Vísir - 25.05.1961, Page 3
Fimmtudaginn 25. maí 1961
3
VÍSIR
Mannalát meðal V.-íslendinga.
8. des. andaðist í elliheimil-
inu Stafholt, Blaine, frú Guð-
laug Jónsdóttir Teitsson, rúml.
82 ára að aldri, fædd í Rvk.
13/11 1878_ Foreldrar hennar
voru Guðbjörg Jónsdóttir og
Jón Oddsson hinn frækni hafn-
sögumaður um 30 ára skeið í
Reykjavík.
Hana lifir eiginmaður Daniel
Hannes Teitsson, tvær dætur,
tveir bræður og systir. Guð-
laugu lifa 15 barnabörn og 13
barna-barnabörn.
10. des. andaðist í Bellingham
Bandaríkjunum frú Jónína J.
Benson 86 ára, f. 1874, en kom
til Vesturheims ásamt móður
sinni Guðbjörgu Kristjánsdótt-
ur 1888. Jónina var gift Sigur-
bimi J. Benson, sem dáinn er
fyrir mörgum árum. Þau eign-
uðust 7 börn og lifa 4 móður
sína, 2 synir og 2 dætur.
27. des. andaðist frú Gróa
Sigurðardóttir í sjúkrahúsi í
Seattle, 50 ára að aldri. Hún
var fædd í Leslie, Kanada.
Hana lifa ásamt eiginmanni,
William Beck, ein dóttir, tvö
bamabörn, 4 systur og öldruð
móðir. Gróa var dóttir Sigurðar
Hafliðasonar, sem dáinn er fyr-
ir mörgum árum, og ekkju hans
Þórunnar, sem nú er vistkona í
Stafholti (ellih.). Frú Gróa er
sögð hafa átt margt skyld-
menna í Reykjavík og á Vest-
fjörðum. Sigurður faðir hennar
var fæddur og upp alinn í Bol-
ungavík.
3. jan.' andaðist í elliheimil-
inu Stafholt, Blaine, Björg
Guðmundsdóttir Þórðarson,
rúmlega 92ja ára að aldri. Hún
var fædd 14. okt. í Skriðudal
í S.-Múlasýslu, dóttir Guðm.
Gunnarsson og Rannveigar
Runólfsdóttur, sem bjuggu í
Geitdal. Björg giftist á íslandi
Guðmundi Þórðarsyni og flutt-
ust þau vestur um haf 1902.
Árið 1915 fluttist Björg með
börnum sínum vestur að Kyrra-
hafi, og átti lengstum heima í
Seattle. Hún var kunn hann-
yrðakona. Hana lifa 3 synir og
4 dætur.
5. jan. andaðist frú Ragnhild-
ur Stevens að Gimli. Hún flutt-
ist vestur um haf fyrir 57 ár-
um. Hana lifir eiginmaður,
John að nafni, og fimm synir
og 4 dætur. Hún var 69 ára.
Auk þess sem ofan greinir lifa
hana 27 barnabörn, tveir bræð-
ur og tvær systur, önnur á ís-
landi (ekki nafngreind).
7. jan. andaðist í Selkirk 69
ára Ami Sigurðsson, en hann
fluttist þangað frá íslandi 1904
og var trésmiður að iðn. Kona
hans, Guðrún að nafni, andaðist
1940. Árni lætur eftir sig son í
Vancouver, 7 barnabörn og 6
barna-barnabörn.
5. jan. andaðist í Winnipeg
Jakobína Alexander, 72 ára.
Hana lifa eigirmaður, sonur og
dóttir og 7 barabörn.
21. jan. andaðist í sjúkrahús-
inu að Siglunesi Anna Júlía
Sigfússon, fædd á ísíandi. Auk
eiginmanns lifa hana eiginmað-
ur, ein dóttir og fimm synir.
16. jan. andaðist í elliheim-
ilinu Stafholt í Blaine, Björn
Johnson f. 3. nóv. 1883 í
Reykjavík, sonur Jóns Runólfs-
sonar og Geirlaugar Björns-
dóttur, sem bjuggu í Stöðlakoti.
Björn fluttist vestur um haf
1904. f Vancouver kvæntist
hann Berthu Goodman, og flutt-
ust þau til Blaine 1882. Hún
er dáin fyrir nokkrum árum.
Af nánum skyldmennum lifa
Björn tveir bræður, Ólafur í
Reykjavík og Runólfur í Seattle,
Wash. og fimm systur, Guðrún,
María, Regína og Ingibjöx-g,
allar í Reykjavík, og Rósa
Bukava í Danmörku.
Á laugardag hófust viðræður milli fulltrúa útlágastjórnar Serkja
og Frakka í Evian, og er myndin tekin, þegar fulltrúar hinna
fyrrnefndu hafa stigið úr þyrlunni, sem flutti þá frá Sviss. Á
myndinni sjást frá vinstri: Franskur stjórnarfulltrúi, Ahmed
Boumendjel, Ahmed Francis og Krim Belkacem.
Nýlega gekk 94 ára gamall
maður í Bretlandi í hjóna-
band. Brúðurin var 74 ára
og hafði verið ekkja í 25
ár.
Ráðiíl sem dugiii var ai
sía sildina um bnri.
5000 tunnur af freðsíld fluttar
út frá Haraldi Böðvarssyni.
í APRÍL og maí vorp frystar
hjá Haraldi Böðvarssyni á
Akranesi 5000 tunnur af síld.
Sfldin hefur verið skoðuð af
matsmönnum og úrskurðuð út-
flutningshæf. Kaupendur hafa
og skoðað síldina og verður
hún flutt út til Þýzkalands á
næstunni.
Allmikið af síld, sem tekin
var til frystingar hjá sumum
frystihúsum reyndist við skoð-
un ekki ná þeim gæðaflokki er
samið hafði verið um við kaup
endur. Þykja því góð tíðindi,
að tekist hefur að frysta svo
mikið magn af síld, þegar þess
er gætt að síldin var mjög mis-
jöfn og viðkvæm.
Það mun hafa gert gæfumun
inn, að síldin sem tekin var til
frystingar var mjög mikið ís-
uð um borð í bátnum og svo
það "'atf hún"‘‘vat' stranglega
flokkúðrtiriú' ‘x frýstihúsið.
Síldin var yfirleitt þannig,
ef hún var ekki ísuð, að kvið-
urinn var orðinn ónýtur eftir
nokkrar klukkustundir. Með
því að ísa vel og vanda val síld
arinnar má eftir þessu að
dæma fi-ysta síld sem ella
myndi fara í bræðslu.
Síldai'bátar ætluðu út í morg
un, en komið var norðvestan
rok og ekki veiðiveður. Telja
sumir sjómenn að búast megi
við minnkandi veiði þar sem
síldin er komin að því að
hrygna.
Student boðln visf
í Niðarósi.
Verkfræðiháskólinn í Niðar-
ósi (Noregs Tekniske Högskole
Trondheim) mun veita a.m.k.
einum íslenzkum stúdent skóla
vist á hausti komanda. Þeir,
sem kynnu að vilja koma til
greina, sendi menntamálaráðu
neytinu umsókn um það fyrir
25. júní n.k. Umsókn fylgi fæð
ingarvottorð, staðfest afrit af
stúdentsprófsskírteini og með-
mæli. Umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu. — Athygli skal
vakin á því, að einungis er um
inngöngu í skólann að ræða, en
ekki styrkveitingu.
Götur steyptar
á Akranesi.
Frá fréttaritara V’ísis.
Akranesi í gær. —
í FYRRA hófust framkvæmd-
ir við endurbyggingu gatna á
Akranesi. Voru steyptar götur
á nærri hálfs kílómetra löng-
um kafla.
Nú er hafist handa á nýjan
leik og er í ráði að steypa tvo
til þrjá kílómetra í sumar. Und
irbúningur fyrir steypuna er
þegar hafinn, svo sem að ganga
frá holræsum og ýmsum leiðsl-
urn sem í götunum liggja.
Snögg
umskipti.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær. —
UM hvítasunnuna var 16 og 17
stiga hiti á Akureyri og hlýrra
þar en í nokkurri höfuðborg
hinna Norðuxiandanna og líka
hlýrra en í New York.
En í morgun hafði hitinn fall
ið niður í 1—2 stig, þá var hríð
arfjúk af norðri og orðið grátt
í rót til fjalla.
Þykir Akureyringum það
snögg viðbrigði og ill, þar sem
þeir lágu hálfnaktir í sólbaði í
görðum sínum um hvítasunn-
una, en í morgun ganga þeir
um norpulegir í kuldaúlpum.
Leysing hefur verið mikil til
fjalla undanfarið, ár og lækir
oltð fram kolmórauðir, enda
hefur Eyjafjörður af þessum
sökum verið mórauður langt
út eftir
Sprengíkúla og sprengi-
efni í jörðu á Seyðisfirði.
Kúlan sprakk með ógurleg-
um livelli.
Óperuhátíðin í Ziirich
hefst 3. júní.
Þar veróur flutt í fyrsta sinn óperan
Greek Passion" eftir Bohusiav Martinu.
n
Tónllistarhátíðin í Ziirich
hefst laugardaginn 3. júní með
sýningu á óperunni Der Rosen-
kavalier eftir Richard trauss,
og verða alls fluttar 15 óperur
á hátíðinni, sem stendur yfir
júnímánuð á enda.
Sunnudaginn 11. júní kemur
Ríkisóperan frá Múnchen í
heimsókn og flytur óperuna
„Saknaðaróður“ fyrir unga
elskendur, eftir Hans Werner
Henze undir stjórn tónskálds-
ins, og 9. júní verður í fyrsta
sinn flutt óperan , The Greek
Passion“ eftir Bohuslav Mart-
inu, undir stjórn Paul Sacher.
Aðrar þær óperur, sem flutt-
ar verða, eru „Cosi fan tutte“
eftir Mozart, „Hollendingurinn
fljúgandi11 eftir Wagner, „Ras
kolnikoff" og „Töfraflautan“
eftir Heinrich Sutermeister,
„Otello“ og „La Traviata“ eftir
Verdi, „A midsummer-Night’s
Dream“ eftir Benjamin Britt-
en, „Ariadne auf Naxos“ og
„Elektra" eftir Rich. Strauss,
„Manon Lescaut“ eftir Puccini,
„Samson og Delilah“ eftir
Saint-Saens og „Don Pasqu-
ale“ eftir Donizetti. — Allar
óperurnar verða fluttar á frum
málinu nema „Cosi fan tutte‘‘,
„Greek Passion“ og „Midsumm
er-Night‘s Dream“, sem fluttar
verða á þýzku. Aðalstjórnandi
verður Herbert Graf, óperu-
stjóri Borgaróperunnar í Zúr-
ich.
Þorkell Steinsson lögreglu-
þjónn í Reykjavík fór austur til
Seyðisfjarðar á hvítasunnudag
til að eyðileggja sprengiefni,
sem þar fannst í jörðu. Sprengi-
efnið er frá setuliðsdögum Breta
á Seyðisfirði.
Sprengiefnið er af tegund-
inni ammonal. Fundust 84 túb-
ur af því í þremur blikkdúnk-
um og var sprengiþráður vaf-
inn blýi tengdur í dúnkana.
Dunkarnir voru frá 3 til fimm
fet frá jörðu. Fór Þoi'kell með
sprengiefnið inn fyrir bæ og
sprengdi það. Megnið af því
var orðið ónýtt, þar eða vath
hafði komist í dunkana en þeir
munu hafa legið í jörðu í tutt-
ugu ár.
Haldið er áfram að leita að
sprengiefni. í morgun er Vísir
talaði við Ex-lend Björnsson
bæjrfógeta hafði ekki meira
sprengiefni fundist.
Það var af hreinni tilviljun
að sprengiefnið fannst. Hans
Benjamínsson vélsmiður var á
gangi á þessum slóðum, er
hann minntist þess að Bretar
hefðu grafið sprengiefni í
á þessum stað.
jörð
Sprengikúlan virk.
Fyrir nokkru fnnst sprengi-
kúla úr fallbyssu hér í ná-
grenni bæjarins. Maður nokkur
var að plægja mýri sem verið
hafði skotæfingasvæði Banda-
ríkjamanna. Tók hann eftir að
glampaði á eitthvað í plógfar-
inu og reyndist það verða heil
fallbyssukúla. Var kúlan síðan
geymd og sprengd um daginn.
Sprakk hún með geysilegum
hvelli.
Kyrrt í Genf
fram yfir Víitarfuncð.
Kyrrstaða mun verða á Gen-
farráðstefnunni í Laos næstu
10 daga — aðallega rætt um
hversu hag x skuli meðferð
mála.
Er talið víst, að málum muni
lítt eða ekki þoka áfram fyrr
en að loknum fundi Kennedys
0£f Krúsévs.