Vísir - 17.10.1960, Side 9

Vísir - 17.10.1960, Side 9
ðfrðl tötídíiío Jj r, - ami -'i Mánudaginn 17. október 1960 VISIR 9 Frá Grænlandi Framh. af 3. síðu. Grænlandi og landið þar í grennd betur fallið til land- búnaðar en önnur héruð landsins. Þar var og mesta stórbýli á Grænlandi til forna og talið að fjósið eitt á bisk- upssetrinu hafi rúmað 75—100 kýr. Enn sér fyrir mjög greini- legum rústum hins forna bisk- upsseturs og útihúsa þess. Mér hefur verið tjáð að það hafi verið danski presturinn og trúboðinn Hans Egede, sem átt hafi frumkvæði að því að Eski- móar á Grænlandi hófu land- búnað, en fram til þess tíma lifðu þeir einvörðungu á veið- um til lands og sjávar. Það var og að tilhlutan síra Hans Egede að fyrstu tilraunir voru gerðar, bæði með garðrækt og nautgriparækt, á fyrri helm- ingi 18. aldar í Grænlandi. Norskur bóndi í Görðum. En nokrum áratugum seinna hefst búskapur í Görðum með kvikfjárrækt og frá þeim tíma má segja að þar hafi landbún- aður staðið með öllu meiri blóma en annars staðar í Græn- landi. Fyrsti bóndinn, sem þar settist að var Norðmaður, And- ers Olsen að nafni. í Görðum er minnismerki um hann og þar búa fjölmargir afkomend- ur hans í dag . Anders Olsen kom til Græn- lands 1740, en fluttist til Garða 1780 og þar lézt hann í hárril elli sex árum síðar. Sagt var að honum hafi litist betur á sig I í Görðum en annars staðar og1 talið þar vera búsældarlegast af öllum þeim stöðum, sem hann hafði séð i Grænlandi. Um fjölda ára voru Garðar eini staðurinn á Grænlandi þar sem kvikfjárrækt var stunduð, ef frá eru talin helztu kauptún þar sem embættismenn Græn-' landsstjórnar höfðu eina og eina kú eða geit til mjólkur.1 Frá því er Anders Olsen leið hafa Garðar verið ein helzta landbúnaðarstöð í Grænlandi, og einkum hafa bændur lagt stund á sauðfjárrækt, en hafa einnig nokkra hesta, kýr, hænsni og gæsir. Maður sendur til íslands. Þótt landbúnaður hafi verið stundaður í Görðum um hart- nær tveggja alda skeið, var það samt ekki fyrr en um og eftir síðustu aldamót að fyrst var farið að ræða um það fyrir al-' vöru að koma landbúnaði á laggirnar í Grænlandi svo um munaði. Og þá skeður það skemmtilega i þessu öllu sam- an, en það er hlutdeild íslands í grænlenzkum landbúnaði. Hlut- ur íslendinga er þar miklu’ stærri en flesta grunar, og það í fleiru en einu tilliti. í fyrsta lagi má nefna það, að danska stjórnin sendi nokkru eftir síðustu aldamót mann til íslands til að kynna sér fjár-j rækt með það fyrir augum að hann leiðbeindi síðar græn-' lenzkum fjárbændum. Þessi maður hét Lindemand Walsöe. Hann kom til íslands 1914, ferð- aðist víðsvegar uhj landið og kynnti sér allt hið helzta er að fjárrækt og hirðingu sauðfjár laut. Þegar hann kom til Dan- merkur aftur lagði hann það til við ríkisstjórnina að keyptur yrði íslenzkur sauðíjárstofn og sendur til Grænlands. Horfið var að þessu ráði og Lindemand Walsöe sendur að nýju til ís-j lands árið eftir, í það sinn í fjárkaupaskyni. Féð keypti j hann á Norðurlandi, aðallega í Húnavatns- og Skagafjarðar- sýslum, því hugmyndin var að skipa því út í norðlenzkri höfn og flytja þaðan beint til Græn-i lands. Ails keypti Walsöe hátt á 2. hundrað fjár á Norður- landi, en þegar átti að fara að reka það til skips, rak svc mik-' inn ís upp að norðanverðu land- lenzkan Jörystumann á sviði búnaðarmála til að fara til Grænlands, ferðast þar um og kanna og kynna sér búnaðar- háttu landsmanna. Skyldi hann síðan gefa stjórninni skýrslu um ferð sína og gera tillögur til úrbóta. Sýnir þetta meðal ann- ars hve mikið traust stjórnin bar til íslendinga, en mikið mun einnig hafa ráðið um, hve landkostir íslands þóttu líkjast þeim grænlenzku. Maðurinn, sem valinn var til þessarar far- ar var Sigurður Sigurðsson bún- aðarmálastjóri. Fór hann oftar en einu sinni til Grænlands og samdi ýtarlega og greinargóða skýrslu um ferð sína og gerði jafnframt ýmsar tillögur, er hann taldi liorfa til bóta. Þessi lenzkum veiðimönnum var í nöp við það, og það svo mjög að þeir eltu rollurnar og skutu þær. Ástæðan var sú, að það legði svo mikinn óþef af kind- unum að selirnir þyldu hann ekki og flýðu firðina. Grænlendingar eiga íslenzk- um meira að þakka en kindur einar og kennslu í fjármennsku og matargerð. Hestaeign þeirra er af íslenzkum stofni, og fyrstu hestarnir héðan fluttir þangað samtímis sauðfénu. Áður hafði tilraun verið gerð með að flytja þangað norska hesta, en þeir gátu ekki bjargað sér í grænlenzkum högum og dóu úr fóðurskorti. íslenzku hrossin hafa aftur á móti gefið góða raun og reynzt Grænlending- um hinn mesti happafengur. — Þegar fyrsta tilraunin með þennan innflutning gafst vel voru fleiri hross flutt héðan til Grænlands, og við þau stuttu Strandaður ísjaki í Eiríksfirði. Þarna voru íslendingarnir ferjaðir í land á róðrarbátum og þaðan gengu þeir yfir til Garða. inu að skipaferðir tepptust. Varð því að reka féð suður heiðar og koma því á skipsfjöl í Reykjavík. Þaðan var það sent til Grænlands og gengu þeir fiutningar að óskum. Þetta sauðfé sem Walsöe keypti og flutti til Grænlands árið 1915 er frumstofninn að fjáreign Grænlendinga í dag og afkomendur þessara íslenzku frumbyggja sáum við bæði í Brattahlíð og Görðum. Islendingar ráðnir til Grænlands. Með þessu er á engan hátt lokið þætti íslands í landbún- aðarmálum Grænlands. Það er eitt með öðru að íslenzkur maður, Sigurður Stefánsson að nafni var ráðinn til Grænlands til að hirða féð sem hér var keypt, og síðan til að kenna Grænlendingum fjármennsku. Sigurður dvaldist árum saman í Grænlandi, en hve lengi er mér ekki kunnugt um. Nokkru eftir að Sigurður fór til Grænlands, fór þangað einn- ig íslenzk stúlka, Rannveig Lín- dal að nafni, til að kenna græn- lenzkum húsmæðrum og heima- sætum matreiðslu úr kinda- kjöti og sláturafurðum. Jafn- framt kenndi hún vefnað og hannyrðir ýmsar. Dvaldi hún vestra um tveggja ára skeið og var talið að henni hafi orð- ið mikið ágengt í kennslustarfi sínu. Enn er þætti íslands í land- búnaðarmálum Grænlands ekki lokið. Grænlandsstjórn réð ís- skýrsla Sigurðar er ,jafnframt landbúnaðarsaga Grænlands. Endurbyggð Brattahlíðar íslendingum að þakka. Ég tel lítinn vafa á því að það megi þakka hinum ís- lenzka fjárstofni sem fluttur var til Grænlands fyrir tæpri hálfri öld, að Brattahlíð — bær Eiríks rauða — skuli ‘hafa byggst á nýjan leik. Fyrir 40 árum bjó þar engin sála, bær- inn var í auðn. En þegar fjár- stofninn íslenzki var fluttur til Grænlands, töldu menn að Brattahlíð væri góð sauðfjár- jörð og reistu þar bú með ís- .enzku.n ijárstofni. Nú er kom- ið þar eins konar landbúnað- arþoip, nicð nokkuð á 2. hundr- að íbúum og þar sem íbúarnir eiga raunverulega tilveru sína íslandi að þakka. Mikið til sömu sögu hafa Garðabændur að segja, enda þótt þar hafi byggð verið í samfellt nær tvær aldir. Uppgangur Garða- bænda hófst fyrir alvöru þeg- ar þeir fengu íslenzka féð og Sigurður búnaðarmálastjóri segir frá því sem dæmi, að einn bóndinn þar hafi fengið 3 kind- ur héðan árið sem þær voru fluttar frá íslandi, en 20 árum síðar höfðu þær ávaxtað sig svo, að þær voru orðnar 600 talsins. Óþefurinn dauðasök. Ekki kunnu allir Græníend- ingar jafnt að meta íslenzka sauðféð til að byrja með. Græn* kynni, sem ég hafði af Græn-j lendingum virtist fara vel á rheð þeim og hestunum. Bæði í Brattahlíð og Görðum virðist hestanotkun ve.ra mikil, ekki einungis til reiðar heldur og einnig til" dráttar og áburðar. ★ I Ég hef hér að framan skrif-j að nokkuð um þátt íslendinga í grænlenzkum landbúnaði í sambandi við Garðaför okkar íslendinga þann 8. ágúst s.lJ Mér fannst að ekki yrði kom- izt hjá því að minnast á jafn veigamikið atrið i í samskipt- um íslands og Grænlands þeg- I ar komið var á höfuðsetur land- 1 búnaðarins í Grænlandi. En hér skal ekki orðlengt um það frekar. Heillandi land. Þegar ég hélt frá Görðum og labbaði upp brekkuna í átt- ina til Eiríksfjarðar fannst mér að þangað vildi ég aftur koma, dvelja þar og kynnast landinu og fólkinu. Þetta er einn af þeim stöðum í veröldinni sem hefur seiðmögnuð áhrif á hug manns, heilla mann í gegnum vingjarnlegheit, náttúrufegurð og „sjarma“, sem ekki er auð- velt að tjá með orðum. Uppi á brekkubrúninni horfir maður í síðasta sinn yfir þessa einmana en fögru byggð og hverfur að svo búnu aftur norður til Eiríljsfjarðar og ís- borganna þar. Báturinn var kominn til að sækja okkur. Smákænur fóru með farþeg- ana milli lands og skips og nú var ekki lengur eftir neinu að bíða. Innan fárra klukkustunda var áætlað að hópurinn yrði lagður af stað til flugs og allur. hraðinn hafður á. Furðulegur farkostur. Sólin skein í heiði þessa dag- stund, blæjalogn var á og him- inn og jörð, ísborgir og mann- fólk speglaðist í haffletinum. Ungur Grænlendingur lék list- ir sínar á kajak allt í kringum skipið. Hann var hvítklæddur og farkosturinn líka. Það eru annars undarleg skip þessir kajakar. Þetta eru 5 metra langar fleytur með einni tvíþlaðaðri ár, sem ræðarinn dýfir í vatnið til skiptis. Samt nær hann ótrúlegum hraða, því báturinn er örmjór og vel til þess fallinn að kljúfa vatns- skorpuna. En hann er líka að sama skapi óstöðugur og valt- ur. Það þarf bæði lag og mikla æfingu til að róa kajak svo vel farþ því þeir sem óvanir eru hvolfa fljótlega undir sér og geta þá enga björg sér veitt af sjálfsdáðum. En það er eins og þetta farartæki sé samgróið Eskimóunum. Þeir byrja strax að æfa sig á því í bernsku, velta bátnum undir sér og rétta hann við til skiptis. Þeir stinga hval- beinshnöppum upp í nasahol- urnar og bíta fast saman vör- unum svo sjór fari ekki í vit þeirra á meðan þeir eru í kafi. Og fullorðnir fara þeir allra sinna ferða á kajökum í gegn- um úfinn sjó, brim og boða og láta engar aðstæður aftra sér.. Mér hefur verið sagt að það sé hrífandi og stórkostleg sjón að sjá Eskimóa í kajak í óveðri og stórsjó berjast hatrammri bar- áttu við náttúruöflin — og bera sigur úr býtum. Við kveðjum kajakræðara og aðra Einarsfirðinga, sem fylgt hafa okkur meðan fært var og þurrt land undir -fótum. Vél skipsins okkar fer í fullan gang og það skríður af stað inn; á milli þéttra sólglitrandi ísborg- anna, áleiðis til Stokkaness. v Sálarlíf mót- að af hættum. Það er friður og ró yfir þess- um mikla og djúpa firði í dag. En þó er maður á þessari ferð í kallfæri við dauðann. Ekkert má út af bera til að skipið sigli- ekki á ísjaka. Og hvað skeður þá? í dag er hættan lítil því logn- ið getur ekki verið meira, sól- in ekki bjartari og hafið ekki gagnsærra. En í þoku, öldu- gangi og dimmviðri getur allt skeð. Þess vegna hlýtur hugar- heimur Grænlendinganna að mótast af erfiðum aðstæðum og miklum hættum. Og hann hef- ur vigsulega gert það. Þeir eiga sinn eigin hugarheim, hjátrú, hindurvitni og loks sina eigin sköpunarsögu alveg eins og aðrar þjóðir, hvort sem þær eru frumstæðar eða mettar af menn ingu og lærdómi. Jörðin datt. Sköpunarsaga Eskimóa er til enn í dag, enda þótt hún hafi alveg eins og goðatx-ú og Val- hallarkenning íslendinga til forna, oi-ðið að þoka fyrir sex daga sköpun Jehova. „Það var Framh. á 11. síiiu. . i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.