Vísir - 19.11.1960, Side 1
q
t\
I
V
*•. árg.
Laugárdaginn 19. nóvember 1960
263. tbl.
Landsbankanum slegnir
allir bátar Jóns Kr.
Fóru á rúmar 6 milljónir króna.
Hliðsnes siegið ábúandanum.
í gær fór fram uppboð á eign
upi þrotabús Jóns Kr. Gxmnars
sonar útgerðarmanns í Hafnar-
firði. Seld var fiskverkunarstöð
í Hafnarfirði fyrir 2 milljónir
króna, vélskipið Haförn á 4,2
millj., m.b. Blíðfari á 1.5 millj-
ónir og m.b. Haraldur á 340.
þús. kr. Allar þessar eignir
voru slegnar Landsbanka Is-
lands. Jörðin Hliðsnes var sleg-
in ábúandanum, Ingva Brynj-
ólfssyni á 155.000 kr. og íbúð-
arhúsið Nes á söinu jörð Kára
B. Helgasyni fyrir 45 bús. kr.
Auk þess var jarðarparturinn
Oddakot um 2 ha. einnig boð-
inn upp.
Það ríkti nokkur eftirvænt-
ing er menn söfnuðust saman
um borð í m.s Haförn GK 321,
Kampmann
myndar stjórn.
Viggo Kampmann hefur
mj’ndað nýja stjórn í Dan-
mörku,
Var þetta tilkynnt síðdegis í
gær. 17 ráðherrar sitja í stjórn-
inni og er það sami fjöldi og áð-
ur. Jafnaðarmenn eiga nú 12
ráðherra, en radikalar 5 í stað 4
áður. Nokkrar breytingar voru
gerðar samfara stjórnarmynd-
uninni og eru þær helztu, að
Grænlandsmálaráðuneytið verð
ur nú sérstakt ráðuneyti.
þar sem skipið lá við bryggju í
Hafnarfirði. Aftur á bátaþil-
fari þyrptust menn i kring um
uppboðshaldarann Jón Finns-
son fulltrúa, er hann las upp-
boðsskilmála og tilkynnti um á-
hvílandi veðskuldir á skipinu
er námu samtals kr. 6.447.200,
en auk þess voru áætlaðar aðr-
ar skuldir milli 800—900 þús.
krónur Fyrsta boð kom frá
Birni Ólafs, er bauð fyrir Lands
bankann og bauð hann 3 mjllj.
Stóð það boð skamma hríð þvi
Guðmundur Guðmundsson
bætti við 500 þúsund fyrir Lýsi
og Mjöl h.f. Björn hækkaði boð
sitt í 3.7 millj. króna óg nú varð
löng þögn og Jón Finnsson
skimaði í kringum sig og spurði
hvað hefði orðið af Guðmundi,
því enginn annar v.iðstaddur á-
ræddi að bjóða í kapp við Björn
Ólafs. Nú heyrðist kvíslað að
lítið væri boðið í þetta ágæta
skip, sem kom í vor úr klössun
og leit vel út í alla staði. Með
því voru boðnar tvær nætur og
bátur. Guðmundur var nú kom-
inn aftur og bauð fjórar millj.,
en það stóð ekki lengi því
Björn hækkaði sitt boð í 4.2
milljónir. Þrátt fyrir ítrekaðar
áskoranir af hálfu Jóns Fiims-
sonar að bjóða kom ekkert boð
og skipið var slegið Landsbank-
anum fyrir 4.2 milljónir króna.
Það var heldur ekkert kapp
í mönnum að bjóða í bátana
Blíðfara og Harald. Blíðfari var
þó í þokkalegasta standi þó
Framh. á 7. síðu.
„Afrakstur“ á árinu:
ir vib akstur 231.
fSlærri 1580 árekstrar farar-
tækja frá áramótum.
Um daginn héldu menn í
London, að maður nokkur ætl-
aði að ráða sér bana með því að
stökkva af Tower-brúnuí
gömlu. Maðurinn klifraði upp
eftir henni og kallaði, að hann
ætlaði að stökkva, en svo lét
liann sér nægja að fara úr föt-
umun og fleygja þeim í Tham-
es. Loks náði lögreglan honum
niður, þegar hann stóð á nær-
buxunum einum. Þess ber að
geta, að maðurinn hafði gin-
flösku með sér í ferðina og
saup á við og við, meðan hann
afklæddist.
Gjaldeyrfsskortur hjá
Indverjum.
Indland hefir orðið að skera
niður innflutning sinn á neyzlu-
vörum.
Gjaldeyrisvandræði valda
þessu, og hefir fyrst verið ráð-
izt í að banna innflutning á
whisky, úrum, bómullarvörum
og þar fram eftir götunum.
Fjöldi árekstra bifreiða og
annarra farartækjá í Reykjavík
og næsta umhveríi nemur um
1580 frá síðustu áramótum.
Á sama tíma í fyrra var á-
rekstrafjöldinn lítið eitt meiri,
eða rétt innan við 1600. t því
jsambandi ber að geta þess að í
fyrra, einkum í fj'rrasumar,
voru aðstæður til aksturs miklu
verri en nú sökum rigningar-
veðráttu. Þess í stað vegur það
nokkuð á móti að bifreiðum hef-
ur fjölgað talsvert í Reykjavík
frá fyrra ári. Og þeim mun
fleiri sem bílarnir eru, eykst
árekstrahættan að sama skapi.
Umferðardeild rannsóknar-
lögreglunnar hefur tjáð Vísi
að á þessu ári hafi verið ó-
venju mikið um slys, og þ. á
m. mörg stórslys, í sambandi
við umferð og árekstra. Dauða-
slys af völdum umferðar hafa
þó ekki orðið nema tvö í
Reykjavik, bæði í þessurn mán-
uði. Þriðja banaslysið varð í
nágrenni Reykjavíkur (Kópa-
vogi) fyrir skemmstu.
Samkvæmt bókum lögregl-
unnar hefur 231 maður veríð
kærður fyrir grun um ölvun við
akstur í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur frá síðustu ára-
mótum og til dagsins i gær.
Til samanburðar má geta þess
að sama dag í fyrra höfðu 253
ökumenn verið kærðir fyrir
sömu sakir, en 276 á öllu sl.l ári.
Engin kaup-
hækkun!
Vegna blaðafregna um 10%
kauphækkun í ríkisprentsmiðj-
an Gutenberg þykir rétt að
skýra frá því, að hinn 15. þ. m.
var forstjóra prentsmiðjunnar
tilkynnt, að ríkisstjórnin gæti
ekki fallist á umrædda kaup-
hækkun og telji heimild skorta
til sh'krar ákvörðunar án sam-
þykkis ráðherra. — (Frétt frá
Dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, 18. nóv. 1960.)
Sögulegar æfingar Breta
í V.-Þýzkalandi.
lírafisf 19 miiBj. kr. skaðabéta.
Hinn 1. ágúst s.l. hófust her-
æfingar brezka liðsins i Vestur-
Þýzkalandi og stóðu 10 vikur.
Þær urðu sögulegar, sem kunn-
ugt er, vegna þess m. a. að sex
hermenn biðu bana, en 125
meiddust, og því um kennt, að
heræfingarnar hafi verið fram-
kvæmdar með ofurkappi.
Það hefur verið staðfest nú á
Bretlandi, að 35 menn, borgara-
legra stétta, hlutu meiðsli, —
og munu allir þessir menn vera
Þjóðverjar. Komið hafa fram'
1800 skaðabótakröfur.
sem nema alls 185.000 ster-
lingspundum, þar af 100,000
fj'rir skemmdir á þjóðveg-
um.
Búist er við miklum umræð-
um um þessi mál á þingi, en
gremja var ríkjandi fyrir út af
því manntjóni, sem Bretar sjálf-
ir urðu fyrir.
Ógnarsterkur rakettuhreyfill á að
koma gesmflugvél á 6500 km. hraða.
Xeéði 2150 imts. hraðss t fyrstu iih'etteu líit eírefjnslu.
Ilaraldur og Blíðfari í Slippnum. Þar voru þeir seldir „í því
ástandi, sem þeir nú eru í
1
Rakcttuflugvél r.f gerðinni
X-15, sem send mun verða út
í geiminn að ári með mann við
stjórn, hefir verið reynd með
nýjum hreyfli.
Og hreyfillinn, sem um er
að ræða, er hvorki meira né
minna en sá öflugasti, sem
nokkru sinni hefir verið smíð-
aður fyrir flugvél. Þegar flug-
vélin var prófuð með honum
fyrri hluta vikunnar, var hann
látinn ganga með minnsta
hraða, sem hægt er, og auk
þess voru lendingarhemlar
flugvélarinnar á, en samt fór
hún upp í 78,000 feta hæð og
náði 2450 km. hraða á aðeins
áta minútna flugferð.
Þessi nýi hreyfill, sem kall-
aður er XLR-99, framleiðir
57,000 punda þrýsting, og er
næstum fjórum sinnum sterk-
ari en sá, XLR-11, sem notað-
ur hefir verið i flugvélina áð-
ur, til dæmis þegar hún var
, notuð til að setja hraða- og
hæðarmet, sem eru um 3700
km. hraði og 40 km. hæð. Gert
er ráð fyrir, að nýi hreyfilíinn
getið komið flu.gvélinni á 6500
km. hraða á klukkustund og
• allt að 160 km. hæð.