Vísir - 17.05.1961, Blaðsíða 9
vTstr
i.W.:r
9
'Miðvilmaagnn 17. mal íWl
ap&ð-fawotið
3 SMEKKLASLYKLAR í
Vorperlukvöld í Laug-
arneskirkju.
keðju töpuðust sl. sunnudag
frá Skaftahlíð niður í mið-
bæ. Skilist á lögreglustöð-
ina. (880
ird'amál\
EINHLEYPUR maður ósk-
ar eftir sambandi við konu,
sem vill giftast. — Tilboð,
merkt: „Drottning,“ leggist
inn á afgr. blaðsins. (857
BIFREIÐAKENNSLA! —
Einnig kennsla undir hið
fræðilega próf. — Guðjón B.
Jónsson. Sími 35046. (312
ÖKUKENNSLA. — Kenni
akstur og meðferð bifreiða.
Uppl. í síma 15708. (416
Samkomur
Kristniboðssambandið. —
Samkoma fellur niður í
kvöld. Munið eftir kristni-
boðssamkomunni í Laugar-
neskirkju annað kvöld. (894
Kristniboðssamkoma í
Laugarneskirkju 18. þ. m.
kl. 8.30. Jóhann Hannesson
prófessor og Ingunn Gísla-
dóttir hjúkrunarkona tala.
Kórsöngur og einsöngur. —
Tekið á móti gjöfum til
kristniboðið í Kongó. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
Krisniboðflokkurinn Vor-
perla. (873
Hreingerning hjá
Búlgariukommum.
Gert er ráð fyrir hreingern-
ingu í kommúnistaflokki Búlg-
iríu innan tíðar.
Mánaðarrit flokksins, Partien
i Shivot (Flokkslíf), segir, að
flokksandstæð öfl hafi gert vart
við sig og sé háttsettir menn í
forustu þeirra, m. a. tveir fyrr-
verandi skæruliðaforingja, Ter-
peév og Panoc, sem reknir voru
úr miðstjórninni 1957.
Hvað er það?
!
Vorið 1952 var stofnaður
kristniboðsflokkur í Laugar-
nessókn, er hlaut nafnið ,,Vor-
perla“, sem er heiti á þeirri
jurt íslenzkri, er fyrst allra
jurta springur út á vorin, og
þekur mela og börð snjóhvítum
blómum sínum.
Þessi kristniboðsflokkur hef
ur undanfarin ár haft kristni-
boðssamkomu í Laugarnes-
kirkju vor hvert, við góða að-
sókn, til ágóða fyrir íslenzka
kristniboðið í Konsó í Suður-
Eþíópíu. En þar rekur Sam-
band íslenzkra kristniboðsfél-
aga blómlegt kristniboð, og hef
ur íslenzka kirkjan þegar eign-
azt þar dótturkirkju, sem er
einn merkasti viðburður í ís-
lenzkri kirkjusögu síðari ára.
Sama árið og Vorperla var
stofnuð, voru fyrstu kristniboð
arnir vígðir og sendir til
Konsó, þau Kristín Guðleifs-
dóttir og Felix Ólafsson, sem
inntu af hendi erfitt en bless-
unarríkt brautryðjendastarf
við frumstæð skilyrði.
Síðan hafa tvenn ung hjón
verið vígð og, send, þau Mar-
grét Hróbjartsdóttir og Bene-
dikt Jasonarson, sem nú starfar
við kristniboðsstöðina í Konsó,
og í fyrravor þau Áslaug John
sen og Jóhannes Ólafsson,
kristniboðslæknir. v
En fyrir fimm árum var Ing
unn Gísladóttir, hjúkrunar-
kona, vígð og send til þess að
starfa við sjúkraskýlið í Konsó,
en þar hefur aðsóknin verið gíf
urleg, t.d. um 17000 sjúklingar
samkv. síðustu ársskýrslu. Ing
unn er nú í hvíldarleyfi heima,
en færeysk hjúkrunarkona,
Elsa Jacobsen starfar í hennar
stað á meðan, og munu þær
báðar starfa við skýlið í fram-
tíðinni.
Fjórðu hjónin voru svo vígð
sl. uppstigningardag, þáu Kat-
rín Guðlaugsdóttir og Gísli
Arnkelsson, en þau fara héðan
7 júní n.k. til Konsó.
Albert Schweitzer er þekkt-
ur og dáður að maklegleikum
fyrir sitt kærleiksrka og fórn-
fúsa starf í Afríku. En hér er
ungt fólk, íslenzkt, að hlýða
sömu köllun og' færa sömu
fórnir til þess að inna af hendi
Uppboð
Opinbert uppboð verður haldið eftir beiðni yfirsaka-
dómarans í Reykjavík að Fríkirkjuvegi 11 hér í bæn-
um fimmtudaginn 18. n.k. kl. 1 e.h.
Seldir verða allskonar óskilamunir.
Að sölu óskilamunanna lokinni verður uppboðið flutt
í tollskýlið á hafnarbakkanum hér í bænum og þar
seld allskonar húsgögn, vélar, grammófónplötur,
bækur o. m. fl. eftir kröfu tollstjórans' í Reykjavík,
bæjargjaldkerans í Reykjavík o. fl. Ennfremur ýmsir
munir úr dánarbúi Björgvins Jóhannssonar og Jónínu
Víglundsdóttur.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
samskonar starf, göfugasta og
háleitasta starf í heimi. Það
ætti að gleðja alla íslendinga
og hvetja til þess að styrkja
þetta starf af alhug.
Á kristniboðssamkomunni í
Laugarnesskirkju n.k. fimmtu
dagskvöld kl. 8,30 tala þau Jó-
hann Hannesson, prófessor, og
Ingunn Gísladóttir, hjúkrunar
kona í Konsó. Ennfremur verð
ur kórsöngur og einsöngur.
Að lokinni samkomu gefst
öllum tækifæri til þess að
styrkja kristniboðið í Konsó.
Þetta starf kostar mikið fé,
en er eingöngu rekið með frjáls
um gjöfum fórnfúsra kristni-
boðsvina.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir á Vorperlukvöldið í
Laugarnesskirkju á fimmtudag
inn. — J. S.
Eichmann —
(Frh. af bls. 7)
mér að skríða upp úr gröf-
unni. Eg leitaði að litlu
dóttur minni. Eg rakst á
tvær konur, sem enn voru
uppistandandi. Við heyrðum
.kallað: „Eg er á lífi. Hjálp-
ið mér.“ — Við vorum þarna
alla nóttina og heyrðum
stöðugt andvörp og kvala-
stunur deyjandi fólks. —
Daginn eftir komu Þjóðverj
arnir aftur. Þeir skipuðu
okkur að moka ofan í gröf-
ina, þótt þar væru enn marg
ir með lífsmarki Eg settist
niður og kringum mig hóp-
uðust nokkur börn, sem
sloppið höfðu, en svo komu
Þjóðverjarnir og skutu þau.
Við vorum fjögur á lífi, er
Þjóðverjarnir fóru. Við stóð-
um við gröfina og ég óskaði
þess að gröfin opnaðist og
gleypti mig.“
Vitnið kveðst hafa verið
þarna í nánd við gröfina í 3
sólarhringa. Loks komu
nokkrir fjárhirðar á vett-
vang. Hún segir, að þeir hafi
sennilega haldið sig vofu
eða vitskerta, og grýtt sig,
en svo rakst bóndi nokkur á
hana og sá aumur á henni,
og fór með hana í rjóður í
skóginum, þar sem nokkrir
Gyðihgar földust, og í skóg-
inum hafðist svo þessi fá-
menni hópur við til styrjald
arloka.
Er vitnið hafði lokið frá-
sögn sinni spurði ákærandi
dr. Servatius, verjandann,
hvort hann vildi yfirheyra
það. Hann hafnaði því boði.
Frú Yoseelevski er nú
gift kona í ísrael og á tvö
börn.
Hausner tilkynnti síðan
réttinum, að hann mundi
ekki leiða fleiri vitni til þess
að lýsa grimmdarverkum
nazista í Austur-Evrópu, og
láta nægja að leggja fram
skjalfesta vitnisburði.
A. Th.
Píanóleikaranum og hijóm-
sveitinni fagnað.
Ekki er fjarri sanni að
segja, að miklir fagnaðarfundir
hafi orðið í Þjóðleikhúsinu í
gærkvöldi, þegar Sinfóníu-
hljómsveitin hélt fyrstu tón-
leikana eftir hið langa þóf út af
framtíð sveitarinnar. Þjóðleik-
húsið var fullskipað í gær-
kvöldi fagnandi fólki á öllum
aldri, og var einna líkast því,
að það hefði endurheimt glat-
aða soninn.
Þá varð og sá viðburður á
þessum tónleikum, að með
hljómsveitinni lék einleik einn
mikilhæfasti og þjálfaðasti pí-
anóleikari, sem hingað hefur
komið, Pólverjinn Tadeusz
Zmudzinski. Það var svo sem
ekki amalegt að fá að heyra
píanókonsert eftir Chopin í
túlkun tveggja landa hans,
Styrktarfélagið
tók í taumana.
Sem svar við fyrirspurn í
Bergmáli 105. tölublaðs Vísis
13. maí sl. vil ég undirritaður
taka fram eftirfarandi:
Aðilar þeir, sem stóðu að
söngskemmtun ítalska drengs-
ins Róbertínós, buðu Styrktar-
félagi vangefinna kr. 1500.00
fyrir hverja söngskemmtun í
Austurbæjarbíó, og kr. 500.00
að auki fyrir hverja samkomu
í Storkklúbbnum, og féllst
stjórn Styrktarfélagsins á að
þiggja þetta boð.
Eftir að farið var að auglýsa
samkomur þessar kom í Ijós,
að þær samrýmdust ekki að öllu
leyti því sem um var talað. —
Ákvað ég sem framkvæmda-
stjóri Styrktarfélagsins þess
vegna að gera samkomulag við
aðila þá sem að skemmtunum
þessum stóðu, að yfirtaka fyrir
hönd Styrktarfélagsins rekstur
þessara söngskemmtana og
sótti jafnframt um undanþágu
frá skemmtanaskatti til ráðu-
neytisins.
Fjárreiður allar hafa verið
afhentar Styrktarfélaginu, og
ágóðinn rennur í félagssjóð.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ingólfur Þorvaldsson,
framkv.stj. Styrktar-
félags vangefinna.
hljómsveitarstjórans Wodiczko
og píanóleikarans Zmundzinski
sem einnig lék með hljómsveit-
inni verkið Nætur í görðum
Spánar eftir de Falla. Píanó-
leikarinn sýndi ákaflega þrótt-
mikinn leik, skýra afmörkun
og feikilega tækni yfirlett.
Fögnuður áheyrenda varð firna
mikill, og það fágæta gerðist,
að einleikari lék ekki aðeins
eitt heldur tvö aukalög, sem
sjaldan kemur fyrir á sinfón-
íutónleikum..
Tadeusz Zmudzinski.
í kvöld og annað kvöld leik-
ur Zmudzinski í Austurbæjar-
bíói fyrir styrktarfélaga Tón-
lstarfélagsins.
í Osló -
Framhald af 7. síðu.
tíðardagur Norðmanna mér fyr
ir sjónir og er vart hægt að
segja að margt sé líkt með
skyldum, heldur ólíkt. — Það
var mjög ánægjulegt að fylgj-
ast með þessu öllu En svo var
annað, sem var heldur óþægi-
legra og það var að komast að
á veitingahúsum. Þar voru alls
staðar mjög langar biðraðir og
var komið langt fram yfir há-
degi, er ég fékk fyrstu máltíð
dagsins. Ég gaf mér aldrei tíma
til að standa í biðröð til að
missa ekki af neinu, er hægt
var að sjá úti. — En er sultur-
inn fór að segja verulega til
sín, sýndi eg skilríki mín og var
þá strax hleypt inn.
Franch Michelsen.
Vestmannaeyjaferð ungra
Sjálfstæðismanna.
Ungir Sjálfstæðismenn
efna til ferðar til Vestmanna-
eyja um hvítasunnuna. Farið
verður á laugardag til Þor-
lákshafnar og þaðan með
bát til Vestinannaeyja. —
Komið verður til baka á
annan í hvítasunnu.
Siglt verður í kringum
eyjarnar, farið um Heimey,
horft á bjargsig o. fl. —
HÍjómsveit Svavars Gests
skemmtir á samkomunni á
hvítasunnudag. Ferðin er
farin á vegum Samb. ungra
Sjálfstæðismanna og Heim-
dallar, F.U.S.
Farseðlar eru seldir hjá
Heimdalli, Valhöll og á
skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins við Austurvöll.