Vísir - 25.05.1961, Side 7

Vísir - 25.05.1961, Side 7
Fimmtudaginn 25. maí 1961 VÍSIR 7 Osigur Krúsévs á síðasta þingi Sameinuðu þjóðanna. Fimmtánda Allsherj- arþing Sameinuðu þjóð- anna, sem lauk í apríl- mánuði síðastl., mun vafalaust verða talið eitt hið minnisverðasta í sögu þeirra. Á þessu þingi beið Nikita Krusév, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, mikinn ósigur. Hann reyndi að leggja að velli Dag Hammarskjöld, framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna. Honum tókst það ekki. Og hann reyndi að breyta fyrir- komulaginu á framkvæmda- stjórn þeirra eins og bezt hent- aði valdhöfunum í Kreml. Til- lögur hans í þessu efni náðu ekki heldur fram að ganga. Hér var haldið áfram í sama dúr og í fyrrahaust, er hafin var barátta fyrir því, að fram- kvæmdastj órnin skyldi skipuð þremur mönnum í stað eins. Hlutverk framkvæmdastjórans hefur verið og er að fram- kvæma ákvarðanir, sem Sam- einuðu þjóðirnar hafa sam- þykkt, en með þeirri skipan, sem Krúsév vildi koma á, hefði verið girt fyrir, að það alþjóð- legasamstarf, sem þær hafameð höndum, í þágu friðar, öryggis, mannúðar, menningar og fram- fara, yrði framkvæmt óhindrað, því að með hinni nýju skipan hefði verið svo um hnútana bú- ið, að kommúnistaríkin eða fulltrúi þeirra í framkvæmda- stjóminni hefði, er honum bauð svo við að horfa, getað beitt neitunarvaldi. Nú var það að vísu svo, að fulltrúi vestrænu þjóðanna, í þriggja manna framkvæmdastjórn hefði haft sama neitunarvaldsrétt. Einnig þriðji fulltrúinn, — fulltrúi hlutlausu þjóðanna, eða þeirra, sem standa utan samtaka vest- rænu þjóðanna og samtaka kommúnistaríkjanna. En reynslan hefur sýnt, að í Ör- yggisráðinu hafa frjálsu þjóð- irnar aldrei misnotað þetta vald, en Sovétríkin notað það óspart. Sporin hræða — menn óttuðust að vonum, að sagan myndin endurtaka sig í þriggja manna framkvæmdastjórn. Niðurstaðan varð líka sú, að tillögurnar náðu ekki fram að ganga. Allsherjarþingið hafnaði þeim. Vestrænu þjóðirnar greiddu atkvæði gegn þeim, gömlu hlutlausu þjóðirnar, og flest þeirra Afríkuríkja, sem nýlega hafa fengið sjálfstæði sitt viðurkennt, og vakti afstaða þeirra langsamlega mesta at- hygli. Þær greiddu atkvæði gegn þeim, vegna þess að fulltrúarn- ir gerðu sér fulla grein fyrir af- leiðingunum. Samþykkt hefði raunverulega verið staðfesting í grundvallaratriðum á þeirri skiftingu þjóðanna í heiminum, ^sem nú er staðreynd, — að hún Grein þessi er eftir brezka útvarpsfyrirlesarann og blaðamanninn Fredrick Legge, en hann flytur að staðaldri fyrirlestra um al- þjóðamál í B.B.C. skyldi viðurkennd innan vé- banda Sameinuðu þjóðanna, en yfir þeirri skiftingu, sem bygg- ist á mismunandi stjórnmála- legum stefnum, hvílir vissulega engin helgi. í öðru lagi mundi neitunarvaldsrétturinn, þriggja manna framkvæmdastjórn, hafa orðið til þess að hindra fram- kvæmd ákvarðana Sameinuðu þjóðanna varðandi Kongó og Nikita Krúsév. önnur lönd, væru þær ákvarð- anir ekki í samræmi við stefnu kommúnista. Krúsév og félagar hans í sovézku sendinefndinni furð uðu sig á afstöðu hinna nýju Afríkuríkja. Þeir höfðu talið víst, að hinn mikli áróður þeirra gegn „heimsvelda- stefnu auðvaldsríkjanna" hefði borið þann árangur, að fulltrúar hinna nýju Afríku- ríkja myndu samfylkja þeim á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna. Það, sem kommúnistaleiðtog- arnir höfðu ekki skilning á, var það, að þessar þjóðir töldu vettvang Sameinuðu þjóðanna hinn mikilvægasta fyrir þær sjálfar, til þess að túlka þar sín- ar eigin skoðanir sem frjálsar þjóðir. Þær litu svo á, að það væri í þeirra þágu, að stofnun Sameinuðu þjóðanna væri haf- in yfir átökin í köldu styrjöld- inni. Krúsév urðu og önnur alvar- leg mistök á, þ. e. að reyna að knýja vilja sinn fram með of- forsi. Þegar hann í ofsa sínum greip til „sjónarspils-aðgerða“, eins og þegar hann tók af sér annan skóinn og barði með hon um í borðið á fundi sjálfs Alls- herjarþingsins, eða er hann kom fram á svalir gistihússins í New York, sem hann bjó í — hafa ef til vill sum hinna nýju Afríkuríkja kennt beygs í svip, en hneykslan þeirra yf- irgnæfði beyginn. Þeir voru sér nefnilega meðvitandi um þann virðingarauka sem því fylgdi, að vera fulltrúar stjálfstæðra þjóðar, og hinar grófu tiltektir vöktu fyrirlitningu þeirra. Nú er það augljóst mál, að athuga ber hvort breyta þarf skipan Sameinuðu þjóðanna, starfsaðferðum o. s. frv., og vafalaust koma umbætur til, er fram líða stundir, en sú var hin almenna skoðun á Allsherj arþinginu, að núverandi skip- an, einkum að því er varðaði framkvæmdastjórnina, stæði langt framar þeirri tilhögun, sem kommúnistar vildu koma á, Fimmtánda Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er einnig minnisvert fyrir það af hve mikilli virðingu og ábyrgðartil- finningu hinir nýju fulltrúar koma fram, er þar mættu þarna til þings sem nýir menn. Hörðust átök urðu á þinginu varðandi áðurnefndar tillögur Sovétríkjanna, enda var það vegna þess hversu aðgerðir Sameinuðu þjóðanna fóru úr hendi, sem Krúsév fór svo geist sem fyrr var getið. í þessu efni kom einnig frá öðrum en komm únistum gagnrýni á fram- kvæmdastjórnina, en þess ber að minnast, að ekkert fordæmi var fyrir slíku hlutverki, sem þær tóku þar að sér. En sú var hin yfirgnæfandi skoðun á Allsherjarþinginu, að ef ekki hefði verið vegna afskipta og aðgerða Sameinuðu þjóðanna í Kóngó, hefði þar orðið algert öngþveiti og hrun, og ef það hefði gerzt hefðu kommúnistar án nokkurs vafa notað sér það til að ota sínum tota í köldu styrjöldinni. í sann leika sagt hefði Afríka öll get- að orðið nýr vettvangur köldu styrjaldarinnar. í stuttu máli: Fimmtánda Allsherjarþingið staðfestir á- kvörðunarfrjálsræði hinna smærri þjóða til þess að fylgja þeirri stefnu, sem þær álíta rétta, hvað sem líður togstreitu og væringum stórveldanna. Þegar undanteknar eru þær þjóðir, sem eru í hinni komm- únistísku samfylkingu, létu þær ekki stórveldahagsmuni ráða gerðum sínum. Samtímis varð það enn ljósara en áður, að geti Sovétríkin ekki notað Sameinuðu þjóðirnar sem verk færi, er tilgangurinn að lama þær, ef ekki að koma þeim fyr- ir kattarnef. Þrjár málverkasýningar „Hin gömlu kynni gleymast ei“, segir skáldið, og þótt ekki glói dýrar veigar á hverri skál, þá er þó oft forvitnilegt að rifja þau upp. Þessa dagana sýna þrír af listamönnum okkar, sem nú tilheyra eldri kynslóðinni, verk sín og eiga þeir allir lang- an starfsferil að baki í heimi myndlistarinnar. Hver þeirra um sig á að sjálfsögðu sinn hóp aðdáenda, eru okkur kunnir frá „gamalli tíð“ og hafa farið sínar eigin götur, án teljandi stíl- breytinga. □ mjög í sama dúr og fyrri mál- verk listamannsins. Bezt þeirra tel eg vera nr. 18, úr Kerlingar- fjöllum, þar sem litirnir eru tærari en víða annars staðar, svo að kyrrlát stemning sum- ardags í óbyggðum kemur vel fram. Margt úr lífi mannfólks og málleysingja vekur athygli listamannsins og verður honum frásagnarefni, svo sem títt er um naturalista, en þeirri stefu hefur Eggert fylgt trúlega, þótt fleiri þeirra ungu telji hana forkastanlega. Um það eru að vísu skiptar skoðanir, en ekki Eggert Guðmundsson: I Jökuldjúpinu. Eggert Guðmundsson hefur sýningu í Iðnskólahúsinu á 48 myndum, olíumálverkum og teikningum og eru sumar teikn- inganna gerðar á striga og all- stórar. Margar teikningarpar eru um þjóðsöguleg efni, svo og sum málverkin, en eitthvað finnst mér óhugnanlegt við ýmsar af þessum myndum og veldur þar fyrst og fremst efni það, sem til meðferðar er tekið, en þó mun einnig koma til greina, að naturalistiskur túlk- unarmáti sé ekki alltaf heppi- legur við það, sem í eðli sínu er dularfullt. „Þvottakonur“ fannst mér vera bezt teikning- anna, efnið óbrotið og hvers- dagslegt og ekki ofteiknað. Eggert er hagleiksmaður mikill og vandvirkur, en þessir ágætu eiginleikar geta þrengt um of að skáldlegri túlkun. Mörg olíu- málverk eru af landslagi og er alltaf mest um það vert, að kasta því gamla, heldur að gera það nýtt, jafnframt nýju land- námi í ríki listarinnar. □ Finnur Jónsson sýnir í Lista- mannaskálanum og er þar fjöldi mynda, bæði í olíu og vatnslitum. Síðast hafði Finnur sýningu í vinnustofu sinni og var þá langt liðið frá síðustu sýningu, svo að þetta má heita eina stórsýning hans um langt árabil. Á námsárum sínum í Þýzka- landi kynntist Finnur þeim stefnum í myndlist, er mikið hafa látið að sér kveða síðan, en voru þá í deiglunni. Þannig varð hann fyrstur íslenzkra listamanna til þess að iðka ó- hlutlæga list og var Kandinsky, einn aðaloddviti hennar og Frh. á 11. Finnur Jónsson: Adam og Eva.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.