Vísir - 25.05.1961, Side 1

Vísir - 25.05.1961, Side 1
12 síður alla daga alla daga 51. árg. Fimmtudaginn 25. maí 1961 114. tbl. Framfærslukostnaður aðeins hækka Þessi stúlka var aðalefni sérstakrar fréttar í brezka stór- blaðinu Evening Standard um Guðlaug Rosinkranz þjóð- leikhússtjóra. Já, það hljómar skringilega, en stúlkan var leiðsögudama hans og túlkur, eftir því, sem segir í frétt- inni, — þegar leikhússtjórinn var fyrit skömmu í Lundún- um til að kynnast nýjum Ieikritum og afla sýningarréttar. Stúlkan heitir Kristín Magnúsdóttir. Það er allt og sumt sem við vitum um stúlkuna. Forystumenn Dags- brúnar hafa undanfarið haldið því fram að vísi- tala vöruverSs, smásölu- vísitalan, sýni aS um all- mikla kjaraskerSingu hafi veriS aS ræSa und- anfarin tvö ár, þar sem sú vísitala sé nú 118 stig en hafi veriS 100 stig í marz. Er þetta m.a. ein af þeim röksemdum, sem Hannibal Valdimarsson, forseti A.S.I. drap hér á í blaSinu í gær og hann taldi réttlæta þær háu kaupkröfur, sem Dags' brún og önnur félög hafa nú sett f ram og nema allt aS 36% hækkun. Aðeins 3 dagar til stefnu! ★ Fundinum, sem sáttasemjari hafSi boðaS til í gærkvöldi, lauk um miðnættiS og var hann tíðinda- laus. Engin tilboð komu fram af hálfu deiluaðila, Vinnu- veitendasambandsins annarsvegar og Dagsbrúnar og Hlífar hinsvegar. Fundinn í gær sat ásamt Sáttasemjara ríkisins, Jónatan Hallvarðsson hæstaréttardómari, sem mun vinna ásamt Torfa að lausn deilunnar. Sátta- semjari hefir boðað annan samnmgafund í kvöld kl. 8,30. ★ ÞaS er að frétta af deilu byggingariðnaðar- manna að sáttasemjari hefir boðað til fyrsta fundarins með þeim í dg kl. 5. Mun Jónatan Hallvarðsson einnig taka þátt í þeim fundi. ★ Viðræður fóru. fram í gær milli atvinnuveit- enda og fulltrúa Vörubifreiðastjórafélagsins Þróttar. Gerðu fulltrúar þár grein fyrir sjónarmiðum sínum en engin tilboð komu fram á fundinum. Bílstjórar hafa ekki tilkynnt vinnustöðvun. Öákveðið er hvenær næsti samningafundur verður haldinn. Engin tilboð enn kownin frunt. Skírteini flugmanna er eitt þeirra mála, sem hafa verið á fundi Alþjóðaflugmála- stofnunarinnar (ICAO) í Montreal. M. a. var rættum eftirlit með líkamsþreki og dugnaði flugmanna, sérstak- ar reglur fyrir koptaflug- menn, aldurstakinark fyrir farþegaflugmenn (annað hvort ákveðinn aldur eða aðrar ákvarðanir um heilsu- far), ákvæði um lágmarks- aldur flugmanna, og ýmsar sérfræðilegar spurningar. Talnafalsanir kommúnista um 15-20% kjararýrnun. Hér grípa þessir forystu- menn verkalýðshreyfingar- innar til þeirra bragða að taka eina tölu út úr sam- hengi og draga af lienni á- lyktanir um almenna kjara- rýrnun. Verður sú mynd, sem þeir þar draga upp al- röng fyrir vikið. Það eru ekki breytingar á smásöluvísiölunni, sem gefa rétta mynd af kjörum al- mennings, heldur vísitala framfærslukostnaðar. Vísi- tala framfærslukostnaðar nær yfir alla þá þætti, sem þarf til framfæris meðalfjöl- skyldu, matvörur, húsnæði, Ijós, hita, opinber gjöld o. s. frv. Því gefur hún réttasta myndina af breytingum á kjörum almennings. Sú vísi- tala var árið 1959 100 stig. Hún er nú 104 stig. Með öðrum orðum, um að- eins 4% hækkun á fram- færslukostnaði hefur verið að ræða á síðustu tveimur árum. Allt tal kommúnisa um 15—20% kjararýrnun er því lireinn þvættingur. Fram færsluvísitalan er ekki tala, sem búin er til á ritstjórnar- skrifstofum Vísis. Hún er tala, sem mánaðarlega er út- reiknuð af Hagstofu íslands. ★ Almenningur verður að vera vel á verði gegn talna- fölsunum, eins og þeim sem hér hefur verið drepið á. Með því að taka aðeins cinn lið heildarvísitölunnar, svo sem smásöluvísitöluna, má fá mynd af ástandinu í land- inu, sem gefur til kynna um nokkra kjararýrnun sé að ræða. En þá er alveg sleppt að geta um að þar á móti koma hinar stórkost- legu skattaívilnanir, sem veittar hafa verið, og þar er ekkert tillit tekið til fjöl- skyldubótanna. En það er kannski eðlilegt að til slíkra bellibragða sé gripið, þegar í skyndi þarf að sanna, að framfærslu- kostnaður hafi hækkað um 15—20%, þegar hann Iiefur í raun og veru aðeins hækk- að um 4%. Sex farast í sprengingu. Sex manna er saknað og 9 særðust hættulega í spreng- ingu og eldi af völdum hennar í einni rannsóknarstöð Banda- ríkjaflughers. í stöð þessari munu hafa verið gerðar tilraunir með eldsneyti í eldflaugar. Þarr.a vinna um 200 manns. Þegar sprengingin varð lék allt á reiðiskjálfi á stóru svæði. Landsfundinum frest- að til hausts. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins samþykkti á fundi sínum í gær að fresta Landsfundi Sjálfstæðis- flokksins, sem ákveðinn var í júní-mánuði, til 19. okt. n.k. '

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.