Vísir - 09.11.1960, Qupperneq 1
12
síður
q
i\
I
y
12
síður
it. árg.
Miðvikudaginn 9. nóvember 1960
254. tbl.
Ræða utanríkisráðherra í gær:
iermann Jónasson afhjúpaður.
Staðinn að þvf að bjóða NATO-ríkjum fisk-
veiðiréttindi á ytri 6 mílunum í þrjú ár.
TiBboð gert eftir að reglic-
gerðin var gefin út 1958.
Við umræðurnar um landhelgismálið í efri deild. í gær,
fletti Guðmundur í. Guðmundsson mjög rækilega ofan af Her-
manni Jónassyni í sambandi við þessi mál, og stendur formaður
Framsóknarflokksins þá ekki aðeins afhjúpaður sem ósann-
indamður í málinu, heldur sem sekur fyrir að hafa gert sig
sekan um „samningamakk“ sem hann og bandamenn háns for-
dæma núverandi stjórn hvað mest fyrir.
Kennedy, 34. forseti Bandaríkjanna.
Ráðherrann taldi Finnboga
Rút Valdimarsson hafa haft
rangt eftir sér er hann sagði
að utanríkisráðherra hefði lof-
að að hafa stöðugt samráð við
utanríkismálanefnd um ,gang
viðræðna við Breta. Finnbogi
Rútur hefði heldur alls ekki
getað sannað sitt mál.
Þá benti hann á, að Þjóðvilj-
inn á sunnudag hefði tekið um-
Kennedy sigurstranglegri en
atkvæðamunurinn sáralítill.
Kennedy kafði skömmu fyrir hádegi fetigið
261 kjörrnatmaatkvæöi, Nixon 172.
Til þess ad sigra |iarf íraiiilijróiíumli
að fá 269 kjjörnianiiaatkvæði.
Lokaútslit í forsetakosningunum voru ekki fvrir hendi Iaust
fyrir hádegi, en Kennedy var sigurstranglegri, þar sem hann
var búinn að fá 264 kjörmannaatkvæði, en hann þarf 269.
Svo mjóu munar á kjósendafylgi þeirra Nixons og Kennedys,
að þess eru engin dæmi í forsetakosningum á þessari öld hve
forsetaefni demokrata og republikana eru jöfn.
Klukkan 11,30 hafði Kennedy fengið rúmlega 30,1 milljónir
atkvæða, en Nixon 29,4 millj. og munar því aðeins rúmlega
7—800 þús. Þess má hér geta, að huganlegt er. að bað for-
setaefni, sem færri kjósendaatkvæði fær nái forsefakjöri.
Úrslit eru, þegar þetta er
skrifað, enn ókomin frá Kali-
forniu og Washington, miðvest-
urríkjum sumum og fleiri, og
ekki vist, að úrslit verði kunn
í sumum a. m. k. fyrr en eftir
hádegi.
Ferju með 200 ung-
mennum hvoifir.
Fimm driikknuðu.
Frétt frá Oita í Japan, að
ferju hafi hvolft, og fimm
piltar q? stúlkur drukknað.
Ferjan var lítil og voru þó
um 200 skólanemar á henni, er
henni hvolfdi skyndilega, og
þótti mesta mildi, að ekki
skyldu fleiri farast en reyndin
varð.
Samkvæmt ágizkunum í
morgun gæti farið svo, að
Kennedy fengi 331 kjörmanna-
atkvæði. En enn er engin vissa
um úrslitin svo sem að ofan
getur.
Klukkan 11 barst frétt um,
að Kennedy væri á undan í
Kaliforniu, hefði yfir 100 þús-
und atkvæði fram yfir Nixon,
en í Alaska, þar sem Kennedy
var talinn vís sigur, munaði
aðeins 500 á kjósendafylginu.
Víst er, að demókratar fá
meirihluta í báðum þingdeild-
um.
í fyrri fréttum var sagt, að
metkjörsókn hefði verið hvar-
vetna þrátt fyrir misjafnt veð-
ur. Var það einkum í miðvestur-
ríkjunum, sem veður var miður
gott og háði nokkuð kjörsókn.
Fyrstu úrslit voru úr k-jör-
dæmum, þar sem republikanar
hafa alltaf verið mjög öflugir
og voru hlutföllin 3:1 Nixon í
vil, en svo breyttist þetta smám
saman og er leið á nótt hafði
Kennedy yfir 2 milljónir kjós-
endaatkvæða fram yfir Nixon,
en þá hafði hann sigrað í fjöl-
mennum fylkjum eins og New
York og Pennsylvaníu með sam
tals 87 kjörmannaatkvæði, og í
morgun snemma var Kennedy
búinn að fá 265 kjörmanna at-
kvæði, en þarf 269. Þá voru enn
Framh. á 7. síðv.
! mæli forsætisráðherra rangt
j upp. Hann hefði heldur aldrei
lofað að ríkisstjórnin hefði sam-
ráð við utanríkismálanefnd eða
Alþingi fyrr en komið væri að
úrslitaákvörðunum.
Ekkert fordæmi?
Utanríkisráðherra benti á,
að mestur hluti gagnrýni stjórn-
arandstæðinga snerist um við-
ræðurnar við Breta. Þeir teldu
ekkert fordæmi fyrir því, að við
ræddum við erlendar þjóðir
um útfærslu landhelginnar eða
deilumál, sem spretta af
henni. Að það væru grundvall-
arregla, að íslenzka ríkisstjórn-
in færði ein út landhelgina án
sa'mráðs við aðrar þjóðir.
Það er hægt að leggja fram
margvísleg gögn, sagði ráðherr-
ann, sem sanna að þetta er ekki
rétt.
Árið 1948, þegar rætt var í
nefnd um landgrunnslögin lýsti
Einar Olgeirsson því yfir að
hann og flokkur hans styddu
frv. um lögin, en með því for-
að rætt sé við þær þjóðir, sem
hagsmuna eiga að gæta áður en
útfærslan yrði framkvæmd.
Þetta er bókað í gerðabók utan-
ríkismálanefndar. |
Árið 1958 gaf ríkisstjórnin út
hvíta bók þar sem birt er bréf
þáv. utanríkisráðherra til sendi-
' herra Breta. Er honum skýrt
frá því, að þáv. forsætisráðh.
hafi farið til London til að ræða
við Breta um útfærslu land-
helginnar í 4 mílur.
Kætt við NATO 1958.
Árið 1958 tókum við upp
landhelgismálið innan Atlants-
hafsbandalagsins. Okkur bauð
samningsskylda til að gera það.
Auk þess var þetta hinn ákjós-
anlegasti vettvangur, þar sem
allar þjóðir, sem höfðu hags-
muna að gæta í sambandi við
útfærsluna í 12 mílur voru með-
Framh. á 7. síðu.
Búið að salta síld í
5600 tuimur í haust.
A.-Þjóðverjar kaupa talsvert magn.
Svo virðist sem síldargöngum
að suðvesturlandinu seinki með
hverju ári. Hér áður fyrr var |
síldveiði við Suðvesturland
mest í ágúst og september, en
tvö siðustu árin hefir lítið orðið
vart við síld þrátt fyrir mikla
leit fyrr en í nóvember.
j Söltun hófst lítillega fyrir
um það bil hálfum. mánuði, en í.
vikunni sem leið var búið að|
j>alta á. npkkrum..stöðum. Sam-j
tkvæmt nppiýsingum frá Síldar-
útvegsnefnd var söltunin i lok
síðustu viku samtals 5.609 tn.
í fýrra var söltunin á sama
tíma aðeins 1000 tunnur og
þann 14. nóvember var hún
orðin 2.879 tn. Síldar varð í
rauninni ekki vart fyrr en þ.
10. nóv. og upp úr því var stöð-
ug veiði fram yfir áramót þeg-
ar gaf á sjó.
Söltunin-skiptist þannig eftir
ntgerðarbæjum: Akranes 3.552
Frh. á 6. síðu.
Austrænt
gull.
Hernámsandstæð-
ingar hljóðir.
Liðið er nú rösklega hállf
vika, síðan Vísir skoraði á
formann Samtaka hernáms-
andstæðinga, Guðna Jónsson
prófessor, að gera grein. fyr-
ir því opinberlega, hvernig
samtökin hefðu aflað fjár til
kaupa á bifreið, sem skráð
var á nafn jieirra fyrir rétt-
um hálfum mánuði. Prófess-
or. Guðni hefur ekki treyst
sér til að segja orð um þetta
og er honum ef til vill vork-
un, því að hann hefur lík-
lega ekki, hrekklaus maður-
inn, áttað sig á því í hvaða
félagsskap hann er. En úr
því að honum vefst svo
tunga uin tönn, verður að
slá því föstu, að þarna hafi
austrænu gulli verið laumað
í vasa „föðurlandsvinanna“,
og er bá ekki í fyrsta skipti.
Njóti beir nú vel og lengi!
Argentínumær
„Ungfrú Alheíms''.
Fegurðarsamkeppninni í Lon
don um titilinn ,,Miss WorId“
er lokið.
í henni tóku þátt stúlkur frá
38 löndum. Sigurvegari varð
stúlka . frá .Acgentínu, önnur
varð ísraelsk stúlka .(fædd í
Póllandi og v.éit ekki sitt rgtla
nafn) og þriðja stúlka frá Suð-
urAfríku