Vísir - 25.05.1961, Qupperneq 11
Fimmtudaginn 25v maí 1961
VlSIR
Málverkasýtiingar -
(Frh. af bls, 7)
framherji, þá maður dagsins.
Teórískur þessa nýja stíls urðu
Finni þó ekki heilagar kýr er
heim kom og munu þó önnur
sjónarmið hafa átt sinn þátt í
fráhvarfi hans, en síðan hefur
margt skeð í heiminum. Á þess-
ari sýningu eru þó fáeinar
myndir, sem eru eins og endur-
ómar frá liðnum dögum og
Kandinsky, eða með öðrum orð-
um nonfigúratívar, án þess þó
að bæta nýjum tón í þá sin-
fóníu.
En það voru fleiri ishiar, sem
athygli vöktu á fyrstu árum
aldarinnar, svo sem fauvismi og
expressionismi, sterkir og „há-
vaðasamir“ á köflum. Á þeirra
vegum hefur Finnur málað
flest sín verk og mótað sinn
stíl, sem er og hefur verið per-
sónulegur. Hanri hefur ekki gert
gælur við það snotra, heldur
barið hamri sínum allfast á
köflum og er þá máske lítið
undrunarefni, þótt sumum
kunni að sýnast sem svo, að
höfuð naglans hafi endrum og
eins sloppið. „Kvöld á Þingvöll-
um“ er afar litasterk mynd, en
þrátt fyrir það heldur hún jafn-
vægi sínu og er ákveðin heild,
svo að við getum kinkað kolli
og sagt, að þetta sé ósvikinn
fauvismi, en þegar einn sjó-
maður siglir hraðbyri inn í
eldrauðan voðann, þá erum við
tæplega lengur með á nótunum.
Að vísu eru þarna hæglátari
Jóhann Briem: Via appia í Róm.
myndir, svo sem nr. 23 „Við
sandinn“ og líka mætti nefna
eina vatnslitamynd, þar sem
lítið mótív er skemmtilega
túlkað á naturalistiska vísu.
□
Jóhann Briem hafði sýningu
í Bogasalnum haustið 1959 og
þar sýnir hann aftur nú. Þau
26 málverk, sem þarna eru,
munu flest 'vera ný, en ekkert
þeirra kemur á óvart, sem kall-
að er. Við skoðun þeirra kemur
enginn ismi í hugann, því svo
virðist allt þetta vera óþvingað
og óeðlilegt, að það hafi eigin-
lega orðið til eins og af sjálfu
sér, þótt að baki sé mikil gjör-
hygli og einbeiting. Fáir lita-
fletir í hverri mynd, en lifandi
og þeir hvítu taka sinn þátt í
samspilinu. Sambandið við
veruleika náttúrunnar sýnist
vera lítið en er þó aðalþáttur-
inn. Manneskjur og dýr eru
vegna heildarinnar. Tvö lítil
börn horfa út yfir dimmt og
dularfullt hafið, sem yrði allt
annað án þeirra. Lítið hvítt
lamb í grænni brekku, sem
verður þungamiðja, án þess að
vera nokkuð sérstakt. Það er fá-
nýtt að skilgreina mótívið á
venjulegan hátt, en það verður
þó ekki útilokað og á uppruna
sinn í hug listamannsins sjálfs
á kyrrlátum stundum í vinnu-
stofunni.
öb i9q ón;)æ Felix.
jrjp> 7,'r* ■♦'oofAf;
Aðalfnndur
SÖLUSAMBANDS ÍSL. FISKFRAMLEIÐENDA
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík,
föstudaginn 26. maí þ. á. og hefst kl. 10 f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreyting.
STJÓRNIN.
Aðalfnndnr
\
LÍFEYRISSJÓÐUR LÖGMANNA
verður haldinn í Tjarnarcafé (uppi) föstud. 26. maí
kl. 5 síðdegis.
Tekið verður á móti nýjum sjóðsfélögum.
Stjórnin.
TUNÞÖKUR
velskornar.
Trjáplöntur
Blámplöníur
Símar 22-8-22 og 19775.
tf
Yerzlunarmatitiafélag
Reykjavíkur
Efnir til félagsfundar í Iðnó laugardaginn
27. maí n.k. kl. 2 e.h.
Fundarefni: Samningarnir.
Stjórn V.R.
snið
Nýjasta Evróputízka
Karlmannaföt
og frakkar
Nýtízku snið
Nýtízku efni
Hiiémah
Kjörgarði.
Bezt a5 auglýsa í VÍSI
íi
Reimleikar
grern Péturs Benediktssonar -
Frh. af 2. síðu.
eftirspurn skapar, verður
ævinlega svo mikil að
eyðsluskuldir myndast er-
lendis meðan nokkurt láns-
traust er eftir — eða stjórn
málaflokkar geta veðsett
sannfæringuna fyrir doll-
ara. Þjóðin er þá farin að
veita sér meira en efnin
leyfa, farin að lifa eftir hinu
gamla kjörorði: engin dýr-
tíð á Vopnafirði, allt skrifað,
en hætt að búa í haginn fyr-
ir sonu sína og dætur, sem
erfa ekki aðeins landið held-
ur og skuldirnar.
Við þekktum þetta ástand
fram til ársloka 1958, þegar
meirihluti þings, hinn fram-
sýni, ákvað að spyrna við
fæti. Síðan hefur verið farið
inn á aðra braut, og víst má
segja að vegurinn út úr eyði
mörkinni sé þyrnum stráð-
ur. Eyðslulán að vestan bæt
ast ekki lengur við eðlileg-
an kaupmátt landsins barna
þótt nú sé hins vegar að
skapast grundvöllur fyrir
alþjóðalánum til skynsam-
legra, arðbærra fyrirtækja,
eins og t.d. aukningar hita-
veitunnar. Skuldir sem við
stofnum til í ár verða að
greiðast að ári — eða síðar
ef svo um semst — með
krónum sem hafa sama verð
mæti og þær sem teknar
voru að láni, óneitanlega
miklu óþægilegra en að fá
að greiða þær með miklu
verðminni og því fljótfengn
ari krónum, eins og lengi
hafði tðíkast. En það er þá
jafnframt óhætt að Ieggja
peninga til hliðar, geyma
frá góðu árunum til hinna
hörðu, án þess að þurfa að
óttast að allt hverfi í verð-
bólguhítina.
Það er óhætt, ef við stönd
um vörð um stefnu heil-
brigðrar skynsemi í efna-
hagsmálunum. Og nú má
enginn sofna á verðinum,
því að vofur scm harma svip
hins liðna ófremdarástands
eru komnar á kreik. Sigur
þeirra væri ósigur krónunn-
ar.
Pétur Benediktsson.
Universal
Við fengum nýja sendingu af hinum eftirspurðu ORION-
universal prjónavélum. Þeir sem hafa pantað hjá okkur
eru beðnir að láta vita strax, því síðasta sending seldist öll
sama daginn.
ORION-universal prónar allt jafnt sverasta
ullargarn sem fínasta nælongarn.
umboöLC
Bolholti 6, sími 37320.
ÚTSÖLUR:
Valdcmar Long, Strandgötu 39, sími 50288, Iiafnarfirði.
ÞÆH KDMU
í GÆH
v