Vísir - 21.02.1961, Side 4
4
VISIR
Þriðjudaginn 21. febrúar 1961
Kommúnistar á Kúbu búa sig undir að ná
tökum á byltingu Fidel Castros.
Kommúnistum á Kúbu hefir
stundum verið líkt við þjóf, er
gert hefir bándalag við þjóninn
í húsi, sem hann ætlar að brjót-
ast inn í: allar dyr eru ólæstar,
en hann verður þó að fara að
öllu með gát til þess að vekja
ekki heimafólk.
Valdamestu mennirir í
stjórn Castros — Raul Castro,
„Che“ Guevara og fleiri —
hafa op.nað kommúnistum leið-
ina í áhrifamikið embætti.
Kommúnistar taka því fegins
hendi, en vilja engu að síður
fara sér hægt. Þeim er ljóst, að
aðeins örlítið brot landsmanna,
sem eru hálf sjöunda milljón,
styður kommúnista, og kjósa
þeir því heldur að hafa lágt
um sig, þar til þeir hafa náð
öruggu taki á stjórnartaumun-
um. Fyrst um sinn munu
kommúnistar á Kúbu því haga
undirróðri sínum á sama hátt
og kommúnistar í lýðræðis-
löndum.
Kúbanski kommúnistaflokk-
urinn eða „PSP“ (Partido
Sociaiista Popular) var stofn-
aður árið 1925. Hann var gerð-
ur útlægur árið 1953 og eftir
það var starfsemi hans leynileg.
Þegar séð var fyrir sigur
Castros í borgarstyrjöldinni
gengu kommúnistar í lið með
honum.
Þar eð Castro lítur ekki á
„26. júlí“-hreyfinguna sína
sem pólitískan flokk, er PSP
raunverulega eini stjórnmála-
flokkurinn, sem nú hefir leyfi
Kúbustjórnar til að starfa þar
í landi. Félagar í flokknum eru
aðeins 17 þúsund, en vegna sér-
stöðu flokksins er hann miklu
áhrifameiri en stærð hans gefur
í skyn. í æskulýðsfylkingu
kommúnista — Juventud So-
cialista — eru auk þess rúm-
lega 13 þúsund ungir menn,
sem eiga að verða herskár
kjarni flokksins.
Starfsemi flokksforustunnar
er skipulögð samkvæmt hinni
„kúbönsku leið kommúnisma“
eins og það er orðað. Aðalritari
flokksins, Blas Roca, skýrði svo
frá stefnu hans árið 1939:
„Byltingin á Kúbu á sér ekkert i
fordæmi í sögunni, þótt fram-
vinda hennar öll staðfesti
kenningar Marx og Leníns ....
Það er nauðsynlegt ------- að
halda þannig á málum að valda-
taka kommúnismans, strax og
innri og ytri aðstæður leyfa,
geti orðið sem auðveldust, en
gæta þess jafnframt að fara
ekki út fyrir ramma byltingar-
innar né breyta eðli hennar.“
'Undirróðursstarfsemi PSP á
Kúbu nær til allra þátta þjóð-
félagsins. í stjórnartíð Castros
og -félaga hans hafa kúbanskir
koinmúnistar fengið áhrfamikil
embætti í ráðuneytum og mik-
ilvægum ríkisstofnunum, hjá
liernum, inhan samtaka verka-
manna og við blöð og útvarp.
Jafnframt er stefnt að því
markvisst að víkja andkomm-
únistum úr valdastöðum og
skipa í þeirra stað flokks-
bundna kommúista eða stuðn-
ángsmenn þeirra.
í ráðuneytunum
verður þessi undirróðursstarf-
semi ljósari með degi hverjum.
Menntamálaráðuneytið sendir
frá sér flóð af ritum um kenn-
ingar kommúnismans og lætur
endursemja kennslubækur fyrir
barnaskóla og framhaldsskóla
„í anda byltingarinnar“ þ. e.
fraéddir í kenningum kommún-
ismans.
Þá hefir dómsmálaráðuneytið
nýlega skipað fjölda flokks-
bundinna kommúnista til að
fara með mál fyrir dómstólum
landsins. Einnig er vitað, að
dómsmálaráðherrann Yabur
tekur mikið tillit til ráðgjafa
Rlas Roca, aðalritari kúbanska kommúnistaflokksins, hefur
tjáð undirmönnum sínum að leiðin til hins „kúbanska kommún-
isma“ sé fólgin í því að öðlast ítök í veldi Castros, án þess að
mikið beri á.
í anda Marx. Með veitingu1 sinna, en meðal þeirra eru
nokkrir stuðningsmenn komm-
únista.
námsstyrkja hefir það ennfrem-
ur stuðlað að því, að sem flestir
róttækir stúdentar stundi nám
í háskólum landsins og í marg-
ar mennta- og listastofnanir
aðrar hefir kommúnisminn
haldið innreið sína.
Um áhrif kommúnista í ut-
anríkisráðuneytinu má glöggt
dæma af þeim fjölda a'ndkomm-
únista, er sögðu upp sförfum
við utanríkisþjónustuna á sl.
ári. Fyrrverandi sendiherrar,
eins og t. d. Eric Ag'uero Mon-1
toro, sem var sendiherra Kúbu
í Bonn, hafa staðhæft umbúða-
laust, að verið sé ,,að stofna
kommúnistaríki á Kúbu“. Við
serídiherrastöðum, er þannig
losna, taka menn, sem eru
hlynntir kommúnistum, eins og
José Antonio Pourtuando, sem
nú er sendiherra Kúbu í
Mexíkó. Auk þess hefir komið
á daginn, að mai'gir kommún-
istar eru meðal þeirra, er gegna
minni háttar störfum við kúb-
önsk sendiráð. Ekki alls fyrir
löngu skipaði utanríkisráðu-
neytið nefnd manna til að hafa
eftirlit með starfsmönnum kúb-
anskra sendiráða, og er talið, að
þessir „eftirlitsmenn“ séu upp-
Meðal ríkisstofnana,
sem kommunistar hafa náð tök-
um á, er INRA, landbúnaðar-
stofnun ríkisins. Hún starfar
samkvæmt lögum um umbætur
á sviði landbúnaðar, en þau
lög eru í fullu samræmi við
stefnu kúbanska kommúnista-
flokksins um eignarnám.
Stjórn INRA skipa 35 menn
undir forustu hins rauðlitaða
Antonio Nunz Jimenez; þar af
eru að minnsta kosti 6 komm-
únistar. Auk þess gegna miklu
fleiri PSP-félagar veigaminni
stöðum innan stofnunarinnar.
INRA hefur þegar komið á
samvinnubúskap, er svipar
mjög til sovésku samyrkjubú-
anna. Auk þess hefur stofnunin
látið opna ríkisverzlanir í sveit-
unum, hinar svokölluðu „al-
þýðuverzlanir“, og innan tiðar
verða slíkar verzlanir einnig
reknar í borgum landsins. Þeg-
ar hafa verið gerðar áætlanir
um það innan INRA að sam-
eina iðnað í landinu og landbún-
að undir stjórn ríkisins, strax og
kringumstæður leyfa.
Annari ríkisstofnun, þjóð-
banka Kúbu, hefur verið lýst
sem
Bankastjóri hans, „Che“ Gue-
vara, var fyrstur til að lýsa
stefnu Castrostjórnarinnar
með þessum orðum: „að vera
andvígur kommúnismanum er
að vera andvígur byltingunni".
Herinn
er þó sá vettvangur, þar sem
kommúnistum hefur tekizt
einna bezt að koma sínu fram.
Raul Castro, yfirmaður hersins,
er hliðhollur kommúnistum og
hefur árum saman unnið að
æskulýðsstarfsemi á vegum
kommúnista. Meðal háttsettra
herforingja eru yfir 50 þekktir
kommúnistar; má t. d. nefna
Ramiro Vlades, er stjórnar
njósnastarfsemi hersins. Mikil
áherzla er lögð á að fræða her-
inn um stjómmál. Þá fræðslu
annazt kennaralið, sem er hlið-
hollt kommúnistum, og í þeim
bókum, sem notaðar eru við
kennsluna, gætir marxískra á-
hrifa. Bæði í hernum og hinum
nýstofnaða „alþýðuher“ taka
hermennirnir þátt í sellustarf-
esmi kommúnista.
Innan samtaka verkamanna
hefur kommúnistum tekizt
að ná talsverðum völdum.
Vinstrimenn undir forustu Jes-
us Soto hafa skipulagt hreinsan-
ir í verkalýðssambandi lands-
ins, og hefur mörgum lýðræðis-
sinnum verið vikið úr samband-
inu. í október 1959 beittu
kommúnistar áhrifum sínum til
þess að láta reka verkalýðs-
málaráðherrann Manuel Fern-
andez, og skipa í hans stað Aug-
usto Martinez Sanchez, sem
naut stuðnings flokksins.
Kúbönsk. verkalýðsfélög eru
nú ekki lengur aðilar að al-
þjóðasambandi frjálsra verka-
manna en hinum kommúnist-
isku verkalýsfélögum á Kúbu
hafa verið settar nefndir, sem
eiga að sjá um frekari „hreins-
un‘ innan þeirra.
í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi
má einnig finna sterk komm-
únísk áhrif. Málgagn kommún-
istaflokksins, HOY, var áður
bannað, en er Castro tók við
völdum, var útgáfa þess hafin á
ný, og kemur það nú út í 20.000
eintökum alla vikudaga og yfir
40.000 eintökum á sunnudögum.
Blaðið birtir að jafnaði heil-
Dr. Eric Aguero Moutoro sagði
af sér sem ambassadov Kúba í
V.-Þýzkalandi : mótmælaskyni
við utanríkisstefnu 'astros.
síðugreinar sem lofsyngja Sov-
étríkin og Rauða Kína, auk
daglegra frétta sem eru litaðar
kommúnisma. Æskulýðsfylking
kommúnista, Juventud Social-
(ista, gefur út tímaritið . Mella“,
! sem kemur út hálfsmánaðarlega
og hefur 30 þúsund áskrifend-
ur. Loks gefur flokkurinn sjálf-
ur út mánaðarrit, „Funda-
mentos“, sem ætlað er mennta-
mönnum innan flokksins.
Þá hafa kommúnistar mikil
ítök í fréttablaðinu Revolucion
í Havanna, málgagni stjórnar-
innar. Ritstjóri þess, Carlo
Franqui, var áður blaðamaður
við HOY, enda fylgir blaðið
dyggilega Moskvulínunni.
Fréttastofan Prensa Latina
nýtur stunings frá stjórninni, er
styrkir hana með ríflegum fjár-
framlögum, sem talin eru kom-
in frá Sovétríkjunum og
Rauða Kína. Fréttastofa þessi
annast erlenda fréttaþjónustu,
og blöð í Suður-Ameríku hafa
jafnan gagnrýnt hana fyrir ó-
skammfeilinn kommúnistaáróð-
ur.
Kenningar Marx kveða nú.
við í útvarps- og sjónvarps-
stöðvum stjórnarinnar, og
annast flokkurinn sjálfur suma
dagskrárþættina. Fyrir kvik-
myndaiðnaði Kúbu stendur
Thomas Gutierrez Alea, er áður
stjórnaði æskulýðshreyfingu
! kommúnista. Hann hefur feng-
ið gamla flokksbræður sína sér
: til aðstoðar við að móta kvik-
Frh. á 11. síðu.
Ernesto „Che“ Guevara, liefur orð á sér fyrir það að vera sá
bankastjóri heims sem minnst lætur sér annt um klæðnað sinn
og útlit. Hér sést hann milli Castros og Anastan Mikoyan, er
sá síðastnefudi fór í heimsókn til Kúba, en það var í febrúar 1960.