Vísir - 25.01.1961, Page 1

Vísir - 25.01.1961, Page 1
51. árg. Miðyikudaginn 25. janúar 1961 20. tbl. 12 siður 12 síður Þetta er ekki vængur eða stél á flugvél, heldur er betta „uggi“ á kjarnorkukaupfarinu Savannah, sem er í smíðum vestan hafs, og á að koma í veg fyrir að skipið velti að neinu ráði. Sérstök rafeindarvél á að fylgjast með sjóganginum hverju sinni og senda síðan ugganum fyrirmæli um nauðsynlegan halla til að girða fyrir velting. Frá Vestmannaeyjum: * litvegsmenn samþykktu kjör sjómanna — en óvíst, livernig brna má bilift í kröfum landsnianna. Frá fréttartara Vísis. Eyjmn í morgun. Útvegsmenn héldu fund í gær til að ræða ráðningarkjör sjómanna og samþykktu þeir þau einróma, Þetta táknar þó ekki, að róðr- ár hefjist þegar í stað, því að auk þess sem róðrabann félags útvegsmanna sé enn í fullu gildi, skall á verkfall hjá land- verkamönnum á síðasta mið- nætti og veit enginn, hversu það getur staðið lengi. Þar eru kröfurnar svo liá- ar, að engin leið er að sjá, hvernig bilið verður brúað. Er það einkum krafan um greiðslu matartíma. sem erf- iðust er, þvi að ofíast er unn- ið fram yfir matartíma á kvöldin. Belgiski togarinn heldur á- fram að lemjast við brotinn hafn argarðinn ,og tjóhið tiemur milljónum króna, e:. hegtt er við að það eigi eftir að aukast. Eng- in leið verður að gera við grð- inn í vetur, og vona menn að- eins, að veður verði stillt, svo að tjónið verði ekki enn meira en orðið er. Delgado boilar för sína til Portugal. MLveðsi pci'sðtinlcfja haftt ftjrtr- skijtað töhu Saa ítt JMttritt- Fyrsia skref til aÖ frelsa Portúgal. Delgado, leiðtogi útlægra andstæðinga einræðisstjórnarinnar í Pörtúgal, hefur lýst yfir því, að hann hafi persónulega fyrir- skipað töku hafskipsins Santa Maria. Hann kvað hér vera um að ræða fyrsía skref til þess að steypa dr. Salazars og veita portúgölsku þjóðinni frelsi á ný, en því yrði haldið leyndu hvert næsta skref væri. Hann kvaðst brátt munu verða á portúgalskri grund. Hann hvatti ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna til þess að forðast alla íhlutun um þessar aðgerðir. Hér væri ekki um sjórán að ræða heldur það, að portúgalskir borgarar hefðu risið upp og ,lagt undir sig portúgalskt skip. Galvo, forsprakki hópsins, sem náði skipunum á sitt vald hefur einnig lýst yfir því, að stefnt sé að því marki að frelsa Portúgal. f morgun héldu herskip enn áfram leit að portúgalska haf- skipinu Santa Maria, sem flokk- ur vopnaðar manna náði á sitt vald fyrir rúmum tveimur sól- arhringum. Enginn vissa var þá fyrir hvar skipið væri. Galvao forsprakki þeirra manna, sem náðu skipinu á sitt vald kveðst munu skila farþeg- um, um 600 talsins, til hvaða hafnar sem vera skuli, svo fremi að ekki verði reynt að taka skipið með valdi. Hann neitar því, að um sjórán sé að ræða. Hann tók skipið í nafni Hunberts Delgado, frambjóð- anda gegn Salazar einræðis- herra í seinustu forseta kosn- ingum, en hann var landrækur ger og er nú útlagi í Brazilíu. Haft var eftir Delgado í gær, Framh. á 2. síðu. Yfir 1000 menn umkringdir eldhafi, en 20 fórust. Smábær i V.-Astralíu eyðist í gresjuetdi. Þormóður fékk milljón. Þonnóður goði fékk um kr. 4,50 fyrir kílóið af síld, sem; hann flutti út í s.l. viku. Skipið var lagt af stað til Þýzkalands, þegar síldarhrot- ^ una miklu gerði, og var það þá kallað aftur og skipt um farm settar í það 242 lestir af síld. Sá farmur var seldur í Bremer- haven í gær og fékkst fyrir hann meira en milljón króna eða | 119,500 mörk. Röðull seldi í Cuxhaven í morg-' un 240 1. af síld og 12 1. af| þorski. — Fréttir höfðu ekkij borist af söluverði. Yfir 1000 manns eru í stór- liættu í smábæ í Vestur- Ástralíu, í nokkurra tuga km. frá Perth, vegna gresjuelda. Yfir 50 hús í bænum af um 70 hafa brunnið til ösku. Meðal þeirra eru kirkja, sjúkrahús og skóli. Yíir 30 manns bjargaði lífi sínu með því að leggjast í skurð og breiða yfir sig blauta poka. Ekkert samband var við fólkið um skeið, en loftskeytasam- band náðist við það síðar og hafði þá heldur dregið úr hætt- unni. Flest af þessu fólki er nú heimilislaust. Vinnuflokkar, sem voru að störfum í grennd við bæinn flykktust þangað, er eldarnir færðust nær og nær, því að um enga aðra undankomuleið var að ræða, en hún lokaðist alveg I í bili Um 20 menn, sem unnu| að því að hindra útbreiðslu eldsins, munu hafa farist. Hittast Krúsév og Kennedy i marz? Krúsév situr þá fund Allsberjarþmgs um afvopnunarmál. Eenuedy á stöðngiun fundum um |>au. Nikita Krúsév forsætisráð-: herra Sovétríkjanna er sagður’ hafa tjáð John F. Kennedy for- seta, að hann hygðist koma til New York í marz og sitja fund Allsherjarþingsins. Kennedy varði næstum öllum deginum í gær til þess að ræða við helztu ráðunauta sína í ut- anríkismálum, og mun áðallega; hafa verið rætt um afvopnun- armálin og ákveðnar tilögur, er i Bandaríkjastjórn legði fram; þeim til lausnar, og yrðu þær teknar fyrir samtímis tillögum sovétst j órnarinnar. Komist hefur á kreik orð- rómur um það í Washington, að send kunni að verða nefnd, manna til Moskvu til þess að prófa einlægni Rússa í af- ; vopnunarmálum, eins og það er orðað, — ef Kennedy gæti ekik komist hjá því að sitja fund með Krúsév í. marz. John F. Kennedy, Banda-! ríkjaforseti hélt í gær áfram viðræðum við helztu ráðherra sína og aðra ráðunauta og voru utanríkismálin til meðferðar. Til athugunar var m. a. skýrsla Thcmpsons ambassa- dors Bandaríkjanna í Moskvu um viðræður, sem hann átti við Nikita Krúsév forsætisráð- herra Sóvétríkjanna sl. laugar- dag. Ekkért hefir verið sagt frá Fraroh. ,á 7 síðu. Það er ekki tekið út með sældinni að giftast kaþólskum manni, sem hefir fengið (eða ekki fengið) skilnað. Það mátti Soffía Loren sanna rnn daginn, þegar henni var sagt, að senni- lega værih ún alls ekki gift kvikmyndastjóranum Carlo Ponti. — Hann er nefnilega kaþólskur og þar sem káþólska kirkjan viðurkennir ekki skiln- að, fékk hann dómstóla í Mexíkó til að blessa hjúskapar- slitin — og smella honum off Soffíu síðan í bandið. Nú hefir Ponti uppgötvað, að eitthvað var einkennilegt við þetta allt og spyr, hver sé eiginlega kona

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.