Vísir - 28.11.1960, Blaðsíða 11
'T
Mánttdaginn 28. nóvember 1960
VlSIB
11
Abalmanntal <i Islandi
áril 1960 tekil 1. des.
Fyrsta mamital hér á laitdi tekiö 1703.
Fimmtudaginn 1. desember
1960 fer fram aðalmanntal um
allt land, og er fcað hið 21. í
röð slíkra manntala hérlendis.
Fyrsta manntalið var tekið
árið 1703 að tilhlutan þeirra
Áma Magnússonar og Páls
Víáalíns. Er það með allra
fyrstu manntölum — í nútíma-
skilningi þess orðs — sem tekið
hefur verið, og það var á ferð-
inni heilli öld áður en flest
fyrstu manntöl annarra landa
voru tekin.
Tilgangnr
aðalmanntals.
Tilgangur aðalmanntalanna,
sem að jafnaði hafa verið tekin
10. hvert ár, er allt annar en
tilgangur hinna svo nefndu
ársmanntala, sem prestar og
basjárstjórar tóku, þar til Þjóð-
skráin tók við þessu hlutverki
þeirra árið 1953. Með hinum
árlegu manntölum presta og
bæjarstjóra var aflað upplýs-
inga um nöfn og heimili borg-
aranna og um fáein önnur at-
riði, sem nauðsynleg voru,
vegna skattlagningar og ann-
arrar stjórnsýslu. í þessum ár-
legu gögnum eru hins vegar
engar upplýsingar um margt,
sem miklu máli skiptir að fá
vitneskju um, svo sem um
stærð og samsetningu heimila
og fjölskyldna, atvinnu og
menntun fólks, um húsakost
þjóðarinnar o. fl. Um allt slikt
er aflað upplýsinga með töku
sérstaks manntals 10. hvert ár.
Tílhögun
manntalsskráningar.
Þátttaka almennings.
Bæjarstjórnir sjá um fram-
kvæmd manntalsins í kaup-
stöðum, en annars staðar sókn-
arprestar með aðstoð oddvita
og hreppstjóra. Manntalsstjóri
hvers umdæmis, þ. e. hlutað-
eigandi bæjarstjóri eða sókn-
arprestur, skipar teljara, sem á
manntalsdegi hinn 1. desem-
ber fara í öll hús umdæmisins
og skrá upplýsingar um alla
einstaklinga, bæði þá, sem
heimilisfastir eru í viðkomandi
húsum, og þá, sem eiga lög-
heimili annars staðar en stadd-
ir eru í umdæminu á mann-
.talsdegi. Um lgið skrá teljarar
upplýsingar um hvert hús og
íbúðir þess. Teljarastarfið er
trúnaðarstarf, sem enginn get-
ur skorazt undan, sem til þess
er hæfur. Með hliðsjón af mik-
ilvægi teljarastarfsins. og því,
að það er innt af hendi á einttm
degi tíunda hvert ár, er vohazt
til þess, að menn telji það ekki'
eftir að vera kvaddir til að
gegna þessu starfi.
Ahnenningur getur létt starf
teljaianna á ýmsan hátt, t.- -d.
með því að kynna sér, hvað um
er spurt, og hafa tiltæk svör
við spurningum manntalseyðu-
blaðsins. Þá er það og mjög
áríðandi, að húsráðendur sjái
um, að allir sem hafast við í
hásnæði þeirra séu teknir á
skrá. Eitt af því, sem mestu
skiptir í sambandi við aðai-
manntalið, er að enginn skrán-
ingarskyldur einstaklingur falli
undan skráningu.
Þeir, sem ekki eru heima,
þegar teljara ber að garði, eru
beðnír að skilja eftir hjá hús-
ráðanda £ða öðrum heimilis-
manni blað með öllum þeim
upplýsingum um sjálfan sig,
sem rita skal á manntals-
skýrsluna.
Það, sem spurt er v.m.
Á manntalsskýrsluna skal
rita nafn og hjúskaparstétt,
fæðingarsíað, trúféiag og rík-
isborgararétt. Enn fremur upp-
lýsingar um fjölskyldutengsl
innan heimilis og um heimilin
sem slík. Allar konur, ógiftar,
giftar og áður giftar, tilgreini
hve mörg börn þær hafa alið
(lifandi fædd), og allar giftar
konur, sem eru samvistum við
mann sinn, tilgreini á sama hátt
hve mörg börn þær hafi alið i
núverandi hjónabandi. Enn
fremur tilgreina þær giftingar-
ár.
Þá eru upplýsingar um at-
vinnu og aðra tekjuuppsprettu
fólks, en þær eru einn mikil-
vægasti þáttur manntalsins.
Upplýsingarnar eiga að miðast
við vikuna 20.—26. nóvember.
(síðasta heila vikan fyrir mann-
talsdag), en auk þess á að
skýra frá atvinnu í júlí og marz
1960. Ætlunin er að fá ekki að- ’
eins mynd af störfum manna
vikuna fyrir manntalsdag, held-
ur einnig á tveim öðrum tím-
um ársins, aðallega til að leiða
í ljós árstíðarbreytingar í at-
vinnustarfseminni og þátttöku
barna og unglinga í henni, en
hún er nú orðin mjög mikil.
Hefur eklri áður verið spurt um ;
þetta víð töku manntals. —j
Upplýsa skal atvinnu allra,
barna og fullorðinna, og þeir,
sem viniia aðeins hluta fuiis-
-■(
starfstíraá, skulu gera grein;-,
fyrir atvinnu sinni jafnt og
hinir. Ilúsmæður, sem stundg j
átvinnu utan heimijjs, geriÁ
‘ grein fyrir henni; og:þ>að þótj j
um sé að ræða smávægis. stör£;,
Þeir, setn stuiula fleira err eift
"étarf samtímis, eiga aðeins að
lilgreiná eitt þeirra —i^þaS, sém
'mestu ífiáli 'ákiþtir. '■ ';ó ■
Atvinnan skal fyrst og fremst
gefin til kynna með því að rita
nafn og tegund fyrirtækis eða
stofnunar, sem unnið er hjá.
Þá skal upplýsa, hvort um er
að læða atvinnurekanda eða
launþega, ásamt nánar tiltekn-
um viðbótarupplýsingum. Enn
fremur upplýsist tegund starís
í viðkomandi fyrirtæki eða
stofnun, þ.e. hvers eðlis starfið
er. Kemui' þetta stundum fram
í starfsheiti manna, og nægir þá
að tilgi-eina það, en oft þarf
viðbótarskýringu til þess að
fullnægjandi sé. Ekki er t.d.
nóg að tilfæra „verkamaður“,
heldur t.d. „verkamaður við
upp- og útskipun“, „verkamað-
ur við götugerð“ o. s. frv. Ekki
„skrifstofumaður“, heldur t.d.
„bókari“, „gjaldkeri“ o. s. frv,
Ekki „sjómaður“, heldur „há-
seti“, „bátsmaður“, „matsveinn“
o. s. frv. Sama gildir um fjölda-
mörg önnur starfsheiti.
Þá er spurt um nám og tek-
in próf. Þeir, sem nú eru við
framhaldsnám, skýri frá því.
Þéir, sem lokið hafa einhverju
framhaldsnámi, skýri frá
hæsta almennu prófi. Loks skal
skýra frá öllum prófum í sér-
greinum, ef um þau er að ræða.
Á bakhlið manntalseyðu-
blaðsins skal loks skrá upplýs-
ingar um húsið og íbúðir þess.
Hér er með öðrum orðum á
ferðinni ekki aðeins manntal,
heldur einnig hústal, sem tekur
þó aðeins til mannabústaða.
Heilbrigðir fætur eru
undirstaða vellíðunar. —
Látið þýzku Berkenstork
skóinnleggin lækna fætur
yðar.
Skóinnleggstofan Vífilsg. 2
Opið alla virka daga frá
kl. 2—4.30.
dt
SKIPAUTGCKÐ
RIKISINS
Baídur
fer til Hellissands,
Hvámmsfjarðar og Gils-
.fjarðarhafna á morgun..
Vörumóttáka í dag.
'ý'l:
12 tegujuUr-''
g ... fjölb^pyttir litir.
1 - ju >ú ■.' /f; yuí
SpaHsjóðurmn „PUNDIÐ"
við Klapparstíg.
Ávaxtar sparifé með hæstu innlánsvöxtum.
Opið daglega frá kl. 10,30—12 og 5—6,30.
Pantanir
óskast sóttar ,V,
sem fyrst. t:
Höfum nú fyrirliggjandi nokkrar samlagningavélai?
af hinni alkunnu gerð, EVEREST.
Handvélarnar eru mjög ódýrar.
8x9 Cr. — 4.864.00
10 x 11 Cr. — 5.632.00 , !
Vélar þessar eru sérlega hentugar fyrir verzlanir og
afgreiðslur, og eru i senn mjög snotrar, liprar og
handhægar.
&J&L£4l
SKREFSTOFUVELAR
Laugavegi 11,
sími 18380 — 24202.
Ljóstæknifélag íslands:
FIJIMDIIR
verður líaldinn þriðjudaginn 29. nóvember 1960 f
Húsmæðrakennaraskóla íslands, Háuhlíð 9, og hefstj
kl. 20,30.
FUND AREFNI: ■
Lýsing og Ijóstækni í heimilum
Fulltrúum frá Húsmæðrakennaraskóla íslands og
nemendasambandi hans er sérstaklega boðið á
fundinn. — Tilhögun fundarins verður:
1. Tvejr fulltrúar húsmæðra leggja spurningari
. ’ ; fyi'ir þrjá sérfræðinga. -)
' 2. Kaffihlé.
' 3. Fundarmenn mega sénda inn skriflegar spurn-*
,v yýingai'eða táka þátt í frjálsum umræðum.
.. .... ''J ■: y:> • .
I úppþaii .fpndarins'mun íormaður félagsins, Stein-
■'í: ígtímúiý Jéijsspn, rajfmagnsstjóri, ávarpa fundinn.
- r -Tákið'-ínfcS^ykkiir géstil Nýir félagar eru velkomnir!
;—:—Stjórnin.
S^rfnir eru: Skúli;. Norðdahl,.sarkitekt. :j
GísJi Jónsson, verkfræðinguiy Gísli Sigurðsson,
raf virk j ameistari.