Vísir - 08.05.1961, Page 9

Vísir - 08.05.1961, Page 9
'-■JÍAnudafunn 8 maí VlSlB 9 Ferðafélagið Útsýn gengst að vanda fyrir hópferðum til ým- issa Evrópulanda í sumar. Auk ferða, sem skipulagðar eru fyrir ákveðna hópa, verða þrjár almennar hópferðir á mismunandi leiðum um siö lönd álfunnar. Þetta er sjöunda starfsár fé- lagsins, og hafa ferðir. þess notið mikils trausts og vín- sælda, sem bezt má márka af því, að margir hafa tekið þátt í 2—3 ferðum félagsins á þess- um tíma. Vel skipulagðar hópferðir, þar sem ferðamaðurinn fær hvers konar fyrirgreiðslu bg þjónustu án þess að frélsi hans sé í nokkru skert, en fyrir miklu lægra verð en hann yrði að greiða, ef hann færi á eig- in spýtur, er svar nútímans við auknum ferðamannastraumi og hækkuðum ferðakostnaði. Ferðafélagið Útsýn heíur náð hagkvæmum og traústum sam- böndum við gisti- og-mátsölu- staði í ferðum sínum, og'er verð ferðanna því nær óbreytt frá fyrra ári. liöngun fólks til að ferðast og fræðast, sjá sig um í heiminum og skemmta sér virðist ekki minnka, og svo virðist, sem æ fleiri kunni að notfæra sér þau hlunnjndi, sem' góð hópferð veitir, því að nú er nærri upppantað - í sumai- ferðir Útsýnar, en þær eru þessar: I. Edinborg — Lohdon 12 dagar: 24. júní—5. júlí. Siglt verður með Gullfossi milli landa og dvalizt viku- tíma í Bretlandi. Frá Édinborg verður ekið suður um Skotland og gegnum hið fagra Lake Di- strick í Norður-Englandi, gist í Buxton, en ferðinni haldið áfram næsta dag um fæðingar- borg Shakespeares, Stratford- on-AVon, háskólaborgina Ox- ford og Windsor til London. Þar verður gist í ágætu hóteli í hjarta heimsborgarinnar, við Piccadilly Circus, í 4 daga, far- ið í kynnisferðir um borgina undir leiðsögn íslenzks farar- stjóra, á skemmtistaði og í verzlanir, en verzlanirnar við Oxford Street og Regent Street þykja mjöög freistandi. Á heim- leiðinni verður dvalizt einn dag í Edinborg, en síðan siglt heim með Gullfossi. í hópferðum sem þessri er jafnan haldið uppi gleðskap á skipinu með dansi, söng og myndasýningum. Hér' er um mjög ódýra ferð að ræða, eða frá rúmum sex þústund krónum að meðtöldum ferðum og fullu uppihaldi. II. Kaupm.höfn — Hamborg — Rínarlönd — Sviss — París 25 dagar: 5.—29. ágúst. Siglt verður með Gullfossi til Leith og Kaupmannahafnar, dvalizt 3 daga í Höfn, en síðan ferðazt um meginlandið í dönsk um langferðavagni af nýjustu gerð. Gist verður 2 nætur í Hamborg, en síðan haldið suð- ur í Rínarlönd og stanzað á mörgum fegurstu stöðum við ána Rín, þar sem vínviðurinn teygir sig upp um hlíðar en fornir riddarakastalar gnæfa við himin. Siglt verður eftir ánni frá Loreleiklettinum upp1 til hins fræga vínþorps, Rúdes- heim. Þaðan verður haldið til Heid- elberg, hinnar glaðværu há- skólaborgar og dvalizt þar einn dag. Síðan verður ekið suður um Svartaskóg, hina yndisfögru leið um Freuden- stadt og Triberg, skoðaðir Schaffhausenfossarnir í Rín, stærstu fossar Evrópu, og hald- ið til Zúrich í Sviss. Sviss er enn sem fyrr eitt eftirsóttasta ferðamannaland álfunnar sakir frábærrar fegurðar landsins og ágærar þjónustu við ferða- menn. Dvalizt verður viku í Sviss og komið á marga feg- urstu staði landsins, 's. s. til Luzern, Vierwáldstattervatns, Interlaken, Bern, Lausanne og Genf. Frá Genf verður ekið um Frakkland- til Parísar og gist Suðræn stemning. Þátttakendur í Útsýnarferð í hópi innfæddra á Capri. þar í 4 nætur. Skoðaðar verða merkustu byggingar borgar- innar, heimsótt listasöfn og skemmtistaðir og farið til Ver- sala. Heim verður haldið flug- leiðis hinn 29. ágúst, én þeir, sem óska, geta orðið eftir í París eða London og komið heim með annarri ferð. III. Ítalía og Riviera Frakklands. 22 dagar: 8.—29. sept. Fyrsta Ítalíuferð Útsýnar var farin í september í fyrra ,og og var hún mjög rómuð af þátttakendum. Ferðin í ár er með svipuðu sniði og veitir á- gætt tækifæri til að kynnast þessu fagra landi á bezta árs- tíma, fegurð þ^ss, sögu, list- um, þjóðíifi og menningu. Ferð- azt verður með flugvél frá Reykjavík um London til Mil- anó, en um Ítalíu verður ferð- azt í nýtízku langferðavagni, fyrst til vatnanna á Norður- Ítalíu, sem rómuð eru fyrir feg- urð, síðan til Feneyja, Flórens og Rómar. Stanzað verður 4 daga í Rómaborg, en síðan haldið til Napóli, Pompei, Am- alfi, Sorrento og Capri. Einnig verður stanzað á hinum fræga baðstað Viareggio og í Gen- úa. Að lokum verður ekið eft- ir Rivierunni um San Remo og Monte Carlo til Nice og dvalizt þar í þrjá daga, áður en haldið er heim flugleiðis. Þátttakendur geta þó orðið eft- ir í Nice eða London, ef óskað er. Skrifstofa Ferðafélagsins Út- sýnar í Nýja Bíói er að jafnaði aðeins opin milli kl. 5—7 síð- degis, en til að auðvelda af- greiðslu verður opið frá kl. 2— 7e. h. þessa viku. Sigur eftir fáein ár, seflir Kgosana. Sntriir samemust gegn steínn 1 rerwœr.dsm Philip Kgosana, 22ja ára ieið- ber vileysa, að hreyfingin hafi togi afrískra þjóðernissinna í nckkurt tengsl við kommún- Suður-Afríku, sem komst það- ista. an á flótta, eftir að hann stjórn Hreyfingin neínisl >)The aði göngu 30.000 manna í Höfða South African National Front“. borg til þess að mótmæla níð- Samfyiking þjóðernissinna í ingsverkunum í Sharpville, Suður_Afríku, og er hún studd er kominn til London og ræðis af öiium helztu þjóðernislegum þar við aðra útlæga Afríku-leið ^ fe]ögum { S.-A. og nýtur fjár- stjcm dr. Verwoerds. hagslegs stuðnings frá flestum Kgosana telur sig hafa fullan Afríkulöndum, sem á síðari stuðning Nyerere, aðalráðherra tíma hafa fengið sijálfstæði sitt Tanganyika, sem hann ræddi viðurkennt. við fyrir sköömmu, .og Nkrumah forseta og forsætisráðherra Ghana. — Kgosana hyggst fara í fyrirlestraferð urn Bretland o Bandaríkin. | Áform eru á adöfinni um stofnun „frjálsrar Suður-Afr- íku,“ en engar ákvarðanir tekn- ar enn. Sagt er, að félög í Kairo, sem njóta stuðnings kommúnista séu hlynt hugmyndinni um myndunslíkrar sjórnar, en Kgosana segir, að það sé hel- jtttatnáTj KONA, sem hefur ráð á íbúð óskar að kynnast ein- hleypum manni í góðri at- vinnu á aldri 50—60 ára með sambúð í huga. Dreng- skaparheit viðlögð. Þag- mælsku heitið. Tilboð berist blaðinu fyrir 14. þ. m., — merkt: ..Góð sambúð“. (350 Sprengilcgir ræðarar, dökkir af sól og sjávarlofti, róa gondólum sínum fimlega eftir síkjunum í I'eneyjum, sem spegla forna auðlegð borgarinnar í fleti sínum. apað-Jufb Frá jréttaritara Vísis. Bolungavík í gœr. Sl. sunnudag var jrumsýning á Gullna hiliSinu ejtir Davíð Ste- jánsson í Félagsheimilinu hér, á vegum Kvenfélagsins Brautin og Ungmennafélags Bolunga- víkur. Leikstjóri var Gunnar Ro- bertsson Hansen. Aðalhlutverk- in, Kerlinguna og Jón bónda hennar, léku Þau Ósk Guð- mundsdóttir og Sigurður E. ' Friðriksson, og skiluðu þau hlutverkunum með mikilli prýði. Húsið var þéttskipað á- horfendum, sem klöppuðu leik- urum óspart lof í lófa. Leikrit- ið verður sýnt á ísafirði, og einnig er ráðgert að hafa sýn- ingar á Súgandafirði, Flateyri og Þingeyri. Næsta verkefni félaganna er Gestur til miðdegisverðar, eftir Kaufman, og mun Gunnar Han- sen einnig setja það á svið. — Finnur. Fírmakeppnf Bridge- sambandsins. Fyrsta umferð í Firmakeppnl Bridgesambands íslands fór fram í Skáíahcimilinu við Snorrabraut sl. fimmtudag. í efsta sæti er Silli & Valdi með 120 stig, spilari Guðráður Guð- mundsdóttir, í öðru sæti Prjóna stofan Malín með 114 stig, spil- ari Guðmundur Ó. Guðmunífs- son, í þriðja sæti S. Á.na n & Co., með 113 stig, spilari ier dís Brynjólfsdóttir. Nöl’ti og stig 20 efstu fyrirtækjanna fara hér á eftir: stig Silli & Valdi ........... 120 Prjónastofan Malín .... 114 S. Árnason & Co........... 113 Sparisj. Rvikur og nágr. 111 Ora h.f................... 110 . Víkingsprent h.f........ 110 Efnagerðin Valur ......... 109 Kr. Kristjánsson h.f. .... 108 Álafoss h.f., klæðaverksm. 107 Record .................. 107 Benedikt frá Vallá...... 106 Búnaðarbanki íslands .. 106 Einar J. Skúlason....... 106 Fálkinn, h.f.............. 106 Gefjun—Iðunn ............. 106 Ljómi h.f................. 106 Iðnaðarbanki fslands h.f. 104 Meiður, húsgagnavinnust. 104 Trygging h.f.............. 104 Happdrætti Háskóla fsl. .. 103 Næsta umferð verður spiluð í Skátaheimilinu við Snorrg- braut í kvöld, mánudag, kl. 20. Johan Rönning h.f Raflagnir og viðeerðir á öllum heimilistækjum. — Fljót og vönduð vinna. Sími 14320. Johan Rönning h.f. SKÓLASTÚLKA tapaði handavinnupolca, sem í var telpukjóll og pyesa sh föstu- dag. Skilvís finnandi láti j vita í síma 14239 eða Þórs- götu 10, miðhséð. (391 TAPAZT hefur grábrönd- óttur högni með svartar rák- ir á baki. Sími 24704. (398 HPINGUNUM. CtigtttþóW SuiJtairfuFÚ 4 Málflutningsskrifstofa Páll S. Pájsson, hrl. Bankastræti 7. sími 24-206 Nær!atna5ur karlmanna «g drcngja fyrirliggjandl. L H. MULLER „Gullna hm" í Bolungavík.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.