Vísir


Vísir - 04.02.1961, Qupperneq 1

Vísir - 04.02.1961, Qupperneq 1
Sl. árg. IP . Laugardaginn 4. febrúar 1961 29. tbl. Hér á landi eru nú staddir 10 bandarískir háskólastúdentar, frá Colgate College í New York. Munu þeir allir leggja stund á hagfræði, og hafa þeir hér viðdvöl þangað til á morgun, er þeir fara til Noregs, en þar munu þeir hlýða á fyrirlestra í hagfræði í Osló og Bergen, það sem eftir er kennsluársins. Stúdentarnir komu á miðvikudag, og hafa þeir síðan hlýtt á nokkra fyrir- lestra. M.a. hlýddu þeir á dr. Jóhannes Nordal er þeir hehnsóttu Seðlabankann, og þeir Jónas Haralz og Davíð Ólafsson héldu fyrir þá fyrirlestra í húsakynnum Iðnaðarmálastofnunarinnar. Á hádegi í gær snæddu þeir hjá rektor Háskólans, próf. Ármanni Snævar. í dag átti að fara með þá í kynnisferð um nágrennið og sennilega til Krýsuvíkur. Með þeim er á myndinni próf. Stoning, frá sama skóla. Vestmannaeyingar senn kjötlausir en nng af brennivíni og mjólk. Viðskipti í lágmarkí - telst til tíðsnda, komi menn í vefnaðarvörubúð. fPtítjsht'ikn sentlir 99,her- frœöiny** tk staðinn- Ófremdarástand í Vest- mannaeyjum eykst með hverj- «m degi, er líður. í verkalýðs- félaginu er allt við það sarna og engar líkur eru taldar á þvi, að verkfallmu ljúki nú um helgina og má því búast við að enn auk izt á vandræðin. Hefst þannig amiar mánuður verkfallsins. Flutningar á sjó til Eyja liggja allir niðri, nema flutn- ingar á mjólk. Sömuleiðis má fá áfengi flutt í pósti, og er þetta eini flutningurinn sem leyfður er. Hins vegar annast Flugfélag íslands sína vöru- flutninga þá daga sem flogið er, enda eru það aðeins fastir starfsmenn félagsins sem um móttöku varanna sjá. Hins vegar ber nú á þvi að faríð sé að skorta vörur, og er þegar svo komið, að kjötbirgðir Vestmannaeyinga eru að ganga til þurrðar. Afurðasala SÍS hef ur komið sér upp allstórri frystigeymslu, en það segir samt lítið, þegar allir flutning- ar hætta. Mun bærinn verða kjötlaus eftir fáeina daga. Á þeim tímum, er ekki ríkir •verkfall í Eyjum, kemur hátt á annað þúsund manna þangað til starfa um bjargræðistímann. Hefur þetta í för með sér mikla verzlun, auk annarrar athafna- semi í bænum. Nú hefur hins vegar enginn komið, ef frá eru taldir 25 Færeyingar. Það er því ekki aðeins hjá sjósóknur- um og þeim er að fiskvinnslu starfa, sem að þrengir, heldur er nú verzlun öll þar á staðnum. í algeru lágmarki. Hefur frétta ritari Vísis þar á staðnum tjáð blaðinu, að það teljist nú til tíðinda ef maður sjáist inni í vefnaðaryöruverzlun. Önnur kaup, svo sem matarkaup hafa einnig dregizt saman, svo sem sjá má af því, að mjólkursala háiði þegar fyrir nokkru siðan dregizt mjög saman, eða allt til helminga. Dagsbrún mun hafa sent einn af sendimönnum sínum til Vest mannaeyja nú eftir miðbik vik- unnar, Guðmund J. Guðmunds son, og mun hann eiga að stappa stáiinu í verkamenn, og sjá um að þeir slái engu af kröf um sínum, en þær eru 25% kauphækkun. Sfldarbátsr Vestmaina- eyinga allir kallaðir heim Samþykkt ú boöa til verkfalbins meÖ umdeildri atkvæðagreiðslu. Er Vísir hafði tal af fréttarit- ara sínum í Vestmannaeyjum síðdegis í gær, hafði hann þá sögu að segja, að fulltrúaráð Vélstjóra þar á staðniun hefði með mjög umdeildri atkvæða- greiðslu samþykkt samúðai— verkfall. Munu því allir síldar- bátar Vestmannaeyinga, sem að undanförnu hafa verið við Faxa flóa, 6 talsins, verða kallaðir heim, og má segja, að þar með séu sjósóknurum •' Vestmanna- eyjum allar bjargir bannaðar. Atkvæðagreiðslan fór fram á Léðað á míkta síid í Eyjafirði. Frá fréttaritara Vísis, Akureyri í gær. í fyrradag var lóðað á miklar síldartorfur í Akureyrarpolli og Eyjafirði, en síldin stóð svo djúpt að ekki tókst að kasta á hana. Samkvæmt lóðningunni voru þessar torfur 10 faðma þykkar og mörg hundruð faðmar á lengd. Tveir bátar hafa stundað síld veiði á Akureyrarpolli að und- anförnu, Garðar og Björgvin og hafa í febrúarmánuði fengið 700 mál síldar samanlagt, Togarinn Sléttbakur kom í morgun til Akureyrar með um 80 lestir fiskjar, mest þorsk. Fóru um 60 lestir í frystingu, en hitt í skreið. Fleiri togarar eru væntanlegir um og eftir helgina. fundi hjá fulltrúaráðinu, og voru þar mættir 9 menn. Var samþykkt með 6 atkvæðum gegn 2 að boða til samúðai-verk falls. Einn sat hjá. Hins vegar mælir svo fyrir í lögum um verkfallsboðun, að til þurfi að koma % hlutar atkvæða, og er greinilegt, að þarna hafa verið fundin upp ný stærðfræðileg. rök. Munu þeir sem að samþykkt- inni stóðu ekki telja að taka þurfi til greina 9. manninn á fundinum, þar eð hann hafi setið hjá. Þannig fær samþykkt in % atkvæða. Hvort slíkt telst löglega að farið, skal ekki lagð- ur frekari dómur á hér Janúar hlýr. Samkvæmt upplýsingmn, sem Vísir féltk hjá Veðurstof unni í gær var jamiarmán- tiður fremur hlýr. Meðalhiti í Reykjavík var 1.6 stig, en í meðal árferði er hann 0.6 stig. Úrkoman var 82 mm og er það nálægt meðallagi, Kald- ast var hér í Reykjavík — 9.6 stig, en heitast 8.3. Sól- skin var í 39 klst. Á Akureyri var meðalhit- inn 0.0 stig, en í meðal ár- ferði er hann 2.5 stig. Úrkoma var þar 58 mm og er það nokkru meira en í meðal árferði (42 mm). Mestu kornkaup sögunnar vegna haílæris í Kína. Þviugunarfyrlrkomulag kommúnista á sviði landbúitaðar leiðir til samdráttar. Alþýðustjórnin kínverska hefur samið við stjórnina í Kanada uni kaup á korni fyrir um 21 milljón sterlingspunda. Er hér um að ræða kaup á ýmsum korntegundum, aðallega hveiti og byggi. Þetta munu vera einhver mestu, ef ekki mestu viðskipti sem erlent ríki hefur gert við Kanada með einum og sömu samningum. Kornmagn það, sem samningarnir gera ráð fyr- ir, er um % milljón lesta. Áður hafði kommúnista- stjórnin kínverska samið um kaup á álíka magni hveitis í Ástralíu, — hálfri milljón lesta — fyrir svipaða upphæð. Hafa kínverskir kommún- istar því orðið áð kaupa eina milljón lesta af korni í tveimur ofannefndum. lönd- um fyrir upphæð, sem svar- ar til lja milljóna sterlings- pund — eða ca. 4.3 milljarða króna. Það hefur verið mikið skrif- að um það að undanförnu, hvort matvælaskorturinn í r. . .Frh, á 2. síðu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.