Vísir - 28.11.1960, Blaðsíða 9

Vísir - 28.11.1960, Blaðsíða 9
HDuaudaginn 28. nó ber 19 ' ftSIB 9 Geðvernd Frh. af 3. síðu: dveljast nokkrar stundir á degi hverjum á sérstöku dagheimili undir handleiðslu sérmenntaðs starfsliðs. Þessi aðferð þykir lánast vel víða erlendis. Sem dæmi má nefna að í Kaup- mannahöfn eru tvö slík dag- heimili, annað við barnasál- fræðistöð Hafnarskóia og hitt við geðdeild barna á Ríkisspít- alanum. 12% greindartregra barna. í þriðja lagi enu þau börn, sem þurfa að dveljast á lækn- ingahæli um lengri tíma. Þar ræðir fyrst og fremst um börn, sem haldin eru rótgróinni og svæsinni hugsýki og hegðunar- vandkvæðum. Á hælum þessum er öll aðbúð og umhverfi miðuð við það að sem fullkomnast enduruppeldi og lækning megi fara fram. Er starfslið vandlega valið í þessu skyni. í fjórða lagi má nefna sér- skólana. Kennarar munu vita gleggst hversu skórinn kreppir í þessum efnum, Fyrst skulum við líta á greindartregu börnin, þau sem eru betur gefin en svo að talin verði fávitar. Af þeim er mikill fjöldi. Dr. Matthíasi Jónassyni, sem manna bezt hef- ir rannsakað þessi mál, telst svo til að fjöldi þeirra muni vera «m 12% alh'a skólaskyldra bama. Hann segir orðrétt: „Ef rniðað er við 18000 börn á fræðsluskyldualdri, eru 2160 baraa — þeirrn svo treg að miklum erf- iðleikum veldur í námi. Það eru til jafnaðar 270 börn í árgangi." Manni getur ei annað en hros- ið hugur við, að enn skuli ekk- ert hafa verið gert fyrir þessi börn, þrátt fyrir ítrekaðar á- bendingar mætra manna. Hið venjulega skólanám er þeim oftast ofviða. Þeim er ofboðið með ofmiklum kröfum og skiln- ingsleysi og þau mega oft sæta aðkasti. Vísar veginn til afbrota. Þessi vanræksla vísar þeim iðulega veginn til afbrota og annarrar andfélagslegrar hegðunar á unglingsárunum. Eg veit ekki hvort menn hafa gert sér nægilega ljóst að und- irrót margra unglingaafbrota er einmitt hér að finna. Auk þess- ara barna eru önnur, sem þarfn- ast sérstakrar aðstoðar í kennslu. Þar má nefna þau les- blindu, þau málhöltu og mörg önnur eru í þessum flokki. í fimmta lagi er rétt að minn- ast á aðbúð fávita og örvita. Nokkuð hefir þegar verið gert í þeim efnum, en afar margs er þó enn vant. Þetta var óskalistinn. Og eins og þið hafið heyrt, er hann ó- hugnanlega langur. Það krefst feiknarlegs átaks, samhugs og þolgæðis að kippa þessum mál- um í viðunanlegt horf. Auk stofnananna, skólanna og ánn- arra ráðstafana þarf talsvert stóran hóp af sérmenntuðu starfsliði: læknum, sálfræðing- um, félagsfræðingum, hjúkrun- arfólki, kennarum og fóstrum. Við megum ekki bíða. Við megum ekki ímynda okk- ur að hér dugi brjóstvitið eitt, heilbrigð skynsemi, góðvild og manngæzka. Það þarf þekkingu til viðbótar. Langur tími mun líða unz við sjáum allar þessar hugsjónir rætast. En við því er ekki að gera. Róm var ekki unn- in á einum degi. En það réttlæt- ir engan veginn að við höldum að okkur höndum og biðum á- tekta. Nú þegar er nauðsynlegt að við lítum yfir verkefnalist- ann og tökum að velja þau úr, sem mest eru aðkallandi. Að mínu viti eru það tvö þeirra sem enga bið þola. Annars vegar, að sjá öllum þeim börnum, sem ekki geta notið venjulegi'ar skólafræðslu, fyrir viðeigandi fræðslu, hins vegar að komið verði upp hið bráðasta vönduðu hæli fyrir alvarlega hugsjúk börn og börn sem haldin eru rótgrónum hegðunarvandkvæð- um. Varðandi fyrra atriðið, skilst mér að almenningur eigi kröfu á hendur hinu opinbera' Fyrst börn eru að lögum fræðslu- skyld frá 7 ára aldri til 15 ára og hið opinbera hefir tekizt á hendur að sjá þeim fyrir fræðslu, hlýtur að mega ætlast til þess að sú fræðsla sé þannig að hún nýtist barninu, en verði því ekki til skaðsemdar. Ætti varla að þurfa að fara um þetta fleiri orðum, svo augljóst virðist það vera. Vera má að gera megi svipaðar kröfur á hendur hinu opinbera varðandi heilsuhæli, en þar virðist þó oft ríkja nokk- uð önnur hefð. Sumar af hinum þekktustu lækningastofnunum okkar eru reistar fyrir sam- skotafé félaga og einstaklinga, sem barizt hafa ótrauðir fyrir hugsjón sinni. Nægir þar að nefna Vífilsstaði og Reykja- lund. Það sem veigamest er. Trúlegt er að margir séu orðnir langþreyttir á söfnunar- leiðöngrum, merkjasölu, happ- drætti og öllu slíku, og sízt væri það að undra. E. t. v. er þægi- legra að hið opinbera seilist þegjandi niður í vasa skatt- greiðandans eftir fáeinum krón- um. Eg veit ekki hvort er betra, enda finnst mér það ekki skipta máli. Hitt er aftur á móti öllu veigameira, að við gerum upp við okkur hvort við teljum okk- ur ekki orðna þess umkomna að veita börnum okkar viðun- andi uppeldi. Og hvort við get- um lengur réttlætt að láta þau mál sitja á hákanum. Þegar á allt er litið skiptir auðvitað mestu máli að sú þjóð, sem upp vex, verði hraust og heilbrigð bæði á sál og líkama. Sé hún það, er framtíð íslands borgið. Sé hún það ekki, ja, —'að hvaða gagni koma okkur þá allir okk- ar togárar, verksmiðjur og önn- ur atvinnutæki. ! Þá er að byrja á byrjuninni, landar góðir, koma upp vönduðu lækningahæli, og þegar það er fengið ráðumst við á næsta verkefni, unz síðasta áfanga ér náð. Forusta Bama- verndarfélagsins. Mér er nú sérstakt fagnaðar- efni að geta lokið þessu spjalli með því að bera ykkur góða frétt. Læknipgaheimili það, sem eg hefi farið svo mörgum orð- um um, er ekki algjörlega loft- kastali. Svo er mál með vexti, að Barnaverndarfélag Reykja- víkur hefir leyft mér að til- kynna, að það hefir ákveðið að leggja fram krafta sína máli þessu til styrktar. Þar eignumst við ótrauðan stuðningsmann, því að eins og margir munu vita, hefir þetta félag hrundið mörgum góðum málum, börnum til blessunar, góðan spöl áleiðis. Það mun ætla að leggja á’itlega fjárfúlgu í sjóð til stofnunar lækningaheimilis fyrir andlega sjúk börn. Væri nú ekki tilvalið að fleiri félög legðu hönd á plóginn og legðu fram nokkra upphæð til viðbótar, svo að hægt væri að fara dálítið mynd- arlega af stað? Sigurjón Björnsson. Nýkomið Gas og súrhylki = HÉÐINN = Vélaverzlun simi 84260 Bækur Menningarsjúðs 1960 FÉLAGSBÆKUR Félagsbækiir Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins eru komnar út. — Félagsmenn í Reykjavík eru góðfúslega beðnir að vitja bóka smna í afgreiðsluna, f Iverfisgötu 21. Auk Andvara, Aímanaks og bókar um Þýzkaland, Austurríki og Sviss í flokknum „Lönd og lýðir (höf. Einar Ásmundsson hrlm.), geta félagsmenn valið tvær af eftirtöldum bókum: 1. Hreindýr á íslandi, eftir Ölaf Þci'valdsson. 2. Mannleg náttúra, sögur eftir Guðmund Gíslason Hagalín. 3. Sendibréf frá Sandströnd, skáldsaga eftir Steíán Tónsson. 4. Á Blálandshæðum, ferðabók frá Afríku eftir Martin Johnson. 5. Jón Skállioltsrektor, ævisaga eftir Gunnar M. Magnúss. Árgjaldið er kr. 190.00 fyrír félagsbækurnar óbundnar, kr. 280,00 í bandi. AÐRAR ÚTGÁFUBÆKUR Ritsafn Theodóru Thoroddsen. Dr. Sigurður Nor- dal gaf út og ritar um skáldkonuna. Otsöluverð kr. 225.00 í skmnlíki, 280.00 í skinn- bandi. Ævintýraleikir eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Mynd- ir eftir Sigrúnu Guðjónsdóttur. Útsöluverð kr. 42.00 ób., 58.00 í bandi. Sólarsýn, kvæði Bjarna Gizurarsonar í Þingmúla. Jón M. Samsonarson gaf út. Otsöluverð kr. 75.00 í bandi. Hamskiptin, saga eftir Franz Kafka. Hannes Pét-> ursson þýddi. Otsöluverð kr. 75.00 í bandi. Félagsmenn fá þessar og eldri útgáfubækur for- lagsins með 20—25% afslætti. Komið í afgreiðsluna, Hverfisgötu 21, og gerið góð kaup. j Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.