprent-
að, svo sem þulur, þjóðsögur,
vísur og kvæði, smásögur, rit-
gerðir og bernskuminningar.
Sumt hefur aldrei verið prent-
að áður og þ. á m. bernsku-
minningar hennar.
Önnur bók, sem vekja mun
verðskuldaða athygli, er við-
hafnarútgáfa á Passíusálmum
Hallgríms Péturssonar. Er hún
gefin út í tilefni af því að nú
mun vera um það bil 300 ár
frá því að hann lauk við að
yrkja Passíumálana. Bókin
verður í stóru broti með heil-
síðuteikningum — 50 að tölu —
sem listakonan Barbara Árna-
son hefir gert og þykja hin feg-
urstu listaverk. í sambandi við
þetta verða gefin út Passíu-
sálmalögin gömlu, sem Sigurð-
ur tónskáld Þórðarson hefur
safnað. Verður í hvívetna mjög
til þessarar útgáfu vandað.
„Sendibréf frá Sandströnd“
heitir skáldsaga, sem kemur út
eftir Stefán Jónsson rithöfund
og kennara. Það er fyrsta langa
skáldsagan frá hans hendi sem
ætluð er fullorðnum til lestrar.
Menningarsjóður hefur byrj-
að á bókaflokki, sem ætlaður
er til að kynna samtímahöf-
unda, og eru þegar komnar út
tvær bækur í honum. í ár kem-
ur sú þriðja, en það eru fimm
langar smásögur eftir Guðm. G.
Hagalín rithöfund og nefnist
„Mannleg náttúra“ eftir einni
sögunni, sem í bókinni eru.
Eftir Ólaf Þorvaldsson þing-
hússvörð og fræðimann kemur
út bók um hreindýr á Islandi.
Það er saga hreindýranna frá
því er þau voru flutt til lands-
ins á 18. öld og allt fram á
þennan dag. Jafnframt eru þar
ýmsar sögur um hreindýr og
hreindýraveiðar hér á landi á
þessu tímabili. Bókin verður
með mörgum myndum.
í haust kemur út endurút-
gáfa á þrem fyrstu ljóðabókum
Jakobs J. Smára skálds, en það
eru Kaldavermsl, Handan
storms og strauma og Undir sól
að sjá. Þær voru upphaflega
gefnar út í litlum eintakafjölda,
en hinsvegar eftirsóttar mjög af
ljóðavinum. Þær koma allar í
einni bók.
íslenzkum jarðvegur heitir
fræðileg bók um þetta efni, sem
dr. Björn Jóhannesson hefur
samið. Þetta verður 10 arka bók
með miklu af myndum og ís-
lenzku jarðvegskorti.
í bókaflokknum Lönd og lýð-
ir hafa þegar komið út 12 bindi.
í haust er von á 13. bókinni,
sem fjallar um Þýzkaland,
Austurríki og Sviss. Einar Ás-
mundsson hrl. hefur samið hana.
Auk framangreindra bóka
gefur fyrirtækið út Almanakið
1 Framh. á 11. síðu.
Vanti
þá veljiö
yður saumavél,
■ *■
A ELNA-Supermatk er hægt að sauma algjörlega sjálfvirkt
★ allan venjulegan sanm, Ijæði þunn efni og þykk.
★ hnappagölu og festa á tölur og smellur.
★ stoppa allan fatnað jafn sokka sem annað.
★ perlusaum og snúrubróderí.
★ margskonar zig-zag saum, rúllaða, falda og flatsaum.
★ allskonar skrautsaum jafnt með einni nál sem tveimur.
★ þrenns konar húllsaum,
★ fellingasaum (bísalek), varpsaum og bótasaum.
★ blindsaum o. m. fl.
Á ELNA-velunum er 5 ára ábyrgð, nema á mótor, sem er eitt ár.
ELNA-vélin fæst með afborgimarskilmálum.
ELNA er saumavélin, sem allir þurfa að eignast.
HeHdverzlun Árna Jónssonar h.f.
Aðalstræti 7 — Reykjavík. Símar 15805 — 15524 — 16586.