Vísir - 17.05.1961, Blaðsíða 11

Vísir - 17.05.1961, Blaðsíða 11
MiBvikudaginn 17. maí 1961 ylsiR 11 Greinésrgerð frá meirihluta kjörnefndar þings L.I.V. Vegna villandi fréttar-í dag- blaSinu Vísi, mánudaginn 8. maí 1961 um þing Landssam- bands íslenzkra verzlunar- manna, sem formaður L.Í.V. 'f<egir í Þjóðviljanum 9. maí sl. að sé rétt, álítum við undirrit- aðir, sem mynduðum meirihluta kjörnefndar 3. þings L.I.V. okkur skylt að skýra frá eftir- farandi: 1. Um kjör varaformanns og stjórnar. Á 3. þingi L.Í.V. varð ágrein- ingur um menn og málefni. Þingkjörinn meirihluti kjör- nefndar gekk frá einróma sam- þykktum tillögum um væntan- legan formann og stjórn L.Í.V. fyrir næsta kjörtímabil, eftir að minnihluti nefndarinnar, undir forystu Sverris Her- mannssonar, íormanns L.Í.V. neitaði að ræða um nokkrar breytingar á stjórn samtakanna með því að ganga af fundi þeg- ar í upphafi fyrsta fundar kjörnefndar. Er nefndin hafði lokið störf- um, var formanni hennar, Guð- mundi H. Garðarssyni, falið að lýsa tillögum kjörnefndar til þingsins, en þær voru sem hér segir: Ingvar N. Pálsson, formaður. Gunnlaugur J. Briem, Einar Birnir, Ásgeir Hallsson, Reyn- ir Eyjólfsson. Varamenn; Árni Ragnarsson, Sigurður Steinsson, Gísli Ein- arsson, Sigurður Óskarsson. Minnihluti nefndarinnar bar síðar á þinginu fram tillögu, flutta af Sverri Hermannssyni, um að Sverrir Hermannsson skyldi vera formaður. Hlaut hann 31 atkvæði við kosningu, en Ingvar N. Pálsson, starfs- maður lífeyrissjóðs verzlunar- manna 27 atkvæði. Einn seðill var auður. í aðalstjórn varð aðeins ein breyting á tillögum meirihluta kjörnefndar við atkvæða- greiðslu. í varastjórn stillti minnihlut- inn (Sv. H.) fram eftirfarandi mönnum: Björgúlfi Sigurðssyni (komm únisti). Örlygur Hálfdánarson (framsóknarmaður). Sigurður Guðmundsson og Gísli Gíslason. 2. Ilverjir hugðnst kljúfa L.Í.V.? Skrif Vísis um klofning L.Í.V. hvað undirritaða áhrær- ir eru algérlega úr lausu lofti gripin, og stangast við staðreynd ir þar sem á þinginu fóru fram lýðræðislegar kosningar í einu og öllu. Undirritaðir vilja benda á rökfærsluskortinn í frásögn biaðsins, þar sem segir: ,,Guðm. H. Garðarsson gerði tilraun til að kljúfa samtökin.“ í þessum orðum felst, að ef tillaga meirihluta kjörnefndar, sem umræddum manni var fal- ið að túlka, hefðu náð fram að ganga, þá leit heimildarmaður (starfsmaður Vísis) svo á, að samtökin væru klofin, en það er ekki unnt að skilja öðruvísi en á þann veg, að stuðnings- menn núverandi formanns (Sv. H.) mundu hafa sagt sig úr samtökunum, þar sem þeir hefðu ekki viljað una þeim úr- slitum að verða í minnihluta. í lýðræðislegum félagssam- tökum telst það ekki ámælisvert þótt gerðar séu tillögur um breytingar á hverjir skipi for- mennsku eða stjórn, jafnvel þótt þeir hafi setið í stjórn frá upphafi. 3. Persónuleg ummæli. Skrif blaðsins um afskipti Þorsteins Péturssonar af málefn um verzlunarmanna eru mjög ómakleg. Þorsteinn Pétursson var einn af aðalhvatamönnum þess, að verzlunarfólk gengi í Alþýðusamband íslands. Á 2. þingi L.Í.V. 1959, var hann framsögumaður um tillögu þess efnis. Hlaut hún samþykki þingsins með yfirgnæfandi meirihluta. 4. V.R. og L.Í.V. Tillaga kom fram á þinginu frá fulltrúum utan af landi um það, að á næsta A.S.Í.-þingi; skyldu fulltrúahlutföll milli V.R. og annara félaga vera 45% 4rá V.R., en 55% utan af landi. í V.R. eru um 70% alls verzlun- arfólks, í L.Í.V., en 30% utan af landi. Tillagan var felld. Um hug verzlunarfólks í Reykjavík til landssamtakanna vísast að öðru leyti til ræðu formonns Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur, Guðmundar H. Garðarssonar, þar sem hann m. a. lýsti því sérstaklega yfir, að reykvískjt verzlunarfólk myndi styðja kosna stjórn L.Í.V. í hagsmunamálm stétt- arinnar. Guðm. H. Garðarsson. Helgi Guðbrandsson. Kristján Ragnarsson. Einar Birnir. Blaðið hefur borið þessa athugasemd undir Sverri Her- mannsson formann Landssam- bands íslenzkra verzlunar- manna. Kvaðst hann ekki kjósa að eiga orðastað um þessi mál á opinberum vettvangi. Hins vegar skorar hann á form. V.R. að gangast fyrir al- mennum félagsfundi um málið. Ilcvkjavíkui'móíið: Fram vann Val, 5:1. Það má segja, að knattspyrn- an setji alltaf svolítinn svip á bæjarbraginn á sumrin. Ungir sem ^aldnir hópast á knatt- spyrnuvellina, og í gærkvöldi var það engin undanteknig, þrátt fyrir hráslagalegt veður, þegar Fram og Valur mættust á Melavellinum. , Leikurinn var þó nokkuð skemmtilegur. Framarar voru mjög hreyfanlegir, og spil þeirra allt fremur létt og leik- andi, en árangurinn af getu þeirra var sigurinn í leiknum. Fyrsta markið gerði Guð- mundur Óskarsson, en þeir virtust vera í sVipaðri aðstöðu að skora hann og Dagbjartur, en sem sagt Guðm. nýtti tæki- færið, eftir að markmaður Vals var kominn út úr markinu. Ekki löngu síðar fá Framarar dæmda aukaspyrnu, rétt utan vítateigs Vals. Guðjón spyrnti þarna laglegum knetti, sem fór beint í stöng, og hrökk boltinn síðan til Grétars, sem skaut í mark. 2:0 fyrir Fram, og lauk þannig hálfleiknum. Þess má geta að hinn þekkti, fyrrum landsliðsmaður, Halldór Hall- dórsson, hóf að leika með Val, en meiddist og varð að yfirgefa völlinn. Þetta hafði þó nokkur áhrif á leik öftustu varnarinn- ar. í byrjun hálfleiks fékk Valur gott marktækifæri, en það var eins og boltinn vildi ekki í mark. Dansaði þá knötturinn við marklínuna, og gott ef ekki, að einn Framari hafi ekki svo mikið við að setjast á knöttinn, en að lokum bjargaði Geir markvörður þessari sóknarlotu Vals. Þriðja mark Fram skor- aði Dagbjartur. Þarna átti Gunnlaugur að hlaupa út á móti, hann hefði ef til vill get- að orðið á undan að knettin- um, áður en Dagbjartur næði að skjóta. Fallegasta og um leið tekniskasta markið skoraði Guðmundur með góðum skalla. Nú kom loks að því að Valur kæmist á blað. Þeir fengu dæma aukaspyrnuna á vítateigs línu, og skoraði Björgvin Dan. beint úr henni. Hefðu Framar- ar ekki átt að geta „lokað“ markinu? Síðasta markið skor- aði svo Guðmundur, en hann lék inn í markið, svo að segja með knöttinn. Valsliðið fann sig ekki, sem skyldi, og var framlínan einum of sundurlaus. Beztir í liði Vals, voru enn sem fyrr Ormar og Árni. Ég held að geta Fram hafi komið svolítið á óvart, því lið Vals er alls ekki lélegt, aftur á móti var lið Fram gott. Beztir af Frömurum voru í framlín- -i unni þeir: Grétar, Dagbjartur og Guðmundur, og í vörninni þeir Rúnar og Birgir, einnig Geir. Það væri ekki úr vegi að fara fram á meira af svona knattspyrnu. stb. Fimm börn biðu bana í elds- voða í borginni Saginaw í Mich- igan-fylki á Iaugardag. Skóggrhögg er mikið í. fylk- inu og þekkist varla, að íbúðar- hús sé smíðuð úr öðru en timbri, sem fuðrar olt upp á skömm- um tíma, eins og í þetta sinn. Móðir barnanna gat bjargað sér og tveim barnanna. Danir líkja eftir oss. Einkaskeyti til Vísis. K.höfn í gær. Landhelgisbrot eru orðin svo tíð við vesturströnd Jót- lands, að til vandræða hefir horft, þar sem eftirlitsskipin tvö, sem þar hafa verið á verði, hafa ekki liaft við að bægja landhelgisbrjótum frá eða færa þá til hafnar. Leiðir þetta til þess, að Danir ætla nú að nota sér rcynslu ann- arra þjóða, m. a. íslendinga, og verður Katalina-flugbátur hafður skipunum til aðstoðar. Vona menn, að hún skjótif veiðiþjófum hæfilegan skelk í bringu. III H VI LDARSTO LLI N N er bezfi hvíldarstóllinn ó heimsmarkadnum. Það má stilla hann í þá stöðu, sem hverjum hontar bezt, en auk þess nota hann sem venjulegan ruggu- stól. 3 + 1 SKÚIASON & JÓN5SON 5F Síðumúla 23 Laugaveg 62 Sími 36>303' Rússar lækka olíuverð til ad mí viðskiptuwn frtk vestrœnuwn tÞlíufélöguwn. Brezk blöð skýra frá því, að það valdi miklum áhyggjum, að Rússar hafa lækkað verð á olíum og benzíni, til hnekkis bandarískum og brezkum olíu- hringum. Eru Rússar þegar búnir að ná fótfestu í ýmsum löndum. í sérstakri skýrslu um þetta, sem birt hefur verið í Wash- ington, segir að Rússar séu að leggja miklar olíuleiðslur, að „mörkum Vestur-Evrópu“, sem eigi að verða fullgerðar 1963, og auk þess séu lagðar æ fleiri olíuleiðslur frá olíulindasvæð- um til olíuútflutningshafna við Eystrasalt og Svartahaf. Jarðolíu selja Rússar á 1 dollar tunnuna við Svartahaf og síauka söluna, enda sams konar olía frá Austurlöndum nær seld á 2 dollara 79 cents tunnan. í skýrslunni segir og: „ísland fær nú nær allt sem það þarfnast af olíum og ben- zíni frá Sovétríkjunum og Finn landi, 95% af því, sem það þarfnast — og samkvæmt ný- gerðum viðskiptasamningum við Danmörku munu Danir kaupa alla olíu, sem þeir þarfn- ast til iðnaðarþarfa, frá Sov- étríkjunum.“ Þannig leggja Rússar undir sig, segir í brezku blaði, öll olíuviðskipti í hverju landinu á fætur öðru, sem áður skiptu eingöngu við félöög, sem starfa með brezku, bandarísku, hol- lenzku og frönsku fjármagni. Eftirlitsnefndin með vopna- hléi í Laos er nú komin þangað. Er hún tekin til starfa. Sendinefndir á Laosráðstefn- una í Genf eru á leið þangað. Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar búa sig undir þátttöku, en Bandaríkjamenn vilja þó staðfestingu á, að raunverulega sé komið á vopnahlé Þeir cru kátir og leika sér eins og rétt er og sjálfsagt mcð stráka á þeirra aldri. Þarna hafa þeir komist í gamalt flugvélaflak og þykjast flúga um loftin blá. Kannskc verða þeir einhverntíma „alvöruflugmenn“ en vonandi verður flugvélin þeirra þá í betra lagi. J

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.