Vísir - 17.05.1961, Blaðsíða 12

Vísir - 17.05.1961, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. — Sími 1-16-60. nrlBiK. Miðvikudaginn 17. maí 1961 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókcypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Sváfu þeir á veríiinum? Kommar komu í stjórnarráðið iöngu eftir brottför Dennisons. Fimm slösuðust í gær. Fjórir þeirra fluttir í sjúkrahús. Róbert L. Dennison, flotafor- ingi, yfirmaður flota Atlants- hafsbandalagsins á N.-Atlants- hafi, kom hingað til lands í gær. Hafði verið skýrt frá því, að hann mundi ræða við íslenzk stjómarvöld í Stjórnarráðinu síðdegis í gær, og gripu komm- únistar tækifærið til að boða til fundar á Lækjartorgi klukk- an sex. Auglýstu þeir af venju- legri rausn í hádegisútvarpinu og hvöttu menn til að taka þátt í „aðgerðunum“ eins og kom- izt var að orði, en útvarpið gleypti vitanlega allt eins og venjulega, þegar kommúnistar þurfa að koma einhverju á framfæri. Nokkur mannfjöldi var á Bæjarbruni - Framh. af 1. síðu. sem flýtti sér allt hvað það mátti að komast út og mátti ekki tæpara standa að mann- björg yrði. Engan heimilis- manna sakaði samt. Innan- stokksmunir brunnu allir inni, en eitthvað lítilsháttar bjarg- aðist af fatnaði sem fólkið greip með sér um leið og það fór út. Meðal þess sem brann var verðmætt gamallt bóka- safn. Bærinn í Stóradal var gamall og reisulegur torfbær með burstum og timburstafni, einn hinn fegursti bær sinnar teg- undar sem enn var í notkuri á Norðurlandi. Brann hann til ösku á um það bil einni klukku stund Fólk af nærliggjandi bæjum sá eldsvoðann og þusti þangað margmenni úr nágrenninu, en fékk ekki aðgert og engu bjargað. Vestangola var á, en annars meinhægt veður. Ekki er vitað um eldsupptök en gizkað á að eldurinn hafi kviknað í eldhúsinu. Sú fregn barst til landsins frá Hamborg í gær, að Jhann Þ. Jósefsson, fyrrum alþingismað- ur og ráðherra, hefði andazt í sjúkrahúi þar í fyrrinótt. Jóhann var áratugum aman landsþekktur athafnamaður og þingmaður. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum 17. júní 1886 og varð því 75 ára á síð- asta ári. Fór hann á sjóinn sem unglingur, enda þekktist ekki annað í Eyjum þá, en sneri sér síðan að útgerð og verzlun. Varð Lækjartorgi í fyllingu tímans, en mest var þar um menn, sem stöldruðu aðeins við af for- vitni á leið heim úr vinnu. Varð fundur kommúnista heldur aumur, og að auki fóru þeir fýluför í st,jórnarráðið með á- lyktunina, sem samin hafði verið fyrirfram í herbúðum við Skólavörðustíg, því að Denni.- son hafði komið fyrr um dag- inn en ráðgert var og farinn fyrir löngu, þegar kommúnistar knúðu dyra. Á Lækjartorgi voru komm- únistar líka minntir á afrek hús bænda þeirra í Ungverjalandi, því að ungverskur fáni blakti þar á stöng. Dennison flotaforingi sat veizlu utanríkisráðherra í ráð- herrabústaðnum við Tjarnar- götu i gærkveldi. Magnús Ástmarsson forstjóri Gutenbergs. Magnús Ástmarsson hefur verið skipaður forstjóri ríkis- prentsmiðjunnar Gutenberg frá 1. júní n.k. að telja. Dóms- og kirjumála- ráðuneytið, 16. maí ‘61. Jóhann Þ. Jósfesson. útvegsmanna í Eyjum og síðan málsvari eyjaskeggja, því að þingmaður þeirra var hann í meira en þriðjung aldar eða frá 1923 til 1959, er hann dró sig í hlé. Jóhann Þ. Jósefsson gegndi fjölmörgurri trúnaðarstörfum, sem hér er eigi unnt að rekja. Hann var tvíkvæntur, fyrst Svanhvíti Ólafsdótur, er and- aðist 1916, en síðari kona hans, Magnea Þórðardóttir, lifir mann sinn. Ágæt afrek í sundi. Sundmeistaramót Reykjavík- ur fór fram í gær og varð á- rangur að sumu leyti ágætur. Ágústa Þorvaldsdóttir setti íslandsmet í 100 m. skriðsundi á 1.05.5 mín., en Karin Grubb frá Svíþjóð sigraði á 1.04.1 mín., sem er jafn Norðurlanda- metinu. Svíinn Roland Sjöverg sigraði í 200 m. skriðsundi karla á 2.41.8 mín., en annar varð Einar Kristinsson, Á, á 2.44,7 mín. í 100 m. baksundi karla setti Guðmundur Gísla- son, K.R. nýtt met á 68 sek. Mótið heldur áfram í kvöld og keppa báðir Svíarnir aftur. Nýlega sendu Bandaríkin mann á ráðstefnu veðurfræð- inga í Ástralíu. Nafn sendi- mannsins var Mr. Rainbird! Akranesi í morgun. Höfrungur landaði 1550 tunn um af síld í nótt og Sigurður 550 tunnum_ Síldin veiddist fyrir utan hafnarmynnið, eða við Þjót og í Sundinu. Það sést héðan af bryggjunni að ein- hver er að háfa hérna fyrir ut- an höfnina. Það var sæmileg veiði í nót. 15 bátar voru úti, en síldin var stygg og erfitt að eiga við Kennedy Bandaríkjaforseti kom í gær til Ottawa ásamt frú sinni í tveggja daga opin- bera heimsókn. Hann sagði við komuna, að hann vonaði, að heimsóknin leiddi til þess, að Kanada veitti aukinn stuðning stefnu Banda- ríkjastj. um efnahagsaðstoð við Suður-Ameríku og til þess að sameiginlegar vai’nir Banda- ríkjanna og Kanada yrðu treystar. John Diefenbaker forsætis- ráðherra fagnaði forsetahjón- unum á flugvellinum. í gær- kvöldi hafði landshöfðinginn boð inni fyrir forsetahjónin og í dag ávarpar Kennedy forseti sameinað þjóðþing Kanada. Ekki hafa enn verið birtar orðsandingar, sem Mahshíkov í gær voru fjórir slasaðir fluttir í sjúkraliús að athugun og bráðabirgðaaðgerð lokinni í slysavarðstofunni. Voru þetta þrjú börn og ein fullorðin kona, er slasast höfðu sitt í hvoru lagi og á ýmsum tímum dags- ins. íranskeisari h Evrópuför. írankeisari heimsækir a. m. k. tvö Evrópulönd í sumar, seg- ir í fregn frá fran. Frakklandsforseti hefir boðið keisaranum og konu hans að koma í opinbera heimsókn, og munu þau fara þaðan til Bret- lands, sem Elisabet drottning hefir boðið þeim að heimsækja. hana, og svo geta þeir ekki kastað á hana hvar sem er vegna þess að hún fer svo nærri landi. Það hefur ekki skeð í manna minnum að veiðst hafi síld svo nærri landi hér. Það hefur að vísu oft orðið vart síldar á grunnslóð og verið sæmileg veiði í reknet en ekkert þessu líkt. ambassador Bandaríkjanna í Washington afhenti Kennedy áður en hann fór. íkveikja á. Akureyri. í fyrrinótt varð elds vart í húsinu nr. 134 við Byggðaveg á Akureyri, en-það er nýtt stein- hús. Hafði kviknað út frá raf- magnstöflu í húsinu og bráðn- aði hún niður og ónýttist, en um frekari útbreiðslu elds'var ekki um að ræða. Reykur varð hinsvegar mjög mikill og er viðbúið að hann hafi orsakað einhve:jar skrmr.-.dir. í gærkveldi, um eða eftir kl. 10 varð slys á Laugateig er drengur, Árni Sveinbjörn Árna son, Laugateig 3, féll af skelli- nöðru og hlaut við það mikið höfuðhögg, áverka og snert af heilahristingi. Drengurinn var fyrst fluttur í slysavarðstofuna, en að rannsóktí þar lokinni fluttur í Landakotsspítala. Með ánnan dreng var lcomið í slysavarðstofuna í gær, sem ekki er vitað um nafn á. Hann hafði einnig hlotið svo mikið höfúðhögg að talið var nauð- synlegt að flytja hann í sjúkra- hús. Þriðja barnið sem hlaut mik- 11 meiðsl var 4 ára gamalt stúlkubarn, Petrína Kristjáns- dóttir, Grenimel 26. Hún varð fyrir bíl á mótum Hofsvalla- götu og Grenimels. Hún meidd- ist illa og brotnaði m. a. á læri. Hún var flutt í sjúkrahús. Þá slasaðist kona, Katrín Bruun, Digranesvegi 48, er hún var að gera hreint. og stóð í gluggakistu á 2. hæð hússins. Datt hún út um gluggann og mun það hafa verið 6—7 metra fall. Hrygjarliðir konunnar brákuðust og liggur hún nú í sjúkrahúsi. Fimmta slysið varð í gær ár Grensásvegi. Þar varð sex ára drengur, Hilmar Kristjánsson, Heiðargerði 64 fyrir bíl og meiddigt óverulega í fæti. ,Nashyiningarnir/ síðasta sýníng. í kvöld verður síðasta sýn- ingin á hinu fræga og umdeilda leikriti Ionesco „Nashyrning- arnir“. S.l. sunnudag skrifaði Kristján Albertsson rithöfund- ur langa ög merkilega grein um þessa sýningu á Nashyrningun- um og getur hann þess að þetta sé ein listfengasta sýning, sem hér hefir sézt í langan tíiria á íslenzku leiksviði. Myndin er af Lárusi Páls- syni í aðalhlutverkinu. Jóhann Þ. Jósefsson, ftjrruin ráöherra. Enn veiðist síld upp við landsteina. Talsverð veiði í nótt. Kennedy forseti ávarpar Kanadaþing í dag. fíoðskapw Krúsóvs til huns óhirtur eitit.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.