Vísir - 17.05.1961, Qupperneq 4
4
VÍSIR
Miðvikudaginn 17. ,inai .19.61
Sumarstarf þjóðkirkjunnar.
Sumarbúöir
KóSnandi veðmr á Akureyri.
Unnið er hvarvetna að vega-
viðgerðum norðanlands.
Vmnubúðir. -
Árið 1954 hófst starf á
Löngumýri í Skagafirði, sem
nefnt hefur verið sumarbúða-
starf þjóðkirkjunnar. Upphaf
þess má rekja til frk. Ingi-
bjargar Jóhannesdóttur, skóla-
stjóra, sem vildi leggja fram
húsakynni og land fyrir þessa
starfsemi í þeirri von og trú,
að hún mætti verða íslenzkum
ungmennum til góðs. Þjóðkirkj
an studdi frk. Ingibjörgu og
lagði í fyrstu til sarfslið, en
hefur nú síðustu ár annast um-
sjón og stjórn sumarbúðanna.
Hefur almenn ánægja ríkt með
al þátttakenda, aðsókn verið
meiri en hægt hefur verið að
sinna og margir sumargestir
komið ár eftir ár.
Sumarbúðastarfið á Löngu-
mýri hefst að þessu sinni 20.
júní og eru flokkarnir fjórir,
tveir drengjaflokkar 20. júní
til 3. júlí og 5. júlí til 18. júlí
og tveir telpuflokkar 22. júli
til 4. ágúst og 7. ágúst til 20. á-
gúst.. Er lágmarksaldur barn-
anna 7 ár. Sumarbúðastjóri
verður síra Jón Kr. ísfeld, sem
hefur haft mjög mikið og far-
sælt barnastarf í prestakalli
sínu, sem hann hefur þjónað
fram að þessu, Bíldudal. Mun
hann einnig njóta aðstoðar
presta, sem munu skiptast á
um að dvelja í sumarbúðunum.
Mun hver dagur hefjast með
morgunbænum strax 'á eftir
fánahyllingu, en auk þess verð-
ur börnunum leiðbenit og
kennt, og myndir notaðar til að
gera fræðsluna meira lifandi.
Þá verða kvikmyndasýningar
tvisvar í viku, mikill söngur og
föndur ýmiskonar. — Knatt-
spyrna, handbolti og sund iðk-
að og farið í gönguferðir og
stutt ferðalög um hinn fagra
Skagafjörð. Þátttökutilkynn-
ingum verður veitt móttaka á
Biskupsskrifstofu, síma 15015
og hjá Æskulýðsráði Reykja-
víkur kl. 2—4 daglega, sími
15937. Dvalarkostnaður er 700
krónur fyrir hvert tímabil.
Fermingarbarnamót.
Víða um land verða ferming-
arbarnamót haldin aðra helgi
í júní. Koma þá prestar saman
með fermingarbörn sín frá vor
inu og margt gert til uppbygg-
ingar og skemmtunar. Ákveð-
ið umræðuefni er á þessum
mótum og nú verður talað um
kirkjuna, hlutdeild æskufólks-
ins í henni, þátttöku þess í
starfi hennar og þjónustu. Á
laugardagskvöldið verður
kvöldvaka, en messað á sunnu-
dagsmorgni.
Vinnubúðir.
16. júní hefjast vinnubúðir
að Görðum á. Álftanesi. Mun þá
hópur innlendra og erlendra
æskumanna og kvenna hefjast
handa við að endurreisa Garða
kirkju. Þann 7. júlí kemur svo
20 manna hópur, skozkra
stúlkna og pilta og heldur að
Fermingarbarnamót.
■ Kynnisferð.
Núpi í Dýrafrð, þar sem máln-
ingarpenslar og trjáplöntur
bíða þeirra. Mun hvorar vinnu-
búðir standa í þrjár vikur og
eru allar nánari upplýsingar
gefnar af síra Braga Friðriks-
syni. framkv.stjóra Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur og síra Olafi
Skúlasyni, æskulýðsfulltrúa
þjóðkirkjunnar, Biskupsstofu,
ættu þau ungmenni sem áhuga
hafa á þátttöku í vinnubúðun-
um að hafa samband við þá
sem allra fyrst.
Kynnisferð.
Seinast í júlí mun níu manna
hópur halda til Bandaríkjanna
til ársdvalar á heimilum þar.
Fer þessi æskumannahópur
vestur á vegum þjóðkirkjunn-
ar en í boði bandárískra kirkju
deilda, og munu þau fyrst
dvelja í New York, en fara svo
sitt í hverja áttina: til Pennsyl
vania, Wisconsin, Ohio, Ore,
gon, Missouri, Nebraska og alla
leið til Hawaii. Munu þau
stunda nám í skólum og kynn-
ast amerísku kirkjulífi.
Um sama leyti koma hingað
þrjú bandarísk ungmenni og
munu dvelja hér í eitt ár á ís-
lenzkum heimilum í Reykja-
vík, Hafnarfirði og Keflavk.
Er þetta í fyrsta skiptið, sem
slík skipti fara fram á vegum
kirkjunnar, en ætlunin er að
halda þessu starfi og kynning-
um áfram. Ættu þeir, sem á-
huga hafa á því að bjóða heim
amerískum ungmennum eða að
senda íslenzk ungmenni til
Bandaríkjanna, að hafa sam-
band við æskulýðsfulltrúa þjóð
kirkjunnar.
Sjóstangaveiðimótið byrjar í
Vestmannaeyjum þann 7. júní
n.k., og er búist við mjög góðri
þátttöku, bæði hérlendis frá og
frá öðrum löndum.
Eftir því, sem næst verður
komist, munu 70—100 manns
taka þátt í sjóstangaveiðimót-
inu og þar af yfir 50 útlending
ar. Um þátttöku þeirra er þó
dálítið á reiki, því að óvíst er
nema þátttaka Frakka geti
breytzt, og er það að einhverju
leyti undir framvindu Alsír-
málsins komið. Annars koma
margir þátttakendur frá Rvík,
Vestmannaeyjum og Keflavík.
Aðalvandamálið í sambandi
við mótið, er að útvega gestun-
um gistingu og beina, því að
um þetta leyti verður ekkert
hótel starfandi í Eyjum, því að
hótel HB verður lokað um mán
aðamótin. Flestum mun verða
komið fyrir í stökum herbergj-
um víðsvegar um bæinn, en ís-
lendingum og Bandaríkjamönn
um verður fengið húsnæði í
skólum og fiskvinnslustöðvum.
Vegna stutts tíma og fjárhags-
örðugleika var ekki framkvæm
Stúlkurnar sögðu við ljós-
myndarann, sem var á gangi
við tjörnina, að þessi kynni
ekki að sippa. En lesendur sjá,
hvort hún kann það ekki! Hún
gerir það bara betur en margar,
sem við höfum séð.
Búrgíba fagnað
í London.
Búrgíba forseti Túnis kemur
i dag í opinbera heimsókn til
London.
Hún stendur í 4 daga. Hann
situr veizlu Elísabetar drottn-
ingar í Buckinghamhöll og El-
ísabet drottningarmóðir heldur
honum sérstaka veizlu, en hún
var nýlega í opinberri heim-
sókn í Túnis.
anlegt að breyta húsakynnum
í Vinnslustöðinni til þessa, eins
og kom til orða.
Verðlaun verða mörg og góð,
og ef vel veiðist, getur farið
svo að Evrópumeistaraverð-
laun fari til þátttakenda á
þessu móti. Alþjóðasamtök sjó-
stangaveiðimanna gefa gull-
og silfurverðlaun í þessu til-
efni.
Afli jan.-febrúar mmni
en í fyrra.
Komin er út aflaskýrsla
Fiskifélags íslands fyrir fyrstu
tvo mánuði ársins og sýnir liún,
eins og vænta mátti, minni
afla en á sama tíma í fyrra.
Heildaraflinn í febrúarlok
nam aðeins rúmlega 52 þús.
smálestum að þessu sinni, en
varð í fyrra næstum 59 þúsund
lestir af þessu magni í ár (45,3
þús. lestir í fyrra), og togara-
fiskur 11,3 þús. lestir (13,7 þús.
lestir í fyrra).
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Mikil hitabreyting varð hér
á Akureyri í gær,því í gær-
morgun var einhver mesti hiti,
sem komið hefur í vor, 12 stig,
en er á daginn leið snerist til
norðanáttar og í gærkveldi var
aðeins 3 stiga hiti.
Var leiðindaveður á Akureyri
í gærkveldi og hráslagalegt, en
í morgun var hægvíðri og sól-
skin, en hitinn samt ekki nema
5 stig.
Yfirleitt hefur veðráttan ver-
ið köld í vor, og víða hefur hit-
inn komizt niður undir frost-
mark á nóttum upp til sveita
og fjær sjó. Sólskin hefur ver-
Nýtt „hafskipi(
að ári.
5. maí sl. undirrituðu þeir
Gísli Gíslason, stórkaupmaður,
Vestmannaeyjukn, formaður
stjórnar Hafskip h.f. og Sigurð-
ur Njálsson, framkvæmdastjóri
samning um smíði flutninga-
skips hjá skipasmíðastöðinni
D. W. Kremer Sohn, Elmshorn,
Vestur-Þýzkalandi, en skipa-
smíðastöð þessi er að góðu
kunn hér á landi og hefur hún
byggt stálfiskiskip fyrir íslend-
inga auk m.s. „Laxá“, sem Haf-
skip h.f. lét byggja þar og af-
hent var félaginu í desember
1959.
Hið nýja skip verður byggt
sem „shelterdekkskip“ 1025
tonn d.w., sem opið og 1700
tonn d.w., sem lokað. Lestar-
rými þess er áætlað 73000 rúm
fet. Skipið verður búið 1050
hestafla Deutz dieselvél, auk
3 hjálparvéla. Ganghraði er á-
ætlaður 12 sjómílur. Öll ný-
tízku siglingatæki verða í skip-
inu. Áætlað er, að skipið verði
tilbúið í apríl—maí 1962.
EFTIR aðra umferð i Firma-
keppni Bridgesambands ís-
lands, er Trygging hf. í fyrsta
sæti með 225 stig, spilari Ingi
björg Halldórsdóttir, í öðru
sæti Fálkinn hf. með 216 stig,
spilari Aðalheiður Magnúsdótt
ir og í þriðja sæti Rekord með
214 stig, spilari Hallur Símon-
arson Stig 20 efstu fyrirtækj-
anna fara hér á eftir.
Trygging hf. 225; Fálkinn hf.
216; Rekord 214; Sparisjóður
Reykjavíkur og nágr. 213; Ora
hf. 213; Silli & Valdi, verzlun
ið stopult og lítið tekið að
grænka.
Unnið er að vegaviðgerðum
alls staðar í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum þar sem því
verður viðkomið, enda ekki
vanþörf á, því þeir voru -illa
farnir eftir leysingarnar í vor
og flestir ennþá illfærir. Mjólk
er samt flutt á bílum úr öllum
sveitum í og við Eyjafjörð nema
af Svalbarðsströnd og Höfða-
hverfi. Hins vegar er mjólkin
flutt þaðan, svo og úr Fnjóska-
dal á bátum til Akureyrar. —
Öxnadalsheiðin er leyfð jepp-
um, en ekki öðrum bifreiðum.
Vegurinn frá Húsavík til Mý-
vatnssveitar er orðinn sæmi-
legur yfirferðar og þaðan er og
fært orðið alla leið í Möðrudal
á Fjöllum. Annars eru vegir í
Þingeyjarsýslum yfirleitt ill-
færir ennþá.
Menn farast í
jarðgöngum.
Unnið er af kappi við jarð-
göngin undiir Montblanc og
verða þau væntanlega fullgerð
seint á næsta ári eða í ársbyrjun
1963.
Verkið hefir gengið að kalla
slysalaust, en í gær varð samt
fyrsta alvarlega slysið, þegar
sprenging varð fyrr en ætlað
var inni í göngunum, og biðu
þá tveir franskir verkamenn
bana.
ftEandtekinii
í Kenya hefur verið hand-
tekinn maður gf Kykújústofni,
sakaður um morð á hvítri konu.
Var það vegna morðsins á
konu þeirri, sem myrt var fyr-
ir 10—11 dögum, en síðar var
önnur kona myrt, svo sem
fyrr hefur verð getið. — f Rift-
dalnum hafa verið handteknir
69 menn fyrir ýmis smærri af-
brot síðan er útgöngubannið var
sett.
I
209; Kr. Kristjánsson hf. 209;
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
hf 209; S. Árnason & Co. 207;
Útvegsbanki íslands 206;
Prjónastofan Malín 204; Efna-
gerðin Valur 204; Flugfélag ís-
lands hf. 204; Leiftur hf. 204;
Kr. Þorvaldsson & Co. 203; Ak
ur hf, 203; Almennar Trygg-
ingar hf. 203. Álafoss hf.
klæðaverksm. 202; Árni Jóns-
son, heildverzlun 202, Búnaðar
banki íslands 201.
Síðasta umferðin verður
spiluð annað kvöld.
Sjóstangaveiðimótið.
Bridge:
Trygging h.f. efst
og Fálkinn næstur.