Vísir - 25.01.1961, Blaðsíða 7

Vísir - 25.01.1961, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 25. janúar 1961 VlSIR ALÞIIUGISTfÐIHIOI VfSJS Alþýðubandalagið vildi draga úr fjárfestingunni árið 1958. Framsókn viltli spttvntt viö neysEu luntlsntttnntt. Fyrstu umræðu neðri deildar Alþingis um bráðabirgðalög rik isstjórnarinnar frá 5. janúar lauk í gær. Eins og þingfréttir bera með sér voru umræðumar komnar langt út fyrir efnið og orðnar að einskonar eldhúsdags umræðum um efnahagsmál. Einar Olgeirsson talaði fyrst- ur í gær og hélt áfram þaðan, sem frá var horfið í ræðu hans við frestun umræðunnar í fyrra dag. Ræddi Ein.ar almennt um við- skiptahalla þjóðarbúsins. Sagði hann að þjóðin hefði getað kom izt hjá honum með því að beina viðskiptum sínum við jafnvirð- iskaupalöndin í austurvegi. En þrátt fyrir þessa reynslu af hallaviðskiptum við frjálsa markaðinn hefðu hagfræðingar ríkisstjórnarinnar lagt að henni að beina viðskiptum sínum enn meira þangað með því að gefa verzlunina fi'jálsa. Kvað Einar fslendinga ekki hafa nokkra tryggingu fyr.ir því að þeir geti seit þangað fvrir jafnmikið og þaðan er keypt. Það væri því verið að bjóða viðskiptahallan- um heim. Nákvæmur áætlun- arbúskapur í utanríkisviðskipt- um er nauðsynlegur, sagði Ein- ar Olgeirsson. Því ’næst ræddi hann um fjárfestinguna og komst að hlið- stæðri niðurstöðu og um utan- ríkisviðskiptin að skipuleggja yrði fjárfestinguna meira en gert hefur verið. Ríkisvaldið yrði að gera áætlanir um fjár- íestingu landsmanna nokkur ár | fram í tímann. Um lánamál rikisins sagði Einar: Það er ekki rétt hiá við- skiptamálaráðherra að þjóðin hafi ekki átt kost á erlendu láni árið 1958. Við gátum þá | fengið lán. Það var ekki verið, að arðræna okkur, vextirnir voru iágir. En viðskmtamála- ráðherra og ýmsir aðrir voru orðnir samdauna þeim hugsun- arhætti sem i'íkir í A'þióða- bankanum og hjá bandaríska bankaauðvaldinu að ekkert væri !án, sem ekki væri veitt með 5% vöxtum Það er senniieffa rétt að við gátum ekki fengið lán á Ame- ríku. en við ffátum fensið sott ■ 3án, eðlileg !án. annars staðar. Að lokinni j-feðu Einqr.s gerði Evsteinn Jónsson stutta athuga semd, sem að mestu levti fólst í sDurningum til við- ski nta mál a r áðherr a Síðan tók Gvlfi Þ. Gíslason . viðskintamálaráðherrn til máis. Ráðherrann var tilnevddur að endurtaka vmislegt af því sem hann hafði sagt i fyrri ræð um við þessar nmræður. bví að .stjórnai'andstæðingar, sem til .máls tóku gerðu sér far um að snúa út úr ummælum hans og beita hártogunum í málflutn- ingi. Verður sá hluti ræðu Gylfa ekki rakinn hér, en ráð- herrann gaf mjög athyglisverð- ar upplýsingar um stefnu Framsóknar og kommúnista í vinstri stjórninni. Þegar efnahagsniálin voru til luuræðu í stjórninni og rætt var uni leiðir til að draga úr verðbólgunni og gjaldeyrishallanum, Iayði AI þýðubandalagið til að dreg- ið yrði úr fjárfestingunni en Framsóknarmenn kusu held- ur að dregið yrði úr neyzlu landsmanna. Þess vegna voru alþýðusamtökin beðin um að gefa eftir nokkur vísi tölustig. Þetta sýnir að flokkarnir skildu hvað var að gerast, sagði ráðherrann, þótt þeir láti nú eins og efnahagslifið þurfi engra læknisaðgerða við. I framhaldi af þessu saka svo stjórnarandstæðingar ríkisstj. um eindæma hörku og óbilgirni er hún leyfir sér að draga lítil- lega úr neyzlu og fjárfestingu til að bæta efnahagsástandið. Þó hefur rikissjt, ekki beitt sér fyrir meiri samdrætti í neyzlu og fjárfestingu, en nauðsynlegt gat talizt. Sem svar við spurningu Ey- steins Jónssonar sagði ráðh. að ríkisstj. myndi ef tök yrðu á stofnsetja -samskonar lána- breytingakerfi vegna landbún- aðar og iðnaðar og yerið er að setja upp til að styðja sjávar- útveginn. En allir hljóta að vera sarnmála um að sjávarút- vegurinn þurfti að ganga fyrir í þetta sinn, sagði viðskipta- málaráðherra. Þetta verður þó því aðeins hægt að jafnvægi í peningamál unum innanlands náist og Seðlabankinn verði sterkari. Þórarjnn Þórarinsson tók næstur til máls. Hann kvað vera til fleiri leiðir til úrlausnar okkar efna- hagslegu vandamálum, en þær tvær, að draga úr neyzlu ann- ars vegar og fjárfestingu hins vegar. Frjáíslyndir hagfræð.ingar, sem nú glíma við efnahags- vandamál Bandaríkjanna leg#ja áherzlu á aukna fram- leiðslu og útflutning. Síðan spurði Þórarinn: Hvaða erlendir íjármálamenn töldu lánstraust okkar búið 1958. A hvaða upplýsingum voru svör þeirra byggð? Viðskiptamálaráðherra tók til máls og benti Þórarni á að svörin við spurningu hans væri hægt að fá hjá Evsteini 'Jóns- syni þáv. fjármálaráðherra. Hann hafði forystu um lán- tökur í v-stjórninn.i. Honum mistókst svo að taka varð lán, sem bæði ég og hann vildum ekki þurfa að taka aftur þótt í boði væru. Eysteinn fékk að gera ör- stutta athugasemd við þetta, annars. hafði hann talað þrisv- ar í þessari umræðu. Vildi hann ekki kannast við að v-rstjórnin hefði tekið ein- hver óeðlileg lán á sínum tíma. Og það var ekkert erfiðara að fá lán 1958 en oft áður. Einar Olgeirsson talaði síð- astur þingmanna við þessa um- ræðu. Síðan var mál.ið samþ. til 2. umr. og fjárhagsnefndar og fundi slitið. Dðgskrá Al- Starfsemi Loftleiða 1960: Farþegar á árinu 40.773, aukningin nemur 15%. Farþegar 1959 voru 34.498 - vöruflutningar jukust m 15% og póstfl. um 25%. Yfirlit hefir nú verið gert um flutninga Loftleiða árið sem leið, og kemur i ljós að veru- leg aukning hefir orðið, miðað við fyrra ár. Loftleiðir fluttu 40.773 far- þega frá 1960, en það er 5.575 farþegum fleira en árið 1959 og nemur aukningin 14.8%. Vöruflutningarnir árið 1960 reyndust um 363 tonn og nem- ur aukningin frá fyrra ári 15.2%. Póstflutningar jukust einnig úr 32 í rúm 40 tonn. Ferðafjöldinn var svipaður og árið 1959, en vegna hins aukna farþegarýmis Cloudmaster flugvélanna tveggja, sem tekn- ar voru í notkun á árinu, lækk- aði heildartala sætanýtingar lítið eitt, eða frá 70.4 í 65.3%. Fjöldi floginna kílómetra var svipaður og árið 1959. Heildarniðurstöðurnar eru hagstæðar og spáð góðu um framtíðina. Núverandi vetraráætlun lýk- ur 31. marz nk., en á tímabil- þingis í inu frá 1. apríl til 31. okt. 1961 er gert ráð fyrir að haldið verði. uppi 8 vikulegum ferðum fram» og aftur milli Ameríku og Ev- rópu. Flognar verða 8 ferðir á viku fram og aftur milli Ham- borgar, K.hafnar, Oslóar og: Reykjavíkur, tvær ferðir milli. Gautaborgar, Glasgow og: Reykjavíkur, ein ferð milli Reykjavíkur, Stafangurs, Am- sterdam, London, Luxemborg- ar og Helsingfors, og 8 ferðir í viku milli Reykjavíkur og: New York. Gert er ráð fyrir að þrjár Cloudmasterflugvélar verði: notaðar til áætlunarferða þess- ara, og ef svo fer sem að líkumi lætur, að eftir 1. apríl verði. eingöngu notaðar Cloudmaster- flugvélar til áætlunarferða J Loftleiða, þá er þar með lokið! löngum og farsælum stafsferli. Skymasterflugvélanna i þjón- ; ustu Loftleiða, sem hófst með> fyrsta áætlunarlugi Iieklu tiJ: Kaupmannahafnar 17. júní 1947' Dagskrá Sameinaðs Alþingis miðvikudaginn 25. jan. 1961, kl. m> miðdegis: 1. Fyrirspurnir: a. Framlag frá Bandaríkj. b. Lán til framkvæmda. c. Lán frá Bandaríkjunum. 2. Vaxtakjör atvinnuveganna, þáltill. Hvernig ræða skuli. 3. Ákvæðisvinna, þáltill. — Hvernig ræða skuli. 4. Varnir gegn landspjöllum af völdum Dyrhólaóss, — þáltill. Frh. einnar umr. (Atkvgr. um ‘nefnd). 5. Veiði og' verkun steinbíts, þáltill. Frh. einnar umr. (Atkvgr. um nefnd). 6. Endurskoðun laga um vegi, þáltill. Frh. einnar umr. (Atkvgr. um nefnd). 7. Utanríkisráðuneyti íslands og fulltrúar þess erlendis, þáltill. Frh. einnar umr. (Atkvgr. um nefnd). 8. Byggingarsjóðir, þáltill. — Ein umr. 9. Jafnvægi í byggð landsins, þáltill. Ein umr. 10. Iðnrekstur, þáltill. Ein umr. 11. Rannsókn fiskverð,s, þáltill. Ein umr. 12. Leiðbeiningastarfsemi i nið- ursuðuiðnaði, þáltill. Ein umr. 13. Rannsókn á magni smásíld- ar, þáltill. Ein umr. 14. Reiðvegir, þáltill. Ein umr. 15. Radíóviti á Sauðanesi, þál.- till. Ein umr. j 16. Skattar námsmanna og bæt ur samkv. almannatrygg- ingalögum, þáltill. Ein umr. 17. Sjálfvirlc.simstöð í Borgar- nesi-, þáltill, Ein umr. 18. Rafvæðing Norðaustur- lands, þáltill. Ein.umr. Hammarskjöld bað um indverskt lið til Kongo. Þrjú ríki hafa krafizt tafarlaust heim- flutnings liðs síks. Mikil fækkun í gæzluliði Sameinuðu bjóðanna ■' Kongó virðist framundan, nema lið fáist í stað þess, scm krafist er að flutt verði burt þaðe.u og það jafnvel fyrir næstu mán- aðamót. Arabíska sambandslýöveldið hefur alveg nýlega endurnýjað kröfu í þessu efni, og nú hafa Marokko og Indonesia einnig ítrekað kröfur sínar um heim- flutning herflokka sinna Ekkert liggur fyrir opinber- lega um hversu Dag Hammar- skjöld hyggst leysa vandann og hefur engin staðtesting íengist á crðrómi um, að hann hafi beðið um indverskt herlið í stað þess, sem burt verður flutt. Þá er engan veginn v'st um undirtektir indversku stjórnar- innar við slíkri beiðni. Á næsta leiti — Hættan á borgarastyrjöld í Kongó er enn á næsta ieiti og mikið rætt um, að allir aðilar leitist við að efla herstvrk sinn, TsiOmhe i Katanga, Mobuto í Leopoldville og Gisenga, sem stjórnar í nafni Lumumba í Stanleyville. Er jafnvel sagt, að Tsjombe sé að stafna útlend- ingahersveit. . ,v .. É : | Vill Lumumba til Lenpoldville. Dag Iiammai'skjöld reynir sem fyrr að beita áhrifum sín- um til þess að aðilar ræðiSt við. Forleikur að því væri, að Lumumba yrði fluttur altur tií. Leopoldville, og hefur D. H. skrifað Kasavúbú og lagt til aðt hann verði fluttur þangaðí þegar. Einnig hefur D. H. skrifacS Gisenga, sem fer með völd í! Stanleyville, og mótmælt ó- mannúðlegri meðferð, sem tvít- ir menn og fleiri hafa orðið aði sæta þar nyrðra. » Krúsév ©g Kennedy — Framh. af 1. siðu. þessum viðræðum opinberlega, Orðrómur hefir þó komizt á. kreik um það í Washington, að Krúsév vilji nú sem fyrr fundt æðstu manna, og að gerðar verði tilraunir til að ná sam- komulagi um almenna afvopn- un svo fljótt sem við verður komið á grundvelli fyrri til- lagna hans. Meðal þeirra, sem sátu fund- inn með Kennedy, voru Dean Rusk utanríkisráðherra, Ches- ter Bowles aðstoðar-utanríkis- ráðherra og George Bundy ráðunautur Kennedys í örygg- ismálum ríkisins. Ennfremur hefir Kennedy rætt við æðstu menn landvarnanna. Talsmaður bandariska utan- ríkisráðuneytisins sagði í gær, áð stefna Bandaríkjastjórnar væri að nota venjulegar diplo- matiskar leiðir til þess að kanna alla möguleika fyrir samkomu- lagi um vandamálin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.